Vísir - 29.08.1918, Qupperneq 2
Sl t« ft H
BANN
Meðan steinolía er geymd í örfirisey er 'öllum óviðkomandi
stranglega bönnuð umferð um eyna.
Þeim, sem eitthvað brýnt erindi eiga út í eina, er skylt að
gæta allrar þeirrar varúðar, sem varðmaður hafnarinnar þar, Hans
P. Hansson fyrirskipar.
Hatnarstjórinn i Reykjavík.
Þór. Kristjánsson.
Hákarl.
Ca. 8 tonns af velverkuðum hákarli er til sölu.
Semiið við E. Hólm
Agætt Flygel
til sölu meö góöu veröi, Til mála gæti
komiö aö taka Pianó í skiítum.
V m ál*
V ISIR.
Atgrciida blaislm* í
14, opin írá hl. 8—8 & bverjum degi.
Shrifetofa 6 aama ataé.
Sími 400. P. 0. Boz 887.
Ritatjörlan til yifitais trí kl. 2—3.
Prentamiðjan i Langayeg l
aimi 188.
AnglýsiKgcs vaitt möttak* i L&ná’«
atjörnnui iftir kl. 8 i kröldin.
AnglýaingKTerfi: 50 anr. hrar ssc
dálka i itærri angl. 5 aora. orSi i
aH&nnglýalngaai msj4 öbreyttn ietri.
Tvö berklahæli?
Eg só í Vísi í dag grein úr
blaðinu íslendingi, sem skýrir
frá því, að töluverð alvara sé
vöknuð í Eyjafirði og þar um
slóðir, um stofnun berklahælis
Norðanlands. Vel getur verið,
að þetta verði Norðlendingum
metnaðarmál, en eg get ekki
skilið, að það sé eiginlegt nauð-
synjamál eins og nú standa sakir.
Vífilsstaðahæli komst á fót fyr-
ir einslakan dugnað og áhuga
landsmanna, en sá áhugi dofnaði
fyr en varði, svo að óhætt er að
fullyrða, að hælinu hafa brugð-
ist vonir um fjárframlög ein-
stakra manna.
Nú eru hafin ný samskot til
Landsspítala og skortir mikið á,
að nóg fé sé fengið til hans.
Ef nú væri farið að safna fé
handa nýju berklahæli, myndi
það enn dreifa kröftum manna
og verða til glundroða en lítils
gagns, eins og jafnan þegar menn
hafa ot mörg járn í eldinum.
Sumir hafa viljað stofna nýtt
geðveikrahæli, helst Norðanlands,
þvi að kunnugt er að Kleppshæli
er þegar orðið of lítið. Vifils-
staðahæli er og oflítið, en mór
finst vel verði að athuga, hvort
betra er að stækka hin eldri hælin
eða ráðast í að reisa önnur ný.
Eg er ekki í neinum efa um,
að betra sé að stækka þau sem
til eru, og vit eg einkum færa
það til míns máls, að mikil nauð-
syn er á að tveir fastir læknar
sé við bvora þessa stofnun um
sig. Bæði er, að starfið er ein-
um manni ofvaxið og auk þess
er afar óhentugt, að þurfa að
ráða nýja og óreynda menn að
slíkum stofnunum þegar lækna-
skifti verður. En ef læknamir
eru tveir, verður altaf - annar
kunnugur hælinu og á þann hátt
getur innlend reynsla varðveitst
frá einni kynsióð til annarar, en
ella fer hún að mestu í gröfina
með þeim lækni sem frá fellur,
þegar hann er að eins einn.
Ef til víll sýnist læknum anu-
að um þetta efni, og væri gam-
an að heyra skoðun þeirra, en
ef þeir eru mér sammála, vona
eg að Norðlendingar sameini
krafta sína við Sunnlendinga og
loo'pri heidiar fé af mörkum ti!
að stækka það (eða þau) hæli,
sem nú er, heldur en ráöast í
stofnuu nýs hælis.
28. ágúst 1918.
S a m h e r j i.
[Vísir viil með ánægju birta
skoðun lækna um þetta mál, þvi
að þeim er það kunnast, hvað
best hentar í þessu efni.
Ritstj.]
Fyrsti
dráttarplógurinn.
Viðtal við J. Sigmundsson.
Allir Reykvíkingar kannast við
John Sigmundssou bifreiðarstjóra.
Hann kom hingað frá Vestur-
heimi með Sveini Oddssyni, sem
kunnugt er, og stýrði hinni
fyrstu Ford-bifreið, sem hingað
hafði komið. Fáa hefir líklega
grunað þá, að bifreiðir ætti sér
svo mikla framtíð hér, sem nú
er raunáorðin. Nú er JohnSig-
mundsson hættur að stýra bif-
reiðum og hefir sett á stofn verk-
stæði, þar sem hann gerir við
bifreiðar, og hefir hann mikið að
gera.
