Vísir - 28.06.1922, Page 2

Vísir - 28.06.1922, Page 2
SI8SR Hðfum íyrirliggfnn&i: Bfiðiagselni, Pipar í bréfuœ, Kanel steyttan og ésteyttan? Vanillesykur, Gardemommur. Nellikur. Allrahanda. FloryliB þirger, „Z“ geráilt Sfmskeyti frá fréttaritara Vísis. Khöfn 27. júní. Morðingjar Rathenaus ófundifír enn. SímaS er frá Berlín, a'ð allur landslýður í Þýsfcalandi hafi hug- ann fastan við leit morðingjanna, sem myrtu Rathenau. Þeir eru ófundnir enn, þó að margir hafi verið teknir fastir. Meðal þeirra var höfuSsmaður leynifélags eins, sem ætlaði að flýja yfir landamæri Danmerkur. Erfðaskrá Rathenaus. Rathenau hafði gert erfðaskrá sína og mælir þar svo fyrir, að mestum hluta hinna miklu auðæfa hans skuli varið til líknarstarfa. Jarðarför Wilsons marskálks fór fram í gær í Lon- •don að viðstöddu miklu fjölmenni. Rödd að austan. Eins og kunnugt er, standa kosn- ingar þriggja landskjörinna þing- manna nú fyrir dyrum, og listar þeir lagðir fram, er um á að velja. Eg býst við því, að marigr séu þeir kjósendur, um land alt, sem séu í vafa um, hverjum af þessum listum þeir eiga að gefa atkvæði sitt; bæði sökum þess, að svo ó- skýrar linur eru enn þá á milli flokka, að eigi er um að ræða, að nokkur af þeim geti komið til að skipa öndvegi sem meiri hluti á næsta þingi, og svo vegna þess, að menn þekkja eigi svo vel alla þá, er í kjöri eru, sem skyldi. En þótt eigi sé nema um þrjá menn að ræða, sem kosnir verða, rná ekki á sama standa, hverjir þeir verða, því aldrei hefir land- inu riðið meira á því en nú, að hyggilega verði kosið. Eins og öllum er ljóst, er fjár- hagur landsins kominn í það öng- £>veiti, að eigi hefir hann verið jafn bágur um langt skeið. Sama Ný hœauoiíff koma aftur með „lalandi1'. Veríjið sama og áðnr Versl. B H Bjarnason. LJÁBLÖÐIN pJÓÐFRÆGU, með B. H. B.-stimplinum eru heims-kunn orðin fyrir hið ó- viðjafnanlega góða bit. Til marks um það mætti geta þess, að margar tylftir af blöðum þessum hafa í ár verið sendar vestur um haf — meSt til Canada. Ljáblöðin þjóðfrægu með B. H. B.-stimplinum verða auk margs annars, t. d. Ljá- brýna, Dengingarsteðja, Ljá- klappna, alsk. Verkfæra og Á- halda, m. m. fl., ávalt fáanleg í VERSLUN B. H. BJARNASON er að segja um atvinnuvégina. Landbúnaðurinn á svo örðugt upp- dráttar, að bændur eru við það að gefast upp. Sivaxandi skattar og fólksekla lama allar fram- kvæmdir þeirra. Sjávarútvegurinn er svo lamaður, að óvíst er, hvort útgerðarmenn geta haldið áfram að bera hann uppi lengur. Nú hefir oss hlotist það happ, að einmitt þegar mest á riður, er i kjöri sá maður, er vissulega má fullyrða um, að best muni fallinn til að vera forvígismaður þessara mála. Maður þessi er efsti maður á E-Iistanum, séra Magnús BI. Jónsson í Vallanesi. Hann hefir nú um einn aldárþriðjung húið búí sínu uppi í sveit með slikri rausn, að íslenskur landbúnaður hefir ei lengra komist. Hefir séra Magnús sýnt i hvívetna með búskap sínum, hve glöggan skilning hann hefir á því sviði, og má eflaust telja hann með fremstu búnaðarfrömuð- ’ inn ]>essa lands. Enda er það al- ment viðurkent hér austanlands, að svo sé, og 'sést ]iað best á þvi, að hann hefir nú utn mörg ár verið endurkosinn hvað eftir annað sem formaður Búnaðarsambands Aust- urlands, þar,til liann baðst undan þeim starfa nú fyrir tveim árum. Hefir liann unnið landbúnaðinum hjer fyrir austan ómetanlega mikið, gagn með starfsemi og dugnaði sínum, í þágu Sambandsins. Nú á síðari árum hefir séra Magnús fengist mikið við togara- útgcrð, samhliða landbúnáðinum, og hefir sýnt í því dugnað og hag- sýni, eins