Vísir - 30.07.1915, Page 4
v i &) i<
Bandaríkin.
Framh. frá 1. sföu.
þessa Ieið: Fyrstu mánuðina mund-
um vér geta lítið sem ekkert. Vér
gætum að vísu sent flotann ttl
Hellusunds, en bandamönnum
mundi ekki veröa svo mikill styrk-
ur að því, því vér eigum ekki nema
8 L flokks orustuskip, en England
mun hafa lokið smíði á 13 nýjum
orustuskipum við næstu árslok. Vér
getum einnig fengið sjálfboðalið,
hálfa milj. manns og farið að æfa
það, og sent það síðán til skot-
grafanna á Frakklandi og Belgíu.
Það mundi þurfa 6 mánuði til að
æfa liðið, og síðan þyrfti að senda
það yfir hafið, og þyrftum vér þá
að leigja útlend skip til þeirra flutn-
inga, eða gera upptæk þýsk skip,
sem nú liggja hér á höfnum.
í stuttu máli, er það óvíst, hvort
bandamönnum mundi meiri akkur
í að vér færum út í ófriðinn, heldur
en að fá frá oss skotvopn meðan
vér erum hluílaus þjóð.
Hann mintist einnig á hvernig
Bandaríkjamenn af þýskum ættum
mundu taka því ef Bandaríkjamönn-
um Ienti saman við Þjóðverja. Seg-
ist hann hafa safnað gildum rökum
fyrir pví, að þeir mundu reynast
trúir þegnar Bandaríkjanna og grípa
til vopna gegn sínu forna ættlandi.
Færir hann ti! þess orð margra
merkra manna af þýskum ættum,
sem nú eru þegnar Bandaríkjanna,
svo sem orð Hermanns Ridder, rit-
stjóra New Yorker Staats-zeitung.
Þá minmst hann á Þjóðverja þá,
sem nú eru í Bndaríkjunum og
ekki hafa öðlast þegnrétt þar. Segir
hann að við því megi búast að þeir
geri upphlaup, en að ekki muni
verða meiri brögð að því en svo
að lögreglan geti vel ráðið við þá.
BÆJARFRfiTTlR
Afmæli á morgun.
Carolina Jónasson ekkja,
Anna Þórarinsd. húsfr.
Geirl. Stefánsdóttir húsfrú.
Gísli Samúelsson sjóm.
Ólöf Björnsdóttir húsfr.
Torfi Magnússon
Jón Helgason kaupmaður.
Jón Þorbergsson fjárræktarm.
«Goðafoss*
kom til Kaupmannahafnar í gær.
Hann hafði ekki verið stöðvaður
á Ieiðinni.
Landsverkf ræðingurinn
fór til Hafnarfjarðar í gær til þess
að rannsaka veginn. Mun það
sennilega boða betri veg — akfær-
an — í framtíðinni, og yfir því
munu bæði menn og skepnur fagna.
Upp að Grímsá
fara þeir í dag Ó. G. Eyjólfs-
son og Jón Björnsson kaupm. Þeir
fara Iandveg.
mmmmmmmm m u » ' mi.-.M 't.u ; t.u i. jn.ju mu. ■»» iwhiimkih mmm » ■—
'CsI^wíúty^.
Samkvæmt samþykt bæjarstjórnar frá 15. júlí
þ. á., hækkar verð á öllu gasi frá 1. ágúst næst-
komandi, og reiknast gas frá þeim tíma þannig;
Gas til Ijósa á 27 aura teningingsmeter hver
Gas til suðu, hitunar og gangvéla á 20 aura tenm.
Automat-gas á 25 aura teningsm.
Allir þeir gasnotendur, sem hafa Automat, verða að borga
mismun þann, sem af hækkuninni ieiðir, eftir reikning um Ieið og
gasmælarnir eru tæmdir.
28. júlí 1915.
Gasstöð Reykjavíkur.
Brjóstsykursverksmiðjan í
Stykkishólmi
býr til alls konar brjóstsykur úr besta efni. Pantanir afgreiddar um
hæl um alt land. Styðjið íslenskan iðnað. Reynið Stykkishólms-
sætindin — og þér kaupið aldrei annarsstaðar.
Einar Vigfússon.
Hittist á Hótel ísland nr. 9, fyrst um sinn.
}
’ Veðrið í dag.
