Vísir - 24.06.1920, Qupperneq 2
ivi&ll
li)) MairmiHi &Ql
hafa fyrirliggjandi:
Rngmjöl
MHershey’s cocoa
I 1 / 1 / AM 1 IUh lí AcillVM1*
i Vr» Va og 1 ibs. dósum’
Bankabygg.
Haframjöl.
Hershey átsúkkulaói
margar tegr- ö, lager.
,©D ir 1»@
skeyti
irA srétoteu Wb.
Khöfn 22. júní.i
Bretland og írland.
Frá London er símaS, aö írskir
járnbrautarþjónar hafi neitað, a'ð
vinna að flutningi hergagna og
hersveita, sem sendar kunna að
verða til liðs við lireska hérinn i
írlandi.
Lloyd George hefir lýst því yfir,
að fyr skuli vopnum beitt til að
kúga íra, en að írland verði sjálf-
Stætt.
Ráðstefnur bandamanna.
Hythe-ráðstefnunni var lokiö á
sunnudaginn, en í gær hófst ráð-
stefnan i Boulogne. Á báðum ráð-
stefnunum var rætt um Austur-
lönd. Ennfremur voru Þjóðverjum
birtar skaðabótakröfur banda-
manna.
Á ráðstefnuna í Spa, 15. júlí,
verða boðaðir fulltrúar Grikkja,
Pólverja, Portúgalsmanna, Rúm-
ena, Czekó-Slovaka og Jugó-Slava.
Khöfn 23. júní.
Skaðabæturnar.
Frá París er símað,\ að ráðstefn-
an í Boulogne hafi ákveðið, að
Þjóðverjar skuli greiða banda-
mönrium 3 miljarða marka í gulli
á ári hverju i 5 ár og síðan sam-
tals að minsta kosti 90 miljarða
eftir ákveðnum fyrirínælum að
viðlögðum nýjum skaðabótum. ef
ekki er staðið í skilum, auk ]æss
sem * öllum þessum ákvæðum má
breyta, ef Þjóðverjar afvopna ekki
her sinn samkvæmt fyrirmælum
friðarsamninganna.
ófriðurinn í Litlu-Asíu.
Bandamenn hafa tekið tilboði
Venizeiosar um liðveislu gegn
Tyrkjum í Litlu-Asíu.
.Erlend mynt. Khöfn 23. júní.
'100 kr. sænskar...... kr. 130.30
100 — riorskar...........— 103.75
100 frankar franskir .. — 48.00
100 frankar, svissn. . . — 108.50
100 gyllirii holl......— 214.50
100 mörk þýsk .............— 16.50
Sterlingspund ...........— 23.68
Dollar ................... — 5.95
l London s. d:
Sterlingspund == kr. 23.70 = doll.
3_99jd = mörk 145.00.
(Versiunarráðið).
Hojríur.
Líklega hafa framtiðarhorfur
aldrei verið ískyggilegra hérálandi
en nú. — Það er ekki annað sýnna,
en að allar afurðir landsins muni
íalla mjög verulega i verði á
heimsmarkaðinum, en jafnframt
fer framleiöslukostnaðurinn sívax-
andi.
Um síðustu mánaðamót komu
fregnir af miklu verðfalli á ýms-
tun vörurn i Ameríku. Vöknuðu
þá vonir um, að það væri upphaf
aflsherjar verðfalls á heimsmark-
aðinum, enda varð um það leyti
verðfall á ýmsum vörum í fleiri
löndum. 1 Frakklandi féll t. d. verð
á ýmsum þarlendum afurðum,
einnig á lifandi gripum. En óvíst
er enn, livað um framhaldið verður.
— Það er þó trú manna, að að því
muni reka, heldur fyr en síðar, að
verð á öllum nauðsynjavörum
hljóti að falla. Og víst virðist vera
um það, að verðfallið á íslenskum
afurðum muni vera ti! framhúðar.
Það er alkunnugt, hvernig. til
tókst um söluna á ísl. kjöti og síld
síðastá ár. Að lokum varð hvort-
tveggja óseljanlegt. Iýn vitanlega
lagast það aftur. Má telja það víst,
að kjötverðið komist upp fyrir 200
kr. í haust, jafnvel upp í 250. Um
síldina er það kunnugt, að sölu-
horfur eru nú óðum að batna, svo
að víst er talið, að töluverð síldar-
útgerð veröi liér í sumar. — Um
I íiskverðið vita menn litið enn.
! Fiskmarkaðurinn liefir minkað
mjög við það, að ítalir geta lítið
cða ekkert keypt, sökum verðfalls
á gjaldeyri þeirra. Þar að auki var
verðið orðið svo hátt, að almenn-
ingur hlaul að kippa að sér hend-
inni.
Um ullina, sem menn höfðu þó
gert sér vonir um, að ekki mundi
falla í verði, hefir það heyrst, að
: hún hafi verið „boðin út“ fyrir
> töluvert lægra verð en í fyrra.
j Þó að verð lækki ])annig á öll-
um ísl. afurðum, frá því, sem verið
hefir, þá væri þó ekkert um að
kvarta. ef verð á ]>eim vörum. sem
r.ota verður til framleiðslunnar,
lækkaði eitthvað líka. En ]iað er
nú eitthvað annað. Og hörmuleg-
ast, að svo virðist jafnvel sem þæt
vörur séu.í óeðlilega háu verði.
