Vísir - 12.07.1915, Page 3
V 1 S I K
sítton o$ ^&mpavuv. S^ \9ö.
Nokkrar stúlkur vantar
hIf Eggert Olafsson,
á Eyjafjörð.
AGrÆT KJÖE.
S^wv. SuWutvdssotv
— Hittist í húsum O. Zoega 10—12 og 4—7 —
Eldeyjarför.
Eins og að undanförnu verður
reynt að ná súlu unga úr Eld-
eyjum í ágúst og septemberj
haust.— Hver ungi er 3—5 kíló
og er ágætur matur og verður
seldur svo ódýrt sem hægt er.
Þeir sem vilja kaupa ungann
ættu að panta hann í júlí, helst
næstu daga, hjá undirrituðum.
Tii. Kjarval.
Areiðanlegur maður
sem hefir verið kaupmaður í 16 ár, óskar eftir atvinnu við verslun
eða önnur utanbúðarstörf.
Hótel ísland nr. 28.
Reykið að eins
Chairman «*
Allar nánari upplýsingar gefur
Ol. Sveirtsson, Laufásvegi 12.
Vice-Chair
Cigarettur
Þvegna Vorull,
Fást hjá öllum betri verslunum.
hvíia og misliia, kaupa
G. Gísiason & Hay Ltd.
Reykjavík.
Dei kgL ocir.
Brandassurance Comp.
Vátryggir: Hús, húsgögn, vörur
alskonar o. fl.
Skrifstofutími 8-12 og 2-8 Austurstr.
N. B. Nieisen.
Nýja Ijósmyndastofan í Þingholtsstr. 3
(beint á móti »Gutenberg«) er opin alla virka daga frá kl. 9 f. h
til kl. 7 e. h. — Á sunnudögum frá kl. 11 —3.
Oi. Oddsson, Jón J. Dahlmann.
Bogi Brynjólfsson
yfirrjettarmálaflutningsmaöur,
Skrifstofa Aðalstræti 6 (uppi.)
Prentsm. Gunnars Sigurðssonar.
Skrifstofutími frá kl. 5—6L/2 e. m.
Talsfmt 250 !
Schuitze-Iaumburg:
Kvindelegemets
Kuitur, med 131 III., uavkortet,
eleg. udstyret kun 2,50. Vort
Hjems Kogebog, 478 Sider med
over 1100 Opskrifter paa Mad-
avning, smukt ifldb., kun 2,00
Madame A. de Thebes: Haan-
dens Gaade, 304 Sider, m. 114
III, eleg. indb. 1,25. Sardou:
Madame Sans-Gene, (Napoleons
Vadskepige) I-H, 640 Sider, eleg.
indb. kun 1,50. Erkmann Cha-
trian: En Rekrut fra Napoleons
Tiden, eleg. indb., kun 0,50.
Daniei Bruun : Middelalderen og
den nyere Tids Krigshistorie m
170 III. og Kort, kun 1,50 för 6,00.
Fra Dybböl til Sedan, Pröjser-
nes Krige 1864, 1866 og 1870—
71, med 163 IH. og Kort, 1,50 för
6,00. Tordenskjold, ill. Söroman
440 Sider, smukt indb. 0,85. Pon-
son du Terriel: Damen med det
röde Halsbaand, 288 Sider, eleg.
indb., 0,85. Grevinden af Monte
Christo, 425 Sider, kun 0,85.
Marlitt: I Schillingsgaardenn, eleg.
indb., 1,25. Do.: Guld Else, eleg.
indb. 1,00. Do.: Tante Cordula,
eleg. indb., 1,00. Do.: Karfunkel-
damen, eleg. indb., kun 1,00. Do.:
Gisela, eleg. indb., 1,00. Do.:
Blaaskæg, eleg. indb., 0,50. E.
Werner: Iane Forest, eleg. indb.,
0,85. Do.: Lövspring, eleg. indb,.
0.85. Do.: Danira, eleg. indb.,
0,75. Do.: Lykkens Blomst, eleg.
indb., 0,85. Bögerne ere nye, fejl-
fri og sendes mod Efterkrav.
Palsbek, Boghandel,
45 Pilestrœde 45, Köbenhavn.
ól ]xí ÖtgcvBwitu S\mv
*
Urskurður hjartans
Eftir
Charles Garvice.
Frh.
»Farið þér til ráðsmannsins*, sagði
hann, og benti Matthews að halda
áfram.
