Vísir - 13.09.1922, Side 2

Vísir - 13.09.1922, Side 2
Hðfum fyrirliggjandl: Rfcgmjftl — Rveiti Frá Landsimannm. í blaðinu í gær var lauslega get- ið um deilu þá, sem er að rísa milli landssímastjóra og starfsmanna sím- ans, út af veitingu stöðvarstjóra- stöðunnar á Borðeyri. Borðeyrar- | stöðin er fyrsta flokks landssíma- j stöð, og í sama launaflokki eins og ! Akureyrar-, ísafjarðar-, Seyðis- fjarðar- og Vestmannaeyja-stöðv- arnar. Er J?ví hér um að ræða eina af bestu stöðunum innan símans. Og staða þessi hefir verið veitt Eggert j Stefánssyni símritara á Akureyri. I ritstjórnargrein, sem birtist í „Símablaðinu“, málgagni „Félags ísl. símamanna“, segir svo um þessa veitingu: „Undir eins og ]?að heyrðist, að Eggert Stefánssyni hefði verið veitt Borðeyrarstaðan, varð almenm gremja yfir því innan stéttarinnar og það talin svo mikil fjarstæða að hann gæti orðið stöðvarstjóri, eftir framkomu hans í þjónustu landssím- ans fyrir nokkrum árum, og síðast en ekki síst sökum framkomu hans við Félag íslenskra símamanna í vetur, þar sem sannaðist á hann, að hafa sent fundargerðir félagsins og önnur plögg til landssímastj., sem honum var trúað fyrir, eins og öðrum meðlimum úti um landið. Lands- símastjórinn komst því að öllu, sem félagið hafði gert og rætt á fundum sínum, um það mál, sem þá var stórt misklíðarmál milli félagsins og hans. Fyrir þetta fólskubragð var Eggert Stefánsson auðvitað rekinn úr fé- laginu. Nú gerast þau undur, að þessi maður'er dubbaður upp í stöðvar- stjórastöðu, og hinum gömlu félög- um hans. sem hann sveik, sagt að taka við skipunum hans.“ „Stjórn félagsins fékk um þess- ar mundir skeyti frá símastúlkunum á Borðeyri þess efnis, að þær skor- uðu á félagið að gera alt, sem í þess valdi stæði, til að aftra því, að Eggert Stefánsson yrði skipað- ur þar stöðvarstjóri. Stjórnin skaut þegar á fundi til að ræða þetta mál, og hvaða af- stöðu félagið gæti tekið til þess. Á fundinum kom ljóslega fram, að allir félagsmenn teldu þessa embættis- veitingu mjög rangláta, og gæti fé- lagið ekki látið hana afskiftalausa, og þar sem landssímastjórinn bæri ábyrgð á veitingunni, væri sjálfsagt að senda honum mótmælabréf gegn henni.“ Var stjórn félagsins síðan falið að semja slíkt bréf, en síma þegar í stað mótmæli gegn veitingunni til landssímastjóra og E. St., sem J?á voru staddir á Borðeyri. ]?eim mót- mælum var látið ósvarað, „en dag- inn eftir var það opinbert gert á landssímanum, að Eggert Stefáns- son væri skipaður stöðvarstjóri á Borðeyri." Afrjeð þá félagið að senda landssímastjóra mótmælin í „opnu — Libbysmjðlk bréfi“, og hafði uppkast að því bréfi verið samþykt af öllum þorra fé- lagsmanna, bæði hér í Reykjavík og úti um land, og birtist bréfið í símablaðinu, og er það á þessa leið: Opið bréf til landssímastjóra hr. O. Forberg, frá Félagi islenskra símamanna. par sem nú er víst, að Eggert. Stefánsson símritari á Akureyri hefir verið skipaður stöðvarstjóri á Borð- eyri, finnur Félag ísl. símamanna sér skylt, að mótmæla þeirri ráð- stöfun, þar sem margir mundu vilja segja, að hún væri brot á þeim regl- um, sem skipun opinberra star'fs- manna á að byggjast á, ef