Vísir - 26.08.1918, Blaðsíða 4
v i n i a
um hersins frá Bandarikjunum
til yígvallarin8. Þessir flugmenn
hafa nýskeð sýnt listir sínar í
New York og fleiri borgum, og
hafa menn undrast snilli þeirra
og leikni. Þeir hafa haldið her-
æfingar í lofti, háð orustur með
,meinlausum“ skotum, dreyft
„sprengikúlum" (úr bréfi!) yfir
borgarbúa og svifið og velt sér
alla vegu í loftinu.
Major Eheinehardt, forstjóri
flugstöðvanna 1 Mineola, veitt
sendinefnd flugmannanna mót-
töku og hélt yfir þeim ræðu. —
Hann sagði það sannfæring sína,
að flugför þessi væri ekki aðeins
æskileg, heldur og framkvæman-
leg. Hann sagði, að reynt mundi
að leggja í þetta ferðalag ein-
hverntíma á þessu ári, og yrði
flogið í vélum, sem smíðaðar
væri í Bandaríkjunum og svo
útbúnar, að þær myndi geta flutt
nægilegt eldsneyti til fararinnar.
Að líkindum verður flogið beint
til Bretlands eða Frakklands.
Sumir hafa þó talið ráðlegra að
fljuga frá norðaustur strönd Can-
ada til íslands, en tæplega þarf
a8 búast við að það verði gert
að þessu sinni.
Kflhlmann
býðnr sig fram til þings.
„Yossische Zeitung*. stuðnings-
blað Kiihlmanns, fyrv. utanríkis-
ráðherra Þjóðverja, skýrði nýlega
frá því, að Kuhlmann ætlaði að
bjóða sig fram til þings í Berlín
í stað Kaempfs, fyrv. þingforseta,
sem nú er látinn.
'S jl. >1. ■a. u. m o.. 'i«
Afmæli í dag.
Björn Björnsson, dagl.m.
GuiSjón Sigurösson, verkam.
Hóímfriöur Jónsdóttir, hfr.
Sæm.: Bjarnhéðinsson, læknir.
Steingrímur Arason. kennari.
Jón Þorvaldsson, prestur, Staö.
Ragnhildur Thoroddsen, ungfrú.
Meðal farþega
á Botníu veröa:, Knud Zimsen
borgarstj., F. C. Möller umboðs-
sali með frú, Bemh. Petersen kaup-
maöur., Matthías Thórðarson, De-
bell framkvæmdastj., Guöbrandur
Magnússon og frú, Vilmundur
Jónsson læknir meö frú, Kirk
verkfræðingur, Petersen biostjóri,
Sigurjón Pétursson kaupm., Har-
aldur Árnason kaupm., Júl. Han-
scn kaupni., Olgeir Friðgeirsson
kaupni., Carl Poulsen, Siguröur
Flygenring, Gunnar Kvaran, Jóh.
A. Jónasson úrsmiöur, Jón Bjarna-
son verslunarm., frú E. Rasmussen
frá ísafiröi, frú Gíslason (Odds
Gíslasonar),Páll H. Gíslason kaup-
maður, Sigtús Daníelsson verslun-
arstj., Petersen skipstj., frú Dich-
mann, Guðm. Þorhiksson trésmið-
ur, Einar Valur, frk. Kristín Páls->
dóttir (Einarssonar frá Akureyri),
frk. Sigrún Havsteen frá Akureyri,
Bildt frá Seyðisfirði, Georg Gunn-
arsson stud. art. Stúdentarnir:
Steinn Steinsen, Ágúst Olgeiísson,
Stefán Stefánsson, Ragnar Ófeigs-
son, Morten Ottesen, Guöm. Mar-
teinsson, Brynj. Stefánsson, Bened.
Gröndal, Jón Thoroddsen, Ásgeir
Þorsteinsson, Dýrleif Árnadóttir,
Svavar Guðmundsson, Steingrímur
Guðmundsson, Gústav Sveinsson,
Sveinbjörn Högnason, Einar O.