Kolin eru nú orðin dýrari en þau
voru, jafnvel meðan kafbátahem-
aðurinn var sem ákafastur og
stríðsvátryggSngín sem hæst. —
Og steirtolían fer síhækkandi. Er
hörmulegt til þess að vita, hvernig
ísland er féflett af því alræmda
íélagi eða „hring“, sem hefir stein-
olíusöluna í sinni hendi, og um
!eið furðulegt, að það skuli leggj-
ast svo níðingslega á lítilmagnann.
Verð á steinolíu er nú því nær
h e 1 m i n g i h æ r r a hér á landi
en t. d. i Noregi. Þar kostar líterinn
ckki nema 37 aura. Það væri
gróðavegur, að kaupa ameríska
steinolíu þar og flytja hana hingað,
eina og eina tunnu! Enseljendurnir
sjá um, að slíkur útflutningur geti
ekki átt sér stað. Þeim er það full-
komin .alvara, að rýja ísland inn
að skyrtunni!
Eins og nú er ástatt um sölu-
Iiorfur islenskra afurða, má landið
i'la við sliku okri, og verður að
gera gangskör að því, að leita fyrir
sér um olíukaup annarsstaðar, ef
þessu heldur áfram.
Fyrirspnra.
Hvernig stendur á því, aö fólk
er ekki látið vita þegar lokað er
fyrir vatnið um hádegi. í dag, 22.
júni, mun vatnslaust i öllum efri
hluta austurbæjarins, en vatn mun
vera i kjöllurum á Laugavegi.
Fólk er við þvott, þarí vatn i mat
og kaffi eða þarf að leggja í bleyti
til næsta dags. Dettur hinum háu
herrum, sem við stýrissveif bæjar-
ins sitja. það ekki í hug, aö ó]>æg-
indi geti stafað afslíku. Séekkisvo,
ættu þeir að rannsaka það, kynna
sér lítið eitt vandræði fólks. Eru
það fiskstöðvar hér í kring, sem
með óþarfa vatnseyðslu baka bæj-
armönnum ])essi vandræði ? Þvi
ekki læt eg mér detta í hug, að
leiðsla, sem álitin var af vitrum
mönnum nægileg handa 30.000 i-
búum, ekki geti staðið í stykkinu
meðan íbúar eru ekki nema 15000.
Min og fleiri manría spurning er
sú. hvað voldur þvi, að bæjarmenn
eru settir i þessi vandræði? Er
verið að leika sér aö fólki hér?
F.kki er vatnsskatti gleymt, og að
„rukka“ liann inn hjá okkur. Fólk
sem stundar vinnu, verður að fá
mat og kaffi á réttum tíma, —
það fer að verða ómögulegt, þegar
vatnið hverfur úr húsunum, án
þess, að nokkuð sé gert aðvart
áður.
Getur Vísir ekki skýrt frá, hver
ástæðan muni vera til þessara
vandræða bæjarmanna? Má ske
svarið geti orðið huggun í raun-
unmn.
Bæjarmaður.
Um þetta hefir oft verið spurt,
en svarið alt af á sömu leið: ? ? ?
X.
.tit t .tti
il, A i). >1» tli <li -«!*-
-3
Ræjarfréttir.
Pétur Jónsson,
óþerusöngvari, ætlar að syngja
í Bárubúð á laugardagskvöldið
kemur. Það er enginn spádómur,
þó að sagt sé fyrirfram, að færri
fái þar aðgang en vilja.
Síra Kjartan Helgason,
prófastur i Hruna, er nýkominn
til bæjarins. Hann flytur erindi tun
för sina meðal íslendinga í Vest-
urheimi næstkomandi laugardag, á
r-ðalfuridi félagsins íslendings, og
er öllum heiniill aðgangur ókeypis.
Bach-hljómleikur
Páls ísólfssonar verður i Dóm-
kirkjunni annað kvöld kl. 9. Að-
göngumiðarnir verða seldir í dag
og á morgun i bókaverslunum ísa-
foldar og Sigfúsar Eymundsson-
ar. en ekki við innganginn.
Knattspyrnumót íslands
heldur áfram i kvöld kl. 8%.
Keppa þá Fram og K. R. Homa-
blástur hefst á Austurvelli kl. 7%.
ísfiskssala.
Apríl kom í nótt frá Englandi
og hafði þar selt afla sinn fyrir
rúm 1300 strelingspund. — Ari
hefir nýskeð selt isfisk og eitthvað
af saltfiski i Eriglandi fyrir 2150
sterlingspund.
Jón forseti
kom af veiðum i gær með mik7
inn afla. Hann heíir eingöngu
veitt í salt síðan í febrúar og mun
síðan hafa lagt einría mestan fisk
á land hér allra botnvörpunga.
Veðrið í dag.
Hiti liér 7,8 st, Vestmannaeyj-
um8,5, Isafirði 7,7, Akureyri 8,6,
Grímsstöðum 11,5. Seyðisfirði 7>2’
Færeyjum 10,5. Loftvog lægst um
Reykjanes og hægt fallandi. Hæg
suðvestlæg átt, nema á Vestur-
landi er austariátt. Regn í Ve. og
1 ísaf. í morgun. Hér rigndi mikið
í nótt.