Vísir - 01.03.1919, Blaðsíða 4

Vísir - 01.03.1919, Blaðsíða 4
tekur aftnr til staría mánndaginn 3. mars, samkvæmt stnndaskrám barnanna. Morten Hansen. er aí Serbum, Króötum og Slav- ónum. Svartfellingar hafa ejcki fengiö tækifæri til þess aö láta óskir sín- ar í ljósi. Þaö hefir veriö ómögu- legt til þessa, að kalla saman lög- legt þing, vegna þess að hermenn- irnir hafa ekki fengiö heimfarar- leyfi og stjórnmálamennirnir eru teptir í útlöndum. Margir eru enn þá í fangabúðum Ungverjalands eða þá í haldi í Bosniu eða Króa- tíu. Janco Vucovitch hershöfðingi var kyrsettur í Króatíu og sagt er, að hann hafi verið drepinn þar. Varðhringur hefir verið sleginn um landið, svo fylgismenn kon- ungsins fá hvorki að fara inn í landið né út úr því eins og frjáls- ir menn. Sumir hafa verið fluttir úr landí með valdi. Jovan Popo- vitch, sem var aðalfulltrúi Svart- fellinga á friðarfundi Balkanríkj- anna í Lundúnum og nú hafði verið skipaður fulltrúi þeirra á friðar- fundinum í Paris, komst nauðug- lega undan til Róm. Svartféllingar og konungur þeirra hafa þegar látið það i ljósi, að þeir vilji sameinast Serbíu, Króatíu og Slavoníu á grundvelli frjáls bandalags. En þeim er það mjög fjarri skapi. að ganga öðrum þjóðum á vald skilyrðislaust og glata þannig algerlega sjálfstæði sínu, sem þeir hafa varið með vopnum gegn ásælni stórvelda í sex aldir. Þegar þeir sáu, til hvers skrípaleikurinn í Podgoritsa var gerður, risu þeir upp til þess að reka ofbeldismennina af höndum sér og náðu brátt borgunum Pod- goritsa, Kolasin, Nikshitch, DaniÞ ovgrad, Vir og Rieka. Af úrsltt- um orustunnar um Cettinje eru fregnir ekki komnar, en þ. 14. þ. m. höfðu 600 manns fallið 0g særst af. liði koungssinna. For- ingjar þeirra eru hinir merkustu ættjarðarvinr og stjómmálamenn Svartfellinga, svo sem Djuro Petrovitch, Vuchinitch, hershöfð- ingi og Jovan Plamenats og Risto Popovitch fyrv. ráðherrar. Réttur SvartfelHnga til þess að senda fulltrúa á friðarráðstefnuna er formlega viðurkendur, en þó fá þeir ekki að njóa þess réttar, og það er látið heita svo, að það sé vegna byltingarástands í landinu, þó að þetta bvltingarásand sé ekki 5 öðru fólgið en þvt, að þjóðin hef- ir risið upp ti) þess, að reka út- lenda ofbeldismenn af höndttm sér. Hróplegast af öllu er þó það, hvað það er dregið á langinn, að bæta úr matvælaskorti þjóðarinn- ar. Stórfé hefir verið skotið saman í þvi augnamiði, bæði í Ameríku og Englandi, en leyfí stjórnarvald- anna í Englandi hefir ekki fengist enn til þess, aö koma hjálpinni í framkvæmd. Það litla, sem leyft er að flytja til landsins af mat- vælum, er sent uppreisnarmannin- um Radovitch til ráðstöfunar, ein- mitt þeim manninum, sem stjóm- aði samsærinu gegn konunginum 1907, og af örlæti hans fá ekki aðrir að njóta en flokksmenn hans. Hvað sem stjórnmálaflækjunni líð- ur, þá virðist það vera himinhróp- andi svívirðing, að láta þessa þjóð gjalda hennarþannigogsvelta hana, þjóðina, sem fyrst varð til þess að fóma öllu fyrir hið góða málefni, er ófriðurinn hófst. Höfundur greinar þessarar, Herbert Vivian, kvaðst nýlega hafa átt tal við Nikita konung í París, og hefir það eftir honum, að nú sé hafið í Montenegro svipað samsæri gegn öllum fylgismönnum hans, eins og gegn honum árið 1907. Hvar, sem fylgismenn kon- ungsins koma saman til að ræða mál sín, geta þeir átt von á, að sprengikúla falli mitt á meðal • þeirra og drepi helming fundar- manna og limlesti. Konur og börn hafi verið myrt til þess að skjóta fylgismönnum konungsins skelk í bringu. „En þér getið verið þess full- viss,“ sagði konungur, „aJS það eru ekki að eins Svartfellingar sem vilja halda sjálfstæði sínu. Hvorki Króatar né Slavónar vilja ganga undir útlent ok. En þó að svo væri ekki, þá myndu Svartfellingar berjast einir, eins og þeir hafa barist gegn erlendri kúgun frá því saga