Vísir - 01.09.1916, Blaðsíða 4
V I S I R
Þeir fóru til herbergis síns.—
Bleik lokaði dyrunum og rann-
sakaði herbergið. Að því loknu
sagði hann við Tinker:
»Jæja, talaðu nú drengur minn«.
Tinker stóð fast hjá húsbónda
sínum og mælti lágt:
»Eg sá San hér f borginni í
morgun«.
Bleik leit fast á hann.
»Ertu viss um það«, mælti
hann fljótlega,
»Eins og eg er hér iifandi«,
svaraði Tinker. »Þegar eg fór
héðan í morgun hélt eg niður
að Skipakvíunum. Eg sá yður
oftar en einu sinni í morgun en
eg gaf mig ekki fram. Eg fór
síðan til þess hluta bórgarinnar
sem Kínverjar búa í og var eg
í för með nokkrum hálffullum
sjómönnum. Vér fórum úr einu
veitingahúsinu í annað. Sjómenn-
irnir héldu að eg væri vikadreng-
ur á einhverju skipí. Þegar við
ætluðum að fara inn í eitt veit-
ingahúsið voru dyrnar alt í einu
opnaðar og út kom Kínverji. —
Andlit hans og háls var mest-
alt í reifum, en eg þekti strax
að þetta var San. Eg fýlgdi hon-
um eftir. Hann gekk niður að
höfninni og gekk þar frain og
aftur dálitla stund og fór svo til
sama hússins sem hann hafði
komið úr«.
«Hvaða hús er það sem þú
átt við?« spurði Bleik.
Eg á við húsið sem þér sögð-
uð einu sinnj að væri versta
ópíumsreykingarholan í allri borg-
inni«.
»Eg kannast við húsið, sagði
Bleik við sjálfan sig, það er löng
og lág bygging og ætíð hlerar
fyrir öllum gluggum. Já, San er
þar, og og það sannar að Wu
Ling er ekki langt í burtu.
Frh.
Hækkun gasyerðsins.
—o—
Eins og áður hefir veriö skýrt
frá hér í blaðinu, og öllutn bæjar-
búum er kunnug, samþykti bæjar-
stjórnin á sínum tíma aö hækka
gasverðið frá 1, ágúst, og ákvað
það frá þeim tíma þannig:
Ljósagas 40 a. ten.m
Suðu- og véiagas 30 a. ten.m.
Sjálfsalagas 35 a. ten.m.
Þeir sem kaupa gas eftir mæli,
reikningsgas, til suðu eða Ijósa,
þurftu því ekki að ganga að því
gruflandi, að þar meö var gasiö
hækkað í veröi um 100% frá því
sem þaö var upphaílega: aö fyrir i
jafnmikið gas og upphaflega kost- I
4K
Simskeyti
frá fréttaritara Vísis
Khöfn 31. ágúst
Tyrkir hafa sagt Rúmenum stríö á hendur en
Búigarar láta þá afskiftaiausa.
Rússar og Rúmenar þrengja áð Ungverjalandi
að norðan og sunnan,
Ef Grikkjastjórn grípur ekki tii vopna með banda-
mönnum er stjórnarbylting óumflýjanleg í iandinu.
— Orðasveimur er um það að konungurinn sé flúinn.
aði eina krónu, ættu þeir framveg-
is að greiða tvær; því upphaflega
kostaði:
Ljósagas 20 a. ten.m.
og suöugas 15 a. ten.m.
eftir mæli. Verðiö hefir verið tvö-
faldað.
En um veröið á sjálfsalagasinu
gegnir ööru raáli. — Þeir sem
sjálfsala nota, hafa sumir hverjir
ekki gert sér ljóst hve mikil hækk-
unin vat. Margir standa í þeirri
skoðun, að sjálfsalagasiö hafi ekki
átt að hækka nema um 10 aura
ten.m., samkvæmt ákvörðun bæjar-
stjörnarinnar: úr 25 aurum upp í
35 aura, þ. e. krónuvirðið um 40
aura. — En nú um mánaðamótin
koma innheimtuménii gasstöðvar-
innar og heimta 75 aura borgun
með hverri krónu, sem í sjálfsalan-
um er, þ. e. 35 aurum meira en
menn bjuggust við. — Og þeir,
sem eru færir í reikningi segja, aö
þá kosti ten.m. 43% au> eða sem
næst 9 aurum meira en bæjarstjórn-
in ákvað.
En sá misskilningur er sprottinn
af því, að menn halda að sjálfsala-
gasið hafi upphaflega kostað 25 au.
ten.m. í stað þess aö það kostað.
