Vísir


Vísir - 16.06.1922, Qupperneq 3

Vísir - 16.06.1922, Qupperneq 3
yisiR marki, sem útgáfufélagiS kefir sett sér, aö vinna a'S aukinni samvinnu og samúS milli hinnar dönsku og ■ xslensku kirkju. x. Eggert Stefánsson býr á Skjaldbreii. ASgöngumiðar aS Eimskipafélagsfundinum fást enn í dag á skrifstofu félagsins. Hefir afhendingartíminn verið lengdur,'vegna ,gesta í bænum. Ljósberadrengir, muniS eftir aS koma á morgun! V öruhúsið lokar á morgun kl. 12. Þátttakendur alls íþróttamótsins eru beSíiir a'S koma suður á íþróttavöll í kvöld kl. 8yí, stundvíslega. Mjög áríSandi, aS enginn sitji heima. iatoaríjartoegnrinn. Fjölfarnasti vegur á landinu, ut- anbæjar, er vegurinn milli Reykja- víkur og Hafnarfjaröar. ÞaS ætti því aö mega ætla, aS reynt væri aS hafa þennan vegarspotta í góSu lagi. en svo er ekki sem skyldi. AS vísu hefir veriö boriS ofan í veg- inn, svo aS hann er ekki blautur, en á köflum er „púkkiS“ komiS upp úr, og er vegurinn þar mjög stórgrýttur. Er þetta óþjált yfir- ferSar og fer mjög illa meö rnenn og skepnur, vagna og togleSur. Mikill hluti þeirra bifrei'Sa, sem fer þessa leiö, beygir út af vegin- 'uni til VífilsstaSa, en þar er bugS- an kröpp og ekkert svigrúm. Er þessu mjög óhöndulega fyrir kom- iS og má merkilégt heita, aS vega- gerSannenn vorir skuli ekki hafa opin augun fyrir svo sjálfsögSum og sanngjörnum þægindum, sem þaS væri, ef tekin yrSi krappasta bugöan af þessum vegamótum. Svo aö segja á hverjum degi má lesa auglýsingar í IdöSunum 'um þaS, aS bifreiSar sé i förum milli Reykjavíkur og Hafnarfjarð- ar oft á dag, jafnvel frá tveim Nýkomið: Rúmtepþi frá 8 kr. stk. Mikið úrval af bílteppum. Amerískt hermannaklæði, 12 kr. pr. mtr., alull. Vörukúsiö. Saumavéla-oliuna hjá Sigurþór Jönssyní, úrsmið Aðalatræti 9- Sími 341. stöövum á klukkustundu hverri. Samtímis þessu er auglýst í aSal- póststofunni, aö póstur sé sendur héSan til Hafnarfjarðar á bifreiö- um þrisvar sinnum í v i k u. Sést vel af þessu hverjar kröfur eru gerSar til opinberrar starfrækslu hér á landi. Oft ber þaS viS, aS gangandi itienn á veginum milli Reykjavík- ur og HafnarfjárSar vilja komast í bifreiS á förnum vegi, eru orSn- ir uppgefnir, eöa nenna ekki aS ganga lengur. Stundum lenda þeir í rigning og eru verjulausir, eSa þeir koma á veginn af næstu bæj- um og vilja fá sæti heim í bifreiö. Þessir menn hafa hvergi höfSi sínu aS aö halla. BifreiSarnar fást ekki til að nema staðar nema meS eftirgangsmunum og því aö eins aö autt sé sæti í þeim. Til þess aS ráöa bót á þessu ætti að setja upp ein 4—5 skýli viS veginn, þar sem fólk gæti beöiS eftir bifrei'S og þar sem hver bifreið næmi sta'Sar, er tekiS gæti farþega i viöbót. Segir ]>aS sig sjálft, aS ekkert hafa bif- rei'Sarstjóramir á móti því aS taka nýja farþega, ef þess er kostur. — f skýlunum þyrfti aS -vera talsími svo aö sírna mætti eftir bifrei'S, ef á lægi. ' J. K. 20 drengir óskaat til að selja sælgæti & íþróttavellinum þann 17. og 19, jú»I. Talið strax við Elías F. Holm *A. B. C. É| tek nemeBdGr i pianospili. Johann* Haveteen, Ingóifsstræti 9. Bifreið fer á morgun til Keflavikur og Leiru kl. 6. Upplýsingar á Nýju Bifreiðastöðinni Lækjar- torgi 2. Simi 929. 2 snirpinætnr, 2 nótarbátar, rek- net og ýms áhöld til sölu. Upplýsingar í Liverpool, 1 HatYörnYerslnn lítil, á góðum sta'ð, til sölu nu þegar. — Uppl. Frakkastíg 13, uppi, 5—8 í dag. Maskínnpappir, Umbúðapappír. — Smjör- pappír og Pappírspokar. Kaupið þar sem ódýrast er. HERLUF CLAUSEN, Sími 39. Mjóstræti 6. Mjög ódýrar farfavörur: Svo sem: Zinkhvíta, kem. lirein. Blýhvíta, kem. hrein. Fernisolía (ljós), af bestu teg, LagaÖur farfi, í öllum litum. Olíurifinn farfi, ýmsir litir. Farfaduft: gult, grænt, rautL svart, blátt, brúnt, bleilct og margir fleiri litir. Hvítt lakk (Japanlak). Lökk, allskonar, á tré og járnj ýmsir litir, Törrelse. Terpentína. 