Vísir - 11.03.1921, Síða 2
SSftSXJð
h&fa fyrirliggjaadi:
Ef þér viljiö fá b e s t u og um leið
ódýrustu þ vottasápuna sem
til er, þá biöjiö um
Fiskbnrsta - Reykjavlk Model
Strákista - Ciasava
Primnsa - Radins 1.
Símskeyti
frá fréttaritara Vísis.
Khöfn io. mars.
Yfirgangur bandamanna
í Þýskalandi.
Símað er frá Berlín, aö banda-
menn hafi í gær tekiö þessar borg-
ir herskildi: Duisburg, Ruhrort og
Diisseldorff. íbúamir eru mjög
rólegir. Mörg Berlínarblöö eru
þeirrar skoðunar, aö tillögur Si-
mons utanríkisráðherra hafi fariö
alt of langt i tilslökunaráttina.
Búist er við höröum aðfinslum frá
öllum flokkum í þýska þinginu,
þegar fari'ö veröur aö ræöa málið
þar.
/
Sendinefndinni fagnað.
Sendinefndin kom frá London
til Berlínar i gærkvöldi og var tek-
iö meö fagnaöarlátum.
Ráðherra myrtur.
Símað er frá Madrid, aö Dato
stjórnarfórmaður hafi veriö myrt-
ur þar meö skammbyssuskoti.
Uppreisnin í Rússlandi.
Símað er frá Helsingfors, aö
Trotzky hafi náö víginu Krasnaja-
Gorka, (vestan viö Pétursborg) og
umkringt Pétursbor^.
—o—
Gengi erl. myntar.
Sterlingspund.........kr. 22.90
Dollar................— 5.85
100 mörk, þýsk........— 9.50
100 kr. sænskar.......— 131-65
100 kr. norskar.......— 95-00
100 frankar, fr.......— 4t-75
100 frankar, svssn. ... — 99*x>
100 lirar, ital. .... .. — 22.0Ö
100 pesetar, spánv. ... — 82.25
100 gyllini, holl.....—,202.00
(Frá Verslunarráðinu).
slíku máli, á þann hátt, sem þingið
1919 hefði ætlast til, og tók hann
undir þaö, sem einn þm. hafði sagt,
aö þingið heföi farið hvatvíslega
aö ráði sínu þá. — Pétur Ottesen
flutti enn skörulega ræðu urn þaö,
hve brýn þörfin væri á því, að
íslendingar tæki strandvarnirnar
: sínar hendur, og fullyrti, aö við,
borð lægi, að bátaútvegur allur
legöist niður með öllu, sakir yfir-
gangs botnvörpunga á fiskimiðuN-
um. Það tjón, sem landið biöi af
þessu, yrði ekki tölurn talið, og
þó að dýrt hefði orðiö aö, láta
byggja eða kaupa skip til strand-
varna, samkv. tilætlun þingsins
1919, þó væri þó vist, aö hitt yrði
landinu og landsmönnum miklu
dýrara, að láta ógert að vernda
landhelgina. Var hann mjög þung-
orður í garö stjórnarinnar, og gaf
þaö í skyni að hún, eða sérstak-
lega forsætisráðherra, mundi frá
öndveröu hafa ætlað að kæfa allar
framkvæmdir í málinu. 1— Að lok-
um kvað hann stjórnina hafa gef-
ið sjálfri sér vantraustsyfirlýsingu
í svörum siniim við fyrirspurninni,
þar sem hún hefði lýst þvi yfir,
að henni væri ekki trúandi fyrir
slíkum framkvæmdum.
Umræðurnar stóðu yfir í 3
klukkutíma, og tóku margir þm.
til máls, en enginn virtist treyst-
ast til þess að taka algerleen mál-
stað' stjórnarinnar.
Fr& AlþingL
—o—
Stjórnin og strandvamirnar.
Umræðum um strandvarnirnar
var haldið áfram i n. d. í gær.
Gerði stjórnin enga frekari grcin
fyrir afstöðu sinni eða fyrirætlun-
um, en áður er sagt. Forsætisráð-
herra taldi þó alveg ófært, að fela
nokkurri stjórn, að ráða fram úr
og branðverðið.
Út af grein, sem stóð í Vísi í
gær, vildi eg leyfa mér aS gefa
nokkrar upplýsingar í þessu máli.
BrauðaverS það, sem nú gildir, er
frá því í ágúst síðastl. bg er miðað
við það verð, sem þá var á hveiti,
rúgmjöli, sykri og kolum. Til dæm-
is kostaði hveiti þá 80 kr. pokinn
(63 kg.), riú kostar hann 88 kr.,
rúgmjöl kostaði þá 53 kr. 100 kg.,
nú 74 kr., sykur 210.00 kr. en
hækkaði til nýárs upp í 330.00 kr.
og kolin 300 kr. smálestin. ]7rátt
fyrir þessa miklu verðhækkun, hefir
brauðverðið ekki hækkað, enda
þótt nauðsyn hafi verið til þess, sem
sjá má af ofangreindum tölum.
