Vísir - 07.03.1915, Side 4
V (Slft
í Likv. sélur, 24. f. m,, t»ór-
arni Egilssyni skipið Ouörúnu
RE 77 á 3280 kr.
3. Ámundi Ámundason' gefur, 2.
þ. m., Jónínu Jódísi dóitur
sinni húseignina nr. 26 B viö
Vesturgölu og lóðareign 1684
ferálnir að stærð.
4. P. H. F. Schmidt í Bergen sel
ur, 26. nóv. f. á., Gísla Bjarna-
syni húseignina nr. 34 við
Grettisgötu, fyrir 4 500 kr.
Dagbókarblöð
knattborðssveinsins
eftir Leó Tolstoj.
---- Frh.
Einu sinni kárnaði þó gamanið
milfi hans og Langs. Deilunni olli
þó mesta smáræði. Þeir léku á
la guerre: furstinn, Langur, Nech-
ljudow, Oliver og einhverjir fleiri.
Nechljudow stóð viö ofninn á tali
við einhvern. Langur var að slá
og kúlan hans var komin beint á
móti ofninum, og honum var mjög
í mun, aö ná henni þaðan.
Nú — hvort sem hann hefir ekki
séð Nechljudow eða gert það af
ásettu ráði — en þegar bann slær,
þá setur hann stöngina fyrir brjóstið
á Nechljudow og þaö allhart. Hann
veik óðar úr vegi. En hvað varð ?
Ekki var Langur að biðja afsökun-
ar — þvílíkur hrotti! Hann hélt
áfram óhikandi og mælti: »Þurftuð
þér endilega að troðast þarna ?
Vegna þessa manns gat eg ekki
unnið leikinn. Það fer að minka
rúm hérna inni«,
Nechljudow gekk til hans æði
brúnaþungur og sagði kurteislega,
eins og ekkert hefði í skorist:
»Þér hefðuð nú átt að biðja mig
afsökunar fyrir höggið, herra rninn*.
»Eigi hirði eg um það«, mælti
hinn. »Eg hefði unnið núna, ef
þér hefðuð ekki sfaðið í vegi«.
Aftur mælti Nechljudow: »Þér
verðið að biðja afsökunar*.
»Snáfið þér frá«, svaraði hinn,
»þér eruð býsna nærgöngull*.
Og hann leit ekki af kúlna-
borðinu.
Nechljudow þokaðist nær honum
°£ greip um handlegg honum:
»Þér eruð þorpari, herra minn«,
mælti hann. Það lá nú nærri, að
hann sýndist meyjarlegur í þessari
svipán — — en reiðin! Eldur
brann honum úr augum, eins og
hann vildi rífa Lang í sig. Og
Langur var líka hár og þrekvaxinn
maður, — karlmannlegri.
»Hvað ! hvað er þetta !« mælti
hann. »Eg þorpari!«
Þeir tókust nú á all-ósleitilega.
En hinir gestirnir hlupu óðar til
og skildu þá. Svo byrjuðu ópin á
víxl:
»Hann verður að bæfa mér móðg-
unina*.
»Verði mér það aldrei. Hann er
meyjarkinni -— snoðgrani! Eg þarf
að jafna á honum«.
»Þér eruð ódrengur, efþérviljið
mér enga uppreisn veita«, æpti
Nechljudow. Og honum lá við
gráti. Frh.
Frosírosir.
þið læddust á gluggann, með hrímkalda hönd,
er huga minn sólina dreymdi
og fiaug út í heiminn, um höf og um lönd,
þar hamin’gju ljósvakinn streymdi.
Og glugginn, hann varð mér sem myndaspjöld dýr,
sem málverk frá listanna öldum,
sem dúkur, er ofinn er alls konar vír,
sem orð skráð á marmaraspjöldum.
Sem hljómar, er liðu’ um hallir og torg,
með hljóðfæra samstilta kliðinn,
sem ljósbrot af tárum, frá liðinni sorg,
sem lágnættisdraumar, um friðinn.
þið læddust svo hægt og svo hljóðlega rótt,
sem hér væri sjúkur að deyja.
En máninn, hann brosti við barminn á nótt,
og bað hana hjá sér að þreyja.
þið eruð sem blómgarður brostinnar þrár,
sem barmur með harmtrega sárum,
sem gleðileg minning, sem geislandi tár,
sem guðveig frá bernskunnar áium.
Ó, tindrandi frostrós, sem fölnar svo skjótt,
er fagnandi dagurinn stígur.
