Vísir - 07.04.1915, Blaðsíða 2
V 1 S 1 B
VISIR
kemur fyrst um sinn út kl. 12 á
hádegi,
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
j ísland er opin frá kl. 8—8 á hverj-
Ium degi.
Ritstjórinn er þar venjulega
til viðtals frá kl. 1—3.
Sími 400. — P. O. Box 367.
____________
Bretar heima fyrir.
Röggsemi stjórnarinnar.
Það var mesta áhyggjuefni Breta,
er til ófriðarins dró, að þeir myndu
ekki fá nóga menn í herinn, án
þess að lögleiða landvarnar skyldu.
Nú er dregið úr þeim áhyggjum
að miklu leyti. Að vísu hafa Þjóð-
verjar sagt, aö liðsöfnunin gengi
illa, og haft um það mörg hæði-
leg orð, en það er ofsagt. Lið-
söfnunin hefir gengið svo, að Bret-
ar eru ánægðir yfir þvf.
En þá hafa tekið við önnur i
áhyggjuefni, sem ekki voru betri. ;
Þótt Bretar séu mikil iðnaðarþjóð,
ætluðu þeir að lenda í standandi
vandræðum með það, að sjá fyrir
hergögnum, fyrst og fremst handa
sínum her, sem altaf fór dagvax-
andi, og svo til þess að hjálpa
bandamönnum sínum um, sem voru
enn þá ver staddir. Alt hugsan-
legt var gert til þess, að örva fram-
leiösluna, en ekkert ætlaöi að duga.
Verst af öllu var þó það, að stöð-
ugt bryddi á venjulegri óánægju
og óiagi meðal vinnulýðs og verk-
smiðjueigenda. Þjóðverjum og
Þjóðverjavinum hefir að vonum orð-
ið matur úr því, að svívirða Breta
fyrir það, að þeir skuli geta verið
að gera verkföll, þegar ríkinu liggi
lífið á að unnið sé. Slíkt gæti
ekki hugsast á Þýslcalandi. En
þetta á sér alt eðlilegar orsakir.
Bresk alþýða ersvo ólíku fjærstríð-
inu sjálfu, þarna úti á eyjunurn,
en hinar ófriðarþjóðirnar, og þegar
lífsnauðsynjar hækka í verði, þá
getur hún elcki. heldur en sig að
drepa, slept sínum vanalega verk-
falla-þvergirðingi gegn vinnuveit-
endunum. Sá Breti, sem gerir verk-
fall af því, að hann fær 15 shill.
en ekki 16 í laun á dag, gerir það
ekki af þvf, að hann sé minni föð-
urlandsvinur, en Þjóðverjinn, sem
ekki þekkir annan vilja, en stjórn-
arinnar. Nei, hann hefir það til,
að ganga í herinn syngjandi rétt
á eftir og láta skjóta sig, fyrir einn
shilling á dag. Bretinn er nú svona
gerður.
En þegar 10 þús. manna, sem
unnu að hergagnagerð í Clyde,
lögðu niður vinnu í hálfan mánuð,
þá þótti stjórninni nóg kotnið, svo
að hún tók sér þá svo að segja
óskorað vald yfir öllum hergagna-
smiöjum í landinu, lét segja upp
öllum áður gerðum verkasamning-
um við einstaka menn og félög og
rak verksmiðjurnar til að vinna og
bæði verkamenn og vinnuveitendur
til að hlíta gerðardómi um hæð
verkalauna. Að vísu vita menn
ekki hvernig hún ætlar að veita
dómum þeim gildi að lögum, ef
annarhvor málsaðilja skyldi neita að
hlýða þeim, en hún treystir því, að
almenningsálitið muni leggjast svo
þungt á móti slíku athæfi, að til
þess komi ekki. Það er og sagt,
að þetta tiltæki stjórnarinnar mælist
vel fyrir. Menn séu orðnir leiðir
á kvörtunum frá vinnuveitendum,
sem ekki þykist geta borgað, og
hafa þó meiia að gera, en verk-
smiðjurnar komist yfir, og vinnu-
lýð, sem heimti hærri laun og hafi
þó tíma til þess og ráð á því, að
hanga hálfa vikuna í kvikmynda-
húsum og gildaskálum, þegar til sé
aukavinna hvenær sem þeir vilja
við henni líta. Almenningsálitið
er að snúast í þá átt, að þeir láti
'verst, sem minst hafa um að kvarto,
og því sé rétt að grípa til örþrifa-
ráða til þess, að hafa hemil á þess-
um óeirðarseggjum, svona í miðj-
um stríðs-voðanum.
Skjaldmeyjar,
Breskar atkvæðakonur
lenda í Le Havre.
