Vísir - 08.05.1918, Page 2

Vísir - 08.05.1918, Page 2
V í S IR Fryst diikakjöt fæst daglega i í verzl. Von Liaugavegi 55. MOTORAR 2 nýir og ógallaðfr hráolíu-skipamótorar, „V Ö L U N D“ — 60 hk. og 40 hk. — til sölu hjá 0. Johnson & Kaaber. „Radiumsjóðnr Islands" stofnaður. Nægilegt fé fengið til þess að koiua á fót Radinm- Lækningastofnun liér i Reykjavík. Þau tíðindi gerðust á laugar- daginn var, að stofnaður var hér sjóður, er nefnist „Radiumsjóður íslands“. Á stofnfundinum skýrði Jón Laxdal kaupmaður frá því fyrir hönd nefndar þeirrar, sem Odd- fellow-félagið haíði kosið til að safna fé til radiumstofnunar- innar, að þegar hefðu safnast kr. 150000,00 í innborguðu og lofuðu fé. Af þeirri upphæð höfðu safnast 27 þús. kr. áður en Oddfellowar tóku málið að sér, og var skýrt ftá þeim gjöf- um í blöðuuum. Meðal Odd- fellowa hafa safnast síðan eða verið lofað um 40 þús. kr. og 88 þús. kr, verða lagðar fram af einstökum mönnum öðrum og fólögum. Stærsta gjöfin, sem fram hefir verið lögð til sjóðsins er frá Thor Jensen stórkaupmanni, 20 þús. kr. að upphæð. En fyrstu gjöf- ina (10 þús. krónur) gaf fiski- veiðafélagið „Haukur“ og næstir urðu Ludvig Xaaber (5 þús.) og Geo. Copland (10 þús.t Aðrir hæstu gefendur utan Oddfellow- félagsins eru: hlutafélagið Bragi meS 3000 kr. og Elías Stefáns- son útgerðarmaður meó 2500 kr. og ýmsir með 500—1000 krónur. Stjórnir í nokkrum félögum hafa lofað álitlegum fjárhæðum að áskildu samþykki oðalfunda, sem ekki þarf að efa að veitt verði. Á stofnfundi Radiumsjóðsins voru samþykt lög fyrir hann, en samkvæmt þeim getur hver sá orðið fólagi í honum sem leggur fram 100 kr. tillag og allir f'ó- lagar hafa jafnau atkvæðisrétt. í stjórn sjóðsins voru kosnir: Thor Jensen (formaður), Halldór Daníelsson yfirdómari (varaform.) Sveinn Björnsson yfirdómslögm. (ritari), Jón Laxdal (gjaldkeri) og Sæmundur BjarnHéðinsson prófessor, og varamaður Eggert Claessen yfirr.málafl.maður. — Endurskoðendur Jón Pálsson bankagjaldkeri og Morten Han- sen skólastjóri og til vara Matth. Einarsson læknir. Radiumstofnuninni verður kom- ið á fót svo fljótt sem unt verð- ur og getur hún væntanlega tek- ið til starfa á þessu ári. KYNDARI Vamir kyndari óskast nú þegar á botnvörpunginn Snorra Goöa Upplýsingar hjá Hf. Kveldúlfi. Nokkrar stúlkur geta fengið atvinnu á Garðskaga hálfsmánaðartíma við niðursáningu kartaflna. — Semjið við Einar Helgason í Gróðrarstöðinni, kl. 4—5 síðdegis. lolumbia Brammofonplötur Mikið úrval nýkomið. Pór. B. PorláKsson Bankastræti 11. Ms. Mevenklint fœst leigö til flutninga innanlands. Fermir um UO tons þungavöru. Sanngjörn ieiga. Samiö sé viö Ó. BeDjamínssou (hús Nathan & Olsen). «*imi 166. Síldartunnur. 800 síldartunnur, þar af tæpur helmingur saltfyltar, eru til sölu á Siglufirði. Lysthafendur sendi tilboð sín f lokuðum bréf- um merktum: ,Síldartunnur‘ á afgreiðslu þessa bláðs fyrir 15. þ. máo. Heyvinna. 12 stúlkur og 8 karlmenn geta fengið vinnu á Lágafelli yfir næstkomandi heyvinnutíma, e£ .samið er við undirritaðan fynr 20. þessa mánaðar. Bogi A. J. Þórðarson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.