og í öðru, er að fram- leiðslu lýtur og atvinnu þar af leiðandi. Hann hefir sýnt með at- orku sinni og dugnaði, að þessar tvær atvinnugreinar þurfi ekki að rekast á, heldur eigi samleið, ef rétt er á haldið. Enda naut hann þegar þess trausts hjá útgerðar- félögum þeim, er hann starfaði í, að hann var kosinn í stjórn þeirra. Þá ér einnig rétt að minna kjós- endur á það, að enginn sýndi jafn- mikinn dugnað og séra Magnús við hlutafjársöfnunina til Eim- skipafélags íslands, korn þar fram glöggskyggni hans í því máli. Það má því eflaust fullyrða, að nú sem stendur eigum við eigi völ á öðrum jafngjörathugulum fjár- málamanni og atvinnumálamanni sem séra Magnúsi. Og eg ber það traust til kjósenda 8. júlí n. k., að þeir vilji svo vel hag þessa lands, að þeir geíi E-listanum atkvæði sín, þvi að þar með er fengin vissa fyrir því, að stórt spor sé stigið í áttina til þess að bjarga við at- vinnumálum vorum og fjármálum. Við stjórnmál hefir séra Magn- ús talsvert fengist og jafnan verið þar stefnufastur eins og í öðru, hefir hann verið heill sjálfstæðis- maður og aldrei hvarflað frá þeirri stefnu. Fer því Morgunblaðið með vísvitandi blekkingar, þar sem það heldur því fram, að frambjóðend- ur E-listans séu allir litt þektir stjórnmálamenn. Llefir síra Magn- ús tvisvar verið í kjöri við kjör- dæmakosningar, og munað mjög Jitlu, að hann kæmist að, og fer ]>ar Morgunblaðið einnig með blekkingar, þar sem það fullyrðir, að hann hafi' haft hér lítið fylgi. . í fyrra skiftið munaði(að eins 11 atkvæðum. En þótt Kann kæmist ekki að, þá rýrir það ekki gildi hans, þvi að þá voru uppi aðrar stefnur í stjórnmálum hér en nú eru. Voru þá ákveðnir flokkar, sem fylktu liði og réðu úrslitum kosninga, sjálfstæðismenn og heimast j órnarmenn. G. M. J. Prestastefnaa hófst í gier með guðsþjónustu I dómkirkjunni. Allmargir préstar úr öllum fjórðungum landsins höfðu sótt prestastefnuna. í guðs- þjónustunni voru vígðir tveir prestar, síra Árni Sigurðsson til fríkirkjuprests í Reykjavífc og síra Björn O. Björnsson til sóknar- prests í Þykkvabæjarklausturs- prestakalli. Kirkjan var troðfull af fólki, ]iótt miður dagur væri.-Síra Ólafur Magnússon í Arnarbæli var fyrir altari, síra Erlendur Þórðarson í Odda lýsti vígslu og hélt synodus- setningarræðu, en síra Björn O. Björnsson prédikaði af hálfu ný- vígðu prestanna. ■ Prestastefnan er haldin í húsi K. F. U. M. í gærkveldi flutti dó- cent Magnús Jónsson erindi um Bréf Páls postula, kl. 8^2, og voru allmargir áheyrendur. Því miður urðu nokkrir af prestúnum að fara af fundinum í morgun með íslandi. Cement gott og' ódýrt selur Þórður Syeinsson & Co. Söngskemtun Eggerts Stefánssonar var afar- fjölsótt í gærkveldi og söngmann,- inum fagnað forkunnar vel, og því betur, sem lengra leið. Var'ð hann að endurtaka mörg lög og söng a$r lokum tvö aukalög. Oft hefir Egg- ert Stefánsson hrifið áheyrendur sína hér, en aldrei fremur en í gær- kveldi. Vafalaust lætur hann oftar* til sín heyra. — Páll ísólfsson að- stoðaði. Hjónaband. Ungfrú Hulda Bjarnason og Björn Björnsson, kgl. hirðsalit voru gefin saman í hjónaband t gær. Síra Árni prófastur Björns- son gaf þau saman. Ungu hjónin fóru brúðkaupsferð til útlanda á e.s. íslandi í morgun. fpá Iteindópi Daglegar bifreiðaferðlr austar að 01T82Í Eyrarbakka og Þiírsl Til Ægissiða og Garðsaaka á mánndögnm og fimta* dögam U. 10 árd. Til KefliTÍkar þrisvar f viku mánnd. fimtad. og laag* ard. U. 10 árd. |Símar: 581 og008. Fargjöld á alla þessa staði eru lang ódýrnst h]á Steindóri.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.