Vísir - 12.07.1915, Side 2
V IblK
VISIR
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi.
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng. frá
Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl. 5-6.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Erindreki
,Fiskifélagsins’
erlendis, hr. Matth. Þórðarson hefir
nú gefiö út skýrslu um störf sín
fré byrjun þessa árs, og er hún
allfróöleg á ýmsan hátt.
Þetta ermdrekastarf er að nokkru
leyti komið í stað viðskifta-
ráðunautsins, og veitti al-
þingi til þess 4000 kr. á ári yfir-
standandi fjárhagstímabil, gegn því
að jöfn upphæð komi annarstaðar
frá. Fyrra árið (1914) var ekki
hægt að veita þetta starf, en í byrj-
un þessa árs voru komnar inn um
1000 kr. »annarsstaðar frá«, þ. e,
frá einstökum mönnum og deild-
um Fiskifélagsins. Var þá hægt að
borga út jafnmikiö úr landssjóði og
tók Matth. við starfinu. Hafði hann
þá dvalið 6 mánuði í Liverpool í
Engiandi og hélt hann áfram veru
sinni þar, þangað til hann kom
hingaö til lands um miðjan síð-
asta mánuð.
Skýrslunni er skift í 5 kafla.
í 1. kaflanum eru bréf erind-
rekans til Fiskifélagsins og þar á
meðal þrjár langar skýrslur um
markað og verslunarhorfur erlend-
is; Lætur hann sér ekki nægja með
að tilfæra verð og markaðshorfur
íslenskra sjávarafurða, heldur er þar
einnig ýmiskonar fróðleikur um
markað á útlendum vörum, pen-
ingaverð og flutningsgjöld m. fl. —
í þessum kafla er og meðal ann-
ars skýrsla um ísrek í Atlanshafi til
leiðbeiningar og athugunar fyrir
Eimskipafélagið, er það hafði afráð-
ið að senda »GuIIfoss«: til Ameríku.
— Þá er þarna líka skrá yfir er-
Iend verslunarhús, er óska eftir bein-
um viðskiftum við ísl. kaupmenn.
1 2. k a f 1 a n u m eru bréfa-
skifti hr. Matth. við erlend stjórn-
arvöld, ensk og spönsk. — Hefir
hann snúið sér til ensku stjórnar-
innar með ýmsar umsóknir: — Um
að veita undanþágu fyrir ísland á
útflutningsbanni á ýmsum enskum
vörum, steinolíu og ýmsum mat
vörum. — Um að leyfa íslending-
um að halda áfram að vinna á
enskum botnvörpungum (samkv.
áskorun frá ísl. í Engl.). — Um að
enska stjórnin kaupi ísl. saltfisk til
notkunar í herflotanum. — Um
leyfi til að mega flytja nýjan fisk
til Englands. — Um upplýsingar
viðvíkjandi möguleikanum á að
flytja lifandi fé til Englands. — Til
spönsku stjórnarinnar er umsókn
um að færa niður eða afnema toll
á ísl. fiski, samkv. heimildarlögum
nýsömdum, og erindi til danska
sendiherrans á Spáni um að styðja
það mál. — Yfirleitt fékk erind-
rekinn mjög góð svör við þessum
erindum sínum, eftir því sem ástæð-
ur leyfðu.
í 3. k a f I a er bréf til norsku
Ameríkulínunnar um það, að skora
á stjórn hennar, að láta skip k o m a
h é r v i ð í ferðum sínum til og
frá Ameríku. Svarar stjórnin því
vel og lætur líklega um að koma
hér við í tveimur ferðum til og frá
á sumri, ef líkindi séu fyrir nokkr-
um fiutningi.
í 4. kaflanum eru bréfavið-
skifti við C. J. Wheeler, enskan sér-
fróðan mann, viðvíkjandi skólaskip-
um og hjálparskipum og útbúnaði
þeirra. Eru þar ýmsar góðar bend-
ingar um það, hvernig megi sam
eina það, að útbúa skólaskip fyrir
ísland, sem um leið gæti haft á
hendi landhelgisgæslu og
komið að gagni í viðlögum sem
björgunarskip.