Ungi maðurinn tók ofan og sagði
alvarlegur í bragðí:
»Þakka yður fyrir, lávarður minn.«
Svo leit hann snögglega til Vero-
niku, og mátti lesa þakklæti í augna-
ráði hans. Veronika, sem sat bein
í söðlinum, horfði beint fram und-
an sér og lét sem hún tæki ekki
eftir því. Ef til vill hefir henni
fundist, að nógu mikið umstang
hefði verið gert vegna þess manns,
enda þótt hann hefði komið mjög
vel og kurteislega fram.
Þegar hún tók í taumana, sá hún
rauðleitan blett á vinstri hanska
sínum, Það var blóð. Fyrst hélt hún,
að hvolpurinn hefði meiðst, þrátt
fyrir alt — en svo datt henni alt
í einu sannleikurinn í hug. Hún
mundi, að hryssann hafði rekið
annan framfótinn í eitthvað, um
leið og ungi maðurinn hafði beygt
sig til þess, að ná í hvolpinn.
Hann hafði þá meitt sig líkam-
lega, ef til vill mikið, við hina
drengilegu tilraun sína til þess, að
bjarga hundinum. Ef til vill hafði
það þó verið ennþá meira meið-
andi, að jarlinn bauð honum pen-
ingana.
Hún leit á rauða blettinn og svo
á háa, íturvaxna manninn, sein var
nú kominn út á heiðina. Hélt hann
ennþá hvolpinum í fanginu. Roði
kom fram í kinnar hennar og hvarf
aftur. Hún beit á vörina, svo að
hvítu tennurnar komu í ljós. Hún
fann hjá sér löngun til þess, að
ríða á eftir honum og koma með
afsakanir, en drambið hélt aftur af
henni. Hún ypti aðeins öxlum og
hélt áfram leiðar sinnar.
Hvernig gat hún vitað, að skuggi
forlaga hennar reið við hlið hennar,
að tjaldið var dregið upp, og harm-
leikur Iífs hennar var byrjaður.
3. kapítuli.
Ungi maðurinn, sem hafði sagst
heita Ralph Farrington, hélt sem
leið lá heim að býlinu Dyrnar
stóðu opnar.. Hann leit inn í þokka-
lega, litla dagstofu. Ung og fögur
slúlka sat þar við glugga og las
sögu. Hún hafði bjart hár og blíð-
leg, dökk augu. Munnurinn var
lítili og myndaði dálitla skeifu, Hak-
an og þessi skeifulagaði munnur,
voru að vísu fögur, en höfðu þó
eitthvað það við sig, sem benti á
fremur lítinn viljakraft. Hún tók
dálítið viðbragð, þegar hún heyrði
fótatakið og stakk bókinni í vasa
sinn. Svo leit hún snöggvast fram
i eldhúsið, þar sem kona var að
sterkja lín. Hún stóð upp og horfði
á komumann. Feimnisroði kom á
vanga hennar.
»Fyrirgefið«, sagði Ralph. »Eg
er kominn með hvolpinn yðar.
Hann er héðan, eða er ekki svo?«
»Jú, þakka yður fyrir«, sagði hún
og gekk eitt eða tvö skref áfram,
til þess að taka við honum. Kiptist
svo alt í eitiu við og hörfaði undan.
Ȯ, hann er meiddur. Honum
blæðir.«
»Nei, nei, það er ekkert að hon-
um«, svaraði Ralph brosandi. »Eg
var rétt að segja orðinn undir hryss-
unni, en mér hepnaðist að bjarga
honum í tíma. Hrossið, ungu hefð-
armeyjarinnar, hlýtur aö hafa slegið
mig. Eg er ekkert meiddur«, sagði
hann enn fremur, þegar hann sá
meðaumkvunar- og hræðslusvipinn
á ungu stúlkunni. »Ekki vitund —
eg hefi bara fengið dálitla skrámu.«
Konan, sem var frammi í eld-
húsinu, hafði heyrt til þeirra. Kom
hún nú fram í stofuna með sterk-
ingarjárnið í hendinni.
»Mamma, þessi maður hefir bjarg-
að hvolpinum hennar Polly, og
hefir meitt sig við það«, sagði unga
stúlkan.
»Guð komi til!« svaraði móðir
hennar. »Hérna, Fanny, farðu með
járnið inn oir haltu áfram með
kragana.