Vísir - 10.10.1921, Blaðsíða 2
VÍSIR
HRBTfflH
Með Gullfoss fáum við:
„OMA“-smjörliki,
. „Kokkepige" plöntufeiti,
Libby'ð mjólk — 16 oz. dósir,
„Tower Brand“ mjólk.
Sveskjnr,
Apricots — þurkaðar —
Epli — þurkuð —,
Syltetoj,
Baunir */i og 7*>
Kristalsápu,
Þakpappa, og fleira.
Sfmskeyt
írá fréttarít&rfc Vlcfa.
Khöfn 8. okt.
Grikkir og Tyrkir.
Frá Konstantínópel er símaö, aö
her Tyrkja hafi oröiö aö stööva
eftirförina vegna þess aö Grikkir
hafi ónýtt |árnbrautirnar fyrir
þeim.
Samningar Þjóðverja fig Frakka.
Frá Berlin er símað, a‘ö þeir
Rathenau og Loucheur hafi undir-
skrifaö viðbótarsamning um af-
uröaframlög Þjó'överja til Frakk-
lands. — Blööin telja þessa samn-
ingagerö mjög merkan stjórnmála-
vi'ðburö, sem þau láta yfirleitt vel
yfir. Blöö stjórnarandstæðinga í
Þýskalandi finna þó ýmislegt aö
en Parísar-blöSin láta mjög vel
yfir samningunum. BlaöiS „Petit
Parisien" segir. aö þetta sé í fyrsta
skifti, eftir lok styrjaldarinnar,
sem ástæöa hafi gefist til aö hrósa
þýskum stjórnmálamanni (Rat-
benau) fyrir stjórnmálaþroska og
góöan vilja. f
Washington-ráðstefnan.
Frá London er símaö, aö um
Washington-ráðstefnuna sé nú
rætt með sívaxandi vantrú á góö-
an árangur.
Pretta-málið.
Jód Þorleifsson
frá Hólum.
—o—
Ungir listamenn renna hér nú
// : , ■>
upp sem fíflar í túni og auöga
jijóöina aö fögrum verkum. (Einn
hinna efnilegustu manna í þeirri
grein er Jón Þorlcifsson frá H6I-
um, sonur Þorleifs Jónssonar al-
þingism. á Hólurn í HornafírÖi.
Hann fór í sumar um sunnanvert
Austuriand og málaöi, og þótt tíö
væri óhagstæö til þeirra hluta, þá
sýnir hann þó nú allmargar ágæt -
ar myndir eftir sumarið. Með
iiokkrum eldri myndum eru á sýn-
íngunni 27 málverk (6 árið 19x9,
2 árið 1920 og 19 árið 1921). Biríu,
hlýleik og innileik þykir mér anda
frá verkum þessa unga manns, og
þar sem góð þekking og mikil
vandvirkni eru auk þess einkenni
hans, þá er eigi að efá að hann
muni veita oss erin rnörg ný og góð
verk, og þætti mér sennilegt, að
þar á meðal yrði allmörg snildar
verk, ef honum eridist aldur. En
holt væri honúm sem öðrurn að
kenna ylinn af velviljuðum skiln-
ingi landsnxanna á verkunx hans.
Er nú gott tækifæri til að veita
honum það með því, að sækja vel
sýriing hans í Goodtemplarahúsinu.
Reynsla míri er, að sú heimsókn
borgar sig vel.
Rvík 9. okt. 1921.
Bjarni Jónsson
frá Vogi.
Sýslumaðurinn í Gullbringu og
Kjósarsýslu hóf sakamálsrann-
sókn hér í bænum síðastliðinn
laugardag í máli Guðmundar Þor-
lákssonar á Korpólfsstöðum. Var
Guðrixundur settur hér í gæsiu-
varðhald á föstúdaginn. Ekkert
hefir veriö látiö opinberlega upp-
skátt unx rannsóknina enn, en
skýrt mun Guðmundur hafa frá,
hver maðurinn væri, sem kom
frarn í nafni Magnúsar banka-
stjóra Sigurðssonar, því að á
laugardaginn var Björn Gunn-
laugsson, kaupmaður á Laugavegi,
settur í gæsluvarðhald, grunaöur
um að hafa látist vera „banka-
stjórinn" í viðskiftum þeirra Guð-
mundar ogj Þórarins Þorvarðsson-
ar. Eru þeir Guðmundur og Björn
Ixáðir í gæsluvarðhaldi og verður
rannsólcn málsins baldið áfram
j)essa dagana.
Skýrsla sú, sem birtist í Vísi um
þetta mál síðastliðinn laugardag,
var samin eftir bráðabirgðaheim-
ildurn og er málið margbrotnara
en |tar var frá sagt.
