Vísir - 30.09.1921, Síða 2
VlSlR
)) IKIafMM s Ölsem 1
B4fma fyrirliggj&sdi:
Regikípnr karli og kveiu,
Regihattt,
Prófessor
Þorvald'ur Thoroddsen
látinn. P
Frá KaupinannahÖfn er síma'S,
aö prófessor Þorvaldur Thorodd-
sen hafi dáio 28. þ. m.
fri fréttarltarm Viaie,
Khöfn 29. sept.
„Landráða“-þvættingurinu.
BlaSih „KöberJhávn" skopast
tnjö'g ah því, hve xnikiö „Politike:i“
hafi oröiö úr landráöa-tröllasögun •
um íslensku, og minnir á þaö, aö
„Köbenhavn“ hafi 16. okt. 1916
birt grein úr íslcnska jafnaöar-
mannablaöinu „Dagsbrún“ frá 16.
sept. s., á., þar sem sagt sé frá til-
drqg'Uip málsins. — „Politiken“
birtir í dag hálfrar síöu símskéyti
frá fréttaritara sínum í Reykjavík,
en saknar þó einhverra upplýsinga
„héöan úr borginni“ og „vér end-
urtökum þaö,“ segir blaðið, „að
allar líkur eru til þess, aö sím-
skeytið sé runniö frá fréttaritara
,.L’Intransigent’s“ hér, og vér
spyrjum; hvers vegna bjó Caro
þessa'grein sína út sein simskeyti
frá Stokkhölnii ?“ — „Politiken“
birtir énpfrehtur einhverja leiörétt-
iiigu á Réykjavíkur-skeytinu frá
Jóni Krabbe skrifstofustjóra, um
aö hann hafi aldrei staðfest neitt
um að skjal nokkurt. sem þar væri
um rætt, væri skrifað meö hendi
Einars Arnórssonar, og hann bæt-
ir þvi viö, að hann hafi aldrei
heyrt Einar Arnórsson tala nokk-
urt orð í þá átt, sem gæti gefiö
nokkurn átylluvott til þess aö ætla
ao nokkur fótur sé fyrir tröllasög-
um þeim, sem nú séu á ferðinni.
Bankarnir
og atviiiitaleysið.
Vísir sagði frá því á þriðjudag-
hm. að hann hefði „hlerað það“,
að bönkunum fyndist ekki vera
gengið svo hart eftir láninu til fisk-
reitagerðarinnar, að þeir hefðu get-
að sannfærst um það, að brýn þörf
væri á því, að ráðast í slíkar at-
vinnubætur hér í bænum, að þeir
væru jafnvel í vafa um það, að
bæjarstjórninni væri kappsmál að
fá lánið. Og þrátt fyrir allar til-
vitnanir Alþbl. í ræður manna á
Báruhús-fundinum í fyrrakvöld, þá
er þetta rétt hjá Vísi. — petta hafði
hann hlerað, og þetta taldi hann
sér skylt að birta, til þess að hreyf-
ing kæmist á málið, því að skylt
væri að rannsaka ástandið í bæn-
um, svo að algerlega yrði gengið
úr skugga um það, hver þörf væri
á slíkum bjargráðum, ef nokkur vaf;
væri á því-
Vísir gat ekki heldur fyrir sitt
leyli, og getur ekki enn, hugsað sér
neina aðra ástæðu til þessa dráttar,
sem orðið héfir á framkvæmdum
þessara bjargráða, en þá, að bank-
arnir hafi ekki sannfærst um þörf-
ina á þeim og þvúhikað við að
veita lánið. —• Eggert Claessen
bankastjóri sagði að vísu á fundin-
um í fyrradag, að þetta væri ekki
svo, „hvað íslandsbanka snerti“,
því að hann gœti ekk'i veitt lánið,
hvað sem þörfinni liði, af því að
hann mætti ekki gefa út meira af
seðlum en þegar væri í umferð. En
ekki efast Vísir um það, að banka-
stjórnin muni komast að annari nið-
urstöðu við nánari athugun. Ef
bankinn sannfeerðist um það, að
ney'Öarástand væri fyrir dyrum, ef
Iánið fengist ekki, þá mundi hann
auðvitað veita lánið, hvað sem
seðlaútgáíunni liði. Vegna þess líka,
að lánið mundi heldur ekki auka
seðlaútgáfuna nema um fá þúsund,
og hjá þeirri aukningu yrði með
engu móti komist, hvort sem væri
Seðlaútgáfan vex vitanlega við
þetta. Hún mundi vaxa sem svar-
aði vikukaupi þeirra manna, sem at-
vinnu hefðu við fiskreitagerðina. —
Meira yrði það nú ekki. Mennirnir
yrðu að verja kaupinu til daglegra
þarfa og seðlarnir hlytu að hverfa
aftur til bankanna vikulega. Ef 100
manns yrði í vinnunni, yrði seðla-
aukningin því sennilega um 5000
kr. En ef þvertekið er fyrir þessa
aukningu seðlæútgáfunnar, þá fá
mennimir ekkert til að kaupa fyrir
daglegai- þarfir sínar. peir verða þá
að svelta. — Dettur nú nokkrum
manni í hug. að til þess verði látið
koma, heldur en að auka seðlaút-
gáfuna um 5000 kr. ?
