Vísir - 31.01.1915, Blaðsíða 4
j.........n'" ' ' —-
f Frá Slgrfður AsmundsdótHr,
kona Jóakims Jóakimssonar tré-
smíöfmeistara á ísafirði, dó 29. þ
m. Húp var systir Edvaras kaupm.
sem dó fyrir skðmmu. Var hún
mesta heiðurs og sæmdarkona.
Þýskar kvikmyndir
frá stríðinu.
Eitt af þvf, sem ekki á sístan
þátt í þv/, að stæla Þjóðverja í ó-
friðinum, eru kvikmyndir þær, er
nú eru sýndar þar daglega.
Svo er sagt, að kvikmyndafélag
eitt í Berlfn hafi fengið einkaleyfi
til þess, að taka og sýna kvik-
myndfr frá stríðinu, auðvitað undir
yfirumsjón og eftirliti herstjórnar-
innar, og séu nú 150—200 slíkar
myndir á ferðinni um alt þýska
ríkið, en síðan eigi að senda þær
til hlutlausra þjóða, og munu þær
þá vera komnar til þeirra nú.
Tíðindamaður blaðsins »Daily
Mail«, sem þó segist vera þegn
hlutlausrar þjóðar, skiftir myndum
þessum niður í fjóra flokka, cftir
eöli þeirra og tilgangi. Þessir fjórir
flokkar eiga að sýna:
1. Að ófriðinum hafi verið néytt
upp á Þjóðverja af óvinum þeirra,
einkum Rússum, er hafi vaðið upp
á þá og farið um alt báli og brandi,
m<skunnarhust.
2. Að þýska þjóðin og þýski
herínn bafi kastað sér út í stríöið
gunnreifur og fús til sjálfsvarnar og
sjálfsfórnar.
3. Hve geisibyrgir Þjóðverjar séu
af mðnnnm og hergögnurn og
hvernlg þeir hagnýti sér þaö með
meira en menskri atorku.
4. Mannúð heHlokka keisarans,
emkum þó í hinni sigruðu Belgíu
og hið skínandi góða skap, erþeir
séu í, mitt í mannraunum sfnum
og hættum.
Mikið lætur greinarhöf. yfir því,
hve afarsterk áhrif myndir þessar
hafr haft á alla, sjálfan sig líka.
»Jainvel þótt mér væri kunnugt um
það«, segir hann, »að myndirnar
höfðu sinn ákveðna tilgang, þótt eg
vissi, að níu af hverjum tíu þeirra
væru að öllum líkindum »tilbún-
ingur«, þá tók eg eftir þvf, að á-
horfendurnir urðu þess ekki varir«,
$vo ótölulegur segir höf. að her-
mannagrúinn sé, svo eðlilegar sýn-
ingarnar frá hernaði Rússa á Aust-
ur-Prússfandi og flótta íbúanna, að
hann sé alveg stórhrifinn, hvað þá
Þjóðverjamir, Svo mikið segir hann
að sé sýnt af friðsamlegum og
mannúðlegum störfum þýskra her-
manna á vígstöðvunum, að helst
mætti af þvf ráða, að þeir berðust
ekki nema í hjáverkum, en annars
væri aðalerindið það, að breiða út
mannúð og menningu meðal þjóð
anna, sem þeir eiga í höggi við.
Lesið auglýsingarnar í Vísi og
verslið við þá sem í honum auglýsa.
P»r fáfð pio otsur kaupin.
Frá Frökljup.
Þeir neita að »Combet sé
sokkln.
Frakkar neita |3vf eindregið, að
frétt sú, sem Þjóðverjar og Aust-
urríkismenn hafi látið berast út
að fiaggskipinu »Combet« hafi
verið sökt, sé sönn.
