Vísir - 29.06.1915, Page 1
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel Island.
SIMI 400.
Utgefaadi:
HLUTAFELAG.
Ritstj. ANDRES BJÖRNSSON
SÍMI 400.
5. árgi
þ r i ðjudaginn 29. jú::í ISlS.
199. ibl.
GAMLA BIO
Andlitið á
glugganum.
— GYLDENDALS-FILM —
Áhrifamikill sjóni. í 3 þáttum.
Aðalhlutv. leika:
Holger Reenberg og
Poui Reumert!
Skáldin
o g f j á r I ö g i n .
Það er eitt nýmæli í fjárlagafrv.
stjórnarinnar, að þar er áætlaður
14 þús. króna styrkur hvort árið
»til skálda og lislamanna«, allra í
einu, og svo á síjórnin að ráða
því, hvað hún lætur hvorn fá. Áð-
ur hefir verið ritað um þessar
sfyrkveitin ar hér í blaðinn, og
pykir oss þvi tilhlýðilegt, að láta
Iesendur sjá ástæður stjórnarinnar
til þessa nýmælis. Hún segir svo
í athugasemdum sínum við frum-
varpið :
„SíÖasta Alþingi geröi þá breyt-
ingu á þessum liðum, að hún
færði upphæðina til skáldanna
í einn lið fyrir hvert þeirra, og
setti upphæðina á fyrra ár fjár-
hagstímabilsins. Að vísu mætti
skilja þessa aðferð þingsins á þá
leið, að það ætlaðist til, að styrk-
veitingarnar fjellu alveg niður
framvegis, eins og líka stundum
hefur heyrst á þingi, að rjett
væri að gera. En það mun óhætt
að fullyrða, að það hafi ekki verið
tilgangurinn. í nefndaráliti N. d.
um þetta atriði (Alþííð, 1913, A.
þskj. 348, bls. 785), er það tekið
fram, að það væri eðlilegast, að
stjórnin hefði eitthvert fje til um-
ráða handa skáldum og listamönn-
um, svo að þingið væri laust við
slíkar fjárveitingar, og óviðfeldnar
umræður um einstaka menn.
Undir þessa skoðun nefndarinnar
taka ýmsir þingmenn við umræð-
urnar, sjá t. a. m. Alþtíð. 1913
C., bls. 1374—75; 1383, 1387
og víðar. Stjórnin verður þvi að
lita svo á, að það hafi verið vilji
síðasta fjárlagaþings, að fela stjórn-
inni útbýtingu fjárins. Stjórnin,
íyrir sitt leyti, er á sama máii,
en álítur, að hún eigi að hafa
óbundnar hendur í þessu efni,
og eigi sjálf að bera ábyrgð á
úhlutuninni fyrir þinginu. Hjer
á landi er engin stoínun eða
fjelög, sem að sjálfsögðu ætti að
hafa nokkurn forrjett til að vera
ráðgefandi við slíka úthlutun, og
það mætti búast við sundurlyndi
og óánægju, ef slík samvinna ætti
að eiga sjer stað milli stjórnar-
innar annarsvegar, og einhverrar
stofnunar, t. a. m. háskólans, hins
vegar. Aftur á móti telur stjórn-
in sjálfgefið, að ef Alþingi á ein-
hvern hátt ljeti í ljósi ósk sína
um, að vissum manni yrði veittur
styrkur af þessum lið, þá beri
að taka þá ósk til greina. Upp-
hæð styrksins má varla vera
minni en 14,000 kr. árlega."
Hætt er við því, að mönnum
lítist misjafnt á þessa uppástungu.
Munu sumir segja að hún miði
til þess, að gera öll skáld að hirð-
skáldum hjá ráðherra. Og um á-
drátt þann, er gefinn er síðast í
athugaseaidinni um að fara að
vilja þingsins um einstaka menn,
er það að segja, að þá þekkjum
vér illa Alþingi, ef ekki verður
nokkuð auðugt af þingsályktunar-
tiliögum, um skáldastyrk, ef þetta
ákvæði fr.varpsins næði fram að
ganga.
Afmæii á morgun.
•Kristín Einarsd. liúsfrú.
Björg Eiríksd. húsr., Sauðárkr.
Ó!öf Magnúsd. húsfr.
Peter Peteisen, Bíóstjóri.
Sigurjön Sigurðsson trésm.
Sólveig Jóhannsd. húsfr.
Gunnar Benediktss. stud. jur.
Þórður Pálsson læknir.
Magnús Andrésson, pr. Gilsbakka.
Afmæiiskort
fást húsinu. hjá lielga Áinasyni, Safna-
Veðrið í dag.
