Vísir - 10.08.1921, Side 3

Vísir - 10.08.1921, Side 3
VÍSIK mhoðSYOFSlUB F*yrim«isJanai ■ Mjölli'u.rlínisar galv. 15 & 20 lítra (nýkomnir). A.lixmi»iu.m vörur allsk. (ódýraatar á þessu Iandi). Vatnsíötur 28 — 30 — 82 cm. JEmailersaöair vörur ailsk. sérlega ódýrar. z' Járnvörur, aðrar, i mililu úrvali. eildsala — Nýkomið! a^œtt prjónagarn i ^nasixm. lalle^u.m lit- ;iglÉ3 lími 7 2 0. ■ hringinri io st., en minstur i stig), i Vestmannaeyjum 6 st., í Grinda- vik 8, í Stykkishólmi 7, á ísafirðí Og Akureyri 5, á GrímsstöSum 3, á Seyöisfiröi 6, á HólumJ í Horna- firði 10. í Þórshöfn t Færeyjuf 7 stig. -— Hæg norölæg átt og spáö svipuöu veöri. Es. Thormod koni) frá Bretlandi í gær með kolafarm til hf. Kol og Salt. . Valdemar Tomö heitir seglskip, sem hingaö kom frá Bórgarnesi 5 gær, meö leifar af saltfarmi, sem þangað átti að fara. Skipstjóri hafði að sögn áli- tnikiö áfengi, sem sýslumaður tók af honum i Borgarnesi og sætti hann sektum. 1 'Scomber, enskur botnvörpungur, kont í morgun með bilaða vél. Mikið hey er nú flutt til bæjarins á degi hverjum, alt hvanngrænt. Ottó B. Arnar er nýkominn til bæjárins norðan af Akureyri. Hann hefir veriö að •líta eftir sitr,alínum og setja upp jiý skiftiborð á sumum stöðvum. Lækjargötu 6'B. Hann hefir hér að eins stutta við- dvöl áður en hann leggur af stað í nýja eftirlitsferð. Es. Skjöldur fer héðan til Borgþrness sið- degis í dag. Átti að fara í morg- un en hann var látinn bíða Botníu, vegna farþega,- sem þar voru og ætluðu til Borgarness. le^t i peysur. Versl. Augustu Svendsen. KTols.l5.rlr duelegir íiskimemi geta komist á handfæraveiðar nú þegar. Uppl. hjá Knattspyrna. Skipsnienn af enska herskipinu 1 „Harebell", ætla að þreyta knatt- ; spyrnukappleik viö Víking annað kvöld kl. 8. — Skipverjar munu hafa vel æföa knattspyrnusveit um borð, enda eru Englendingar bestu knattspyrrhimenn heimsins. Ai'ænt- anlega verður f jölmept á vellinum. þars senf breskir hermenn keppa hér. Skipið mun fara á föstu- daginn. Sjúkrahiálp. Frá ,.Gvendi“ 10 kr., írá S. 5 !kr. Botnia kom kl. 1 1 j n(orgun. Meðal far- þega voru: F. Nielsen. fram- kvæmdast jóri. Petersen. bíófor- stjóri. frú Asta Sigurðss.on, Þor- bergu’r Þórðarson, sira Jakob „Væri þaö ekki réttara“, að nota hinar þjóðkunnu bifreið- ar frá bifreiðastöð Steindórs Ein- arssonar. sem ávalt eru til leigu fyrir mjög sanngjarnt verð. Fast- ar og ódýrar áætlunarferðir til Þiiigvalla og austur yfir fjall, dag- lega. Símar 127, 581, 838. Ivristinsspn, Pétur Guðmundsson, bókbindari, H: S. ITanson, Alfred Raawad, byggingameistari, bróðir Thor Jensen, Magnús Guðmunds- son, kaupmað.ur, 6 Englendingar og nokkrir Danir. Asætur Reyktur Lax i verslun Einars Árnasonar.' F. u. M. TJ.-D. Jarðræktarvinna í kTbld kk 8. Vaíur III fi. teíing kl. 7. Valur I íi. — - 8. Mætlð, STELLA 77 fanst meS sjálfri sér, að nú væri komið að örlaga- stundinni. Hún virtist finna það á sér, að nú væri eitthvað að gerast, sem yrði til ]?ess, að hún misti af Leycester fyrir fult og alt. Hcnni var heitt um hjartarætur, en þó brosti hún og gekk —- eða 'leið —— til lafði Wyndward. sem sat hjá tennis- •vellinum. Lafði Wyndward leit upp. er hin háa, tígulega kona nálgaðist. „Yður dauðleiðist hér, kæra mín,“ sagði hún og andvarpaði. ,,Nei, eg skemti mér vel, Hvað gengur að :yðuv?