Vísir - 16.06.1922, Síða 2

Vísir - 16.06.1922, Síða 2
»1 u er ntL altxir fyrirli{ggjanca.í, einnig þaMpappi mikið ódýiari en áönr. Bestu timburkaupin ,sam kostur er á, gera menn ábyggilega enn — eins og að undan-> íörnu h]á jDatafélagiaa „fðluudar", SaykjiriL GRÁFÍKJUR (konfekt-gráfíkjur) fást í verzl. B E N. S. ÞÓR. meS reifaraverSí ÓNEITANLEGA BEZTA GERDUFTIÐ, er til landsins flyzt, fæst í verzl. BEN. S. ÞÓR. Laukur, kartöflur, hveiti, haframjöl, sykur, hrísgrjón, kaffi, te, exportkaffi, te- og kaffikex og margt margt fl. í verzlun B E N. S. Þ ó R. REYKJARPÍPUR (briars) eru hvergi jafn fallegar, góðar og ódýrar sem í , verzlun B E N. S. ÞÓR. Jarðarberja- og Hindberja-hlaup (Jordbær- ög Hindbær Gelé) og Marmelade fæst afbragðs gott i verzlun B E N. S. Þ Ó R. Ámæii_hruBdiö. Blaöiö „Tíminn“ hampar því mjög, aö landskjörslisti Jóns Magnússonar sé kaupmannalist- inn. Mér dylst þa'S ekki, aS þetta muni gert í því skyni, aö spiUa fyrir kosningu lista þessa meöal bænda, sem hallast að samvinnu- einokunarstefnu „Tímans“. En hinsvegar felst i þessu rógur um kaupmannastétt landsins, sem ekki má láta ómótmælt, því a'ð aumkun- arvert þroskaleysi væri þaö af kaupmönnum, að sty'ðja Jón Magnússon til þingmensku. Ef kosið væri eingöngu um stefnur. í verslunarmálum, þá mundi aðallega um þrjár stefnur aS velja: frjálsa verslun, sam- vinnu-einokun og algerða einokun. Ekki amast eg vi'ð því. að frjálsa verslunar-stefnan sé kend við kaupmenn. Kaupmenn munu all- flestir þeirri stefnu fylgjandi. Hitt er þó öllum vitanlegt, að á sömu sveif hallast allur þorri fullvita manna í landinu. Samvinnu-ein- okunar-stefnunni fylgir „Tíma“- liðið; algerðri einokun jafnaðar- menn. — Samvinnu-einokun nefni eg stefnu „Tímans", vegna þess, að blaðið vill vernda samvinnu- verslunina með algerðu skattfrelsi gegn samkepni annara, og ef kaup- mönnum yrði þannig bægt frá að keppa við samvinnufélögin, þá yrði ekki lengur um frjálsa verslun að ræða, heldur einokun í höndum samvinnufélaganna. Þessi stefna er því í raun og veru alveg sama eðlis eins og stefna jafnaðar- manna, sem er algerð einokun í höndum rikisstjórnarinnar. Er því í raun og veru ekki nema um tvær aðalstefnur í verslunarmálum að ræða, sem sé alfrjálsa verslun og ófrjálsa, enda eru jafnaðarmenn vitanlega fylgjandi samvinnu-ein- okuninni, þar sem þeir koma al- gerðri einokun ekki að, en sam- vinnumenn hafa reynst mjög hlyntir ríkiseinokun á einstökum vörutegundum. Hvorri stefnunni fylgir nú Jón Magnússon? — Þeir, sem honum eru hlyntastir, munu halda þvi fram, aö hann sé „hvorki hrár né soðinn“ í þessu — fremur en öðru. En eg veit ekki til þess, að nokk- ur einokunar-tillaga hafi verið ; fram borin hér á landi, sem hann ' hafi ekki verið fylgjandi. Hann j var með kola-einokuninni, hann í var með tóbaks- og vínfanga-ein- okuninni, hann var með lyfja-ein- okuninni. Stjórn hans bar fram kornvörueinokunarfrumv. á þingi 1921, og það er óhætt að fullyrða, að hann hafi verið því fylgjandi; hann andmælti þvi ekki og gerði ekkert til að hefta framgang þess. Og það ^er alkunnugt, að enginu maður hefir reynst fjandsamlegri frjálsri verslun á undanförnum ár- um en hann. Jón Magnússon er studdur af Morgunblaðinu. Útgefendur þess' eru kaupmenn og munu allir þykjast vera fylgjandi frjálsri verslun. Eg geri ráð fvrir því, að þeir hafi allir skrifaðundiráskorun