Sveinsson, Magnús Konráðsson.
Finnur Einarssoú, Þorst. Gíslason,
Pálmi Hannesson, Jón■ Grímsson,
Brynj. Bjarnason, ITinrik Siemsen,
Sig. Jónsson, Georg Búason. skips-
höfnin af „Africa“ o. fl.
Guðm. Jóhannesson
í Brautarholti bauð blaða-
mönnum og fleirum upp á Kjal-
arnes í gærdag kl. 5, til þess að
skoða kartöflugarða bæjarins og
hlutafélagsins „Akurs“. En ferð-
in íorst fyrir af' þvi, að um það
leyti dagsins var farið að livessa,
svo að óráðlegt þótti að leggja af
stað.
Veðrið í dag.
Hiti í Vestinannaeýjum 8,8,
liér 10,2, ísafirði 10, Akureyri
11, Grímsstöðum 7, Seyðisfirði
9 stig. Austan stormur i Vesl-
mannaeyjum og hvassviðri hér,
SV. stinningsgola á ísafirði en
hæg sunnanátt á Akureyri og
Grímsstöðum. Logn á Seyðis-
firði.
Morgunblaðið
skýrir frá því í gær, aö marga
dauða seli hafi rekiö á Ströndum
í sumar og er þaö ætlun manna þar
nyröra, aö þeir hafi drepist úr ein-
hvers konar lungnafári.
270 hestar
voru fluttir út á Botníu i dag.
Þeir voru úr Skagafiröi og Húna-
þingi. Sarhkvæmt bresku samning-
unutn, má ekki flytja nema jooo
hesta úr landi á þessu sumri. Er
það tilfinnanlegt í grasleysinn, aö
geta ekki selt fleiri, |iví aö stóö
ei nú meö flesta móti í hrossahér-
uöunum.
Skemtiferð
fóru konur í Hinu íslenska kven-
félagi suður't Kópavog'í gær. —
Súkkulaöi og kaffi var drukkiö þar
í laut í túninu, en skemt sér á und-
an og eftir við leika. Veörið var
hvassará þar en hér, svo aö haldiö
var heimleiðis heldur fyr en ella.
Trésmiöafélagið fór og inn í
Laugarnes sem ráðgert var.
Ólafur Lárusson
cand. jur. er settur borgarstjóri
í fjarveru K. Zimsens.
Góður dráttur.
Tveir menn voru á færafiski hér
í flóanum fyrir helgina og dró ann-
ar þeirra feiknastóra lúöu. Hvorki
var hún mæld eöa vegin i heilu
lagi, en fiskiffæöjngur hr. Bjarni
Sæmundsson mældi hausinn einan
og sagði hann Vísi. aö eftir lengd
hans að dæma, heföi öil lúöan átt
að vera io feta löng. Með því verði,
sem nú er á heilagfiski, má gera
ráö fyrir aö lúöan hafi veriö um
90 kr. viröi. Mega þaö kallast góö
skifti fyrir eina beitu.
Rosaveður
af landsuðri gerði i nótt og
hclst það enn. Nokkrir botn-
vörpungar leituðu sér hér lægis í
morgun, bæði útlendir og ís-
lenskir. Brottfarartíma Botniu
var frestað vegna veðursins, svo
að farþegar ciga að koma á
skipsfjöl kl. 2 í dag.
Villemoes
kom í morgun úr hringferð
norðan og austan ttm land.
Sildveiðarnar
Sfðustu iiiraunir.
Undanfarna daga hefir verið
ágætt veður nyrðra og öll skip
úti að leita að síld, en til henn-
ar sést hvergi.
„Snorri goði“ var í gær kom-
inn inn til Hjalteyrar og hafði
farið vestur um allan Skaga-
fjörð, Húnaflóa og vestur um
Horn og austur á Grímseyjar-
sund, en enga síld séð.