Onnur ástæðað að ekki er búið
að lækka brauðverðið er sú, að í
miðjum febrúar gat Bakarameist-
arafél. Rvíkur fengið 35—40 smá-
lestir af hveiti frá Englandi, sem
OOTAGON.
hefði ekki kostað meira en 48—50
kr. pr. poka (63 kg.) hingað kom-
inn, en þegar til viðskiftanefndar
kom, vildi hún ekki leyfa innflutn-
ing á því, enda þótt heildsali sá,
er útvegað gat hveitið hefði erlend-
an gjaldeyri til að borga það með,
en aftur á móti vill viðskiftanefndin
leyfa og leyfir landsverslun að
flytja þetta sama hveiti, en að eins
svo lítinn hluta af því, svo að lækk-
unin hlýtur að verða minni, þegar
hún kemur, þar sem bakarar verða
að kaupa mikið dýrara mjöl bæði
af kaupmönnum og landsverslun,
sem er að láta Sterling smala hveiti,
sem búið er að senda héðan til
hafna á Austurlandi og á nú að
selja almenningi bæði í brauðum
og búðum.
Fyrir þessa ráðstöfun, að ekki
var leyfður innflutningur á þessu
hveiti, hlýtur brauðverðið að standa
4—5 vikum lengur en annars hefði
orðið, þrátt fyrir það, að bakarar
nota bæði dýran sykur og aðrar
vörur, sem mikið hafa hækkað.
Að endingu læt eg svo almenn-
ing dæma um það, hvort það eru
heldur bakarar eða landsverslun og
viðskiftanefnd í sameiningu, sem
halda brauðverðinu og annari dýr-
tíð við líði.
S. S.
Bæjarfréttir.
I. O. O. F. 1023118 /2.— O.
Þilsk. Seagull
kom af veiðum i morgun, eftir
nrer 3ja vikna útivist, og bafði
ckki hlekst neitt á í veðrunum.
Lítinn afla hafði það fengið, um
4 þúsund, enda verið mjög gæfta-
lítið.
Dánarfregn.
Ekkjan Gunnhildur Gísladóttir,
Bjargarstíg 3, andaðist í gær 91V2
árs gömul. Hún hafði verið vel ern
þangað til í ágúst síðastl. sumar.
Hún mun hafa verið önnur elsta
kona hér í baenum, er hún dó.
Páll ísólfsson
endurtók hljómleika sína í Dóm-
kirkjunni í gærkvöldi og verður
náriara skýrt frá þeim i blaðinu á
morgun.
Veðrið í morgun.
Frost í Reykjavík 8Í2 st., ísafirði
6,4, Akureyri 7,3, Grímsstöðum
10, Raufarhöfn 8,2, Seyðisfirði 3,
Þórshöfn í Færeyjum hiti 3 st. —-
Loftvog lægst fyrir sunnan land,
stöðug eða hægt fallandi. Norðlæg
Þvlátíu stráka
vll jeg fá á morguu kl. 1 tll að
selja nr. 3 af Skemmtiblaðlnu.
Hullgr. Ben. Bergstaðastr. 19.
átt á Norðurlandi. Kyrt á Suður-
landi. Horfur: Norðlæg átt.
Kóræfing
í kvöld kl. 8. Allar raddir. D.
Gunnlaugur Claessen,
læknir, flytur fyrirlestur um'
Ijóslækningar í Nýja Bíó n. k.
sunnudag, kl. 3, og sýnir skugga-
myndir til skýringar. Fyrirlestttr-
inn er fluttur að beiðni Bandalags
kvenna og ágóðanum verður varið
til heilsuhælis á Norðurlandi.
Vísir
kemur ekki út á sunnudaginn.
Leiðrétting.
í greininni ,.Undirmatsmenn“,
sem birtist í Vísi s. 1. miðvikudag,
bafði orð fallið úr setningu: „ausa
út fé til starfa“, en átti að vera:
„ausa út fé til ó þ a r f a starfa.“
M.b. Skaftfellingur
mun fara héðan í kvöld til Vík-
ur og Vestmannaeyja.
Fyrirlestur
flytur stud. mag. Kinsky í Nýja
Bíó kl. 6V2. um afleiðingar ófrið-
arins og ástandið í Austurríki.
Skuggamyndir verða sýndar til
skýringa og ágóðanum varið til
liknarstarfa (sjá augl.).
Fjalla-Eyvindur
var leikinn í fyrsta sinni á þess-
um vetri í gærkvöldi, fyrir hús-
fylli. Aðalleikendurnir eru flestir
þeir sömu og i fyrra, nema hrepp-
stjórinn, hann leikur nú Ágúst
Kvaran, i stað Ó. Ottesen. — Yfir-
leitt má segja, að leikendurnir
fari vel með hlutverk sín. þrátt
fyrir afar þung hlutverk aðal-
leikendanna. Q.
Kvöldskemtun
heldur St. Mínerva á sunnudag-
inn kl. ,8y2 síðd. í G.-T.-húsinu.
Fjölbreytt skemtiskrá (sjá augl.).
G o odtemplaraklúbburinn
á morgun (laugár.) kl. 8þ£. —
Templarar fjölmerinið. — Stjórnin.
Gróusögur.
Það er ekki ósjaldan, að nú heyr-
ist, að eitt eða annað verslunarfyr-
irtækið sé á heljarþröminni —