Vísir - 12.07.1915, Qupperneq 1
Utgefaadi:
H L|U T A F E L A G.
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400.
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel Isiacid.
SIMI 400.
5. árgi
Mánudaginn 12. júlí IS15. aœt:
212. tbl.
Símskeyti
frá
fréttaritara Vísís.
Khöfn 11. júlí 1915.
Rússar hafa unnið sigur við Lublin (Pólland)
og hertekið 15000 manna.
Þýskir herskarar eru á leið til Italíu.
Yfirleitt láta Rússar nú betur'yfir sér, síðan í byrjun þ. m.,
og er ekki ósennilegt, að Pjóðverjar hafi verið heldur fijótir á sér,
að flytja her til vesturstöðvanna og ítalfu. En þar sem ítalir hafa
nú að sögn eina miljón hermanna á landamærunum, þá er það
skiljanlegt, að Pjóðverjar séu nauðbeygðir til þess að flytja herinn.
Kaupamaður
§ag" óskast að Hvanneyri.
Talið við skólastjóra, staddan í Laufási, þriðjudag og miðvikudag.
GAMLA BIO
Kyen-spœjarinn.
Afar spennandi njósn-
arsaga leikin af
ítölskum leikurum.
Frá alþingi.
Neðri deild í dag.
1. mál. Frv. um framlenging á j
gildi vörutollslaganna.
R á ð h. rakti nokkuð sögu lag' |
anna, kvað þau þykja gölluð, en |
kosti mikinn undirbúning að breyta !
þeim eða setja annað í staðinn og 1
þvf ekki annað fært, en að leggja
til að þau séu framlengd.
Bjarni Jónsson. Þessi lög
höfðu litlu meira fylgi en önnur,
verðtollurinn, sem á ferðinni var
samtímis og hafa orðið óvinsæl, að
minnsta kosti í mínu kjördæmi, og
má því búast við að hin verði vak
in hér upp aftur. Bið eg þv
væntanlega nefnd muna það, að
þessa er von.
B j ö r n K r i s t j. kvað þetta
fyrirkomulag væntanlega veröa affara
sælast eins og það er og einsdæmi
að kjördæmi B. J. væri á mðti
þeim Ómögulegt að semja lög
sem engum þyki ranglát. Nefnd
kaffi- og sykurtoll. Kvað lögin
vinsæl og einkum hjá innheimtu-
mönnum.
Bjarni Jónsson sagði að
af tvennu illu ætti að taka það
minna og verðtollurinn væri minna
illur og það hlytu allir að játa, sem
sem hugsuðu um annað en það
eitt, að fara í vasa kjósenda. Vöru-
tollur gerði og alla »specialisla«
ómögulega. Talaði um hvatir manna
til vörutollsins.
Fjórir listar komu fram til nefndar-
kosningar, og hlutu þessir kosningu:
E. Jónsson, M. Ólafsson, Bj. Krist-
jánsson, Bj. Hallsson, Sig Gunnars-
son.
2. m á I. Breyting á Landsbanka-
lögum. (Nýr bankastjóri).
R á ð h. vísaði til athugasemda
við frumvarpið.
B. Kr. kvað farið með þetta á
bak við bankastjórnina, sem kunn-
ugust væri þessu. Það hafi hingað
til nægt, að hafa innheimtumann
með 1200 kr. launum á ári. í út-
löndum séu slíkt óþarfar «Topfi-
gurur«. Bankann vanti miklu fremur
«Korrespondent». Frv. fari ogí öfuga
átt í þvi, að draga skipun starfs-
manna bankans undan bankastjórn-
inni. Fyrirkomulagið sé tryggilegt
eins og það er, meö gæslustjórum,
kosnum af stjórn og þingi. Gott
fyrir bankastjórana, að störfum sé
lé;t af þeim, en þeir hugsi meira
en svo um hag bankans, að þeir
vilji baka honum 6 þús. kr. útgjöld
að óþörfu.
Ráðh. andmælti þessu. Kvað
innheimtumenn enga ábyrgð bera,
og komi þó daglega fyrir mál, sem
lögfræðislega aðstoð þurfi við. End-
urskoðendur þykist ekki vera ann-
að en töluendurskoðendur. Fleiri
konar þekkingar þurfi, en vöru og
bókhalds-þekkingar. Þótti kenna
hroka í ræðu Bj. Kr. Nefndi það,
er bankastjórnin hætti að láta leysa
inn seðla bankans erlendis, sem
dæmi þess, að bankastj. gæti yfir-
sést.
