Vísir - 20.07.1922, Blaðsíða 4

Vísir - 20.07.1922, Blaðsíða 4
VISIR I Zephyr, egta h&lil(aiÐ sem víö höfOnm fyrir stríO, er n& koirtiO attar. Vönihúsið I SaðuskjparRÍr (gufusuöupottarnir), er sýndir voru á sýningunni hér í fyrra, eru nú aftur komnir í verslun míria, — á mjög lækkuöu veröi. — Þeir borga sig fljótt x notkun á hvaöa eldi sem er, en sérílagi þó viö raf- ínagnssuöu. Þeir sjóöa, baka og steikja 2—10 rétti við sama eld- inn á sama tíma. Fást á öllum stærðum. Afgreiösla kl. 10—12 árd. dag- lega. . j STEFÁN B. JÓNSSON. Áð Ötfusá fer bill á morgua. 1 seeti lan«t Tii Pingvalla seinní partinn á laugard«gimi Pantiö far i tima. Bími 695 Magnús Skaltfjeld. Kaupakona óskast á gott heim- ili austur í Rangárvallasýslu. Hátt kaup. Upplýsingar Skólavöröustig S, milli 8 og 9. (442 Kaupakona óskast á gott heimili i Borgarfiröi. Uppl. á Kárastíg 2. (44i Stúlku, vana heyvinnu, vantar að Ásólfsstööum i Þjórsárdal. Hátt kaup. Uppl. gefur Guðvaldi Jóns- son, Laugaveg 73. (436 Stúlka óskast að ganga um beina. Cafp Uppsalir. (432 Föt hreirisuð og pressuð á Bald- ursgötu 1, uppi. (318 ct • ■ m Barnlaus hjón óska eftir lítilli j íbúð, helst nú þegar. Uppl. í skó- j versluninni í Herkastalanum. (401 j Herbergi til leigu nú þegar, fyr- j ir einhleypan, reglusamari niann, Hreingerning og þjónusta á sarna stað. Uppl. Hverfisgötu 61 uppi. (429 r TIUTIIIII 1 1 fVM Þeir, sem hafa seöla frá mjólk- urbúðinni á Hverfisgötu 56, eru vinsamlega beðnir að koma með ]>á þangað, til innlausnar næstu ,daga. (433 vvf&s • f §mm Tapast hefir poki með yfirsæng, kodda o. fl. 19. þ. m., frá Þórsgötu vestur að Hauksbryggju. Skilist á Smiðjustíg 10. (440 Grár hestur, nxark: stýft hægra, biti fráfnáh vinstra, svartur blett- ur á vinstri hliö, krosskliptur hægra megin á hálsinum, járnað- ur með gömlu, vantar Sturlu Jóns- son. —- Sá, 'sern kynni að verða var við hestinn, skili honum til eigandans. Sturla Jónsson. (437 Bensínkassalok af mótorhjóli tapaðist á Seltjarnarnesvegiinnn síðastl. mánudagskvöld. Skilist á Njálsgötu 15 A. . (430 Tapast hefir peningabudda frá Laugaveg 50 upp að Elliðaánum. Skilist á afgr. Vísis gegu íuudar- launum. (427 KASrSKAPCtt Veggfóður er best aö kaupa í Myndabúðinni í Aðalstræti 6. (411 Gefðu barni þínu tryggingu til ákvæðisaldurs, ]iá á það sparifé á íullorðsins árunum, þegar ,,sctja á fót undir eigið borð“. (Andvaka). (415 Tórna bensínkassa og stærri kassa, séljum viö mjög ódýrt. ís- leifur Jóftsson & Co., Jríatnarstræti 15- (425 Appelsínur, laukur og jarðepliy. þessa árs upþökera, se'lur versl. Þjótandi ódýrast. (439- Líftryggingarfél. „Andvaka“, ís- landsdeildin, Grundarstíg 15. — Forstjóri: Helgi Valtýsson. Heima, Gáglega kl. 2—4 og á kvöldum. Veitir fúslega alla trygginga- fræðslu. Komið og spyrjist fyrir, - - Jaað kostar ekki neitt! (419» Nýtt skyr fæst í versl. Þjótandi.. (43» Ti-ygðu sjálfan þig' til ákvæðis- aldurs. —: Þá áttu ellistyrk vísan! (Andvaka). (4JS Fallegt glasaborð (messing) til. sölu. A. v. á. (435. Hygginn maður tryggir líf sitt. í dag! Heimskur lætur það vera! („Andvaka"). (415 Sölubúðarkaffikvörn til sölu. A. v. á. (434- Líftrygging er sparisjóður. En- sparisjóður er engin liftrygging! (Andvaka). (4J7 Reiödragt til sölu Lindargötu. 