Vísir - 09.11.1919, Blaðsíða 2

Vísir - 09.11.1919, Blaðsíða 2
VÍSIR +' Arni Jónsson kanpm. frá tsafirðl andaðist á Landakotsspítala kl. 6 í morgun. Simskeyti trá fréttarffara Viaia. Khöfn 7. nóv. Frá bolshvíkingum. Frá London er símað, að bolsh - íkingar sæki fram og Denikin og i ndenitsch. hafi orðið að hverfá irá að laka Pétursborg og Moskva. Friðartilboð. í enska þinginu hafa verið lögð fram friðartilboð bolshvíkinga- stjórnarinnar til bandamanna. Er þar farið fram á, að allar stjórnir, sem nú eru við völd í ýmsum hlut- um Rússlands, íái að sitja við völd, og að upphafið verði viðskifta- bannið við Rússland. Haase látinn. Simað er frá Berlin, að Iiaase sé látinn. (Jafnaðarmannafor- inginn Haase var særður nokkrum skammbyssuskotum 8. f. m., og voru sárin ekki talin hættideg i fyrstu, en i síðara skeyti var sagt, að hann hefði fengið blóðeitrun, op; hefir hún nú leitt hann til.bána). Eistlendingar veita Judenitsch lið Frá Reval er símað, að her Eist- lendinga hafi ráðist á bolshvíkinga lijá Pskoff. til stuðnings við Tu- denitsch. Erlend mynt. joo kr'. sænskar ...... kr. t 10.40 100 — norskar......... — 106.60 IOO mörk þýsk ...........— 13.77; Sterlingspund........... — 19.53 Dollar ................ 4.68 A víð og dreif. ,,Og svo vitlaus er Ólafur, að hann heldur að hann nái kosn- ingu!" sagði einn flokksmaður Ól- afs Friðrikssonar nýlega við kunn ingja sinn. Og þeir eru fleiri, sem vantrúaðir eru á Ólaf, af hverju sem það er. Ef til vill er þaö af því, að menn halda að starf hans bæjarstjórninni hafi ekki aukið bonum traust, ef til vill af þvi, að menn halda, að traustið hafi ald- ■rei verið mikið. í bæjarstjórn hefir Ólafur nú setið hátt á annað ár. Hann %r þar í fátækranefnd, en hefir að sögn ekki haft tíma' til að sækja nema 6 fundi af 40—50 nefndaífundum sem haldnir hafa veriö á því tima- bili. Hann var á sínum tíma kos- inn til að endurskoða móreikning- ana frá 1917, en þeirri .endurskoð- un er ekki lokið enn, svo menn viti. Og fleira mætti telja. Einn mann vita menn þó um, sem traust hefir á Ólafi — auk hans sjálfs. Sá maður er Elías Ste- fánsson útgerðarmaður. Elias hefir eitt áhugamál, og það er það, að engin liöft verði lögð á íossabrask. Nú er það kunnugt, að Ólafur v a r eindreginn fylgismaður Eliasar i fossamálinu, áður en hann hafði skoðanaskifti. En Elías heldur fullri trygð við Ólaf, þrátt fyrir | þáu. Og hann vill láta kjósa þá saman, Ólaf og Jón Magnússon, og vita menn ekki betur, en að það séu samantekin ráð þeirra að | ’eyna að snúa verkamönnum til ! fylgis við þá, en láta Þorvarð sigla — sinn sjó. — En ekki eru menn trú ; aðir á það, að þau samtök beri til- ætlaðan árangur. Það sé fjarri mér, að álasa Ólafi fyrir skoðanaskifti hans í fossa málinu. Eij slík pólitísk fataskifti rétt fyrir kosningar. eru þó litt til þess fallin, að auka tiaustið á manninum. Menn vita heldur ekki, hvenær Ólafi kann að þykja mál til komið, að hafa fataskifti aftur. Alþýðublaðið heldur, að . Jakob Möller eigi ekki miklu fylgi að tagna til kosninganna. Það sagði frá því í fyrradag, að hann hefði boðað „vipi sína og vandamenn'; á fund ineð sér þá um kvöldið. Það virðist ekki gera ráð fyrir, að þeir , vinir og vandamenn“ séu mjög margir í bænum. En skjátlast get- ur blaðinu nú í því! Á úmræddum fundi voru að vísu fáir „vanda- menn“ hans, en vinirnir voru því fleiri. Og einhvern grun hefirblað • ið víst um það, að vinir hans séu fleiri en það teldi æskilegt, þvi að öðrum kosti mundi ritstjóri þess. hr. Ólafur Friðriksson, ekki svo skyndilega hafa haft skoðanaskifti i fossamálinu og tekið upp stefnu ,,Vísis“. Það er áreiðanlegt, að allUr þorri bæjarmanna er „opingáttarstefn- unni“ andvígur. Fylgismenn þeirr- ar stefnu, eins og t. d. Jón Magnús- son, vita það. Þess vegna tala þeir sem varlegast og þykjast vilja fara í öllu sern varleg- a s t! Ólafur Friðriksson veit það líka; þess vegna hefir hann Hka yfirgefið þá stefnu, að minsta kosti t bráðina. Elías veit það líka, þess vegna fyrirgeíur hann Ólafi skoð- anaskiftin. — En halda menn þá, að það ráði engu um úrslit kosn- inganna og fylgi þingmannaefn- anna, hvað nienn vita með vissu