Vísir - 28.07.1916, Síða 1
Utgcfandi
HLUTAFÉLAG
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400
VXSIR
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel íslami
SÍMI 400
6. árg.
Föstudaginn 28, júlf 1916.
203. tbl.
Gamla Bíó
heldur í kveld 2 sýningar.
Kl. 9 veröur sýnt:
Evrópustríðið
1915-1916.
Sannar og skýrar stríðs-
myndir í 3 þáttum frá víg-
stöðvunum í Frakklandi.
Aðgöngumiðar að þessari
sýningu kosta 40 og 25 au.
V
Kl. 10 verður sýnd:
Holskurðir Dr. Doyen8
Pessi mynd verður sýnd
í kveld í síðasta sinn nema
ef fólk alment óskar að hún
ve«ði sýnd oftar.
Myndin er afar dýr og aðgm.
kosta 40 aura.
í
Bæjariréttir
Affmnliskort með íslenzk-
um erlndum og tnargar nýjar
tegundir korta, fást hjá Hclga
Árnasynl f Safnahúsinu.
Erlend mynt.
Kaupmhöfn 27; júlí.
Sterlingspund kr. 16,70
100 frankar — 60,50
100 mörk — 64,00
DoIIar — 3,57
R e y k j a v í k
Bankar Pósthús
SterLpd. 17,05 17,25
100 fr. 62,00 62,00
100 mr. 64.75 64,75
1 florin 1,50 1,50
DoIIar 3,70 3,75
Ingólfur
kom frá Borgarnesi í gær með
vestan og norðanpóst. Meðal far-
þega voru margir Reykvfkingar, er
verið hafa í skemtiför upp um
Borgarfjörð.
Landrltari
kom heim í gær.
Skjold,
síldveiðagufuskip O. Johnsonar
& Kaabers, kom frá Danmörku í
gær. Skipstjóri er Ingvar Þorsteins-
son, Skjold fer norður í dag.
Símskeyti
frá fréttaritara Vfsis
Khöfn 27. júlí.
Rússar hafa náð á sltt vald borginni Erzingen
og þar með lagt undir sig alla Armeníu.
Vilhjálmur keisari er kominn til herstöðva Hind-
enburgs, og er búfst við að þar verði hafin sókn af
hendi Þjóðverja innan fárra daga.
Við Erzingen höfðu Tyrkir búist allramlega um til varnar gegn
Rússum, og var þar síðasta fótfesta þeirra í Armeníu. Erzingen er um
170 kílómetra í vestur frá Erzerum og um 150 í suöur frá Trapezunf.
Búisl var við sókn af hendi Hindenburgs fyrir nokkru síðan, og
fregnir hafa viö og við komiö uni að hún væri hafin, en lítiö virðist
hafa úrðið úr. Er svo sagt í enskum blöðum, að hann hafi heimtað
liðsauka og neitað að hefja sókn, ef honum yrðu ekki sendar 250 þús.
hermanna. Má vera að hann hafi nú fengiö þær, og keisarinn er á við
nokkrar þúsundir. — Má gera táö fyrir því að mikið sé undir því
komið fyrir Þjóðverja að sókn þe^si takist vel. Hefir Hindenburg lengi
verið átrúuaðargoð þeirra, og ef traust þeirra á honum ætti nú aö bregð-
ast, mundi alþýöu manna þykja fokið f flest skjól. Og ef sannar eru
sögurnar af uppgjöf Austurríkismanua, er óhætt að fullyrða að mið-
veldunum sé það lífsnauðsyn að neyða Rússa til að draga úr sókninni
þar syðra, og er það auðvitað tilgangurinn meö þessari sókn Hinden-
burgs.
Tilkynning.
Fýrst um sinn verður skrifstofa
Kaupmannaráðs Islands
að eins opin frá 3—4 e. h. á hverjum virkum degi.
Landssímastöðin að Esjubergi verður lögð niður frá 1. næsta
mánaðar að telja. 27/7 1Q16.
Goðafoss
fór frá Leith í fyrradag með 104
farþega af Flóru.
Island
fór sama dag frá Leith.
Gullfoss
fór í gær um kl. 5 frá Seyðis-
firði áleiðis til útlanda.
Hellagfiski
seldu Keflvíkingar bæjarbúum í
gær, 6 vænar lúður. Verðið var
25 au. pd.
Flsksalar
bæjarins gera út vélbát héðan til
fiskveiða út í flóann. Heíir hann
fengið dágóðan afla, en það hrekk-
ur þó skamt handa öllum bænum.
40 arkir
segir ísafold að nefndarálit launa-
nefndarinnar verði, þegar það er
Nýja Bíó
Fátækir^ríkir
Sjónleikur í þrem þáttum, ieik-
inn af ágætnm norskum og
dönskum leikendum, svo sem:
S. Fjeldstrup, PHilip BecH,
Gerda Ring o. fl.
K.F.U.M.
Valur (Yngri deild)I
Æfing í kveld kl. Qí/t.
ÍNNILEGT hjartans þakklæti
vottum við þeim er auðsýndu
okkur hluttekningu við fráfall og
jarðarför okkar elsku litlu dóttur.
Rvík 26. júlí 1916.
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR.
GUÐM. SÆMUNDSSON.
HÉRMEÐ tilkynnist vinum og
vandamönnum nær og fjærj að
elsku litla dóttir okkar, Helga
Kristjana, andaðist 25. þ. m. Jarð-
arförin fer fram frá heimili okkar
laugard. 29. þ. m. kl. 12 á hád.
Ingólfshúsið, Rvík, 27/t-’16*
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTiR,
MATTH. ÓLAFSSON.
Þ A Ð tilkynnist ættingjum og
vinum að elsku litla dóttir okkar,
Þórhildur Ásdís, verður jörðuð
laugard. 29. þ. m.
Jarðarförin hef»t með húskveðju
frá heimiii okkar kl. 3 e. m.
Kárastíg 13, Rvík.
INGIBJÖRG PÉTURSDÓTTIR,
BRYNJÓLFUR EINARSSON.
komið í bók; enda er mikið starf
og talsvert fé komið í það, og
vonandi að það komi að einhverju
gagni.