“ „Eg er hugsjúk út af þessu eina angistarefni mínu. Leycester er nú horfinn rétt einu sinni. Eg veit ekki hvert; hann sagðist fara til Londonar. Eg veit ekki, hvort eg þarf að vera óróleg, venju- fremur, en eg er það. pað er eitthyert ráðabrugg í milli Grayfords lávarðar og hans.“ „Eg veit það,“ svaraði Lenore brosandi. „Gray- ford lávarði lætur ekki veí að gæta leyndarmála. Hann er mjög lélegur samsærismaður." „Hann mundi gera hvað sem væri fyrir Ley- cester, hvaða vitleysu sem væri,“ svaraði lafði Wyndward og stundi við. Lenore brosti til hennar hugsandi- „Gætuð þér dvalið fyrir Grayford lávarði hér á leikvellir.um í hálfa klukkustund?" spurði hún. „Til hvers?" spurði lafði Wyndward. ,,Já, það hugsa eg.“ „Gerið þér það þá,“ svaraði lafði Lenore. „Eg skal seinna segja yður, til hvers þér eigið að gera það, Gravford lávarður er mjög slunginn. ekki þarf að efa það, en eg he!d eg sé *enn slungnari; hvað hugsið þér?“ „Eg húgsa að þér séuð öllum fremri í því, sem gott er og fagurt, góða mín,“ svaraði hertogafrú- in andvarpandi. „Jæja, þér sjáið þá um. að hann víki sér ekk- ert héðan næstu hálfa klukkustund; eg skal sjá fyrir öllu öðru. Eg er ekki vön að beiðast þess, sem ósanngjarnt er.“ ‘ Lú": „Nei, Eg skal gera alt, sem þér viljið eða fcgið mér að gera,“ svaraði lafSi Wyndward. „Eg er ekkert nema kvíði og áhyggjur, Lenore. Getið þér sagt mér, hvað til þess kemur?“ „Nei, ekki veit eg þao, en mér finst eg geti getið mér þess til. Lítið þér á, þarna kemur hann.“ Grayford lávarðúr kom skálmandi og veifaði knatt-trénu. „Sjáið þér, lafði Lenore! Er þetta ekki knatt-tréð?“ „Jú,“ svaraði hún, „en nú get eg ekki leikið lengur. Mér þykir það leiðinlegt, en eg hefi meitt j mig í hendinni. pao er auðvitað ekki mikiS, en eg ætla að baða höndina.“ ,,Æ! pað var leitt að heyra,“ sagði Gray- ford lávarður. „Mér þykir mjög fyrir því. Jæja, leiknum er þá lokið. Við verðum að jafna þaS einhvern tíma seinna. Eg ætla að ganga ofart í þorpið. Eg ætla að koma við í lyfjabúðinni og kaupa áburð, Eg gejri ráð fyrir, að höndin hafi tognað.“ í sama bili mundi hann eftir bréfinu og gekk í áttina til treyjunnar, en lafði Lenore leit ti! hertogafrúarinnar, og hún stansaði hann með einu orði. „Ekki dugir að hætta við leikinn,“ sagði hún- „Hó rna er ungfrú Dakon sárlangar tií að kom- ast í leikinn, er ekki svo, kæra?“ Hún leit til stúlku; sem hafði verið að horfa á. „Jú, eg vissi ■það! péi' verðið að • taka hana í staðinn fyrir Lcnore. Komið þér, góða mín!“ Ungfrú Dalton, eða hvaða stúlku sem var, hefði fyrr V-omiö til hugar að ganga fyrir björg en að cblýðnast vilja hertogafrúarinnar, og stúlkan stóS á fætur og tók við knatt-trénu úr hendi lafði Lenore. Síðah gekk lafði Lenore rakleiðis að treyju Gray- fords lávarðar, fleygði armbandi sínu á hana, laut niður og tók það upp, en dró bréfið upp úr vas- anum um leið. Hún faUi það í sólhlíf sinni og gekk til hússins.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.