Vísir - 20.10.1918, Page 1
ziUíijéri og eig*sjiíi
j i í # 8 M ö t< !■ Sf 8
'SMJ 117
<v
IR
Afgreiðsla i
AÐALSTRÆTI 14
SIMl 400
8. Árg.
Gamla Bio
SnnnudagÍBH 20 október 1918
G.s. Botnia.
F a r þ e g a r
komi á mánudag 21. þ. m. að sækja farseðla og nndirskrifa.
C. Zi
m
f
var opnuð laugardaginn þ. 19. þ. m. á Bergstaðastræti 33 hér í
bænum.
Þar verða seldar ílestar matvörur, svo sem:
Mjölvörur, Ostar, Kæfa, íslenskt smjör, islenskar kartöflur,
Dósamjólk (Borden’s), Rúsinur, Sveskjur, Súkkulaði, Konfekt.
Ennfremur: Skósverta. Ofnsverta, Sápur o. fl.
Yirðingarfylst
S^orgrimur Guömuncisson:
Sími 142.
Briigge tekin.
2&5. tbl.
NÝJA BÍO
Sýningar byrja kl. 9.
Fatty
í vaBdræðum.
A-farskemtilegur gamanleikur.
Þjónuinn
á Café Astoria
gamanleikur betri en nokkr-
ir aðrir, sem hér bafa sést
áður.
Sýningar á sunnud. kl. 6, 7,
8 og 9.
Atkvæðagreiðslan
nm sambandslögin.
Hér i bænum var þátttakan í
atkvæðagreiðslunni Iítil og mun
tæpur helmingur atkvæðisbærra
manna hafa sótt hana. Atkvæði
munu talin á morgun.
Fregnir komu í gærkveldi af
úrslitum atkvæðagreiðslunnar í
þrem kjördæmum:
Á ísafirði voru greidd 248 at-
kvæði með lögunum en 96 á
móti.
Á Seyðisfirði voru greidd 204
atkvæði með en 2 á móti.
í Yestmannaeyjum 467 með
en 4 á móti.
Um atkvæðagreiðsluna á ísa-
firði segir „Njörður11, að að eins
helmingur atkvæðisbærra manna
hafi tekið þátt í henni og ekkert
hafi verið gert af hálfu andstæð-
inga til að fá menn til að greiða
atkvæði á móti lögunum.
í Yestmannaeyjum hafa ®/4
kosningabærra manna notað at-
kvæðisrétt sinn.
Loftskeyti.
Sókn bandamanna.
London 19. okt.
Þjóöverjar hafa a<5 eins lítinn
hluta Belgíustrandar enn á sínu
valdi. Her bandamanna sótti fram
austur eftir ströndinni þ. 18. og
tók Blankenberghe og komst í
nánd viö Zeebrugge. (Milli Blank.
°g Zeebr. eru aö eins 5 km.). 1
sókn sinni til Brugge tóku Belgar
300 fanga, 2 fallbyssur og mikið
af öðrum hergögnum.
Á' Bohain—le Cateau vígstööv-
unum tóku Bretar 1200 fanga og
nokkrar fallbyssur. Milli Sensee-
skuröarins og Lys sóttu banda-
menn fram um 5 mílur. Meö sókn
sinni hjá Guise og á hægri bakka
Serre neyddu Frakkar Þjóðverja
til aö hörfa úr fleygnum hjá la
Fere og tóku Aquilcourt og Menn-
evret og sóttu fram um 3 mílur á
þessum stöövum. Sunnar tóku
Frakkar 10 þorp af Þjóðverjum
og 1500 fanga. Beggja vegna viö
Vouzier fóru Frakkar yfir Aisne
og tóku mörg hundruð fanga.
Á landamærum Serbíu og Búlg-
ariu eru hersveitir bandamanna aö
eins 50 mílur vegar frá Doná. Fyr-
ir noröan Nisch eru bandamena
komnir til Kalna. í Montenegro
náöu þeir flutningalestum Austur-
ríkismanna á sitt vald meö miklu
af hergöngum og nálgast nú landa-
mæri Herzegóvínu
París, 19. okt.
Frakkar hafa unniö allmikinn
sigur í orustu, sem staöiö hefur
síðan 17. október viö Oise, norður
af Hauteville og tekið 3000 fanga,
20 fallbyssur, fjölniargar hriö-
skotabyssur og feiknin öll af her-
gögnunj og þar á meöal heila járn-
brautarlest fulla af skotfærum.
London 19. okt.
Clemenceau skýrði frá því í
franska þinginu um kvöldið 18.
i okt., aö her bandamanna heföi tek-
! iö Brúgge og ennfremur Tourco-
ing og Roubaix (sem áöur hefir
-verið sagt frá).
Zeebrúgge brennur.
París 19. okt.
Fréttaritari hollenska blaðsins
„Handelsblad“ í Flessingue skýrir
frá þvi, aö Zeebrúggu standi 5
björtu báli og sést að kviknað hef-
• ir i borginni á þrem stöðum, og
hafa miklar sprengingar oröiö þar.
Haldið er aö Þjóöverjar séu aö
: eyöileggja skotfærabirgöir sinar
og flugvélaskála.
Búlgarar og bandamenn.
Paris 19. okt.
Malinoff, forsætisráðherra Búlg-
ara, hefir skýrt frá þvl i búlg-
arska þinginu, að Búlgarar muni
bráðlega koma aftur á viðskifta-
sambandi við ríki þau, sem und-
irskrifuðu vopnahléssamuingana.
Niknlás stórinrsti drepinn?
Beriin 19. okt,
Frönsk blöð birta þá fregn
eftir loftskeytum frá Zarskoje-
Selo, að Nikulás Bomanow stór-
Chaplin
á Höteli
ákaflega hlægilegur gaman-
leikur. Aðalhlutverkið leik-
ur hinn alþekti og ágæti
skopleikari
Cliarles Chaplin.
Zigeuner Jach
mjög hlægileg mynd.
fursti, fyrv. yfirhershöfðingi Rússa
hafi verið skotinn þ. 16. þ. m.
Fangar drepnir.
Berlín 19. okt.
Frá Wien er símað, að Checko-
Slovakar í Rússlandi hafi látið
sbjóta alla austurríska fanga, sem
þeir náðu á sitt vald, er þeir
tóku Kasan í sumar og hati það
verið gert eftir skipun serbnesks
liðsforingja.
Lækni einum var lofað að lifa
og er þetta haft eftir brófi frá
honum.
Skilnaðnr milli Austurríkis
og Ungverjalands.
Berlín 19. okt.
Frá Budapest er símað, að
Karolyi greifi hafi á þingi í dag
borið fram tillögu um, að slita
sambandinu milli Ungverjalands
og Austurrikis um viðskiftamál,
hermál og utanríkismál. Tillag-
an verður rædd á morgun.
Svar Wilsons til Austnrrikis
ókomíð.
Berlin 19. okt.
Frá Washington er simað, að
þvi hafi verið lýst yfir opinber-
lega. að Austurríki og Ungverja-
landi verði engu svarað um frið-
arumleitanimar fyr en Þjóðverj-
ar hafi fyrir sitt leyti gefið end-
anlegt svar við síðustu boðum
Wilsons.