Vísir - 16.06.1918, Síða 2
v i s i a
einnig í brjósti þeirra er kunna að meta dugn-
aðinn og hreystina, er þarf til þessa afreks.
Þegar litið er nú á allar þessar áþreifan-
legu reyndir, keniur aftur og aftur fram sú
spurning, er fyrst vaknaði þegar Þjóðverjar
réðust inn i Belgíu: hvað er og verður óleyfi-
iegt, hvernig sem á stendur, jafnvel i „varnar-
stríði"? Belgía — eg lala ekki um hin sérstöku
hroðaverk (um þau vitum vér því miður aug-
sýnilega betur en þér, kæri prófessor); yfir
höfuð að tala ekki úm hið sérstaka tilfelli,
Belgiu, þó að það með nokkrum hætli hafi
orðið sú „böse Tat“, sem með bölvun sinni
liefir leitt Þjóðverja lengra og lengra. En bak
við tilfellið Beigíu, kemur einmitt hin mikla
siðréttarspurning, er eg nefndi, fram: live langt
má riki fara, þó i neyðarvörn með vopnum
sé?
Eigi siðrétlur þjóðanna, eins og eg held,/
að liafa sömu grundvallarreglur og siðréttur
einstaklinganna, þá er ekki svarsins'mjög' langt
að leita. Jafnvel þó um líf mitt og allra ást-
vina minna væri að tefla, þá eru þó til þeir
glæpir, er eg vildi ekki drýgja, enda þótt eg
með því gæti séð þeim borgið. Og slikur glæp-
ur virðist mér tilfellið Belgía — því að allar
tilraunir Þjóðverja til að finna afsakanir, er
jafnvel komast að þeirri niðurstöðu, að Belgía
hafi—ráðist á Þýskaland—þær eru blátt áfram
hlægilegar, og ókarlmanniegar að auki. Nei,
jafnvel i sárustu neyðarvörn má þó, þegar öllu
er á botninn hvolft, enginn maður, og engin
þjóð heldur, gleyma gefnu orði og heiðri sjálfs
sín.
Og hvernig verðum vér friðsamir hlutleys-
ingjar að dæma um sjóhernað Þýskalands
frá þessu sjónarmiði? Sem gerir sér að viður-
kendri reglu óþarfa grimd og jafnvel laun-
morð á friðsömum, vopnlausum mönnum, er
berjast fyrir lífi sinnar litlu þjóðar, og það
án mikils gagns fyrir Þýskaland sjálft, þegar
alt er komið í kring. Viljið þér í alvöru verja
slíkt með þvi, að það sé' „nauðsyn“? Þvi trúi
eg ekki, kæri prófessor; ekki vilduð þér heldur
kaupa jafnvel líf ltonu yðar og hins hrausta
sonar yðar fyrir þess háttar glæpi. Eg tala
ekki um sprengjuinnflutning, brennur, eitur-
byrlun og því um líkt í hlutlausum útlöndum.
En öll dómgreind þýsku þjóðarinnar virð-
ist mjög hafa dofnað af kenningu þeirrar
stefnu, sem ráðið hefir síðasta áratuginn, og
blindu fylgi við úrelt stjórnarkerfi, sem ósam-
rýmanlegt er orðið við hugsanalíf vorrar tíðar.
Eg dæmi af orðum sjálfs yðar um lofthern-
aðinn. Þar ætlum vér Norðmenn, sem liingað
til höfum okkert verið við hann riðnir, að hafa
nokkurn veginn „hlutlausa" skoðun. Þér virð-
ist æl!a, að Zeppelínar ykkar ráðist aðeins á
vígi og hergagnasmiðjur, þar sem flugmenn
óvinanna — og þeir einir — kasti sprengj-
um í friðsama, opna bæi. Og þér spyrjið, hvers
vegna vér verðum ekki æstir af þessu.
