Vísir - 21.10.1918, Qupperneq 4
VíöIR
í nánd við Lyon á Frabklandi.
Siórkostlegar skemdir hafa orðið
af sprengingunni og margir menn
sœrst. Næsti hluti Lyonborgar
hefir líka orðið fyrir sórskemdum
af völdum sprengingarinnar.
IvennkápuF
eru saumaðar á
Bergstaffastrœti 31
(nifri).
Á Bakkastíg 9
eru teknar til viðgerðar allskon-
ar mótorvélar ásamt gufuvélum
o. fl.. einnig saumavélar og hjól-
hestar. Prímushausar eru siliur-
kveiktir og hreinsaðir
á mótorrerk tæði
Gnstaf Carlsson.
------- I. 0. G. T.
Einingin nr. 14
heldur fund hvert miðviku-
dagskvöld kl. 8'/q- Skemti-
leg og fróðleg fundarefni.
Allir templarar velkomnir.
Nýir félagar gefi sig fram
á fundarkvöldum til inntöku.
Stúkan á stóran sjúkrasjóð.
Fjölmennið
Kaapið Visi.
Stúlka óskast í vist nú þegar
til frú Borkenhagen, Gasstöð-
inni. [553
Karlmenn eru teknir í þjón-
ustu. Uppl. Grundarstíg 6. [578
Prímusviðgerðir eru ábyggi-
legastar á Laufásveg 4. 46
Prímusviðgerðir eru bestar í
Austurstræti 18. [195
Upphlutir, upphlutsskyrtur o.
fl. fæst saumað í Aðalstræti 16
uiðri. [489
Stúlka óskast í vist. Hedevig
Blöndal, Stýrimannastig 2 uppi.
[559
A, y, Tulinius.
Brunatryggingar,
cn- og stríOavátryggingax.
Sœtjónaerindrekstur.
Bókhlööustig 8. t-< Xalsími 2$4.
Skrifatofutími Id, io-ii og ia-a.
VINNA
Stúlka óskast í vist nú þegar
á Skólavörðustíg 24. [474
Stúlka, ekki óvön eldhúsverk-
um, óskast nú strax i eldhúsið
á Vífilsstöðum, Uppl. gefur
ráðskonán. [495
Dugleg stúlka getur fengið
vist nú þegar á góðu heimili.
Hátt kaup í boði. A.v.á. [513
Þrifin og barngóð stúlka ósk-
ast í vist í Hafnarfirði. Uppi. í
sima 56 í Hafnarfirði eða á Stýri-
mannastig 9 Rvík. [690
Best og - ódýrast er gert við
slitinn skófatnað hjá Hvannbergs-
bræðram, Hafnarstræti 15, sími
604. [588
2 háseta vantar á gott fjögra
mannafar. Finnið Einar Jóns-
son Laugaveg 64. [587
Unglings stúlka óskast hálfan
eða allan daginn til að gæta
barna. Hátt kaup. A.v.á. [586
- FBNDIÐ......I
Gleraugu hafa tapast. Finn-
andi beðinn að skila gegn fund-
arlaunum á Skólavörðustíg 14
[565
Tapast hefir siðastliðinn fimtu-
dag, í laugunum, bretti, merkt
V. V. J. og R. V. K. ásamt
poka með 2 morgunkjólum í.
Skilist á Vesturgötu 21 B. [689
Drengjahúfa tapaðist í Upp-
bænum á miðvikudaginn. Skilist
á Bergstaðastræti 30. [683
Maður, sem kann að skepnu-
hirðingu, óskast suður með sjó.
A.v á. í dag. [684
Ungur maður óskar eftir at-
vinnu við afgreiðslu í búó eða
létt skrifstörf. A.v.á. [685
Leguíœri
svo sem keðjur :U/4 þuml.
og akkeri stór og smá til sölu.
Hjörtur A. Fjeldsteð sími 674. [481
Morgunkjólar ódýrastir í Lækj-
ergötu 12 A. [430
Á Hverfisgötu 67 eru seldir
morgunbjólar. Best efni. Lægst
verð. Sömuleiðis nýr og slitinn
fatnaður. [406
Lítið gott orgel óskasttil leigu
eða kaups. Uppl. í síma 726.
[607
Kaupféíag Verkmanna
selur
Allelmaruie og Pipar.
Notuð ritvél óskast til leigu
eða kaups. A.v.á. [582
Til sölu svartur Möttull, Buffet
og rykfrakki á Laugaveg 69.
