Vísir - 25.04.1917, Blaðsíða 3

Vísir - 25.04.1917, Blaðsíða 3
VISIR Þá talar blaðið um erlend lög, er Bggert söng. Segir að bsxm hafi verið svo óheppinn að haía snert af hæsi, en hún hefði þð horfið bráðlega. Síðan hverfar | það aftur að íslensku lögnnum, og segir: „íslonsku lögin voru sem sagt hugnæmust. Þau höfðu mikil áhrif. Höfuðeinkenni þeirra voru hljómfegurð, lifandi innihald og djúp geðshræring. Hér við bæt- ist sem í Sverri konuDgi, áhrifa- ríkur undirleikur. Vögguvisan eftir Sigvaida, sem annars er ís- lenskur læknir og bróðir söngvar- ans, var upprunalega lag án orða. Varð að syngja hana og nokkur önnur lög tvisvar sinnum. Hr. Meissner (kapellmastaren) lék vel og stillilega undir. Áheyr- endur voru mjög margir og klöpp- uðu ótæpt“. Sprenging í hergagnaverkamiðju í Banda- ríkjunnm. Um miðjan aprílmánuð varð sprenging mikil í einni af stærstu hergagnaverksmiðjum Bandaríkj- anna, Eddystone nálægt Phila- delphia. Talið er að 160—200 manns hafi látið lífið en 200— 300 særat. — Þýskum samsæris- mönnum er um kent. Hljómleikar Einars Hjaliested. Loks hefir E. H. látið bæjar- búa til sín heyra, og mun flest- um, er heyrðu til hans, vera það ógleymanlegt. Auðvitað á E. H. langt í land ennþá til að geta talist einn af heimsins mestu listamönnum, en það sýndi hann á hljómleikn- um, að hann hefir fnllkomlega öll skilyrði til þess. Eitt er það sem er mikils vert í sönglistinni og mér finst E. H. vanta mikið á að hafa náð valdi yfir ennþá, og það ern „piano“ eða veikir tónar. En þíð sem er dýrmætast og fágætast enerfiðast að ná á þessari mjög erfiðu braut, á E. H. í ríknm mæli, og það er hinn ótakmarkaði kraftur, sem bann lætur i Ijósi með sínum aíar- sterku höfuðtónum, og er þá sem manni fari kalt vatn milli skinns og hörunds. Bödd hans hefir farið geisi- mikið fram siðan hann söng hér síðast. Ábeyrendur hans á hljóm- leikunum létn fullkomlega ánægju sína í ljós, og var E. H. klapp- aður fram hvað eftir annað. Enda fór hann mjög vel með flest af lögunum, en best fanst mér hann syngja „Elegy“ eftir Massenetog „Eilkönig“ eftir Schubert. Til- breytingarnar milli álfakonungs- ins, föðursins og barnsins voru gerðar nf svo mikilli snlld, að vandfundnir munn þeir, sem geta gert það betur. Leiksöngshæfi- leikar hans komu best fram í Siegmunds Liebeslied úr óper- unni „Die Walkiire", þrungið af ástartilfingum um leið og eldmóði. Y. Z. Fyrirspurn. Herra ritstjóri! Skammist þér yðar nú efeki, svona með sjálfnm yður, fyrir að bera á borð fyrir oss, vesala blaðalesendur. ófriðargreinar, sem búnar eru að fara gegnum melt- ingarfæri „Heimskringlu". Afþví að eg þykist þekkja yður fyrir „almennilegheita-mann“, þá vona eg að þér svarið spurningunni játandi í næsta nr. af yðar heiðr- aða blaði og gefið oss lesendum þær upplýsingar, að þvættingur- inn, sem birtist i Yísi i gær, hafi komist þar inn i misgripum. 24. april 1917. Bjarni Jósefason. S var. Eg verð því miður að bregðast vonum fyrirspyrjandans og svara þessari spurningu hans neitandi. Og ef satt skal segja, þá furðar mig nókkuð á því að hann sknli spyrjá svo fávíslega, ef hann er sá, sem eg hygg. Eg birti umrædda grein, sem tekin var upp úr Heimskrmglu, regna þess að hún sýnir betur en langar ritgerðir, hvernig hugsun- arhátturinn í ófriðarlöndunum hefir umsnúist, svo að nú er það K. F. U. M. BBBBHBHBBBHHEBS D.-D. fnndnr i kvöld kl. 8l/a. Allir piltar utanfélags sem innan, eru velkomnir. álitið jafnvel lofsvert, sem menn alment telja svívirðilegt. Þetta skín svo berlega svo að segja út úr hverri línu í nefndri grein, að^ eg vildi ekki fara að dæmi sumra skáldanna og setja langar hug- leiðingar um það á eftir — eðaí formála. Eg vildi heldur láta les- endurna sjálfa brjóta greinina til mergjar, en sé nú, þvi miður, að það hefir orðið ofraun fyrir snma þeirra, jafnvel þá skólagengnu, En ekki býst eg við því að þeir þykist þurfa að skammast sín fyrir það, „vitið er ekki meira en guð gaf“, og enginn má ætl- ast til meira af þeim, þó „almenni- legheita-menn“ séa. Ritstj. Erleiid myiit. Kbh. 28Á Bank. Pósth. Sterl. pd. 16,92 17.20 17,00 Frs. 62,75 163,75 64,00 DolL 3,57 3,67 3,60 y Istir og miliönir eftir gharlcs ígarvice. 