Kæri prófessor, háldið þér í alvöru, að vér
yrðiun ekki uppvægir af slíkum mun? Þá
skját'last yður mjög. En spurningin cr aftur:
hvað er sannleikurinn, livernig er modus
practicandi þýska kerfisins? Gerum ráð fyrir,
að tilgangurinn væri i raun og veru sá einn
að kasta sprengjum í vígi og hergagnasmiðjur,
en hlifa öðru sem mest. En hve langan tíma
þarf þýska ])jóðin til að skilja, að þetta varð
fúá upphafi vega eikki annað en imyndun ein,
að- aðalárangur Zeppciínaferðanna varð ein-
mitt morð á varnarlausum borgurum, og
sprengjukastið þess vegna að eins einn iiður
í ódáðafestinni, og að þýska kerfið bersýnilega
reynir að ná hernaðarmarki sínu með hlóðug-
um hryðjuverkum. En í stað þess að játa þetta,
vorkenna þeim sem fyrir því verða og ef til
vill hætta þessum blóðsiithellingum, er yfir-
leitt koma að sáralitlu haldi, þjá lætur þýska
þjóðin sér nægja ]>œr jesúíta-páfjaðrir, sem
kerfið skreytir hin sífeldu afrek með — afrek,
sem því sjálfu er eflaust ljóst að eru aðallega
hryðjuverk: vcr köstum sprengjum vorum i
„vígið London", „vígið París'* og hvað það
nú lieitir. IJáttvirti herra prófessor, hafið þér
áður vitað um „vígið London“, með fimm
miljónum íbúa? Eg ekki fremur en t. d. um
„vígið Giessen". Þegar þýska stjórnin á sin-
um tíma setti landi voru tvo’kosti, með þeim
hætti og á þeim grundvclli, er vér aldrei skul-
um gleyma, vorum vér því undir það búnir
hérna að sjá Zeppelina yfir liöfðum vorum ein-
hvern góðan veðurdag, í þeim tilgangi að
kasta sprengjum í „vigið Kristianiu". Þér bros-
ið? Nú, jæja, þér þekkið lika sjálfur Kristianiu-
vígin. Eg hefi aldrei séð þau. Futlar 3—4
mítur suðurfrá er firðinum lokað með tundur-
dufium og varnarbyssum. En vinir minir meðal
Jiðsforingjanna gátu samt frætt oss um það,
að eftir þeim reglum, er þýska kerfið fylgir í
þessu stríði, er þetta, og þótt miklu minna
væri, nóg til þess að 'hafa það að yfirvarpi,
er þýska þjóðin fellist á, til þess að kasta
sprengjum á Kristianiu, sem er algerlega
berskjölduð.
Þér skuluð þó ekki ætla, að eg fallist á að
svarað sé ,með þvi að kasta sprengjum í opna
þýska bæi. Her er, þvert á móti, einmitt til-
felli þar sem eg fyrir mitt leyti mundi segja:
heldur þola alt sjátfur, en gera slikt. En þér
inegið ekki gleyma, kæri prófessor, hvernig
málum er komið. Hvað eftir annað hefir al-
menningsátjtið í Englandi heimtað, að kastað
væri á sama hátt sprengjum á opna varnar-
lausa bæi, til hefnda fyrir þessa Zeppelina-
leiðangra, sem eru óþarfir frá hernaðarlegu
sjónarmiði og þvi heimskulcga grimmúðugir.
Leiðtogar Englands hafa þorað að .hafna því;
þeir vilja ekki heyja strið með þeim liætti.
Hefir nú Þýskaland skilið þá hygni og dreng-
skap, er kom fram í ])ví að hafna þessu, og
hætt við loftárásirnar á opna bæi og sveitir
Englands? Þvert á móti, það lieldur áfram,
altaf 'lengra og lengra. Geta þá Þjóðverjar,
sem sjálfir bregða „nauðsyninni“ svo ákaft
fyrir sig sem skildi, furðað sig á því, þó að
óvinina bresti þolinmæðina, er þeir rcka sig
á svo dýrslegan sljófeik?
Því að þér munuð þó eflaust ekki neita
þvi, að í þessu efni liafa landar yðar hinn
ömurlega forgöngurétt — eins og í svo rnörg-
um öðrum skelfingum stríðsins, lofteitrun
og hvað það liefir nú alt saman verið. Jafnvel
í liinum ægilega sveltuhernaði hefir, því mið-
ur, að þvi er virðist, þýskt fordæmi og kenn-
ing þýskra stjórnvilringa visað veginn.