Skallagrímur og Snorri Sturlu-
son voru ókomnir til Hjalteyrar
í gær.
Sigufjarðarskipin hafa heldur
ekki orðið sildar vör. Heyrst
hefir að eitthvað hafl orðið vart
í reknet, og til sildar hafði sést
við Hrólfssker á Eyjafirði, en
ekki var það þó neitt til muna,
og engar vonir má byggja á
slíku um meiri sildveiði að þessu
sinni.
Er nú logn um allan sjó nyrðra,
og engin von um hringnótasíld
framar á þessu sumri, ef kún
fæst ekki nú nswtu daga.
Giskað er á, að alls hati veiðst
í sumar í öllum veiðistöðvum
norðan og vestan lands 40—45
þúsund tunnur „ápakkaðar", svo
að öll veiðin fullnægir ebki út-
flutningsleyfinu til Sviþjóðar.
Blasdað blóði.
Eandaríkjaœeim komnir til
ítölsku vígstöðvanna.
Einn þátturinn í þvl, að efia
.samvinnuna og samúðina meðal
bandaþjóðanna, er sú ráðstöfun
yfirhersfjórnarinnar, að láta þjóð-
irnar „blanda blóði“ á þann hátt,
að þær, eða hermenn þeirra, herj-
ast eaman á öllum vfgstöðyum.
Það er kunnugt áður, að á víg-
vellinum i FraVklandi berjast
Belgíumenn, PortúgaJsmenn, Bret-
ar, Bandaríbjamenn og Frakkar
hlið við hlið, og Rússar hafa
verið þar hka auk ýmsra annarst
þjóðflokka. í Rásslandi og Sí-
beríu eru nú hersveitir frá Bret-
um, Frökkum, Bandaríkjamönn-
um og Japönum. Og á ítölsku
vígstöðvunum hafa Frakkar og
Bretar verið ítölum til aðstoðar
því nær frá upphafi, en nýlega
hafa Bandaríkjahersveitir verið
sendar þangað líka.
Eftirtakanlegt er það, með hve
miklum fögnuði Bandaríkjaher-
sveitunum er tekið alstaðar þar
sem þær koma. Það var um
síðustu mánaðamót, sem þær
fyrstu komu til ítaliu, og er
sagt frá því í blöðum, að lýður-
inn h&fi fagnað þeim af eldmóði,
hvar sem þær fóru og stráð blóm-
um á veg þeirra. Yfirleitt leyn-
ir það sér ekki, að allar banda-
þjóðirnar trúa því statt og stöð-
ugt, að það verði Bandaríkjaher-
inD, sem að lokum muni ráða
niðurlögum Þjóðverja.
Henry Desston & Sons sagar-
blöðin frægu hefi eg til sölu.
hefi eg til sölu. Guðm. Jónsson,
Laugaveg 24. [226
Brúkaðir fatnaðir, hreinir og
þokkalegir, einnig húsmunir og,
bnsáhöld eru beyptir og teknir
til sölu á Laugav. 75 niðri. [215
Brúbuð íslensk frlmerki kaup-
ir Ragnar E. Kvaran Aðalstræti
16. [23»
íbúð ósbast 1. obtober. Björn
Sveinsson, Breiðablik. [213
2 herbergi og eldhús óskast
nú þegar. A. v. á. [217
íbúð — 2— 3 herbergi, eða
1 herbergi, eldhús og stofa, sem
mætti versla f, óskast til leigu
straks 1. okt. Tilboð óskast
merkt. íbúð leggist inn á af-
greiðslu Yísis. [241
Regíu8amur einhleypur maður
óskar eftir einu herbergi
án húsgagna 1. október. Skrif-
leg tiiboð leggist á afgr. Vísis-,
merkt „55“.
Prímusviðgerðir bestar á Lauf-
ásveg 4. [62
Prímusviðgerðir eru bestar í
Austurstræti 18. [196'
F(6kgsprentsa9.i?jar?..