[580
Hin alþebtu ágætu leðuraxla-
bönd og ólar i þau eru til á
aktýgjavinnustofunni á Lauga-
veg 67. [591
Félagsprentsmiöjan.
153
ingu Bobby Dodds, þá sem hann samdi
í Hamborg og var Pétri lýst þar í gerfi
Siems skipstjóra.
Pétur lagði frænda sinn á legubekkinn
og gat með naumindum greint andardrátt
hans og lífæðarslátt. Hann gat samt dreypt
á hann dálitlum vatnssopa og litlu síðar
opnaði gamli maðurinn augun, en gat þó
engu orði upp komið þá í svipinn.
„Kæri frændi!“ hvíslaði Pétur. „Dæma-
laust þykir mér leiðinlegt, að þér varð
svona hilt við þetta.“
„Miljónaþjófur!“ stundi frændi hans.
„Út — burt með þig!“
„Já, þessu bjóst eg alténd við!“ svaraði
Pétur dapurlega. „þú vísar mér á dyr jafn-
vel þótt þú hafir sýknað míg.“
Gamli maðurinn reis lítið eitt upp. „þú
ætlast þó líklega ekki til, að eg sem amt-
maður sé að geyma miljónaþjóf í húsum
mínum ?“ sagði hann.
„En eg er alls enginn þjófur!“ hrópaði
Pélur. „Eg læst bara vera það. Getur þér
ekki skilist það?“
Frændi hans reis nú upp til fulls, horfði
beint í einlæg og hrekklaus augu Péturs
— og trúði honum.
„pá ertu líka í peningaklípu,“ sagði
hann og staulaðist að litlum leyniskáp,
sem var komið fyrir í veggnum. par tók
164
hann tíu hundrað-marka-seðla og rétti
Pétri. „Taktu við þessu — mig munar ekk-
ert um það,“ sagði hann, „og farðu svo
burt úr Strienau."
„Já, seisei-já!“ sagði Pétur og stakk pen-
ingunum á sig. „Eg ætla mér að komast
yfir rússnesku landamærin og ekki skal
eg trúa því, að Dodd kunni rússnesku.“
„Hver er þessi Dodd?“ spurði frændi
hans og var honum nú orðið hughægra
þegar hann átti von á að losast við þennan
dæmalausa bróðurson sinn.
„pað er leynilögregluþjónninn, sem er
á hælunum á mér,“ sagði Pétur og tók
húfugarminn upp úr vasanum. „Og það
sem út yfir tekur er það, að konan mín er
á ferðinni með honum. Hún heldur nefni-
lega, að eg sé brjálaður. Annars gætir þú
nú gert mér þann greiða að skreppa til
Hamborgar og segja henni upp alla sögu.
Finst þér það ekki?“
Gamli maðurinn hristi höfuðið.
„Svona, farðu nú, drengur minn — ann-
ars hleypurðu beint í flasið á Mörtu Zippel.
pegar þú svo ert kominn heilu og höldnu
til St. Louis aftur að tveim árum hðnum
og alt er klappað og klárt, þá skal eg gjarn-
an segja af mér embættinu og koma vestur
til þin, en nú sem stendur vil eg engin af-
skifti af þér hafa. Eg álít þig hvorki þjóf
156
né vitfirring, en eg álít, að þú sért ein-
stakur glanni.“
„Jæja — vertu þá blessaður og sæll,
frændi góður!“ sagði Pétur og fór leiðar
sinnar.
„Gangi þér vel, drengur minn!“ svaraði
frændi hans, lokað dyrunum með hægð og
stóð Pétur nú fyrir utan húsið. pað mátti
heldur ekki seinna vera, því að nú kom
ráðskonan skálmandi inn um garðshliðið.
„Skárri er það nú fjandans óskamm-
feilnin!“ rausaði hún og lagði af sér troð-
fulla körfuna.
Pétur tók ofan húfuna mjög auðmýlct-
arlega og rétti fram lófann.
„Amtmaðurinn vék dálitlu að mér,“
sagði hann og mændi ósköp vesaldarlega
á hana. „Gefið þér mér fáeina aura í við-
bót, því að eg hefi ekki smakkað volgan
matarbita í samfleytta þrjá daga!“
Og viti menn! Sú ógifta Marta Zippcl
þreif pyngju sína og gaf honum splunkur-
nýjan tvíeyring. Pétur stakk honum á sig.
„Eldgamla kerlingarhrota!“ tautaði
hann og fór leiðar sinnar.