Vísir - 22.12.1920, Blaðsíða 2
yisiR
INBffiHWS
hafa fyrirliggjandi
Regnkápur — karla og kvenna -
Vetrarfrakka
Skinnhúfur.
Hershey’s
Kartöflur
átsúkkulaði af mörgum teguudum
Hershey’s
cocoa í % % og 1 ibs. ddsum
höfum við fyrirliggjandi.
Heil- og hálf-baunir
Sagogrjón
Rísgrjón
Kartðflumjöl.
Sagomjöi,
R afm agns - skrautlampar
á jólatré og í búöarglugga.
„Batteri" og perur í vasaljós, fást hjá
Halldúr Guðmuudsson, rafvirkjafélag,
Bankastrœti 7.
Símskeyti
frá fréttaritara Vfsfs.
•O*——
Khöfn 21. des.
Slœrsia loftsfyeytastöð
heimsins er nýreist hjá bænum La-
croix á SuSaustur-Frakklandi. Er
J>ess getiS í símfregnum frá Bor-
deaux, aS stöS J?essi sé nú tekin til
starfa.
D'Annunzio.
Frá London er símaS, aS öll
Fiumé-flotadeild ítala hafi gengiS
á hönd D’Annunzio, en í símfregn-
um frá Róm er þetta boriS til baka,
Deilur milli Jugo-Slava og Búlgara
Frá Belgrad er símaS, aS stjórn-
málasambandi sé slitiS milli Jugo-
Slava og Búlgara, sakir þess, aS
Búlgarar hafi í ýmsum verulegum
atriSum vanefnt skuldbindingar sín-
ar samkv. samningum þeim, sem 1
gerSir voru í Neuilly J>eirra í milli.
Heimkoma Konstantíns.
Frá Aþenu er símaS, aS Kon-
stantín konungur sé nú kominn
þangaS og hafSi honum veriS tekiS
meS stjórnlausum fagnaSarlátum.
---Sendiherrar. Breta og Frakka
eiga ekki aS umgangast hirSina á
neinn hátt.
líeimastjórn íra.
„Times“ fullyrðir að trygö sjeu
afdrif heimastjórnarlaganna írsku
í enska þinginu, fult samkomulag
fengiS milli efri og neðri málstofu
um öll aðalatriði, svo sem sjer-
stakt þíng fyrir Ulster. Búast má
við að frumvarpið verði samþyk^
næstu ^iaga.
Lloyd George liefir lýst ]iví
| yfir við Flanagan, að hann geti
I ekki átt í neinum samningum við
; Valera, því að með því viðurkendi
hann írska lýðveldið.
Frá París er símað, að Valera
sje kominn til Gherbourg.
Macrady hershöfðingi hefir aug-
lýst, að dauðahegning sje lögð
við öllum hrotum gegn hernaðar-
ástandslöggjöfinni í írlandi.
tjóðverjar og bandamenn.
Wolffs frjettastofa tilkynnir, að
ráðstefnunni í Bryssel verði slitið
á morgun. Þjóðverjar liafa farið
þess á ieit, að þýskum eignum í
öðrum löndum og verzlunaiflot-
anum þýska verði skilað aftur.
Erlend mynt.
100 kr. sænskar kr. 130.25
100 - norskar 9.00
100 rnörk - 99.35
100 frankar franskir - 39.25
100 frahkar svissn - 101.00
100 gyllini holl. - 206.50
Sterlingspund - 23.20
Dollar 6.56
(VerzJunarráðið).
Hafið þér lesið „Jólagjöfina“?
Hafið þér keypt „Jólagjöfina"?
JÓLASÆLGÆTI
nýkomið: Konjektrúsínur, 2 teg.,
Fíkjur, Dóölur, Plómur, Muscat
Rústnur, þurk. Epli og Apricoser
Sago, fin á kr. 1,50 kg„ Kartöflu-
mjöl, Baunir á 1,30 kg„ Hrísgrjón
2 teg., m. m. fl.
Versl. B..H. BJARNASON.
Hrapalieg slys.
—o—
Fjórir menn farast við ísa-
fjarðardjúp.
—o—
Pósturinn Sumarliði Brandsson
frá Berjadalsá á Snæfjallaströnd,
hrapaði og beiö bana 17. þ. m. er
hann var í póstferð milli Grunna-
vikur og Saudeyrar á Snæfjalla-
strönd. Hann var ríðandi, en
vegurinn tæpur og liggur með sjó
tram. Mun hesturinn Iiafa fallið
undir honum og lentu þeir báðir
fyrir björg, en samferðamaður
póstsins komst lifs af og fóru 13
menn á báti næsta dag að leita
póstsii$. Þeir komu þar að, sem
slysið varð, sáu hestinn dauðan
og hnakklausan en lík Sumarliða
á öðrum stað. En þegar þeir
komu nær, féll snjóskriða á þá
og varð þremur leitarmönnnm að
bana. Þeir hétu Guðmundur Jó-
sefsson frá Sandeyri, Bjarni
Bjarnason frá Snæfjöllum og Pétur
Pétursson, samastaðar. Ófrétt er
enn um öll nánari atvik að þessu
siðara slysi.
Hafið þér lesið „Jólagjöfina“?
Jarðarför
Ástu Sigríðar, dóttur og fóstur-
dóttur Elísabetar og Jóns Gunnars-
sonar, fer fram á morgun og hefst
meS húskveðju kl. 1 á Vesturgötu 4.
Prófessor Magnús Jónsson
var á fundi pjóðabandalagsins í
Genf, í för með dönsku sendisveit-
inm. Fundinum var slitið 18. þ. m.
A ukablaS
er með Vísi í dag.
Coethes Faust.
pýðing Bjarna Jónssonar frá
Vogi á þessu heimsfræga riti, er út
komin í mjög vandaðri útgáfu og
tileinkuð „Alþingi og Dalamönn-
um“. Formáli þýðanda er fyrir bók-
inni og ævisaga Goethes eftir dr.
Alexander Jóhannesson og tvær
myndir af Goethe. Miklar skýringar
fylgja kvæðunum neðanmáls. Vísir
hefir áður minst á þessa þýðing og
mun enn geta hennar nánara.
ís y
er nú tekinn af Tjörninni af miklu
kappi. Var orðið svo íslaust, áður en
frysti, að til vandræða horfði í íshús-
unum.
Styðjið innlendan iðnað
— og verslið við kunnáttumenn.
VERSLUNIN Á F R A M,
Ingólfsstræti 6. — Talsími 919.
Selur og býr til allskonar klædd og
stoppuð húsgögn. Hefir fyrirliggj-
andi 3 teg. af legubekkjum og stórt
úrval af teppum.
Sérgrein: Skinnhúsgögn.
Verslunin hefir í þjónustu sinm
innlendan kunnátlumann sem stund-
að hefir nám í Stokkhólmi, Krist-
janíu og Kaupm.höfn.
Munið að besta og nytsamasta
jólagjöfin er legubekkur úr
Húsgagnaversl. ÁFRAM,
Ingólfsstrœti 6.