Vísir - 05.03.1921, Síða 2
HISÍ*
Vindlar - Marsmanns
HIKanpið
C0L6ATES
hanðsápar
Höfum fyrirliggjandi:
m
Maravilla
El Arte
Cobden
Epoca
Vera
Al Mar.
Indverska Tindla sstóra og smáa
Haadsápnr margar tegnndlr.
Þvottasápn „Octagon".
Raksápn og Raksápnðnft.
Jdh. Ólafoson & Co.
Reykjavik.
SeljiÖ ,Colgates‘ sápur.
m'
íS. o
Hér með tilfeynnist vinum og v&ndamönnnm &ð Gtmnar
sonur okkar andaðist nóttina miili 8. og 4. mars á Sölleröd
Sanatorium Holte.
Ásthildur og Pjetur J. Thorsteinsson.
Hér með tilkynnist vinum og ætttngjum, að konan mln
elskuleg, Helga Tómasdóttir, andaBist aö heimili sínu Vest-
urgötu 48, fö3tudaginn 4. mars. Jarðarförin ákveöin síöar.
Edilon Grimsson.
Myrt konur, börn og presta.
k.TniM rt irol.'oi* 1 -rwi...*
Gannar Tliorsteinsson
pndaSist á heilsuhælinu í Sölleröd
aðfaranótt 4. þ. m. Gunnar sálugi
var efnilegur maður, og er að hon-
um mikil eftirsjá. Hann var í-
þróttamaður og einhver besti
knattspyrnumaður, sem hér hefir
verið.
Tvö frumvörp.
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir
falið þingmönnum bæjarins tvö
lagafrumvörp til flutnings á A!-
þingi; annað er um afnám húsa-
leigulaganna, hitt um rýmkun
kosningarréttar til hæjarstjórnar.
Húsnæðismálið hefir mikið ver-
ið rætt í bænurp, bæði í bæjar-
stjórn og utan hennar. Allur jrorri
■rnanna unir illa jjví ástandi, sem
nú ríkir, bæði húseigendur og
leigjendur. í bæjarstjórninni hefir
niðurstaðan orðið sú, að rétt sé að
íella húsaleigulögin úr gildi, en að
bæjarstjórnin fái heimild til þess,
að setja reglugerð um húsaleigu í
hænum, þannig að eftir sem áður
verði nokkur hemill hafður á húsa-
leigunni og eftirlit með úppsögn-
um á húsnæði. F.n j)að er ta1iö of
viðurhlutamikið að fella niður alt
eftirlit með þessum málum í einu,
en hugmyndin er sú, að koma öllu
í gamla horfið smátt og smátt. —
Er þetta vafalaust vel ráðið, og
víst ætti þessu máli að vera vel
borgið í höndum hæjarstjórnarinn-
ar. Þingið brestur eðlilega jiann
kunnugleika á ástandinu í bænum.
sem jiarf til jíess að skera úr liví,
hvenær tími sé til kominn að létta
af öllu eftirliti, og er J)ví lang-
eðlilegast, að það vísi þessu máli
algerlega til aðgerða bæjarstjóm-
arinnar.
Frumvarpið um rýmkun kosn-
jngarréttar til bæjarstjórnar er al!-
merkilegt. Nú hafa þeir einir
kosningarrétt, sem eitthvert skatt-
gjald greiða í bæjarsjóð, enda
standi ekki'í skuld fyrir þeginn
sveitarstyrk. Frumvarpið fer fram
á jmð, að ]>essi skilyrði fyrir kosn-
ingarrétti séu numin úr gildi. Aft-
ur hefir það ákvæði verið sett í
frumvarpið, að enginn skuli fá að
neyta kosningarréttarins, ef hann
stendur í skuld fyrir skattgjald i
bæjarsjóð. — Mun þetta ákvæði
sett eingöngu í þeim tilgangi, að
létta innheimtu bæjargjaldanna,
en svo ósamrýmanlegt er það að-
alstefnu frumvarpsins, að varla
virðist geta komið til mála, að Jiað
fái að standa. /
Hér skal engu spáð um forlög
frumvarps ])essa á Alþingi. Eng-
inn vafi er þó á því, að stefnu
Jieirri, sem það fylgir fram, er
mjög að aukast fylgi. Enginn neit-
ar því nú orðið, að ])að sé hróp-
legt ranglæti að svifta menn slík-
’um mannréttindum fyrir það. að
Jieir hafa t. d. orðið fyrir því óláni
að missa heilsuna, og þess vegna
r.eyðst til þess að leita hjálpar
sveitarfélagsins. Og sjálfsagt eru
þeir miklu færri,! sem ^stíga þau
spor af frjálsum vilja, eða fyrir
hreitinar ómensku sakir, en hinir,
sem gera það að eins af sárustu
neyð. En allir þeir menn, sem fyr-
ir J)ví óláni verða. eru nú settir á
bekk með glæpamönnum,. og það
þó að þeir séu vafalaust margir
bæði nýtari borgarar og betri
menn, en ýmsir Jæirra, sem fá að
rjóta allra horgaralegra réttinda.