Vm. ioftv. 763 logn “ 8,5
Rv. tl 763 v. andv. “ 10,3
íf. (C 764 iogn “ 6,7
Ak. « 763 nnv. kul “ 6,6
Gr. /i 726 logn “ 13,0
' Sf. (( 763 logn “ 7,6
Þh. tl 759 a. kaldi “ 8,5
Vitavarðarstaðan
á Reykjanesi er veitt Vigfúsi
Sigurðssyni Grænlandsfara.
Skipafregnir
G u 11 f o s s fór vestur í gær.
Meðal farþega var Guðmundur
Kamban rithöf. —
Goðafoss kom á Djúpavog
í gær. — Ingólfur kom frá
Borgarnesi í gær. Meðal farþ.:
alþm. Bjarni Jónsson og Sveinn
Björnsson, þórður Edilonsson
læknir, Félagarnir Ó. Johnson og
Kaaber, Böðvar þorvaldss. kaup-
maður og fl.
Bréf
hefir oss borist, svohljóðandi:
„Herra ritstjóri! Viljið þér
gjöra svo vel, að skila þakklæti
mínu til þess manns, sem varaði
mig við hattinum með gráa svita-
skinninu, sem tapaðist á Skjald-
breið um kvöldið. En reyndar
var viðvörunin óþörf, því að eg
er gætinn maður og lét þegar
sótthreinsa hattinn, er eg kom
heim með hann, en hausinn á
sjálfum mér þvoði eg upp úr
„karbólsápu“. En söm var hans
gerð, sem varaði mig við.
Yðar með virðingu,
Misgripamaður.
Bif reiðafélagið
hefir nú látið gera við eina af
bifreiðum sínum, svo hún er nú
betri en nokkru sinni fyr. Hún er
grámáluð og allásjálég, með raf-
magnsijósi og rafmagnslúðri, og
getur tekið 5 menn. Ritstj. Vísis
hefir ekið í henni stultan spöl og
getur borið um það, að hún fer
vel með mann.
Strand.
Breskur botnvörpungur strand-
aði í fyrrakveld suður hjá Garð-,
skaga. — „Geir“ er að reyna að
ná honum út í dag.
Meiðsl.
Drengur kveykti á eldspýtu
rétt hjá benzínhylki við Bifreið-
arstöðina í gær. Kviknaði í og
varð sprenging og sviðnaði and-
lit drengsins töluvert mikið. Var
þegar farið með hann til læknis.
Sagt var að augun væru óskemd
til allrar hamingju.
12 laxa
veiddi *einn maður á stöng í
Elliðaánum á sunnudaginn var.
Þmginálafinida
ályktanir úr Dölum.
I.
sFundurinn skorar á alþingi að
halda fast við ályktun síðasta þings
um uppburð íslenskra mála í ríkis-
NYtJA B90
Leyndarmál.
Sjónleikur eftir Otto Rung.
leikinn af Nordisk Films Co.
Aðalhlutv. leika :
■
Olaf Fönss og
frú L*ly Beck
U-M-F Iðunn og
U-M-F-R
Samfundur annað kveld kl. 9 í
Bárubúð. —
Margt til meðferðar!
Fjölmennið!
(Að samfundi afloknum verður
sérstakur fundur í U. M. F. Ið-
unn. — Áríðandi að fjölmenna!)
isráði Dana (fyrirvarann); lýsir yfir
aðdáun sinni og ánægju yfir fram-
komu fyrverandi ráðherra í þessu
máli; átelur harðiega allar tilraun-
ir til að víkja frá skilyrðurn þings-
ins, og iýsir vantrausti sinu á hverj-
um þeim ráðherra, sem gerir til-
raun til að fá stjórnarskrána sam-
þykta án þess að uppfylt sé skil-
yrði alþingis*.
Samþykt í Saurbæ, á Skarðsströnd
og Fellsströnd. Þá var eigi frétt
um staðfesting stjórnarskrárinnar.
II.
»Fundurinn skorar á alþingi að
halda fast við ályktun síðasta auka-
þings, um uppburð íslenskra máia
ríkisráði Dana (lyrirvarann), lýsir
ánægju sinni yfir framkomu fyrv.
ráðnerra í því máli, og skorar á
næsta þing að mótmæla þeim
grundvelli, er stjórnarskráin hefir
verið staðfest á, fullnægi hann eigi
skilyrði alþingis«.
Samþ. í Hvammssveit, Laxárdal,
Haukadal, Miðdölum og Hörðudal.
Þá var frétt staðfestingin.
alveg sjálfsagt að kaupa í
Liverpool.
gjjggr Þar fá menn alt sem þá
vantar og þar eru vörurnar góð-
ar og ódýrar.