20 B. (431 Skósvertan „Zig-zag“ er allra- besta svertan, sem hér er fáanleg. Fæst í lieild og smásölu hjá okkur. Þórður Pétursson & Co. (nS- Rósir í pottúni og rósáknúppar til sölu á CrettisgQtu 24 uppi. (428 Strauning fæst á Skólavörðustíg a. Lilja ÓJafsdóttir. (426 Félagsprentsmiðjan. fiá.i uunl hoaum 95. borðið. Um kvöldið var danse.ð, en Dorchester baS hana aldrei um dans, og viilist í rauninni forðast að fá tækifæri til að gefa henni nánari skýringu um hina dulaifullu spumingu. Hún dans- aði einu sinni við Clyde, og það sýndi best hve mjög hann lagði sig fram um að vera henni til geðs, því hann hafði ekki dansað síðan — jæja, síðan Bessie dó. En þó að hún ræddi við hann og brosti við honum, eins og ekkert liefði í skorist, var hún í miklum æsingi og tangar hennar stríð- þandar. Og hún læcídist upp á herbergi sitt til- tölulega snemma um kvöldið, meðan dansinn stóð sem hæst. Clyde gekk einna síðastur til sængur og lá lengi andvaka. pessi orð Ethel hljómuðu í sífellu í eyr um hans: „Astin mín, á^tin mín!“ „Hamingjunni sé lof,“ tautaði hann og bylti sér í rúminu, ,,að hún vissi ekki hvað hún sagði og mun aldrei fá að vita. Vesalings Ethel! Góða Ethel!“ Næsta morgun kom hún ekki til dögurðar. Og hertogafrúin sagðist hafa skipað henni að hvíla sig dálítið lengur; hún væri þreytt eftir ferðalagið dag; inn áður. Hún væri ekki eins hraust eins og hún sýndist, en mundi koma á fætur eftir dálitla stund. Wal og nokkrir aðrir ætluðu á veiðiför, en Clyde vildi ekki fara með þeim. „Eg þarf að skrifa fáein bréf,“ sagði hann og gekk inn í skrifstofuna. par settist hann í hæg- indastól og starði hugsandi út um gluggann. En hvað lífið var margþætt og undarlegt oft og tíðum! pá var barið að dyrum og inn kom þjónn með nafnspjald á bakka. „Herra Leví,“ sagði Clyde hálfhátt og undr- andi. pví að Leví var venjulega hæverskur, og það var ólíkt honum að koma á stað eins og Strathmore. En hann sagði þjóninum að láta hann koma inn til sín. Clyde rétti fram höndina og Gyð- ingurinn tók í hana með lotningarsvip. Hann var enn gulleitari en vant var, og Clyde sýndist ham vera áhýggjufullur og órór. „pað var vel gert af yður, að veita mér áheyrn,; lávarður minn,“ sagði hann. „Eg bið yður afsök- unar fyrir ónæðið; mér fellur vissulega illa að þurfa að gera það. pað er ekki siður minn. En þegar vandræði eru annars vegar, verður að reyna alt, og eg hélt, að þér munduð kannske fyrirgefa það í eitt skifti, lávárður minn.