20 aura, eöa réftara sagt 15 aura,
eins og mælisgasið, en ieigan af
áhöldunum 5 aura; fyrir hvern 25
eyring sem látinn er í sjáltsalann,
segir gasstööin að maður fái 1 7«
ten.m. af gasi og kostar það 18%
au,, en leigan af áhöldunum, með-
an það er notaö, 67« au- Af
krónunni veröa því 25 aurar leiga,
en 75 au. gasverð, og vegna þess
að gasveröiö tvöfaldast (verður 30
í stað 15) en leigan helzt óbreytt
(5 au.) verða sjálfsalanotendnr aö
borga 75 aura raeð hverri krónu,
sem í mælirinn er látin, Verð-
hækkunin á sjálfsalagasinu er því
nákvæmlega sú sama og á mælis-
gási.
En það er annað mál, hvort
gasið veröur með þessu dýrara en
annað eldsneyti. — Og það er Iíka
annað máí, hvort bæjarstjórnin hefði
ekki getað látið sér nægja minni
hækkun á gasinu, eða aö minsta
kosti á sjálfsalagasi, eða Iálið feig-
una falla niður, því hún virðist
vera att of há.
« Bæjaríréttir l£5i
aiægSSðE
Afmceli í dag:
Steinunn Vilhjálmsdóttir, ungfru.
Afinæii á morgun:
Árni Eiríksson, bankagjaldkeri á
Akureyri.
Bjarni Bjarnason, sjóm.
Guöm. Helgason, prófastur.
Ingibjörg Sigurðardóltir, ekkja,
Jóh. C. Thomsen, ekkja.
Linnæus Östlund, stud. art.
Afmcaliskort með íslenzk-
um erindum og margar nýjar
tegundir korta, fást hjá Helga
Arnasynl í Safnahúsinu.
Veðrið ( dag:
Vm. loftv. 743 n. sn. v. “ 7,2
Rv. “ 746 nna.st. kaldito 8,2
Isaf. « «
Ak. „ 741 n.n.v.st.gola “ 5,5
Gr. « 707 n.n.v.st. gola« 3,0
Sf. " 738 n.a. gola “ 7,1
Þh. „ 740 s. sn.vindur » 11,6
Erlend mynt.
Kaupmhöfn 30. ágúst.
Sterlingspund kr. 17,39
100 frankar — 62,00
Doliar — 3,68
R e y k j a v í k
Bankar Pósthús
SterLpd. 17,55 17,55
100 fr. 63,00 63,00
100 mr. 64.75 64,75
1 florin 1,53 1,53
Doltar 3,75 3,75
»Lauritz«,
seglskip, kom með cementsfarm
í gær til Hallgríms Benediktssonar,
Kari Nikulásson
framkvæmdarstjóri á Akureyri er
orðinn franskur konsúlsumboðsmað-
ur á Akureyri.
»Firda«
kom í gær með kol til >Kol og
Salt«.
»Gullfoss«
er á Akureyri.
»Island«
fór í gærmorgnn frá Leith.
. Landskosningarnar.
Fréttir eu nú komnar af kosn-
ingunum í öllum kjördæmum, nema
Barðastrandasýslu og Skaftafellssýsl-
um,. og hafa kosiö samtals 5335
kjósendur. Má því gera ráð fyrir
að alls hafi kosið samtals 6 þús.
manns og verður þátttakan þá ná-
lægt 25% á öllu landinu.
H. Hafstein
bankasljóra hefir verið eignað
kvæði, sem birt var í Dagsbrún 22.
f. m. meö fyiirsögninni *Þjóðstefn-
an nýja* og undirskrifað «Horna-
gyllir«, en Hafslein hefir látið Lög-
réltu bera það af sér.
HÚSNÆSI
Búðin í kjallaranum í Aöal-
slræti 18 fæst til leigu. [161
Lítið h e r b e r g i í góðu húsi
óskast til leigu. A. v. á. [1
2—3 herbergi og eldhús ósk-
ast. Uppl. gefur. Ól. Orímsson,
Lindarg. 23. [2
KAUPSKAPUR
Lítið brúkaðir ofnar til sölu
á Hverfisg. 46. Einnig nokkrar
iunnur af sementi. [172
Brúkaður dívan óskast til kaups
Uppl. á Kárastíg 13 B. [3
Barnavagga tii sölu á Ránarg.
29 A uppi. [4
Stór og faliegur hestur til sölu
á Klapparst. 1 A. [5
Kommóða óskast til kaups. A.
v. á. [6
Kommóða óskast keypt. Uppl.
á afgr. [7
Bókabúðin á Laugavegi 4 selur
brúkaðar bækur. Lágt verð. [3
Dugleg og þrifin stúlka óskar
eftir vist, sem fyrst. A. v. á, [166
Stúlkur vantar að Vífilsstaða-
hæli. Uppl. hjá yfirhjúkrunarkon-
unni. [8
Prentsmiðja Þ. Þ. Clementz. 1916.