þá um afnám tóbakseinokunarinn- ar, sem þinginu var send í vetur. ITefir þá Jón Magnússon lofað að greiða atkvæði með afnámi henn- ar á þingi? Sé svo, þá ættu þeir að sjá um, að yfirlýsing um það verði birt í blaðinu! En sé Jón Magnússon enn sem fyrr, fylgj- andi einokun á þessari vörutegund eða öðrum, þá er hann óhæfur til að vera þingmaður þess flokks, sem liefir algert verslunarfrelsi á stefnuskrá sinni; og raunar hvort sem er, því hringlandaskapnum er aldrei að treysta. Kaupmaður. I O. O. F. 1046168J4. — II. — III. Hjónaefni. Anna Einarsdóttir 0 g Björn Jónsson prentari í Félagsprent- smiðjunni hafa opinberað trúlpf- un sína. Búðum lokað. Vegna hátíðahalda á morgun, verður búðum hér í bænum lokað síðdegis á morgun. Sumir munu loka á hádegi,* aðrir kl. 2 og enn aðrir kl. 4. Þyrfti samræmi að komast á þetta og mun skemti- nenfdin reyna að fá sem flesta til að loka kl. 2, með því að skemt- anir hefjast skömmu síðar. Sá sem gengr hniflaus og staf- laus, gengur eins og lýgin. Kaupið heldr hnífa og stafi hjá BEN. S. ÞÓR. Reynið það. Veðfið í morgun. ITiti í Reykjavík 7 st., Vest- mannaeyjum 7, Grímsstöðum 8, Stykkishólmi 9, ísafirði 8, Akur- eyri 11, Grímsstöðum 5, Raufar- höfn 6, Seyðisfirði 8, Hólum í Hornafirði 10, Þórshöfn í Færeyj- um 8, Kaupm.höfn 14, Bergen 10, Tynemouth 11, Leirvík 9, Jan Mayen 5 st. Faust-þýðingin í Þýskalandi. Þýsk vísindablöð segja frá því nýlega, að prófessor G. Nec- kel í Berlín hafi sagt frá Faust- þýðing Bjarna Jónssonar frá Vogi á síðasta fundi í „Gesell- schaft fúr deutsche Philologie." Segir hanu með viðurkenningar- orðum frá styrkveitingum Al- þingis til verksins og um formála Alexanders (þ. e. ævisöguna) og frágang bókarinnar. Um þýðing- una sjálfa segir hann að hún „fylgi frumritinu með fágætri ná- kvæmni í orðum, kveðandi, rími og jafnvel hljóðfalli, nákvæmni, sem er þvi furðulegri sem auðvit- að varð að bæta við ljóðstöfun- um, er íslensk ljóðagerð getur eigi án verið.“ » Dansk-islandsk Kirkesag, maíheftið 1922, er nýkomið hingað, fjölbreytt að efni og skemtilega ritað. Flytur það mynd af síra Bjarna Jónssýni dóm- kirkjupresti og mjög hlýlega rit- aða grein um hann, einnig ræðu^ sem hann flutti í dómkirkjunni 16- olct. í fyrra, er hann var nýkom- inn frá Danmörku. Þá er grein un» frk. Ingibjörgu Ólafsson, með mynd af lienni. Eins og kunnugt' er, hefir hún verið kjörin ferða- framkvæmdastjóri fyrir samband' K. F. U. K. á Norðurlöndum. Þar næst er grein um þýðingar á Pass- íusálmunum á dönsku, eftir síra Þórð Tómasson og fylgja þýðing- ar af tveim fyrstu sálmunum, met^ nótum. Að síðustu er útdráttur úr umsögnum danskra blaða um hina dönsku kirkjusögu íslands, eftir dr. Jón biskup Helgason, og hefir; hún farið sigurför um Dnamörku. Tímarit þetta er, eins og áður er getið, prýðisvel skrifað og ætti skilið að fá mikla útbreiðslu hér á landi; stefnir það trúlega að þvi B. S. R. Til Vífilsstaða verða ferðir 17., 18. og 19. júní frá Rvík kl. I\y2 og 2J4; til baka kl. ny2 og 4. Til Hafnarfjarðar á hverj- um klukkutíma. Til Þingvalla. Austur yfir Hellisheiði eins pg áður hefir verið auglýst. ^byggilegust afgreiðsla, bestar bifreiðar og ódýrust fargjöld hjá Bifreiðastöð Reykjavíkur. Símar: 716 — 880 — 970. Alsherjarmot I. S. I. Mst 17. jðgt, á moriBn iUe.lL Ffamkvæmdanefadin.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.