Nei, ef neyð er fyrir dyrum, þá
verður féð að fást tii atvinnubót-
anna. Og það verður fengið með
einhverjum hætti. Og hvernig sem
það verður fensrið. þá -'Tp-'RiTT-
lagt fram í seðlum. En seðlaútgáf-
!an er í þessu sambandi algert auka-
iatriði. — Ef bankarnir væru full-
komlega sannfærðir um það, að
brýn þörf sé fyrir atvinnubætumar,
þá mundu þeir auðvitað lána féð
til þeirra tafarlaust. pað er þess
vegna enginn vafi á því, að það
er rétt, sem Vísir sagði á þriðju-
daginn: Bæjarstjórnin verður fyrst
og fremst að sýna fram á, að þörfin
sé fyrir hendi, hvað sem nú til þess
kann að þurfa, að sannfæra bank-
ana um það.
Bæjitríréítiff.
I. O. O. F. 1039308J/2.
VeðriS i morgun.
Hiti hér 3 st., (engin skeyti frá
Vestmannaeyjum), Grindavík 4,
Stykkishólmi 3, ísafirði 3, Akureyri
0, Grímsstöðum 0, Raufarhöfn 2,
Seyðisfirði 3, Hólum í Hornafirði
5, pórshöfn í Færeyjum 11 st. —
Loftvog lægst um suðausturland,
fallandi á norðausturlandi, stígandi
á suðvesturlandi. Norðlæg átt á
Vestfjörðum breytileg annars staðar.
Horfur: Norðlæg átt. Ótrygt veður.
pilsk- Sigríður
kom af veiðum í fyrrakvöld með
12 þúsund. Er nú hætt veiðum. Hef-
ir aflað skipa best í vor og sumar.
Belgaum
kom af veiðum í fyrradag og fór
út í gærkveldi. Mun fara til Eng-
lands um helgina.
E.s. S'trius
fer héðan á morgun kl. 12 á
hádegi.
Háskólinn
verður settur á mánudaginn 3..
okt., kl. I síðd. — Söngæfing kl.
8V2 í kvöld.
SVElTAMENNí
j Kaffi, Sykur, Blásieinn, Caddavír.,
| Skóflur, verkfœri og allskonar Bús~
j áhöld er best og langódýrast í
\ VERSL. B. H. BJARNASON.
!
!------------------------
j AÐGERÐ og HREINSUN
I RITVÉLA. A. y. á.
igæt, Muð slata
til sölu mjég ðdýrt.
Agúst foðlðæissB,
fisksali.
Vssaljis
GÓÐ OG ÓDÝR
FÁST í NÝHÖFN.
Júlíus Björnsson.
ES. SUÐURLAND
fer héðan til Vestfjarða 10.
o k t ó b e r.
DIVANAR
fyrirliggjandi í
MJÓSTRÆTI 10.
Samkomiisaliirmn
á Hótel ísland fæst daglega
leigður. Mjög heutugur til
fundarhalda fyrir félög ’og
aðrar samkomur.
N»fn
Magnús Jónsson,
lyfsalasveinn úr Reykjavíkur
Apóteki kom til bæjarins í gær með
Skildi. Hann kom Iandveg í Borg- Heímilí
arnes frá Sauðárkróki, úr heimsókn
frá dóttur sinni, sem er gift lyfsalan-'
um þar.
Afgreiðsla Vjgia, Reyhjavik
Gerið svo vel að ceuda ,mer
eint. af sögunni BStelIa“
.....mJtmmmmmmm-mm---
Skipafregnir.
Lagarfoss fór frá Leith í gær-
morgun áleiðis hingað.
Goðafoss fór frá Leith 27. þ. m
áleiðis til Kaupmannahafnar.
Sterling fór frá Seyðisfirði í gær,
* norður um land.
Villemoes er nú á Hólmavík.
Suðurland var í Vestmannaeyj-
um 1 gær.
Ljósberinn
kemur út á morgurt með fallegar
sögur og góðar hugleiðingar handa
þeim ungu..
NotaÖa ritvél
vil eg kaupa. Jón Gunnarsson,
sími 50.
rsgntcápu-átsðlucni í Thomsens-
sundi, ðrfé skraf frá Islandsbanka
»8 aostanverðu.
Látian sendlherra.
Snemma í þessum mánuði íést
Castenskjold, sendiherra Dana r
London. Banamein hans var blóS-
eitrun, sem hann fékk af því að eit-
urfluga stakk hann, er hann var að
knattleikum með nokkrum vinum
sínum. Ekki hefir frétst, hver verða
muni eftirmaður hans.