Vísir - 04.07.1915, Blaðsíða 2
VISIR
eitvs 0$ áBttt
<^oBa ttotttU
f\»sia \)ev3v\
O F N A
Og
ELDAVÉLAR
a II s konar,
frá hinni alþektu verksmiðju »De forenede Jernstöberier Svendborg«,
Miklar birgðir fyrirliggjandi.
Útvega ofna af öllum gerðum og eins
miðstöðvar-hitavélar.
Laura Melsen.
(Joh. Hansens Enke)
Austurstræti 1.
Vonarsxræti,
Slippfélagið í Reykjavik
mælir með sínum ágætu málningarvörum, þar á meðal
Halls’ Distemper, Aperfectol
og reykháfs-málning (Funnel Paint)
blá, rauð, svört, hvít, o. fl.
Bifreiðarfélag Bvíkur 1915
hefir bifreiðar í gangi alla daga tii Hafnarfjarðar og upp um sveitir.
Skrifstofan er opin frá kl. 9 árd. til kl. 10 síðdegis.
Sími 405. — sími 405.
Baðhusið opið v. d. 8-8, ld.kv. iil 11.
Borgarst.skrif,st. í brunastöð opin v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst, Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk.sunnd. 8V2 siðd,
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3
Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið lVa-21/, síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-bi
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d
Vífilsstaðahæiið. Hcimsóknart'mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
Ómissandi menn
Blað eitt á Englandi bað les-
endur sína að segja til, hverja 12
menn þeir teldu landið mega síst
án vera, á þessum tímum. Fjöldi
manns sendi lista, og er talið var
saman, höfðu þessir menn fengið
flest atkvæði og í þeirri röð, sem
hér segir:
1. Lloyd George
2. Kitchener lávarður
3. Asquith
4. Sir John French
5. Sir John Jellicoe
6. Sir Edward Grey
7. Balfour
8. Churchill
9. Sir Jan Hamilton
10. Bonar Law
11. Beatty
12. George V.
Það er eftirtekíar vert, að sá mað-
urinn, sem fiest atkvæði hefir fengið,
er einmitt sá hinn sami, sem mest
hefir verið skammaður allra Eng-
lendinga áður, en vafalaust líka sa
maður, sem ber höfuð og herðar
yfir alla samtíðarmenn sína á Eng-
landi og þótt víðar væri leitað. —
Meðan hann var fjármálaráðherra,
beitti hann sér fyrir ýmsum svo
mikilfenglegum endurbótum í inn-
anlandsmálum, að byltingarkent mátti
kalla, og svo þótti auðkýfingum
landsins hann ganga á rétt þeirra,
að þeir hötuðu engan mann eins. —
En nú, þegar landinu lá mest á,
og þegar alt virtist undir því kom-
ið, að útvega hergögn — fram-
leiöa ný.skotvopn og magna allan
herbúnað, þá var tekið það ráð, að
skipa sérstakan ráðherra, til að ann-
ast herbúnaðarmálin og til þess
kjörinn Lloyd George, að því er
virðist að samhuga ráði allra flokka.
— Þetta er því einkennilegra, þegar
þess er gætt, að L. G. var einmitt
einn af þeim fáu innan ráðuneyt-
isins, sem voru mótfallnir þáttöku
Engla í stríðinu.
VISIR
kemur fyrst um sinn út kl. 12 á
hádegi,
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi,
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng. frá
Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl. 5-6.
Sími 400.— P. O. Box 367.
ÖJt\Bu\ttm,
Skotfæragerð Eng-
lendinga.
Englendingar leggja nú sem mest
kapp á að auka skotfæraframleiðslu
hjá sér. Lloyd George, hinn nýi
hergagna- eða skotfæra-ráðherra
þeirra, ferðast um landið þvert og
endilangt til að hvetja bæði verka-
menn og vinnuveitendur til þess að
afkasta sem mestu.
Víða koma Hallgerði bitlingar og
eins má segja um EngJendinga, þeir
ráða lögum og lofuro á sjónum og
geta því flutt að sér skotfæri það-
an, sem þau eru að fá. Svo sem
kunnugt er, hafa þeir pantað og fá
stöðugt skotfærabirgðir frá Banda-
ríkjunum. Er sagt að félög og
einstakir menn hafi látið reisa skot-
færasmiðju síðan ófriðurinn hófst,
til þess að geta afgreitt pantanir
Englendinga. Einnig fá Englend-
ar skotfæri frá Canada. Fyrir skömmu
stóð í einu blaði þar vestra, að í
Canada væru nú 300 verksmiðjur,
sem eingöngu ynnu að skotfæra-
gerð.
Á þingi Ástralíumanna var gerð
fyrirspurn um það til stjórnarinnar,
hvort ekki væri hægt að búa til
skotfæri þar í Jandi, sem senda mætti
tii Englands, Fischer stjórnarfor-
seti svaraði fyrirspurninni svo, að
nú þegar væri farið að búa þar til
skotfæri, og mundi þó meir síðar.
Kosningar á Grikklandi.
Venezelos í meiri hluta.
Á Grikklandi fóru fram kosning-
ar um land alt um miðjan fyrra
mánuð, og lauk þeim svo, að stjórn-
in var í algerðum minni hluta, en
flokkur Venezelos, fyrrum forsætis-
ráðherra, varð lang fjölmennastur.
Gounaris, sá sem nú er stjórnar-
forseti, ætlar þó ekki að segja af
sér fyr en þing kemur saman í lok
þessa mánaðar og jafnvel ekki þá,
að því er blöð hans manna segja.
Konungur Grikkja hefir verið
hættulega veikur um hríð og hefir
eigi getað gegnt stjórnarstörfum, en
í stjórnarskrá Grikkja, eru engin á-
kvæði um það, að skipa megi rík-
isstjóra í fjærveru eða veikindum
konungs. Patris, eitt af blöðum
Venezelos- flokksins, segir að stjórn-
in hafi jafnvel í huga, að stofna til
nýrra kosninga aftur, til þess að
þrautreyna um fylgi þjóðarinnar
við sig.
Samkomulag mílli Breta
og Þjóðverja.
Utanríkisráðherra Englendinga bað
sendiherra Bandaríkjanna í Lundún-
um að skýra þýsku stjórninni frá,
að Bretar hefðu flutt skipshafnir
þær af kafbátunum »U 8«, »U 12«
og »U 14«, sem bjargað hefði
verið, úr einangrunar-varðhaldi, og
framvegis yrðu þeir látnir sæta sömu
meðferð og aðrir fangar. Enska
stjórnin kvaðst því vænta þess, að
39 enskir foringjar, sem Þjóðverjar
höfðu einangrað, yrðu fluttir aftur
til annara herfanga.
Þýska stjórnin svaraði um hæl,
að úr því að Englendingar væru
hættir því, að láta kafbátaskipshafnir
sæta annari meðferð, en aðra fanga,
þá mundu þeir þegar í stað láta
þessa 39 foringja lausa úr einangr-
uninni og gæta þeirra sem annara
hertekinna foringja.
Lítið Ms
á góðum stað, fæst keypt með
taekifærisverði og er laust
til íbúðar 1. okt. ef samið er fyrir
7. júlí. Afgr. v. á.