spilling í J?jóðfélaginu á ekki að breiðast út frá hinum æðstu stöðum. Og þar sem að með henni virðist vera hlúð að J?ví af yfirvöldunum, að óregla og óheiðarleiki í embættisstarfrækslu manna standi ekki í vegi fyrir því, að hærra embætti og meiri trúnað- arstöður séu þeim opnar. Og sömu- leiðis sökum þess, að með henni er hnekt framfaraviðleitni hvers ein- staks símamanns, J7ar sem maður, eftir margendurtekna vanrækslu í starfi sínu, og endurtekna óheiðar- lega misbrúkun á embættisaðstöðu sinni, er tekinn framyfir aðra menn og jafnvel í hærri stöðu, sem unnið hafa samviskusamlega í .embætti sínu, óg í mótsetningu við þennan nýskipaða stöðvarstjóra reynt að verða stétt sinni til sóma og gagns. Er J?ar með sýnt, að samviskusemi og viðleitni símamanna til að auka J^ekkingu sína á starfsviði sínu, er ekki virt af stjórn þeirrar stofnun- ar sem skyldi. En þar sem þér, herra landssíma- stjóri O. Forberg, eruð æðsti maður þessarar stéttar, ber yður að gæta hagsmuna hennar og virðingar inn á við sem út á við. Verður F. I. S. því að iíta svo á, að yður hafi -borið skylda til, að gefa landsstjórninni svo nákvæmar upplýsingar um for- tíð þessa manns, og mæla svo ákveð- ið móti þvf, að honunj yrði veitt þessi staða, að landsstjórnin hefði aldrei gert sig seka í því. Og J?ó einhverjum hefði orðið J?að á, að gefa honum meðmæli, verðum vér að álíta, að það hefði þá verið embættisskylda yðar, að gera þau meðmæli að engu, þar sem alkunn- ugt er, að maður þessi hefir, og jafnvel á síðustu tímum, sýnt óheið- arlega framkomu. En þar sem nú er búið að veita honum trúnaðar- stöðu, og ]?ér munuð hingað til hafa haft mest að segja um veitingu em- bætta innan símans, verður F. I. S. að álíta, að þér hafið að minsta kosti ekki lagt eins á móti því og yður bar. pá getur F. I. S. litið svo á, að hér sé verið að veita Eggert Stefáns- syni uppreist eftir viðskiftí hans og framkomu við það annarsvegar og yður hins vegar á síðastliðnu ári, og sem ein út af fyrir sig hefði átt að vera nægileg til þess, að honum yrði ekki veitt trúnaðarstaða við landssímann. • Og eigi slík stefna og þessi em- bættaskipun við landssímann að ríkja, og sé yfirmaður hans ekki fær um, éða finni það ekki skyldu sína, að koma í veg fyrir það, að slíkar ráðstafanir og sú, sem hér er um að ræða, geti átt sér stað, og sem er virðingu stéttarinnar og hag sím- ans stór hnekkir, sjáum vér síma- menn og konur ekki fært að starfa undir slíkri stjórn. í sambandi við þetta viljum vér ennfremur taka fram, að undanfar- in ár hafa ýmsar stöður við lands- símann, verið veittar á þann hátt, að það hefir vakið megna óánægju innan símamanna-stéttarinnar og gefið fulla ástæðu til að ætla, að ekki sé hægt að búast við breytingu, til batnaðar í tíð núverandi lands- símastjóra. Má þar til nefna efnis- varðarstöðuna, sem var veitt manni utan símamannastéttarinnar þrátt fyrir umsókn margra símamanna, sem unnið höfðu dyggilega í þjón- ustu landssímans. ]7á var stöðvarstjórastaðan í Vestmannaeyjum veitt 1920, án þess að hún væri auglýst til umsókn- ar, og sömuleiðis stöðvarstjórastað- an á Norðfirði árið 1922. Enn fremur hefir sú regla