— Frirgpfið mér þessi ýtarlegu ummæii
um sprengjukastið; eg vildi að eins svara
nokkrum athugasemdum i bréfi yðar; en það
er ekki mitt hlutverk að flytja mál fyrir annan
stríðsaðilann. Mér er breytni þýsku leiðtog-
anna, þýska kerfisins, við oss hlutleysingja,
fyrst og fremst við minn litla Noreg, nóg og
meira en nóg, til að kveða upp harðan dóm.
Mörgum af oss virðist í raun og veru sem
þýska þjóðin síðasta áratuginn hafi verið
alt of lirifin af mikilleik sjálfrar sín, og því
orðið þverbrestur á dómgreihd hennar og
siðgæðistilfinningu. Hún er í vorurn augum
ekki verulega friðsöm þjóð, verulega fús til
að fórna neinu friðarins vegna — það er að
segja, neijiu af sínu, af síniini eigin kröfum.
Þvert á móti, hún liefir verið a'lt of ófús á
að reyna að bætta herbúnaði, alt a.f glamrað
gunnhlifum, ef dæma skal eftir leitogunum,
eftir „kerfinu“ Og nú, eftir þau mcðul og
meðferðir, sem hið herjandi Þýskaland hefir
haft í þessu striði. Þjóðin mun að lokuin standa
hötuð, og fyrirlitin í tilbót, ef hún heldur áfrain
að fylgja öðrum eins leiðtogum og hingað til—
hve fúslega sem menn kannast við fórnfýsina,
hreystina og allar góðu hliðarnar.
Ekld að Þýskaland eigi sök á allri eymd
þessara tíma, fjarri því. Eða að mér detti i
hug að gera of mikið úr héiminum að öðru
leyti. Mitt hlutverk er hér að eins að benda á
það, sem eg finn Þýskalandi sérstaldega til
foráttu. En framkoma Þýskalands hefir í mín-
um augum sannað það, að þjóðin skilur ekki t
vorn tíma. Þér verðið víst var við það sjáifur,
kæri prófessor, að þrátt fyrir aila aðdáun á
þýskri og þó sérstaklega prússneskri skipu-
lægni og þeim verkleguin framförum, er henni
fylgja ■— atriði sem allur heimur mun taka sér
til fyrirmyndar — þá er öðru nær en að hug-
takið „þýskur“ sé orðið vinsælt. Þjóðverjar
virðast oft ælla, að þetta sé ekki annað en öf-
und, 'sem hraustum hermönnuin muni takast að
berja úr fólki. Það er ákaflega barnaleg hugs-
un. Nei, hin þýska „kultur“ frá síðasta ára-
tuginum þjáist að minni hyggju af ófmetnaði,
af dómgreindarleysi, hún sér ekki sinar veiku
hliðar, meðal annars, að hugsjónir liennar eru
að nokkru leyti r.uddalegar, að minsta kosti
úreltar. Gætið þér að: hefir Þjóðverjum t. d.
tokist að gera hina fáu, og því alveg óskað-
vænu, IJani i Norður-Slésvík ánægða? Þesga
vesalings raenn, sem mér er isagt að játi það
hreinskilnislega, að þeir eigi cngan annan úr-
kosl en þann, að flytja úr iandi feðra sinna,
verði ekki með stríðinu gjörl)reyting á stjórn-
arfarsstöðu þeirra; því að þeir geti ekki lengur
þolað 'þau kjör, er þeir nú búa við_
Og eftir það sem gerst hefir í styrjöldinni
móti vini og óvini, gætuð þér eflaust í miJjón-
um friðsamra sálna lesið þessa hugsun: Guð
forði oss frá þvi að verða þegnskyldir, eða á
nokkurn liátt háðir hinum þýsku herrum. Ilið
lierskáa blóð-, járn- og ógirakerfi þeirra lil
svo nefndrar eða sannrar sjálfsvarnar, sein
ætíð er reiðubúið til að ráðast inn í livaða
grannland sem ;er og heimta eýtir á betri
„hermæri" eða „hagmæri“ og svo herkostn-
að, og telur sér þar að auki rétt að beita
óvini og vini miskunnarlaust öl'lum brögð-
um, hve andstyggileg sem þau eru, og aug-
Ijósustu glæpum, þetta iker.fi finst ekki að
eins þeim; sem nú standa á öndverðum meið,
heldur svo ^möjrgum öðrum, vera martröð, er
rnenn vona að losna við. Fyrir svo marga af
oss er stríðið við Þýskaland nútímans orðið
að bairáttu fyrir lireinni siðalögmálum.