um stefnu þeirra í fossamálinu? Halda inenn, að kjósendur alment láti reka sig eins og fé í rétt, til þess að kjósa eingöngu „eftir flokkum". og það þrátt ívrir |)að að allur þorri kjósenda er utan jiessara flokka! Menn fá nú að sjá það, þegar atkvæðin verða talin. Kjósandi. Skopleg hjónavígsla. Maður og kona, úr farand-leik- araflokki. ætluðu nýskeð að ganga í hjónaband í Lond'on, sem ekki er í frásögur færandi, en svo slysa- lega tókst til. að maðurinn gekk að eiga aðra stúlku á síðustu stundu. Þetta atvikaðist svo, að brúð- guminn, sem heitir Walter Smith, kom til þrestsins og sagöi honum irá ætlun sinni og urðu þeír ásáttir um að láta hjónavígsluna fara fram fyrri hluta næsta dags. Smith kemur svo á tiltekinni stundu, en brúðurin ekki, og segir prestui; þá. að vel megi fresta brúðkaupinu til kvöldsins og varð það að samkomulagi. Kemtir þá Smith með svaramennina og konu- efnið og eru þau gefin saman. Brúðurin játaði því, að hún héti Sarah Ann Innes, þegar prestur nefndi nafn hennar. og að lokinni hjónavígslunni fóru ungu hjónin heimleiðis. En varla voru þau horfin, þegar stúlka kom móð og másandi að kirkjunni, sem hjónin höfðu verið gefin íjaman í, og spyr hvort þar sé nokkur Walter Smith, sem ætli •að ganga í hjónaband. Hún segist heita Sarah Ann Innes og vera konuefnið. Henni er sagt, að brúðkaupinu sé nýlokið og þykir henni það undarlegt, og er nú sent eftir Smith. Hann kemur og konan líka, og játa þau það rétt, að hann hafi ætlað að eiga konuna, sem fyri'* var. En svo var mál með vexti að honum leiddist að þurfa að gábba prestinn oftar en einu sinni og fékk hina stúlkúna til að koma „í umboði“ brúðurinnar, en þær voru systur, hétu sömu nöfnum báðar og voru báðar ekkjur, en höýðu átt sinn bróðurinn hvor, pg báru þess vegna sama ættarnafn. Brúðurin hélt fast við það, að hún hefði að eins ætlað að giftast „í umboði“ systur sinnar, og* hefði haldið að það væri löglegt, en þeg- ar hún fékk að vita, að svo væri ekki, urðu þau hjónin og hin syst • irin ásátt um, að láta svo búið standa, og við það sat. Hitt og þetta. Námaslys. Litórslys varð í kolanámu einnt á Englandi í lok fyrra mánaðar. Það atvikaðist svo, að námumenn voru að koma upp úr námunni í gamáldags lyftivél, sem alt í einu hrapaði niður og varð 31 manm aS bana, en fjölda margir meiddust. Drotning í ljónabúri. Konungshjónin í Belgíu eru nú að ferðast sér til skemtunar um Bandaríkin. Svo bar við vestur í Kaliforníu, að þeim var sýnt Ijóu' í búri, og virtist það mjög spakt, svo að drotningin strauk því um tyrun, án þess að það bærði á sér. Þetta varð til þess að drotningin lauk upp búrinu og gekk inn til ljónsins, með svo skjótum hætti, að henni varð ekki aftrað. En ekki var hún fyrr inn komin, en ljónið reis á fætur með urri og gerði sig íiklegt til að ráðast á drotninguna, cn hún hörfaði hægt undan út úr búrinu og lét það aftur, og þóttust þeir, sem sáu, hafa heimt liana úr helju. TTýtt hlutafélag, sem „Kári“ heitir, var stofnað hér í bænum í fyrrakvöld. Meðai helstu hluthafa er Þorsteinn kaup- maður Jónsson írá Seyðisfiröi, en margir hinna eru búsettir norðan- og austanlands. Félagið ætlar að kaupa botnvörpuskip til fiskveiða. Brá'ðabirgðalög voru gefin út 5. þ. m„ er heimila stjórninni að banna flutning ti: landsins á varningi, sem stjórnin telur staía sýkingarhættu af. Þar til teljast; notaður fatnaður, lín sængurfatnaður, dulur, pappírsaf- klippur, hár, húðir o. fl. Lögin öðlast þegar gildi. Milliþinganefnd iiefir verið skipuð, samkvætnt á- ivktun síðasta alþingis, til þess að rannsaka á hvern hátt megi best verjast berklaveikinni hér á landi. í nefndinni eru þessir þrír læknar: Guðm. prófessor MagnússOn, Sig- ,irður Magnússon, heilsuhælis- Iæknir á Vífilsstöðum og Magnús Pétursson, héraðslæknir i Stranda- sýslu. Prófessorsembætti í lögum við Háskóla íslands, er auglýst laust til umsóknar, — fresturinn til 1. desember næstk Embætti þéssu gegndi prófessor Einar Arnórsson, sem nú héfir fengið lausn, en hefir verið settur til aði gegna embættinu fyrst ura sinn. Þungt kvef gengur hér í bænum, og eru margir veikir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.