“ „Eg er feginn að sjá yður,“ sagði Clyde. „Mér þykir leitt að heyra, að þér eruð í vandræðum. Fáið yður sæti.“ Hetra Leví leit á hann með forvitnissvip. Hann var forviða á breytingunni, sem orðið hafði á Clyde. , Vona, að þér séuð frískur, lávarður minn.“ „Stálhraustur! pakka ySur fyrir,“ svaraði Clyde. „Hvað er að, Leví? Viljið þér þiggja yiskí og sóda- vatn — ha?“ „Eg þigg það, úr því þér eruð svo góður, lá- varður minn, að bjóða það,“ sagði Leví. nClyde hringdi eftir víninu. Leví drakk drjúgari teig og það virtist hressa hann. y,pað er mjög vel gert af yður, að taka þannig á móti mér, lávarður minn,“ sagði hcuin. „Ein- hver hefði neitað að veita mér áheyrn og vísað mér kurteislega á bug. Vitaskuld er mér það vel ljóst, að það er óvani að krefja skuldunaut sinn þar sem hann er gestkomandi. En þao er nú svona, að eg hefi aldrei verið í öðrum eins vand- ræðum og alveg vonlaus. Árið sem leið var hörmu- legt, og þó eru horfurnar að versna! Eg vona, að eg komist aldrei í annað éins aftur.“ „Eigið þér við peninga?" sagði Clyde. Gyðingurinn kinkaði kolli. „Já, lávarður minn. pað eru ekki líkindi til, að annað vildi mér óþægindum. pað eru ávalt pen- ingar. Eg er næstum því öreigi, lávarður minn.“ „Hvað viljið þér að eg geri? Eívernig get eg orðið ,yður að liði?“ sagði Clyde, en vissi þó vel, hvert svarið yrði. „Jæja, lávarður minn,“ sagði Leví. „Ef þér getið greitt mér dálítið — eg er reyndar hræddur ur um, að það verði að vera nokku.ð mikíð, ef það á að koma að notum — yrði eg yðum mjög skuldbundinn. pér vitið, uð eg muncii ekki ónáði yður, ef eg væri ekki í vandræðum. Við höfu/m of lengi átt viðskifti samn til þess. Og eg skyldi ekki hafa ónáðaS ySur, ef eg væri ekki búinn aS reynu. alstaðar annarstaðar fyrir mér. Eg hefi aldrei átt eins örðugt með að klófesta peninga “ Og hann hristi höfuðið raunamæddur. „Hvað' þurfið þér mkiið?“ spurði Clyde. Herra Leví tók upp vasabók sína og tók þar upp blað, alsett tölum. „Hérna er lítilræðið, sem okkur hefir farið á milii, lávarður minn. Ef þér viljið líta á það sjálf- ir, sjáið þér, að það er samanlagt nálægt fjórtán þúsund Clyde glápti á tölurnar. „Svo mikið!“ sagði hann alvarlega. „Já, það er langt síðan við hyrjuðum fyrst, og renturnar — jæja, renturnar hækka nokkuð mikið upp. — En eg þarf ekki alt. Eg er ánægð- ur, ef þér getið greitt tíu þúsund. Og lítið þér á, lávarður minn. Ef alt fer vel, skulu? þér fá þaS aftur. pér skuluð. Eg legg þar við drengskap rninn." „! íu þúsund pund,“ sagði Clyde alvarlega. „pér getið eins vel beðið mig um tíu miljónir, herra Leví! -— Ef það hefðu verið nckkur hundruS pund —“ i „Eg veit — eg ætlast ekki til, að þér getið greitt það sjálfur,“ sagði herra Leví. „En þér getið fengið peningana annarstaðar. Og þér get- ið eins vel fengið þá nú þegar, eins og síðar meir.“ „Eg skil ekki —“ byrjaði Clyde

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.