Skipið, sem kafbáturinn U 12
réðst á í lok desembermánaðar,
var »Jean Bart«, er að eins skemd-
ist að framan, og var svo flutt
til Malta til aðgerðar. Flaggskip-
ið »Combet« var enn þann 5. þ.
m. með franska flotanum og
hafði þá ekki orðið fyrir neinum
skemdum. Það er eigi heldur
rétt að segja að »Combet« og
»Jean Bart« séu tvö stærstu skip-
in f flota Frakka. Bryndrekarnir
»France« og »Paris« eru bæði
jafn stór hinum.
f frönskum blöðum er þess
getið þeim mönnum til leiðbein-
ingsr, sem mundu vilja ferðast
til Nissa eða Azurstrandarinnar
(la bote d’Azur), að öll Bamgöngu-
tæki séu konrin í samt lag aftur,
að lífið sé þar, að undanteknum
hát'ðahöldunum á götunum, al-
veg eins og vanalega gerist. Með
öðrum orðum: ferðamenn, sem
þangað komi, geti átt þar vísa
von ró og friðar, biómskrauts og
sólskins.
Þessa vísu kvað merkur bóndi á
Norðurlandi skömmu fyrir andlát
sitt. — Hann var góður drengur
og höfðingi sinnar sveitar:
Meinum gallaö mitt er hold,
máttur allar þrotinn —
eg fer að halla höfði að mold,
hinir fjalla um brotin.
Eyjólfu'r Ijóstollur var einhverju
sinni staddur á Þingvðllum. Var
hann eitthvað ilia skóaður, en grið-
konur voru að fjasa um að hann
væri ekki sem siölegastur. Leysti
Eyjólfur þá af sér skóna og fekk
einni griðkonunni þá, og lét vísu
þessa fylgja:
Þótt eg sé dóni að allra sið,
ei sem þjónað verður,
taktu skóna og tyltu við,
títuprjóna Gerður.
Það var á bæ einum fyrir norð-
an, að þrír menn þáöu þar gist-
ingu eina nótt í skammdeginu. Hét
einn þeirra Baiði, annar Gísli og
hinn þriðji Sigurður. Þegar leið
á vðkuna, skipuðu konur þeim til
sængur, og attu þeir Baröi og
Gtsli að sofa saman, en Sigurður
einn í rúmi gegnt þeim. Þeir
háttuðu þá sinn í hvoru rúmi,
Barði og Sigurður, en Gísli settist
á fótskör framar í baðstofunni og
kvað svo að búsbóndi mátti heyra:
Sigurði vil eg sofa hjá
svo eg verði kyrii,
en Barða hefi eg bölvun á
bæði nú og fyrri.
»Sofa skaltu hjá Sigurði, Gfsli
minn«. mælti bóndi, og lét Gísli
t'iinli i ~ mrrrT"rrrtiiiitmrr
éfcfci segja~sér það tveim sinnum.
Daginn eftir áttu þeir samleið, Gfsii
og Barði. Fór Barði fyrir, því
ekki vildi Gfsli ganga honum sam-
hliða. Átlu þeir yfir á að fara og
var hún þá ný'ögð. Barði gekk
| út á ísinn, og haföi reku í hendi,
j Gísla dvaldist eftir á bakkanum
og batt hann skó sinn. En er
Gfsli leit upp, sá h?nn ekkert til
Barða, en rekunrii sá hann snöggv-
ast bregða fyrir upp úr vök í mlðri
ánni. Lik Barða fanst aldrei, og
hafa menn það fyrir satt, að Gísli
hafi séð feigð á manninum kvöld-
inu áður.
STAKA:
Valt er þetla veraldar hjól,
vill oss heimur ginna,
ef ekki er undir einum skjól
annan stein má finna.
Eigandaskifti urðu á jarpri reið-
meri. Nýi eigandinn slátraði henni
og át. Þá kvað hinn:
Mæðan stranga mjög er skörp,
mér finst langur skaðinn,
Ólafur svangur étur Jörp.
Ég má ganga í staðinn.
Skeiti nefið af konunni
sinni með tönnunum.