Eg hitti hann af hendingu í
fyrradag og sagðist hann nýlega
vera kominn ofan af Akranesi.
Þar hafði hann dvalist vikutima,
til að setja saman dráttarplóginn
nýja og reyna hann. Það hafði
verið alltafsamt verk. bvi að eng-
ar myndir fylgdu vélinni né
fyrirsagnir um samsetning benn-
ar. Þó tókst honum að setja
hana saman og miðvikudaginn
í fyrri viku var hún reynd fyrsta
skifti.
Dráttarvél þessi er kend við
Avery og er í henni 16 hesta
mótor. Henni er ætlað að draga
3 plóga. En sá galli er á gjöf
Njarðar, að henni fylgja akur-
plógar en ekki brotplógar, og
eru þeir þyngri en hinir síðar-
nefndu; þess vegna getur hún
tæplega dregið nema 2 þeirra,
þegar hún á að brjóta óplægða
jörð, en gamla garða getur hún
plægt með þrem plógum.
John Sigmundsson plægði tvær
dag8tundir og giskaði á að hann
hefði samtals plægt um 4 dag-
sláttur. Fyrst plægði hann jörð,
sem áður hafði verið plægð, sið-
an óunnið slóttlendi og loks þýfi.
Þúfnaplægingin tókst ekki vel,
og vildi hann einkum kenna því
um, að vélin væri of afllitil, —
Hann sagðist ætla, að 22 hesta
dráttarvélar yrði hér hentugri,
en ekki efaðist hann um að þessi
dráttarvól gæti komið að góðu
gagni, þar sem slétt er eða áður
hefir verið plægt.
Dráttarvólar þessa'. '>ru nú sem
óðast að ryðja sér til rúms um
allan heim, og sú tilraun sem
hér er gerð, mun síðar þykja
merkileg i sögu landbúnaðar ís-
lendinga.
Það munu allir sanna, sem sóð
hafa þessar vélar að vinnu, að
þeir hafi ekki horft á skemtilegii
jarðyrkjustörf. Og það er vist,
að þessar vélar munu ryðja sér
víða til rúms á íslandi.
Eg vil leyfa mér að gefa mönn-
um það heilræði, að ráðgast við
John Sigmundsson, ef þeir hafa
í hýggju að kaupa sér dráttar-
vél, því að hann hefir stýrt þeim
vestan hafs, og mun fara nærri
um, hverjar tegundir þeirra muni
best gefast hór á landi.
Úr norðanblöðum.
Indriði skáld Þorkelsson á Fjalli
flutti kviðlinga eftir sjálfan sig
hér í samkomuhúsinu fyrra
sunnudagskvöld. Gat þar að heyra
„þrótF og snild í orðahljómi".
Er sönn hressing að heyralndr-
iða slá skáidhörpu sína.
Þorgils Þorgilsson, bóndi á
Sökku í Svarfarðardal, andaðist
að heimili sínu 29. júlí siðastl.
Hann var einn af merkustu bænd-
um þar í sveit.
— Maður að nafni Þorbergur
Jónsson var á eiglingu hór á
pollinum fyrra sunnudag. Um
kvöldið fanst báturinn með segi-
um uppi en mannlaus. Siðan
befir ekkert til mannsins spurst
og talið víst að hann hafi drukkn-
að. Þorbergur var ættaður úr
Húnavatnssýslu og sagður ekki
heill á geðsmunum.
Dagur 13. ág.
Skarlatssótt hefir komið upp
í tveim húsum hér í bæ. Von-
andi tekst læknunum að stemma
stigu fyrir útbreiðslu þessarar
veiki.
(íslendingur).
Smávegis.
Berliner Tageblatt getur þess
nýlega, eftir hermálaráðkerran-
um i Bayern, að hrá-efni muni
endast Þjóðverjum svo lengi,
sem vera vill, ef skynsamlega sé
á haldið. En ef skortur skyldi
verða á einhverjum málmum,
og helst hinum dýrari, þá hafa
þegar verið fundin önnur efni,
jafnverðmæt, í þeirra stað. Ekki
er þess gotið, hver þau efni só,
og leikur mörgum forvitni á að
vita, hvort hér muni um ein-
hverja merka uppfundning að
ræða.
í Ástralíu liggur ógrynni af
varningi, sem fara á hingað til
álfunnar, en lítil líkindi til að
skip fáist til flutninga á þessu
ári. Frá Melbourne er símað um
síðustu mánaðamót, að þar sé
meðal annars 1,200000 ullarsekk-
ir, 32 þúsund tonn af nautakjöti,
5 þúsund tonn af kindakjötJ 17
þúsund tonn af hérakjöti, 1000
tonn af smjöri og afarmikið af
hveiti.