Það væri auðvitað æskilegast. að
slik brcyting á kosningarréttar-
skilvrðunum, sem hér er farið
fram á, væri gerð samtímis fvrir
land alt. F.n gera má ráð fyrir því.
r.ð þingmenn annara kjördæma
telji J)að mál ekki nægilega undir-
húið. og vilja heldur ræða J)að með
kjósendum sínuni áður. En af
hálftt Reykvíkinga virðist málið
r.ægilega undirbúið. J)ar sem þetta
frumvarp er fram komið fvrir for-
göngu bæjarstjórnar, samið af
henni og samþvkt með miklum
meirihluta atkvæða.
írJandsmál.
Ákærur De Valera.
—o—
Fylgismenn samsteypustjórnar-
innar á Bretlandi hafa nýl. fengið
bréf frá forseta Sinn Feina, De
Valera, þar sem hann- ákærir her-
tncnn bresku stjónarinnar, er vcr-
ið hafa og eru enn í írlandi, til að
halda uppi landslögum. Bréfið
sýnir Ijóslega, hvemig írlandi er
nú stjórnað, og er ekki undarlegt,
})ó að landsmenn uni þvi illa. Bréf-
ið er skrifað í írlandi og er á
Jæssa leið:
„Fyrir hönd J)ingkjörinna full-
trúa írsku þjóðarinnar, !egg eg
fyrir yður neðanskráð sannindi,
svo að Jjér getið ekki, vegna ó-
kunnugleika, skotið yður undan á-
hyrgð á því, setn hér hefir verið
gert í yðar nafni.
Hersveitir þær í írlandi, sem
stjórn yðar hefir ráðið í sína Jtjón-
ustu, heyja ekki að eins ranglátan
hernað gegn þjóð vorri, heldur
heyja þær hann gagnstætt öllum
reglum, er tíðkast í hernaði sið-
aðra þjóða. Þær hafa gert sig sek-
ar um neðanskráð hermdarverk:
Beitt pyndingum við fanga.
Myrt menn og drengi á heimil-
urn Jteirra, á strætum og gatna-
mótum og í fangelsunt.
meyjar.
Hýtt borgara *í hópum og mis-
þyrmt þeim, bæði í borgum og
sveitum.
Tekið menn frá vinnu sinni og
neytt ])á til að gegna hernaðar-
skyldu, og farið tneð ])á eins og
þræla við hernaðarvinnu.
Brent og rænt verksniiðjur,
rjómabú, búðir og íbúðarhús, ónýtt
bændahýli og afurðir bænda, drep-
ið og meitt húsdýr.
Til þess að yður skiljist, hvernig
högum er háttað að öðru leyti, er
nauðsynlegt að endurtaka þetta:
frska þjóðin er frjáls þjóð. Hún
viðurkennir ekki, að bresk stjórn-
arvöld, breskir dómstólar eða
breska þjóðin hafi nokkurn rétt til
að drotna yfir sér. Þjóðin er á
löglegan hátt að verja helgustu
réttindi, sem þér eruð að ásælast.
Þér hafið horfið frá réttvísi og
sanngirtii, hinurn eina grundvelli,
sem siðaðar þjóðir geta santið á,
og reynið að brjóta á bak aftur
þessar vorar löglegu tilraunir, af
blindu ofbeldi og villimensku.
Þó að þér hafið látið hersveitir
yðar „vera i hernaði" í írlandi, þó
að þér hafið reynt að réttlæta mörg
svivirðileg níðingsverk, með því
að kalla þau „hernaðarverk", og