M1 -T T innilégasta þakklæti
votta eg hérmeð öllum
þeim, sem á einhvem
hátt hafa sýnt mér hluttekningu
við fráfall og jarðarför minnar
elskulegu dóttur, Quðbjargar
Jónsdóttur. Sérstaklega þakka eg
hinum háttvirtu prestum í Landa-
koti og St. Jósefssystrunum þeirra
kærleiksrfku umhyggju fyrir hinni
látnu. Einnig þakka eg vökukonu
þeirri, sem síðast stundaði mína
hjartkæru dóttur, hennar sérstöku
alúð og umhyggju.
Sigríður Jónsdóttir.
Brekklistíg 7.
K E N S L A
S t ú I k u r geta fengið að læra
að taka karlmannafata-mál. Uppl. á
Vesturg. 33.
K e n n a r i tekur að sér að segja
til byrjendum i ensku og dönsku
fyrir lítið verð. Afgr. v. á.
K e n n a r i tekur að sér að hjálpa
börnum fyrir lítið verð. Afgr. v. á.
N o k k r a r stúlkur geta fengið
að læra að taka mál og sníða kjóla
hjá Sigríði Ólafsdóttur, Ingólfsstr. 7.
Þeir eru sumir farnir að verða
hræddir um að það. fari að koma
upp nýir siðir hérna. Brennvíns-
gæslumaður einn, Malloy að nafni,
hafði fundið eiMhvað af dropununt
rauðu, þar sem þeir áttu ekki og
máttu ekki vera, og tók þá til sfn.
En þeir voru gimilegir, og fór
hann að gfeðja sig á þeim og
hressa upp á samviskmsa. Fór hánn
svo kátur vel heim til konu sinnar,
en út úr því varð þe m eithvað
sundurorða og fóru í hár saman.
Lítur út, sem bónda hafi veitt mið
ur, þvr að hann tekur það úrræði,
að bíta meira eða minna framan af
nefi konu sinnar. Honum hefir
fundist hann eiga nefið eins og
konuna og geta gert við það hvað
sem hann vi'.di, eð» hún hefir verið
spör á kjötmu við hanu.
En svo kom þetta tyrir dómar
ann, sem tók ofan í við mannæ'-
una og gaf honum ársvist f tukt-
húsinu og skyldi hann þar að auki
hýðast strax 8 vandarhöggum, en
7 þegar hann færi, Sagt er aö Malloy
hyggi ekki vel til heimkomunnar.
Þetta skeði f Winnipeg 3. þ. m.
ÞE I R sem kynnu að vilja koma
kúm til beitar f Bessastaöa-
nes, á næstkomandi sumri.
eru vinsamlega beðr.ir að snúa sér
undirritaðs, sem fyrst. Flutning á
mjólkinni og mjöltum verður þann-
ig hagað að það verði hlutaðeig-
endum sem ódýrast.
Einnig verða hestar teknir til
beitar á sama stað, og annast um
sókn og flutning þeirra.
&ew &tt&mut\dssot\
■ : Suðurgötu 14, (uppi)..
KAUPSKAPUR
Brúkað reiöhjól óskast til
kaups, með sæmilegu verði. Afgr.
v. á.
B r ú k u ð troliarastígvél til sölu.
Afgr. v. á.
L í 1 i ð brúkuö barnavagga ósk-
ast til kaups. Afgr. v. á.
I
Fæði fæst á Laugaveg 17.
L E I G A
G o 11 píanó óskast til leigu
f nokkra mánuði. Afgr. v. á.
VI N N A
OL
Sendisveinar fást ávalt í
Söluturninum. Opinn kl. 8—11.
Sími 444.
Á G r n n d a rs 11 g 5 fæst strau-
að fyrir lágt verð, sömuleiðis teknir
als konar saumar, tóvinna og vtð-
gerð á fótum.
I nnheimtumaður óskast
strax. Afgr. v. á.
H ú s v ö n stúlka óskast nú þeg-
ar tii 14. maf á Grettisg. 38, uppi.
H Ú SNÆÐI
2 — 3herbergi og eldhús
eru til leigu nú þegar. Afgr. v. á.
H e r b e r g i til leigu nú þegar.
Afgr. v. á.
Prentcroiðja Sveins Oddssonar.