Fylgir þar með teikning af tveim-
ur skipum sem geta fengist keypt
til þeirra afnota.
í 5. k a f I a n u m eru sýnis-
horn af bréfum viðvíkjandi sölu á
ísl. fiski og síld, eru þau bréf frá
kaupmönnum í Ameríku, Spáni og
víðar. Þar eru ýmsar góðar bend-
ingar um það, hvernig varan, eink-
um síldin, eigi aö vera úr garði
gerð svo að hún geti selst vel.
Ber öll skýrslan það með sér, að
erindrekinn hefir starfað með mikl-
um áhuga og afkastað miklu þenn-
an hálfs árstíma og er n'klegt að
þingið felli ekki niður fjárveitingu
til þessa starfa. X.
‘Jtcá AXUötvdum.
Enska sijórnin tekur lán.
Áætlað 900 milj, sterl.
punda.
Þegar Englendingar hafa tekið
ríkislán, hafa þeir jafnan goldið
lága vexti af þeim, — 2V2 til 3V2%-
Nú hefir stjórnin auglýst, að hún
ætli að taka lán, og lofar að greiða
af því 4V2%- Ekkert er ákveðið
um það, hvað lánið verði stórt,
heidur fer það eftir því, hve mikið
fé verður boðiö fram. En fjármála-
menn á Englandi telja, að það
muni ekki nema minna en 900
milj. sterl. pd.
Þegar stjórnin hefir leitað eftir
láni áður, hefir hún snúið sér til
banka og auðmanna, en í þetta
sinn snýr hún sér til allrar þjóó-
arinnar. Nú geta allir skrifað sig
fyrir láninu og lagt fram hvað litlar
upphæðir sem vera skal. Enn frem-
ur er því hagað svo, að menn geti
lagt fram féð í smáafborgunum.
Þeir sem eiga eldri ríkisskulda-
bréf, geta breytt þeim í ný, ef að
þeir taka helmingi hærri hlut í nýja
láninu.
Lánskjör þessi mælast ákaflega
vel fyrir á Englandi og er sagt,
að fyrstu vikuna, eftir að lánið var
boðið út, hafi menn skrifað sig fyrir
150 milj. sterl. pd. í smáupphæð-
um.
• Þeir sem eiga fé í póstsparisjóð-
um, taka það þaðan, til þess að jj
geta orðið þátttakendur í láninu.
Mesti sægur hefir keypt 5 sh. hlut.
Kiichener lávarður
hefir nýlega verið sæmdur Sokka-
bandsorðunni. Það er hið mesta
sæmdarmerki sem Englandskonung-
ur getur veitt.
Veikindi Grikkjakonungs.
Þýskur læknir segir frá: Þýskur
blaðamaður hefir áti tal við Dr.
Kraus, þýskan lækni, sem hefir
stundað Constantín Grikkjakonung
í veikindum hans. Dr. Kraus er
nýiega kominn heim frá Aþenu-
borg. Hann segir að það sé hauga-
lýgi að Konungi hafi verið veitt
banatilræði, heldur var gerður á
honum holskurður, við innvortis-
veikindum. Læknirinn kvað nú
konungi mundu batna smátt og
smátt, þótt eigi væri hann úr allri
hættu.
Um hugarþel Grikkja um þessar
mundir, fór Dr. Kraus svofeldum
orðum:
Á Þýskalandi eiga menn bágt
með að skilja hugarþel Grikkja.
Þeir elska allir Frakkland, sem er
ógn skiljanlegt. Þegar Grikkir fóru
vestu hrakfarirnar í ófriðnum við
Tyrki 1897, þá reyndist Frakkland
peim best allra landa. Grikkir bera
einnig mikla virðingu fyrir Eng-
landi. svo sem eðlilegt er, því að
Enghnd gæti gert Grikkjum mikið
tjón. Vemzelos nýtur lýðhylli eink-
um fyrir pá sök, að hann er mikill
vinur Breta og Frakka. Aftur á
móti hata Grikkir ítali, og það hef-
ir styrkt okkar málstað þar syðra
að ítalir fóru í ófriðinn.
