Vísir - 01.03.1918, Síða 4
' ÍVjiSIH
-w« «i- •nI/- kL» s> —afci.ai3—sU<P
4
Bæjaríréttir.
Afmæli í dag.
Laufey Valdimarsd., stud. mag.
Þorgeir Jörgensson, stýrim.
Helga Snæbjörnsdkttir, húsfrú.
Bend. Daníelsson, verkam.
Heinrik E. Schmidt, ritari.
Páll Bergsson, kaupmaöur.
Sölvi Vigfússon, ArnheiSarst
Guðbrandur Þorkelsson, verslm.
j Margrét Gottskálksdóttir, hfr.
• Ole J. Halldórssen, vágnasm.
Una Brandsdóttir, húsfrú.
Jón Pétursson, námsmaöur.
Hverabökun.
Tveir menn héöan úr bænum,
Jóel Jónsson skipstjóri og Guöm.
Jónsson, skipstj., á Grettisgötu io,
hafa fengist við hverabökun á
Syöri-Reykjum i Mosfellssveit að
undaníörnu. Hefir Vísir fengið
sýnishorn af brauöum þeirra og er
það bragögott og líkist mjög
brauSurn Guttorms Jónssonar, og
þó tæplega ejns vel bakaö. Væri
það til bóta, ef hægt væri að láta
þau „lyfta“ sér betur. — Þeir Jóel
og Guðmmidur ráðgera að baka
brauð til að selja, ef vel gengur.
34 krónur og io aurar
(10.10, io.oo, 5.00, 5.00, 2.00,
2.00) voru Vísi færöar í gær handa
- manninum, sem misti fætuma.
Samverjinn.
Þrjár krónur voru Vísi færðar .
- gær handa Samverjanum.
Símslít.
Síminn til útlanda hefir verið
slitinn síðan í gær. Bilunin er ein-
hversstaðar á Shetlandseyjunum.
Hafa þar verið hríðar og illviðri
undanfarna daga.
Veðrið í dag.
í gærkveldi hlánaði aftur um
alt land og í morgun var talinn
4.5 st. hiti í Vestmannaeyjum, 2,2
hér í bænum, 2,5 á ísafirði, 6,8
á Akureyri, 2,5 á Grímsstöðum,
7.6 á S.eyðisfirði. Sunnan- og suð-
vestan átt alstaðar.,— í Færeyjum
var 3,5 st. hiti, v.n.v. átt og loft-
vog hærri en hér á landi.
Samsöngur
karlmannaflokks K. F. U. M..
verður haldinn í Báruhúsinu í
kvöld og endurtekinn á sunnudag-
inn. — Jón Halldórsson bankarit-
ari stýrir samsöngnum en Pétur
Halldórsson bóksali aðstoðar.
JEmbætti.
Umsóknarfrestur er nú útrunn-
inn um dómara- og lögreglustjóra-
embættin hér í Reykjavík. Um það
fyrra hafa sótt: Sýslumennirnir
Ari Arnalds, Guðm. Eggerz og Jó-
hannes Jóhannesson bæjarfógeti á
.Seyðisfirði. Um lögreglustjóraem-
bættið: Sýslumennirnir Guðm.
Eggerz, Karl Einarsson, Jón Her-
mannsson skrifstofustjóri og Vig-
fús Einarsson settur bæjarfógeti.
Um sýslumannsembættið í Borg-
arfjaröarsýslu hafa sótt: Guöm.
Björnsson sýslumaður á Patreks-
firði og Páll Jónsson yfirdómslög-
■ciaður.
Athugið.
Allskonar viðgerðir á húsmunum
eru f 1 j ó 11 og vel af hendi
leystar á trésmíðavinnustofunni
á Laugaveg 13.
aukur
fæst hjá
Jóni Hjartarsyui
& Co.
óskar eftir atvinnu yfir lengri
tíma í búð eða bakaríi. Tilboð
merkt „atvinna“ leggist inn á
afgr. Vísis.
G. Funk
verkfræðingur flutti fyrirlestur
um þjóðbúskap Þjóðverja i Báru-
húsinu í gær. Fyrirlesturinn var
vel sóttur og góður rómur gerður
aö honum.
„Villemoes“
fór frá Reyðarfirði í gær á leið
suður fyrir land hingað til Reykja-
víkur. Hafði hann fyrst átt að fara
norður fyrir aftur, eins og frá var
skýrt á dögunum, og var kominn
norður hjá Langanesi en hrepti
versta veöur og sneri.við. Höfðu
einhverjir örðugleikar verið á þvi
að fá skipiö vátrygt í þessa norö-
urferð, og mun það hafa valdið
nokkru um það að aftur var
snúið.
Símaskráin.
Símastjórinn hér í bænum hefir
beðið Visi að geta þess, til þess
að friða þá Símon og Lands-
símon, að viðbætir við símaskrá
bæjarins verði gefinn út 1. april.—
Annars verður Vísir að hallast að
tillögu Símonar, um að hentugast
væri að birta breytingar á síma-
skránni jafnóðum í auglýsingum
í blöðunum.