H. H. kvað þetta mál nokkuð
annars eðlis, en önnur bankamál,
sem fyrir lægju, og væri því rétt
að setja sérstaka nefnd.
Bjarni Jónsson kvað þetla
óþarfa embætli og ekki rétt að
stofna það á þessum tíma. Nú sé
nýsett nefnd í öll launamál, og
megi bíða hennar. Hér liggi og
fyrir önnur þarfari útgjöld, sem sé
til nýrrar kenslu við læknad. Hásk.
Það þurfi ekki 3 bankastj. með 6
þús. kr. launum hvern, til þess að
ráða fram úr því, hvort frainletigja
skuli smávíxla fyrir sig eða aðra.
Nær að annar bankastj. gæti ver:ð
erlendis tíma úr árinu og unnið
oss gagn þar. Lítilsvirðing á þing-
inu, að láta ekki gæslustj. þess
nægja.
Enn var hnotabitast nokkuð um
rnálið. Þólti ráðh. undarlegt, ef B.
J. vildi alt í einu fara að spara.
Sig. Egg. vildi vísa þessu til áður
kosinnar bankamálanefndar, og kvað
þar tvo bankafróðustu mennina á
þingi, B. Kr. og H. H. — B. Kr.
taldi það óheppilegt, að mál bank-
ans væru gerð að leiksoppi flokks-
pólitíkurinnar.— Um innlausn seðl-
anna væri það að segja, að banka-
stj. hefði þegar skýrt það mál svo í
blöðum, að enginn hreyfði þvi
framar. — B. J. sagði að ef einhver
lögfræðingur væri ekki nógu sam-
viskusamur til þess, að segja rétt
til sem ráðunautur, þá tryði hann
honum ekki ftekar til þess, þótt
hann yrði bankastj, með 6 þús. kr.
launum. — E. J. talaði enn frem-
ur á móti frv., þótti undarlegt. að
vera að létta störfum af bankastj.,
ef hún sjálf teldi þess enga þörf.
Að Iokum tók fors. málið út af
dagsrá, og verður skemtuninni hald-
ið áfram á morgun.
3. mál., heimildarlög til að skipa
verðiagsnefnd Nefnd: B, Sv., Jóh.
Eyj., M. Ól. og Sv. B.
4. nt á 1., frv. um tvo ráðherra.
R á ð h. vakti athygli á því, að
ekki væri ætlast til þess, að lögin
gengi í gildi fyrr en ráðh. eftirlaun
væru afnuntin. Vel mætti vera að
ráðh. ættu að vera þrír. Líklegt að
málið mætti mótspyrnu á líkum
grundvelli og 2. mál á dagskrá, en
kvaðst ekki fara að þvf.
G. H kvað þetta óhappadag,
mikið að athuga við málin, sem
MY«IA BiO
Perlan
frá
Palaís de Danse
Gamanleikur í þrem þáttum,
leikinn af ágætum leikendum.
H é r m e ð tilkynnist vinum
og vandamönnum, að ungfrú
Ágústa Ólafsdóttir andaðist að
Vífilsstöðum 10. júlí.
Jarðarförin verðurákveðin síðar.
Móðir og systkyni hinnar látnu.
fyrir lægju. Mest aðfinsluvert viö
fyrirkomulagið, hve tíð stjórnar-
skiftin væru og að stjórnin yrði ein-
hliða flokkstjórn. Úr því sé ekki
bætt með þessu. Verði ætíð svo,
að bæði bresti einn og tvo menn
þekkingn til að dæma um alt. Ótrú-
legt, um svo mikinn verkmann, sem
E. A., að hann þoli verr en H. H.
Nú einn kunnugur maður fastur í
stjórnarráðinu, iandritari og óþægi-
Iegt að hann fari. Kjósendur og
yfirleitt á móti þessu.
B. J. kvað þetta hlægilegt, þar
sem annar sé forsætisráðherra, þá
sé hinn bara hali, svo að sjálfsagðir
séu þrir, ef breyta eigi. Annars líti
út fyrir að þetta sé gert í öðrum
tilgangi. Nú stanai til kosningar,
og því eigi aö fresta þessu. Núv.
ráðh. sitji sjálfsagt fram yfir kosn-
ingar og sé duglegur. Ráðh. ætti
að taka frumvarpið aftur þangað
til eftir kosningar. Gott að G. H.
sé á móti þessu, því að þá megi
búast við því, að hann láti af þess-
ari hörðu átt bráðum og komi
veðraskifti.
Nefnd: Sig. Egg., Sk. Th., H.
H., St. St., Sig. Gunn.
Píanó óskast.
Afgr. y. á.
a? auc^sa \
*Aí\s\