Löng ferð.
Kafbátur fer 9 þús. kílóm.
Blaðamaður frá Bandaríkjunum
hefir átt tal við Otto Hersing, skip
stjóra á þýska kafbátnum U. 51,
sem nú er í Konstantiopel. Kvað
Hersíng það satt vera, að hann
hefði farið frá Wilhelmshafen til
Hellusunds sjóveg, sem er 9 þús.
kílóm. Ieið. Hann Iagði af stað
heiman að frá sér 25. apríl í vor,
og var réttan mánuð á leiðinni,
kom 25. maí til Hellusunds. Þann
dag sökti hann Triumph, og Maje-
stic tveim dögum síðar.
Hersing kvað etiska flotann hafa
leitað hafnar hjá eynni Teredos
eftir það. Þýskal. keisar' hefir sæmt
Hersing Pour le merite orðunni.
Ritf regn.
—« » —
„Lagahreinsun* heitir ritgjörð
eftir L. H. Bjarnason, prófesscr,
nýútkomin, 14. bls. að stærð. —
Gerir prófessorinn þar að utn-
talsefni rugling þann, sem á lög-
gjöf vorri sé, og ósamræmi og
ósanngirni í löggjöfinni, t. d. um
rétt óskilgetinna barna, sem þótt
þinglýst séu erfa-ekki föður nema
til helmings á móts við skilget-
in börn. Aftur á móti erfir ó-
skilgetinn faðir barnið sem skil-
getið væri.
T I L MINNIS;
Baðhúsið opið '■ d. 8-8, ld.kv. (il 11
Borgarst skrif jt. í hrunastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 81/, siðd,
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3
Landssímínn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið P/,-21/, síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin ! 2-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d
Vífilsstaðahælið. Hcimsóknart'mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
En aðallega beinist ræða pró-
fessorsins gegn þeirri óhæfu, að
hér skuli vera í gildi og látin
gilda lög, sem ekki eru til á ís-
lensku og hafa jafnvel aldrei ver-
ið birt hér á landi.
Þetta virðast vera orð í tíma
töluð.
Úr dönskum blöðum.
í dönskum blöðum, sem Vísi
hafa borist er íslands getið að nokkru
í sambandi við staðfestingu stjórn-
arskrárinnar. — En lítið er á skrif-
um þeim að græða.
»Silkeborg Dagb!að« telur það
vafalaust, að Einar Arnórsson muni
hafa fallið frá kröfu fyrirrennara
síns um það, að það yrði viður-
kent af Dönum, að mál vor þyrfti
ekki að bera upp í ríkisráði.
Kn. Berlin skrifar í Köbenhavn
þ. 18. f. m., og bollaleggur mikið
vm það, hvers vegna umræðurnar
í ríkisráði hafi ekki strax verið birt-
ar — jafnvel áður en stjórnarskrá-
in var staðfest. Telur hann senni-
legt, að birtingunni hafi verið frest-
að til bess, að forða Einari Arn-
órssyni frá árásum hér heima, með-
an hann væri fjarverandi. — Eða
þá til þess, að ekki kæmi of snemma
fram altof ákveðin ummæli í þá
átt í Danmörku, að þótt breyting
hafi orðið á einhverju »formeIlu«
atriði, þá gæti Danir auðvitað aldrei
gengið inn á þá kröfu alþingis, að
skoða uppburð íslenskra mála í rík-
isráðinu danska sem eingöngu ís-
lenskt mál.
Bilreiflafél Rvíknr,
Vonarstrœti,
! hefir fastar ferðir til Hafnarfjarð-
I ar kl. 10, kl. 2, kl. 6 og kl. 8.
! W&UT Fleiri ferðir farnar ef
nægilegt fólk er.
Á sunnudögum fer bifreiðin kl.
10,12,2,4,6,8.