140 Frh. Herra Jón Heron Ieit á hina grannvöxnn, fölleitn og sorgbitnu atúlku, leit á hana með kuldalegri alvörugefni, sem ótti víst að koma I stað meðaamkvunar, osr rétti henni í«kalda og þvala höndina er liktiat helst hálfnöguðu beini. Siðan sagði hann með dimmri og drungalegri röddu: — Sæl vertu, ídá mín! Eg Vona að þú berir byrði þína eins ogkristnnm manni sæmir, því að fiaótlætið er vort hlutskifti. Járn- brautarlestin var þrem fjórðungum Stundar á eftir áætlun. — Það var leiðinlegt, sagði ída lágt og lét hann sjálfan um ráða í það, hvort hún ætti við ^ótlætiskrossinn eða járnbrautar- veinkunina. — Þóknast yður ekki fá yður árbit eða eitt staup af víni? spurði hún svo og undráð- ist það með sjálfri sér, að þessi ógeðslegi og lúalegi karlfaushur skyldi vera í ætt við föður henn- ar sáluga. — Þakka þér fyrir. — Ónei, ekki beld eg það. Eg fékk mér brauðbita á járnbrautarstöðinni. Hann hröklaðist aftnr á bak og bandaði hendinni á móti bakka með vínglösum, sem Jason kom með inn til þeirra í þessum svif- um. — Eg bragða aldrei vín, því að bæði eg og alt mitt heimafólk erum ströngustu góðtemplarar. Þeim sem á tíma hörmnngarinnar og mæðunnar leitar sér huggunar og hugsvölunar á botni bikarsins er likt farið og manni þeim, sem staddur er í straamh&rðri á með fúinn og feyskinn staf í hendi, Hann treystir á stafinn, en þa& traust lætur sér til skammar verða og stafurinn hrekkur í "^ndur eins og brunnið kol. Eg vona, að þú drekkir ekki ffænka góð? — Nei — jú — stundum, en ekki mikið, svaraði hún út í hött og horfði á frænia sinn með undrnn, því að hún hafði aldrei áður augum Iitið neinn mann þessnm líkan. Herra Wordley rendi út eitt vinglasið og rétti ídu þegjandi annað. Dreypti hún á glasinu og tók ekkert eftir þvi, að frændi hennar starði áhana og ýgldi sig og gretti — Eitt staup af vini er aldrei til meins, sagði gamli lögfræðing- urinn, — einkum þegar maður er dapur og daufnr og alt geng- ur á móti. Reynið þér að drekka dálítið meira, góða mín. — Það er aigerlega álitamál og komið nndir þeim megiaregl- um, sem menn setja sér og þeirri sannfæringu, sem menn hafa öðl- ast, sagði herra Jón með mikilli áherzlu, rétt eins og hann væri kominn upp í ræðustólinn. — Vér verðum að ganea þá braut, sem samvizkan bendir oss &S fara og vér megnm ekki láta levðast af þeim blekkingum, sem holds- ius fýsn leggur á leið vora og vill lðta oss verða að fót&kefli. Hversu oft er oss ekki sýnt fram á, að áfengið sé eitur og------ Þessi romsa var öllu meira en Wordlcy gamli gat af borið. Var hann orðim kafrjóður i framan og spurði nú herra herra Jón Heron, hvort honnm þóknaðist ekki að ganga npp á gestaher- bergið, sem honnm væri ætlað. Gekk þessi höfðingi þá hátíðlega út úr bókastofunni, en lögfræð- ingurinn gamli leit á ídu bæði vandræðalegur og eins og í öng- nm sinuin. — Þa5 er eiginlega hvorkí skemtilegur né uppbyggilegur m&ður þesfi herra, góða mín, en það er áreiðanlega víst, að herra Jón Heron er bæði einstaklega samvizkusamnr og — hvað eg ætlaði að segju — góðhjartaður. Það er eflaust, svaraði ída kærHleysislega. — Mér er svo sem alveg sama. Þaðvar dæma- laust fallega gert af honum að takast svona langa ferð á hendur til þess að — til að vera við jarðarförina. Hann hefði náttúr- Iega getað látið það ógert, því að eg veit ekki einusinni hvort að faðir minn þekti hann nokkuð, og sjálf hefi eg aldrei heyrt hans getið fyrri. En er nú ekki alt tilbúið? spurði hún lágt

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.