Skipaferðir.
„Rigmor“ fór héöan til Vest-
mannaeyja i gærmorgun, Svanur-
inn til Stykkishólms og Lagarfoss
vestur um land til Isafjarðar.
Bakarasveinafélagið,
eða formaður þess, hefir beðið
Vísi að geta þess, að bakarávinnu-
veitendur þeir, sem sendu félaginu
skrautritað kvæði á 10 ára afmæli
þess, hafi verið þeir Theodór &
Siggeir og sömuleiðis að kvæðinu
hafi fylgt 50 krónur í afmælisgjöf.
Nótur j Nótur!
Mikið úrval af
nýtísku og klassiskri fflnsik.
Vel við eigandi tækifærisgjöf.
Nótnaskrár ókeypis.
Hljóðfærahús Rvíkur
Opið frá 10—7.
Saumastofa
Ávalt stórt úrval af alskonar
fataefnum.
Komið fyrst til okkar og athugið
verðið. — Allir vilja kaupa sem
: : ódýrast á þessum tímum : :
Föt afgreidd eftir
máli á tveim dögum.
Vömntisiö
VÁTRYGGINGAR (
Brunatryggingar,
sæ- og stríðsvátryggingar.
A. V. Tulinius,
Miðstraeti. — Talsími 254.
Skrifstofutími kl. 10—11 og 12—2.
i
KartöfLur,
gaddaðar, sem ekki hafa þiðnað,
verða seldar í smásölu meðan
birgðir endast á 16 aura
purxclið. Reynslan sýnir að
frosnar kartöflur geymast ó-
skemdar, ef þær þiðna ekki fyr
en þær eru notaðar.
H.f. „ísbjörnmn“
við Skothúsveg. Sími 2B9.
Vísir er eísta og besta
dagbiað landsins.
r
TAPAÐ-FUNDIÐ
Tapast hefir lítil bók, „Regne-
kunsten“, frá Vatnssítig og upp
á Njálsgötu. Pinnandi vinsam-
lega beðinn að skila á afgr. (386
Peningabudda hefir tapast. —
Skilist á Lindargötu 43. (383
Nettur vasahnífur fundinn,____
Vitjist á Skólavörðustíg 40. (5
Nátttreyja fundin,’ Vitjist á
Njálsgötu 48 A. (10
5 krónur hafa tapast á Vest-
urgötunni. Skilist í Garðastræti
1. (7
Tapast hefir ullar-silki-svunta,
samanbrotin, frá Laugaveg 27
að Laugaveg 24. Skilist gegn
fundarlaunum að Laugaveg 24.
(2
Kvenkápur.
Nokkrar svartar kvenkápur til
sölu. Aðalstræti 16 niðri. (373
Fótbolti óskast keyptur. A,
v. á. (384
Barnakerra til sölu. Upplýs-
ingar Kárastíg 7, uppi. (6
Brúkaður olíaofn óskast til
kaups. Uppl. á Laugavegi 12.
___________________________(11
Fermingarkióll til sölu. A.
v. á. (13
Kork til sölu á Spítalastíg 9.
___________________________(16
Buffet, skrifborð [5 skúfiur]
og tvö sett svefnherbergishús-
gögn selst nú með góðu verði á
Laugavegi 24. (3
Tii sölu nýtt rúmstæði með
gorma botni og tilheyrandi
sæng og púðum í Ingólfsstræti
3. Zoph. Baldvinsson, heima kl.
7—872 í dag- Mjög ódýrt. (1
Til leigu herbergi með rúmum
fyrir ferðafólk á Hverfisgötu 32.
[20
í b ú ð, 4 herbergi og eldhús
óskast frá 14. maí n. k. Bjöm
Sveinsson versl. Breiðablik. (337
Til leigu herbergi með rúm-
um fyrir ferðafólk á Hverfisgötu
32. (20
Af sérstökum ástæðum er til
ieigu herbergi fyrir karlmanu
eða kvenmann. A.v.á. (18
Möblerað herbergi með for-
stofuinngangi til leigu á Hverfis-
götu 34. (8 -
2 herbergi til leigu í Bárunni.
____________________________(12
Herbergi til leigu rétt hjá mið-
bænum. A.v.á. (15
Einhleyp stúlka óskar eftir
stofu eða tveimur samliggjandi
herbergjum 14. maí. Tilboð
merkt „stúlka“ leggist inn á af-
greiðsluna. (17
2 herbergi ásamt eldhúsi ósk-
ast til leigu 14. maí. Upplýs-
ingar gefur lögregluþjónn Sighv.
Brynjólfsson. (4
VINNA
Stúlka óskar eftir vist 2—3
mánuði. A.v.á. (9
Röskur maður óskast til vors
á heimili nálægt Reykjavik. A.
v. á. (l^
Félagsprentsmiðjan.