Það er skoðun isvo margra, jafnvel me^al
nánustu frændanna, að sönn vinátta verði
ekki bundin nema við nýtt Þýskaland, þar
sem þjóðin ræður sjálf með fullu lýðveldi,
ber virðingu fyrir sjálfri sér og öðr.um og
setur á fót hreinskilna stjórn, sem ber fulla
ábyrgð fyrir þjóðinni og verður þar með L,
sannleika friðsöm. Slíkt nýtt Þýskaland mundi®
og í tilbót, og það án landaukahernaðar, finna
rúm í sólskininu, hafið frjálst og allan heim
opinn fyrir sinni duglegu þjóð. Hið gamla
Þýskaland — naumast, og það þótt lierfor-
ingjar þess og hinn hrausti her legði um stund
undir sig allan gainla heiminn.
í ofboði yfir glæpunum hrópa svo margir
á hefnd. 4
Eg er sjálfúr 'enginn engill, og full oft stend
eg sjálfan mig að því að óska ægilegra hefnda
f.vrir illvirki Þjóðverja. En sikynsemin berst
gegn slikum tilfinningum l„Hefndin“ ein
mundi eklci stoða mikið — hún gæti, þegar
best léti, að eins orðið til þess að vekja þýsku
þjóðina. En með þeirri ])jóð blýtur sfi andans
hræring að vakna, er mannkvninu skal verða
tiil heilla, en það er skilningurinn á þvi, að
stjórnbragðakerfi Þýskalands og siðferði þess
er þröskuldur á vegi friðsamlegrar beimsþró-
unar í samræmi við nýrri siðgœðishugsjónir.
Betur að þessi vöknun kæmi .bráðlega. Er
það missýning mín, að hennar sjái þegar
merki?
— Það mætti sikrifa svo mikið enn þá, en
nú hefi eg ekki tíma lengur, og hefi þó orðið
alt of Jangorður. Fyrirgefið þctta; og líka hitt,
að hreinsjcilin orð mín ef til vill hér og þar
særa yðar þýsku tilfinningar, geta að minsta
kosti virst óhæversk. En samkvæmt ósk yðar,
vildi eg um fram alt efjir mælti vera hrein-
skilinn og opinskár við vin minn ,enda þótt
eg þekki hann ekki persónulega.
Ef þér fáið bréfið, þá getið þér farið með
það eins og þér viljið. Óskið þér að liirta það
á prenti, þá er yður það frjálst, sé það hægt
án þess að ritskoðendur felli úr því neitt það,
er tcljandi' sé. Það er ekki af þvi, að eg haldi
að mín skoðun sé þung á metunum; eg er ekki
annað en óhlutdeilinn sonur lands míns og
gef >mig ekki meira við stjórnmálum en hver
borgari verður að gera, eftir vorum hugmynd-
um. Ekki er og heldur að ota fram skoðunum
mínum svo sem væru þær alment viðurkendar
i Noregi; þvi fer fjarri; þcr munuð líka finna
þá Norðmenn, er verja þýska kerfið og jafn-
vel dást að því, sem óðir væru. En bréf mitt
getur verið skuggsjá þeirrar skoðunar, seni
mjög margir leikmcnn meðal þjóðar vorrar
hafa. Að þvi leyti gæti það ef til vill haft
almennara gildi; — verið gæti lika að þér
vilduð lirelcja slíkar heimskulegar skoðanir til
fulls opinberlega. Þér getið þá farið með
bréfið eins og þér viljið, ef þér að eins viljið
gera mér þann gneiða að bæta þær syndir er
eg sem útlendingur ikynni að liafa drýgt móti
tungu yðar.
Eg er líka sjálfur mikið að liugsa um að
birta hér bréfaskifti okkar, og það þvi fremur
sem eg af orðum yðar til prófessors G. liefi
ráðið, að þér vilduð gjarnan að J skoðanir
yðar kæmu fleirum fyrir sjónir. Ef til vill
gerið þér líka við þetta bréf mitl nokkrar
atbugasemdir, seni þér væruð fús á að setja
á prent norður hér.
Með beslu kveðjum.
Yðar með Jotningu einlægur
Olaf fíroch.
Félagsprentsmiðjan.