Vísir - 11.01.1922, Síða 3
VlSIR
leiidsala - HmboðsvessluÐ
Fyririiggjandi:
Ódýrt prlma Emaille:
Balar fi. stærðir — Kaffikönnur fi. stœrðir. Katl-
ar fl. stærðir. — t>vottastell. — Færsluílát. —
Kastarholur fl. stærðir. — Pottar fl. stærdir.
Vatnskönnnr btórar. — Könnur alisk. — Bollapör
Náttpottar fl- stærðir. — Diskar gr. og djúpir.
Sigfús Blondahl & Co.
Simi 726. LnkjargitH 6 E
Dansæfingar
barna í dag kl. 5, fullorðnra i kvöld kl. 9.
LilU Eiriksdáttir. Páll Andrésson.
an m'ilíðar-kveðskap. Hr. Seu er
ágætur fæðumaður og verður
vafalaust mikil aðsóku að er-
indi lians, en tala aðgöngumiða
er mjög takmörkuð.
Kappskák
var háð símlelðis milli Tafl-
félags Reykjavikur og Taflfé-
iags Alcureyrar milli jóla og ný-
árs. pað er orðin föst regla að
félög þessi leiði saman hesta
sína einu siiini á ári. I þetta
sinn tefldu 8 frá hvorum og
leikurinn stóð frá ld. 8% um
kveldið til Id. 9 morguninn eft-
ir. ÚrslitÍD urðu jafntefli. 2
skákir nnnar á hvora hlið og 4
jafntefli. Félög þessi hafa getað
vcitt sér þessa ánægju 3 ár í
röð, og má mest þakka það lir.
landssímastj. O. Forberg, sem
hefir sýnt frammúrskarandi lið-
legheit og áhuga fyrir því, að
kappskákir þessai’ gætu gengið
sem greiðast og orðið hlutað-
cigendum sem auðveldastar og
ódýrastar. x.
Ii. F. U. M.
er nú 23 ára og minnist þess
á morgun með afmælisfagnaði.
Verslunarm.fél. Reykjavíkur
heldur skemtifund á morgun
kl. 8y2 síðd. á Skjaldbreið.
Veðrið í morgun.
A Akureyri er Jxiti 1 st., en
frost sem hér segir á öðrmn
stöðvum: í Rvik 4 st., Vcstm.-
eyjum 2, Grindavik 5, Stykkis-
hólmi 3, ísafirði 5, Grímsstöð-
um 4, Raufarhöfn 1, Seyðisfirði
•0, Hólum í Homafirði 0, J?órs-
liöfn i Færeyjum hiti 1 st. —
Loftvog lægst fyrir austan iand,
stígandi, einkum á Austurlandi.
Norðvestlæg átt á Vesturlandi.
Kyrt veður á Austurlandi.
Apríl
kom frá Englandi í gær. —
Allir sldpverjar heilbrigðir.
Breyting
er orðin á aðgöngueyri að
skemtun Kvenréttindafélagsins.
Aðgöngumiðar bama kosta kr.
1,50. en fullorðinna kr. 3.00.
Pétur Gunnarsson,
kaupm., kom á Apríl í gær
frá Englandi.
Aðalfundur
Styrktar- og sjúkrasjóðs versl-
unarmanna var lialdinn í gær-
kveldi. Hagur sjóðsins hefir
A.nglia,.
Mr. K. T. Seu flytur iyrir-
lestur um English Poetry of
To-day,1 i Hótel Skjaldbrei@»
laugardaginn 21. þ. m., kl. 8%'
e. h. Aðgöngumiðar kosta 1 kr,
Félagsmenn vitji þeirra fyráci
sig og gesti sína í bókaversluh
Ársæls Árnasonar eigi síðar ea
miðvikudag 18. þ. m. peir, sem
óska að fá inntöku í félagi'ð
gefi sig fram annaðhvort vi'ð
ritara þess, Snæbjörn Jónssoh
stjórnarráðsritara, eða á skrif-
stofu Lárusar Fjeldsted hæsta-
réttajrmáiaflutuingsmamis, I
Aðalstræti 18.
S t j ó r n i a.
Brunatryggingar allskonar:
Nordisk Brandforsikring
og Baltica.
Líftryggingar:
„Thule“.
Hvergi ódýrari tryggingar né
ábyggilegri viðskifti.
A. V. TULINIUS
Hús Eimskipafélags íslands.
(2. hæð). Talsími 254.
Skrifstofutími kl. 10—6.
K. F. U. K. — Y-D.
Saúmafundur annað kv. ld. 6.
aldrei staðið með þvilikum
blóma sem nú. Stjómin var
endurkosin: formaður justisráð
Sighvatur Bjarnason; féhirðir
Einar Árnason, kaupm.; ritari
Jes Zimsen, ræðismaður Hol-
lendinga.
Háskólafræðsla.
í kvöld kl. 0—7: Prófessor
Ágúst H. Bjarnason: Um lækn-
ingar Hadfields herlæknis á
sjúkum hermönnum.
Egill Skallagrímsson
kom af veiðum í gær. Iíann
flutti liingað lík Bárðar Sigurðs-
sonar, sem druknaði á Flateyri
í Önundarfirði í í'yrra mánuði
og var liáseti á þessu skipi.
ísfiskssaia.
pessir botnvörpungar hafa
selt isfisk nýskeð: Geir fyrir
1700 st.pund, Kári 1800, Austri
1600, Ari rúm 1600 st.pd.
Tveir bæjarfulltrúar
voru kosnir i Hafnarfirði {
gær. Voru 5 listar. Aðallistarn-
ir, A og B, koniu að sinum
mánninum hvor; numaSi
minstu, að verkamannalistinn
kæmi að báðum. Hinir listarnir
nmnu liafa haft lítið fylgi.
THC UNIVERSAL CAR
Að lokinni vöruupptalning hefi eg opnað verslun mína aftur, og mn
leið tilkynnist heiðruðum „Ford“-eigendum, að eg. hefi lækkað
verð allra fyrirliggjandi '
-varaliluta um 30 til 45%.
Mun eg eins og að undanförnu gera mér alt far um að hafa nægar
birgðir „ekta“ varahluta ávalt fyrh'liggjandi. Verðið ávalt lágt, án allrar
skuldbindingar þó.
NB. Til leiðbeiningar einstökum mönnum skal það tekið fram, að
eg hefi enga lánsverslun, en áreiðanlegir menn geta fengið að borga síð-
asta hvers mánaðar, mánaðarúttekt sína, ei' sérstaklega er um samið,
annars 'selur hönd liendi.
Sá misskilningur hefir gert vart við sig hjá einstöku mönnum, að
þeir gætu sjálfir ákveðið viðskiftareglur verslunar minnar og gjald-
frest, en þær reglur getur enginn aimar ákveðið en eg. Set eg þetta þeim
hinum sömu til athugunar.
P. Stefánsson.
einkasali „Ford“-bila.
Notið ávalt ósvikna „Ford“ vax-ahluti til viðgerðar. Varist eftirlikingar.