tíðkast upp á síðkastið, hafi stöður verið aug- lýstar til umsóknar, að umsóknar- frestur hefir verið hafður svo stutt- ur, að möryrum, sem átt hafa heima i fjarri embættinu, hefir verið ómögu- legt að ákveða á svo stuttum tíma, ; hvort þeir gætu, ef til kæmi, flust í | embættið. En áþreifanlegast dæmi þess, er í þó meðferðin á þessari síðustu eni- bættisveitingu. Oefur þetta fulla ástæðu til að ætla, að jafnvel í þau skifti sem embætti eru auglýst ril umsóknar, sé búið að ætla ]?au sér- stökum mönnum. Er þetta svo alva;- leg hlið á stjórn þessafar stofnunar, að ekki er viðunandi. Er hún mjög hættuleg fyrir hvern einstakan síma- mann, en þó ekki síður fyrir sírn- ann, sem opinbera stofnun, því hæf- ustu starfsmei.ri hans, og þeir, sem nokkra framsóknaiviðleitni hafa, búa ekki við slíkt til lengdar, en neyðast til að fara úr þjónustu har.s. A* framangreindum ástæðum, og ýmsum fleiri, sem ekki skulu hér taldar, sér F. í. S. ekly annao fært, en að lýsa vántrausti á yður, herra landssímastjóri O. Forberg, rem for- stjóra fyrir stofnun, sem fjöldl inanna hefir valið sér lífsstarf við, og verð- ur því að eiga lífskjör sín und'r stjóru hennar.“ Slys. 9. J>. m. drtiknaði porgeir Stefánsson frá Eskihlíð af fiski- skipinu Björgvin. K. Zimsen borgarstjóri fór héðan í gær á e.s. Sirius áleiðis til Noregs. Sigurður Jónsson, bæjarfulltrúi, gegnir Irorgarstjórastörfum á meðan. Magnús Arnbjarnarson, cand. juris, er nýlega kominn til bæjarins anstan frá Selfossi. Til allra lem heiðruðu minn- ingu mannaina mín> s&luga, votta ég aitt innilegasta þakklœti. Jenny Lambertsen. Veðrið í morgun. Hiti i Rcykjavik 2 st., Vest- ^mannaeyjum 4, ísafirði 3, Ak- ureyri 3, Seyðisfirði 0, Grindít- vik 6, Stykishólmi 4, Grimsstöð- um 2, Raufarhöín 2, Hólmn í Hornafirði 1, pórshöfn í Fær- eyjum (i. Ivaupmannahöfn 14, I3jörgviu 13, Tynemouth 12, Leirvík 12, Jan Mayen 3 st. Loftvog lægst (735) yfiríslandi. Sunnan á norðausturlandi. Kyrt annarsstaðar. Horfur: —• Kyrt veður. Skýrsla um hinn alm. mentaskóla, skólaárið 1921—22, er nýkom- in út. Nemendur voru 195 í byrjun skólaársins, eða 33 fleiri en árið áður. 17 skólanemendur tóku stúdentspróf, en 40 gengu inn í 1. bekk í vor. Ungmennafélagsfundur verður haldinn í kvöld kl. 8% i Ringholtsstræti 28. Rætt verð- ur um f járhagsmál félagsius, og er nauðsvnlegt ,að félagar fjöl- menni. Kári Sölmundarson kom frá Englandi i gær. Far- þegar voru Páll Ólafsson, fram- kvæmdastjóri, Valtýr Blöndal og Hilmar Stefánsson. Borg kom til Seyðisfjarðar í gær frá London. Neðan málssagan, „Hún unni honum“, eftir Garvice, fæst enn á afgreiðslu Vísis. Leiðrélting. í skilagrein frá húsbygging- arsjóði Dýraverndunarfélagsi r,s bafði misprentast: Frá Kirkju- sandi kr. 5, en átti að vera: Frá Bjarna Magnússyni, verkstjóra, lu'. 5. ERLEND MYNT. Khöfn 12. sept. Sterlingspund .. .. kr. 20.84 Dollar.............— 4,69 100 mörk .. r. .. — 0,3Í 100 kr. sænskar .. —. 124,35 100 kr. norskar .. —> 78,10 100 fr. fr. .. .. ... —. 35,90 100 fr. sv. 88,90 100 lír. ít........— 20,30 100 pes. spány. .. —. 72,40 100 gyllini........— 182,15

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.