Ákærandinn, Þórarinn Þorvarðs-
son, réðst í vorvinnu og kaupa-
vinnu til Guðmundar á Korpólfs-
stöðum og hafði verið þar skamma
stund, er Guðmundur fór að fala
GOLGATE’S
Besta haridmápa sem fáanleg er
fyrii tjxatgf'börxs, og aöra seta
bafa veikt hiörtuaci er
COLEO handsápan frá
Colgate & Co,
New York.
Jóh. Ögm. Oddsson
L&ugaveg 63.
Sími 339,
Alíatnaðir, karla,
Vetrarfrakkar.karla
ódýrestir eftir g&öum í
Aðaístræti 9.
lári af honum. Veitti Þórarinn af-
svör i fyrstu, en 1. júní lánaði hann
honum 3000 krónur, gegn veði í
öllum (8) kúm Guðmnndar, en 9
dögum síðar lánaði hanri honum
enn 1500 kr. og tók þrjá reiðhesta
að veði og ennfremur kýr, sem
Guðmundur ætlaði að kaupa fyrir
peningana. Síöar komst Þórarinn
að því, að kýrriar voru allar veð-
settar áður. Upphæð þessa átti að
greiða 15. júní, en ekki varð af
því og um miðjan júli fóru þeir
Þórarinn og Guðmundur hingað til
bæjarins. Þá var það, að Guð-
nxundur konx með mann til Þórar-
ins, sem hann sagði vera Magnús
Sigurðsson bankastjóra. Sagði
hann, aS Guðnxundur gæti fengið
10 þúsund króna^ lán i bankanum
eftir 3—4 daga og ætlaði að gefa
Þórarni það skriflegt, en þó fórst
það fyrir. 19. júlí kemur Þórarinn
aftur til Reykjavíkur með Guð-
nxundi og fóru þeir inn á kaffi-
húsið í Nýja Bíó. Meðan þeír sitja
þar, kemur „bankastjórinn" til
þeirra og s'egir, að alt standi við
sama unx lánveitinguna til Guð-
mundar og verður það nú að sam-
komulagi, að Þórarinn láni hon-
utn enn 3000 krónur og átti öll
skuldin að greiðast 31. júlí. Fór
Þórarinn út í banka til að sækja
peningána, sem hann- ætlaði nú
að lána Guðniundi til viðbót-
ar. en þégar hann kom aftur.
mætti liann „bankastjórafium" í
dyrum kaffihússins og kvaðst
hanri þurfa að flýta sér
heim. Sagði að Gúðmundur gæti
sótt til sín yfirlýsinguna. Seinna
um daginn talaði _ Þórarinn við
„bankasfjórarin" í sima, og ségði
hann öllu óhætt um lánið. Afhenti
Þórarinn svo Guðmundi þessar
3000 krónur eftir 2—3daga og fékk
hjá honunx skuldabréf og veðbréf
L. F. K. R.
Bókasafnið, Laufásveg 5, opið:
Mánud., miðvikud. og föstud. kl.
3V2—5- Sunnud. kl. 2—3 e. h.
Stjórnin.
það, sem getið var i siðasta blaði.
Var skuldin öll, með kaupi Þórar-
ins, þá orðin 8300 krónur. —
Nokkru eftir gjalddaga hringir
„bankastjórinn" til Þórarins að
Korpólfsstöðunx og segir honum,
að Guðmundur geti eklci fengið'
lánið, fyrr en ríkislánið sé fengið.
Að öðru leyti fór um skulda-
skiftin eins og frá var skýrt í síö-
asta blaði. Búast má við, að hinir
ákærðu skýri eitthvað öðruvísi frá
málavöxtum. Það sem hér hefir
verið sagt er samkvæmt ákæru
Þórarins.
Stefán Loðmfjörö hefir skýrt
Vísi þanriig frá, að hann hafi eftir
beiðni Guðmundar að eins afritað
skuldabréf það, sem getið var um
á laugardaginn, eftir uppkasti,
sem Guðmundur hafi fengið hon-
um, og hafi hanri ekkert vitað um
skuldaskifti þeirra Þórarins að
öðru leyti og enga hugmynd haft
um að Guðmundur hefði talíð'Þór-
arni trú um, að hann (Stefán)
væri Iögfræðingur. Hafði Stefán í
höndum þetta frumrit skulda-
fcréfsiris og sýndi Vísi það.
Nýr botnvörpungur,
sem Baldur heitir, er á leið
hingað frá Gestemiinde í Þýslca-
landi. Lagði hánn af stað siðast-
Ii.ðinn laugardag. Skipið er eign
h.f. Hængs. Skipstjóri er Gunn-
laugur Illugason. Skipshöfnin er
íslensk.
E.s. Gullfoss
kom til Seyðisfjarðar á laugar-
dagskvöld, en til Vestmannaeyja 1
morgun. Er væntanlegur hingað í
nótt.
E.s. Lagarfoss
fór héðan á laugardagskyöid
vestur og norður urn land, áleiðis
til útlanda.