1 Kvistlakk. Poletur. Skæliakk. Eikarlakk. Glært lakk. (Grystallak). Gólflakk. Kopaliakk. Bátalakk. • Spiritusiakk, blátt og rautt. Kítti. Menja, besta tegund. Penslar, allar stærðir. ( Aluminium- og Kopar-Bronee. Broncetinctur, o. m. m. fl., er að> málningu lýtur. Samskonar farfategundir og þessar voru flestar áður upp- seldar, og þóttu bæði góðar og óvenju ódýrar. E n nú eru þessar nýju birgðir að' m u n ódýrari, en þær fyrri. Komið og spyrjið um verð. og munuð þér sannfærast um, að hvergi fáist betri né ódýrari farfavörur. Veiðarfæraverslun SignrjóDS Pétarssonar & Co. Hafnarstræti 18. 3án uuni honum. 63 inu. pað var auðsætt, að honum þótti betur, þó að hann viidi ekki láta á því bera. „Nei,“ sagði hann. „pú getur ekkert gert. Eg er hræddur um að eg hafi verið asni, Clyde.“ „Herra minn?“ „Jú. Eg hefi látið það afskiftalaust, að þú •eyddir æfinni í fánýti. Eg hefði átt að ala þig upp við starfsemi.“ „Onýtur starfsmaður. herra minn!“ sagði Clyde brosandi. Jarlinn andvarpaði. „pú.hefðir þó að minsta kosti verið þrekmeiri •en þessir lifrarmagar,“ sagði hanr.. Clyde virtist hann eitthvað öðruvísi en hann átti -að sér að vera. Hann hafði ekki einu sinni minst á framferði Clyde’s, og þar var þó á nógu að taka. „pegar öllu er á botninn hvolft, þurfa starfs- málamenn að vera kjarkgóðir, engu síður eu ’kænir. — Hvaðan kemurðu?“ „Ofan úr sveit,“ svaraði Clyde. „Ö,“ sagði jarlinn og horfði dálitla. stund utan rið sig á borðið. „Hvað er klukkan?” „Að ganga þrjú,“ svaraði Clyde. „Svo framorðið? Eg hefi verið hér síðan fyrir dagmál og engan morgunverð fengið.. Mér finst eg vera hálf magnþrota." „Engan morgunverð!" sagði Clyde. „Komdu og borðaðu háhegisverð með mér.“ „Eg held eg verði að gera það,“ sagði jarlinn. „Súpudisk eða eitthvað þess háttar. Við megum ekki vera lengi." Hann hringdi og bað um hatt sinn, og Clyde sýndist hönd hans titra, þegar hann tók við hon- um. — „Komdu þá,“ sagði hann og tók um hand- legg Clyde’s og hélt svo áfram að rabba með hreinni og glaðlegri rödd, sem hann hækkaði, þegar þeir komu út úr skrifstofunni. „Afbragðs- veður, Clyde! Vildi, að eg gæti verið með þér uppi í sveit! pegar öllu er á botninn hvolft, ætti maður á mínum aldri ekki að vera að vafsast í fjármálum. En eg get ekki stilt mig um það. Jú; veðrið er yndislegt. Hefirðu séð síðasta Punch? par er einhver allra hlægilegasta skrípamynd, sem eg hefi séð.“ Og hann hló og hló hátt. 1 Clyde heyrði einhvern segja: „Öhætt er Leyton, að minsta kosti. Að öðrum kosti mundi gamli maðurinn ekki vera svona kátur “ „Hvert eigum við að fara, Clyde? pað er ekki úr eins mörgu að velja hér eins og vestur frá. — Hvað segirðu um súpudisk hjá Birch?“ „Hvar sem vera skal, ef við komumst úr þess- um troðningi, herra minn,“ sagði Clyde. „O, mér þykir gaman að honum,“ sagði jarH inn með kuldalegu brosi. peir komust til Birch og tóku sér sæti við líticP borð úti í horni, og voru þar einir sér, því aS flestir höfðu um nóg annað að hugsa, en hádegis-f verð. Clyde bað um súpu, en þegar hún kom og* jarlinn ætlaði að láta upp í sig fyrsta spóninn, lagði hann hann frá sér aftur og leit gætilega í kring-+ um sig. „Hvað er að, herra?“ spurði Clyde. „Eg get ekki etið hana,“ sagði jarlinn og rödtí hans skalf í fyrsta skiftið frá því um morguninn- „Eg veit ekki hverju það sætir, en mér finst eg muni kafna, ef eg léti einn einasta spón af súp- unni upp í mig.“ „pú hefir verið of lengi matarlaus,“ sagði Clyde, reis á fætur og sótti honum glas af kirsuberja- brennivíni. Jarlinn drakk það næstum því með áfergiu. „petta er betra,“ sagði hann. „Við skulum ekkf flýta okkur. pað liggur ekki neitt á.“ pá skulfu hendur hans alt í einu og undarlegtr brosi bra fyrir á harðlegum og þunnum vnnmn hans.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.