Já, svo hverfur æska mín einni á nótt,
er árröðull bernskunnar nnígur.
Lára Árnadóttir.
* *
*»
*
♦
* *
*
Massage-læknir
Gruðm. Pétursson
Garðastræti 4.
Heima kl.6—7e. h. Sími 394-
LEIGA
D í v a n óskast til leigu. Af-
gr. v. á.
TAPAЗFUNDIÐ
N æ 1 a fundin. Vitja má á
Túngötu 50 (kjallara).
S i I f u r s k e i ð hefir tapast,
irierkt: A. H. Skilist á Hverfisgötu
32 B (uppi).
e
VI N N A
L í k 1 e g u r maður eða ung-
lingur til að læra járnsmíði get-
ur fengið stað nú strax eða í
vor. Uppl. gefir Kristinn Jóns-
son, trésmiður, Frakkastíg 12.
Vandaður og reglusamur
maður, sem tekið hefir próf í bif-
vélafræði og er vanur að passa mið-
stöðvarhitun, óskar eftir atvinnu við
mótor á landi eða miðstöðvarhitun
í húsum. Afgr. v. á.
G ó ð stúlka óskast i góða visf,
frá 14. maí. Afgr. v. á.
Ungur maður, sem vill læra
rakarastörf, getur komist á nýja
rakarastofu 1. apríl. Uppl. gefur J.
Mortensen Þingholtsstræti 1.
KAUPSKAPUR
Kvæði þetta er eftir ungling. AÖ vísu er margt að þvi að j
finna frá listarinnar sjónarmiði, en ýmislegt er þó í því, sem bendir
á skáldskaparhæfileika.
Tombólu
heldur st. „ E ININ GIN “ Nr. 14 ídag kl. 8 síðd. í G.-T.-húsinu.
Agætir drættir! — Engirt núll!
Templarar! Komið og dragiðl
Sbr. götuauglýsingar.
Tombólunefndin.
Alþingiskjðrskrá,
Reykjavfkur liggur frammi á afgreiðslu
Lögréttu, Veltusundi 1.
Heimastjórnarmenn f" að, *‘hUBa Þar;
•> hvort nofn þeirra eru á
skránni, og sky'du þeir, sem ekki finna nöfn sín en álíta, að þau
ættu að vera þar, skrifa sig á lista yfir vantandi menn á kjörskrá,
sem einnig liggur frammi á
AFGREIÐSLUNNI.
Góð verkfæri fyrir trésmið,
ásamt hefilbekk með tækifærisverði,
fást á Vesturgötu 17. Júlíana
Ingimundsdóttir.
»Objektiv Retlir.ier
Aplanat f. 8« — hentugt fyrir
»amatör«, — ljósmyndara — er til
söltt fyrir lítið verð. Afgr. v. á.
Vandaður fermingarkjóll til
sölu Grundarsiíg 15 (niðri).
O r g e 1 óskast keypt. Afgr.v.á.
2 blöð af .Sunnanfara.
Nr. 6 af I. árg. og nr. 4 af V.
eru keypt háu verði á Bergstaða-
stræti nr. 23.
Fermingarkjóll til sölu
fyrir lágt verð. Afgr. v. á.
gg H ÚSNÆÐI
M
T v ö herbergi samliggjandi og
mót sólu, tii leigu á Laufásv. 42.
S ó 1 r í k stofa með sér inngangi
til leigu í Vesturbænum, frá 14.
maí. Uppl. hjá Ásg. G. Gunn-
laugssyni, Austurstræti 1.
S t o f a og herbergi mót suðri
með sérinngangi til leigu frá 14.
maí. Uppl. hjá Gunnþórunni Hall-
dórsdóttur í Sápuhúsinu.
1 h e r b e r g i er t*l leigu, ágætt
fyrir stúlkur, sem siunda fiskvinnu
í Vesturbænum. Uppl. á Bræðra-
borgarstíg 8 B.
T i l 1 e i g u öll neðri hæð í húsi
Guðm. Jakobssonar.
3 rúmgóðar stofur og eld-
hús óskast til leigu 14. maf. Leiga
borguð fyrir fram hvern mánuö, ef
óskað er. Afgr. v. v.
T i 1 I e i g u mjög góð stofa
með húsgögnum. Afgr. v. á.
2 herbergi og eldhús til
leigu 14. maí. Afgr v. v. á.
Prentsmiðj* Sveins Oddetonar.