Einn blaðamaður hlutlausrar þjóð-
ar hefir lýst því, er þær stigu á
franska grund, bresku ssuffragett-
urnar«, sem ætla að ganga í ófrið-
inn. Honum farast meðal annars
svo orð um þetta, sem hér segir:
»Nýja skjaldtnærin enska hefir
óviðráðanleg áhrif á menn, þegar
af því, hve hræðilega alvarleg hún
er á svip. Föt hennar eru úr sama
efni og liðsmannanna. Svo er að
sjá, sem flestir einkennisbúningar
hafi verið sniönir eftir sama mál-
inu, er hefir sýnilega átt við all-
þrekvaxinn kvenmann. En nú voru
að minsta kosti 400 af þessum 508
herkvendum skrælþurrar meykerl-
inga-hræöur, sem vel heföu komist
innan í hálfu minna fat. Fyrirmynd-
in hlýtur og að hafa verið hávax-
in og hreyfileg, og verða búning-
arnir því »viðvöxt«. Hatturinn er lag-
lega beygður og gengur oft niður
yfir eyrun, en smellnan er þó klauf-
in í frakkanum. Gegnum hana get-
ur að líta leggi, sem koma manni
í þá trú, að fólkið sé farið að svelta
í Englandi. Skórnir eru svo víðir
og breiðir, að konurnar geta ekki
dottið og svo eru þeir járnaðir með
hreinustu reginnöglum. Svo kemur
nú sverðið og byssan, eða hvaða
handvopn það nú er. Ef menn
spyrja mig um aldur skjaldmeyj-
anna, þá kemst eg í vandræði, kven-
hælinn maður. Má vera að æsku-
lýðurinn sé enn eftir heima og æfi
sig undir verk sinnar köllunar á
vígvelliniim. Það sem við fengum
að sjá í Le Havre er hér um bil
alt saman fyrir löngu komið á ör-
væntingarárin. Skal þaö tekiö fram
til þess að friða þýsku kvenþjóð-
ina, að engin alvarleg hætta er á
því, að þýskir hermenn láti glepj-
ast, þótt þeir kæmust í nánari kynni
við þessa nýju féndur.
Aðeins eina tek eg undan, þá
fallegustu af þeim öllum. Hún heit-
ir Ellinor. Hún er þegar búin að
skilja við einn mann og missaann-
an, og áöur hún færi yfir til Frakk-
Iands, hafði hún krafist skilnaðar
við þriðja manninn sinn, af þvíað
hann vill ekki verða við áskorun
Kitcheners um að ganga í herinn,
en er svo harðsvíraðt^ að láta
heldur veslings konuna sína eiga
það á hættu, að henni blæði út á
vígvöllunum í Flandri. Ellinor er
aöeins 27 ára að aldri og hatar
Tækifæri til að kaupa góð húsgögn mjög ódýrt!
Borðstofuhúsgögn. — Stórt »Buffet«, »Anretter«-skápur, stórt borð, einnig útbúið sem knattborð (öll knattborðsáhöld fylgja),
skrautleg standklukka með príma verki, 8 stólar með ekta leðri, alt eik, skrautlega útskorið. Verð kr. 1200, — selt nú fyrir
aðeins kr. 825. — Þessi húsgögn eru sem ný, hafa aðeins verið notuð í 4 mánuði.
Setustofuhúsgögn »Empire Mahogni« með inngreiptum gulum viði. — 1 skápur, setustofu borð, 3 hægindastólar, 3 setustofu-
stólar, 1 stór spegiil með hyllu, 1 súla með vasa, 1 mjög fallegt saumaborð, alt sem nýtt. Verð kr. 800, — selt nú aðeins fyrir kr. 450.
Dagstofuhúsgögn úr mahogni, aðeins V2 árs gömul. — Mahogniborð með lausum hlerum, 3 stólar með grænu leðri, skraut-
legur, þægilegur bókaskápur, 1 kantslípaður spegill, ílangur, 1 mahognihlíf með silki, dívan með þykkri plyssábreiðu, hvít gluggatjöld
fyrir 4 glugga. Verð kr. 550, — selt nú að eins fyrir 325.
1 eikar setustofuborð »Rococo«, 2 setustofustólar með gulu silki, 1 eikarborð með inngreiptu skákborði, alt í óaðfinnanlegu
ásigkomulagi. Verð kr. 220, — selt nú fyrir að eins kr. 125.
»Herre« herbergishúsgögn úr eik. 1 fallegt stórt borð. 1 hægindastóll með egta leðri, 4 hægindastólar með skinni, 1 eik-
arstúll með skinni, 3 smá eikarborð, Verð kr. 400, — selt nú fyrir að eins kr. 250. —
Eitt 3 metra langt massivt mahogniborð, að eins kr. 110. —•
10 mahognihægindastólar með grænu leðri, seljast fyrir að eins kr. 25 — hver.
1 mahogni vinnuborð verður selt fyrir að eins kr. 40. — 1 mahogniborð með lausum hlerum, að eins kr. 10. — 1 mahogni
saumaborð kr. 15. — 1 gólfábreiða kr. 40, önnur kr. 75. — 1 Ijósakróna úr ktistalgleri kr. 45. — 1 málmljósakróna 3 örmuð kr. 30. —
1 eikarstóll með handleggjastoðum með grænu leðri kr. 12. — 4 eikarstólar með.grænu leðri að eins kr. 8. — hver.
0Mj& Alt er næstum því nýtt og í góðu ástandi. Húsgögnin verða til sýnis fimtudaginn 8. apríl frá kl. 11—2, og verði nokk-
uð óselt, þá aftur á föstudaginn á sama tíma. Húsgögnin verður að taka fyrir lagardaginn 10. apríl og borgun verður fram að
fara um leið og þau eru tekin.
A. OBENHAUPT, Templarasundi 5.