þeirra hófst. Ætt mín hefir ríkt í 240 ár í sátt og samlyndi við þjóðina. En ef „börnin mín“ kjósa heldúr annan stjórnanda, eða stjórnarfyrirkomulag, þá mun eg verða fyrstur manna til að fallast á það. En látum þá ráða sér sjálfa Leyfið þeim ölluin að hverfa heim og kjósa þing samkvæmt stjórn- skipunarlögunum. Þá mega allir vita, hver vilji þeirra er, og þá Verður engin átylla til ofsóknar framar." ,,Eg treysti réttsýni Breta, því að þeir hafa ávalt verið vinveittir | þjóð minni. Og eg gleymi aldrei J þeirri þakklætisskuld, sem vér i eigum að gjalda stjórnmálajötrv inum Gladstone, sem kom oss til hjálpar þegar mest krepti að oss.“ j Svartfellingar og konungur j þeirra hafa verið rægðir ósleiti- j lega, segir greinarhöfundurinn að lokum, en þeir hafa engu orði feng- ið að koma að sér til varnar. Nú, er ófriðnum er lokið, er tími til kom- inn, að hlusta á báða málsparta og dæma mál þeirra óhlutdrægt og leyfa litlu hetjuþjóðinni að ráða sér sjálfri. — En þessi rógur, sem hér er getið um, stafar af því, að þegar Svartfellingum og Serbum brást liðveislan af hálfu banda- manna haustið 1915, urðu Svart- fellingar að semja frið við Mið- veldin. Þeir höfu barist Iengur en nokkur von var um liðveislu Og land þeirra var alt í hershöndum, Konungurinn komst undan til Frakklands og hefir verið þar síð- an, en þjóðin samdi frið. Var þá sagt, að þeir bæru kápuna á báðum öxlum og vildu reyna að koma sér vel við báða. Ef Miðveldin ættu að lokum sigri að hrósa, hafi einn sonur konungsins, sem eftir varð í landinu, átt að taka við völd- unum, en að öðrum kosti hann sjálfur. Áttu þetta að vera saman- tekin ráð konungs og fylgismanna haná' og því er nú vegur þeirra meðal bandamanna lxtill, og virðist það helst í ráði, að innlima landið 5 Serbiu, hvað sem sjálfsákvörð- unarréttinum líður. Bíbliniyrirlestnr í GIood-Templarahúsinu sunnud. 2. mars. kl. 6^/2 siðd. Efni Framtiðar friðarrfkið. Stofnun þess og stjórn i ljósi Ghiðs orðs. I Hafnarfirði verður sama dag haldinn fyrirlestur í Salem kl. 3 síðd. Sjá götuaugl. ’ Allir vel- komnir. 0. J. Olsen. Sölntnrnlnn opinn 8—11. Sími 628. annast sendiferðir 0. fl. Regnkápa var tekin og önnur skilip eftir á símamannadans- leiknum. Afgr. vísar á þann, sem hefir kápuna sem eftir var skilin. (3 77 Kuldahúfa fundin. A. v. á. (9 Fundnir 3 minnispeningar á svörtu hálsbandi. A. v. á. (xo Félagsprentsmiðjan Bnxnatryggingar, Skrifstofutími kl. 10-n og i2-2í Bókhlöðustíg 8. — Talsími 254, A. V. T u 1 i n i u s. Alveg nýr yfirfrakki úr alull til sölu. A. v. á. (410 ■ Barnavagn til sölu. A. v. á. (411 Barnakerra í góðu standi óskast. — Uppl. í mjólkursölubúðinni á Hvérfisg. 50. (414 Lítið hús til sölu, laust 14. maí. A. v. á. (1 Ágætar munnhörpur fást í Hljóðfærahúsinu. (2 Kápa til sölu. Mjög lágt verð, 25 kr. A. v. á. (3 Morgunkjóla fallega og ódýra selur Kristin Jónsdóttir, Herkast- alanum, efstu hæð. (4 Útgerðarmaður óskast til sjó- róðra. Uppl. á Vitastíg 8. (11 Góð þvottakona óskast. Uppl. í Þingholtsstræti 12. , (406 Stúlka, dugleg og vön húsverk- um, óskast nú þegar. Hátt kaup. Uppl. gefur Katrín Guðbrands- dóttir, Kirkjustræti 8 B (uppi). (407 Háseta vantar á opinn bát, helst vanan mann, strax. Uppl. á Brunn- stíg. 10. (408 Stúlku vantar að Vífilsstöðum. Uppl. hjá yfirhjúkrunarkonunni. Sími 101. (38 Stúlka óskast í vist hálfan eða allan daginn. Uppl. hjá Jóhanni Kristjánssyni, Laugav. 27. (5 3 stúlkur óskast í ágætar vistir hér í bænum. Uppl. hjá Kristínu J. Hagbarð, Laugav. 26. (6 Prímusviðgerðir eru ódýrastar í Versl. Goðafoss, Laúgav. 5. (% Priniusviðgerðir eru fljótt og vel af hendi leystar í Fischersundi 3, kjallaranum. (8 Stórt verkstæðispláss óskast frá 14. maí. Sama hvar er í bæn- um. Baldvin Bjöms'son gull- smiður. Ingólfsstræti 6. Sími 668. (277

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.