Vm. Ioftv. 764 a. kul U 10,4
Rv. 41 764 logn <1 11,0
íf. II 765 s. andv. ii 15,5
Ak. U 765 s. andv. u 11,0
Gr. ii 730 s. gola u 12,0
Sf. U 766 logn ii 7,5
Þh. ii 765 logn u 10,0
Fáninn á Mentaskólan-
S um. Vísi hefir boristathugasemd
um fánann á Mentaskólanum, en
birtir hana ekki eins og hún er orð-
uð vegna þess, að hún erall-harð-
orð í garð skólastjórnar, en oss ó-
kunnugt, hver skrifað hefir. Blaöið
birtir aldrei greinar, sem því er ó-
kunnugt um höfund að. — En
hvers vegna er ekki ísl. fáninn dreg-
inn á stöng skólans ?
Fasteignasala.
D. Thomsen ræðismaður hefir
selt G. Eiríkss heildsala hús sitt við
Hafnarstræti og Lækjartorg fyrir
60,000 krónur, en áskilið sér leigu-
rétt á tveim efri hæðunum að norð-
anverðu fyrst uin sinn ; þar verða
því skrifstofur þýska ræðismannsins
og heilúsala Thomsens eins og áður.
Torfi Magnússon,
faðir síra Richards bankabókara
og Magnúsar sýslumanns og bæj-
arfógeta, er áttræður í dag.
»
Islensku kolin.
í »Vísisc-gIugga er uppdrátturaf
kolanámunni í Stálfjalli (gegnum-
skurður) — og sýnishorn af kol-
. unum.
REYKTURLAX
er ódýrastur í
versl. Breiðablik.
Lækjarg. 10. Sími 168.
Reykið að eins
Chariman »e
Vice-Chair
Cigarettur.
Fást hjá öllum betri verslunum.
OSTA og PYLSUR
er best að kaupa
í versl. Breiðablík,
Lækjarg. 10. Síml 168.
Dreng eða stúlku
með löngun og hæfileika til að
læra að teikna, tek eg til kenslu.
Skiltavinnustofan á Hverfisg. 44.
Bendtsen.
Det kgl. octr.
Brandassurance Comp.
Vátryggir: Hús, húsgögn, vörur
alskonar o. fl.
Skrifstofutími 8-12 og 2-8 Austurstr.
N. B. Nielsen.
Tóma poka
undan rúgi og hrísgrjónum
(200 pd.), kaupir
Versl. „Hlíf“ Grettisg. 26
háu verði. Hringið 503.
Góð kæfa
niðursoðin, fæst nú aftur í
Söluturninum.
H æ s t verð á ull og prjónatusk-
um er í »Hlíf«. Hringið upp síma
503.
Bókabúðin á Laugavegi 22
verslar með brúkaðar bækur inn-
lendar og útlendar.
Á b u r ð kaupir Laugarnesspítali.
T a u r u 11 a óskast til kaups.
Afgr. v. á.
VINN A
Kaupakona óskast. Upp-
lýsingar á Laugav. 67 uppi.
Kaupakona óskast á gott
sveitaheimili. Hátt kaup. Uppl. á
Lindargötu 36, uppi.
Kaupakona óskast á gott
heimili nálægt Reykjavík. Upplýs-
ingar á Lindargötu 8, A.
H USNÆÐI
Gott húspláss,3 herbergi
og eldhús, óskast frá 1. okt, helst
í Austurbænum. Uppl. gefur Carl
Ólafsson Ijósmyndari.
2 herbergi með aðgang að
eldhúsi, til leigu nú þegar. A. v. á.
2 herbergi til Ieigu 1. ágúst
í Þingholtsstræti 21.
TAPAÐ — FUNDIÐ
U m s I a g meö póstkortum tap-
aðist frá afgreiðslu Vísis að Vest-
urgötu 3. Skilist á afgreiðsluna.
R a u ð u r foli þriggja vetra mark
biti fr. vinstra, er í óskilum í Lamb-
haga í Mosfellssveit. Verður seldur
eftir 7 daga ef eigandi gefur sig
ekki fram, og borgar áfallin kosnaö.
Merktur gullhringur fundinn. Vitja
má á Grundarstíg 21. Gísli Jó-
hannsson.
Vátryggingar.
Vátryggið tafalaust gegn eldi,
vörur og húsmuni hjá The BriU
hish Dominion General Insur-
ance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gíslason.
H FÆÐI
F æ ð i fæst í miöbænum. Afgr.v.á.
1 Prentsm. Gunnars Sigurðssonar.