Vísir - 18.06.1923, Qupperneq 2
VtSIK
Colmais liistwkja,
i Siaiep.
Colmans vörnr ern beimslragar.
Garlsberg Nf Pilsner Allsherjarleikmót I. S. I.
•r besfcur, ódýrasfcur i */i kössum í I
yérsl. B. H. BJARNASON. !
Sfmskeytl
Khöfn, 16. júní.
Stjórnarskifti í Belgíu.
SímaS er frá Bryssel, að ráðu-
neytið hafi sagt af sér út af
•samkomulagi um það, hvort
gera skuli háskólann í Gent að j
flæmskum liáskóla eða ekld. i
Bylíingin í Búlgaríu.
Stambulinsky forsætisráð-
herra hefir verið handtekinn.
Segir hlaðið „Daily Ne\vs“ að
Ferdinand fyirv. konungur og
Boris konungur standi bak við
byltinguna.
Serbar hafa fyrir hönd litla
bandalagsins jnótmælt þvi, að
Búlgarar hafi kvatt lierinn til
vopna, og telja þetta hrot á
samningnum í Neully.
Marksgengið.
í Hamborg er dollarinn nú
skráður á 115.000 möfk, sterl-
ingspund 495.000 mörk og
dönsk króna á 19.250 mörk.
Bretar borga.
Bretar hafa í ag greitt Ame-
ríkumönnum 80 miljón dollara
i afborguii af herláninu. Af upp-
hæðinni voru 70 miljónir horg-
aðar með skuldabréfum í „frels-
isláni“ Ameríkumanna, sem
Bretar höfðu keypt undir nafn-
verði, og græddust á gengismun-
inum 1.400.00 dollarar.
Khöfn, 16. júní.
Stambulinski drepinn.
Símað er frá París, að Stam-
bulinski fyrrum forsætisráðh.
í Búígaríu liafi verið skotinn i
gær, er hann reyndi að flýja lir
fangelsi.
Poincaré fær traustsyfirlýsingu.
Franska þingið hefir lýst fylgi
sinu við stefnu Poincaré í innan-
ríkismálum. Var till. samþykt
með 200 atkv. meirihluta.
Marksgengið.
Símað er frá Hamborg, að
gengi marksins sé þar sem liér
segir: Sterlingspnnd 535.000
■aörk, dollar 117.000, danskar
krónur 20.80#.
hófst í gær, eins og ákveðiS var.
Að þessu sinni eru þau 9 talsins,
íþróttafélögin, sem þátt taka í mót-
inu, og eru þau þessi: Glímufélagið
„Ármann", íþr.fél. „Gáinn“, íþr.-
fél. Rvíkur og Knattspymufélag
Rvíkur, öll í Reykjavík, „Hörð-
ur Hólmverji", Akranesi, Iþrótta-
fél. Kjósarsýslu, íþr.fél. „Stefnir“, •
Súgandafirði, U. M. F. Biskups- I
tungna og U. M. F. „Elding“ Suð- j
ur-pingeyjarsýslu.
Leikmótið hófst með leikfimissýn-
ing kvennaflokks, undir stjórn
Björns Jakobssonar. Klöppuðu
áhoríendur flokknum lof í lófa, og
það að verðleikum, þar eð flokk-
urinn er vel æfður og stúlkurnar af-
bragðs mjúkar í hreyfingum.
pá var keþt í 800 ffiefra hlaupi og
var fljótastur Guðm. Magnússon (I.
R.), 2,12 mín., 2. Ingimar Jóns-
son (Á), 3. Geir Gígja (K. R.)
2,13 mín.
. . í tslenskri glímu var kept í þrem-
ur flokkum, 60 kg., 60—70 kg, og
yfir 70 kg. Verðlaun hlutu þrír úr
hverjum flokki:
í 1. fl. (þyngsta) Eggert Krist-
jánsson 1. verðl., feldi alla, Magnús
Sigurðsson 2. verðl. (féll tvisvar),
Ottó Marteinsson 3. verðl. (féll
tvisvar); allir Ármenningar. —
Bræður tveir úr jlingeyjarsýslu, Ást-
valdur og Jörgen porbergssynir,
keptu í þessum flokki, og var það
almannarómur, að ]?eir glímdu lið-
legast allra. Yfirleitt virtist áhorf-
endum um of glímt af kröftum. —
M. S. vann skjalarglímuna í vetur;
Sigurður Greipsson, glímukóngur-
inn, handhafi glímubeltisins kepti
ekki að þessu sinni, en tekur að sjálf-
sögðu þátt í Íslandsglímunni.
í 2. flokki hlutu verðlaun por-
steinn Kristjánsson (Á), 1. verðl.,
Steindór Valdimarsson (Á), 2.
verðl. og Hogsly Ólafsson (KR)
3 verðl.
í 3. flokki: Guðjón Einarsson
(Á) 1. verðl., Ragnar Kristinsson
(Á) 2. verðl. og Guðjón Ólafsson
(K.R.) 3. verðl.
í 5000 metra hlaupi varð fljót-
astur Guðjón Júlíusson (Í.K.) 17,7
mín., og varð hann þannig fullri
mínútu seinni en í fyrra. — Næst-
ur honum varð Ólafur porkelsson
(Í.K.), 17,22 mín., þriðji í röð-
inni varð Geir Gígja (K.R.) og
sá fjórði Ágúst Ólafsson (Í.R.) ■—
og fleiri keptu ekki.
í 200 metra hlaupi varð fljótast-
t ur Kristján Gestsson (K.R.), 25,6
j sek. (piet Tr. G. 24,6), 2. por-
gúmmílímið komiö aftur.
Jöh. ölaíeson <8c Co,
Landsspítalasjóðurinn
hefir veitingar 19« júní 1 Uppsölum og
á íþróttavéllinum.
geir Jónsson (Í.K.), 3. Hogsly
Ólafsson (K.R.).
pá var kept í spjótkasti og kúlu-
varpi, en tókst ekki vel.
í spjóikasii varð hlutskarpastur
Magnús Einarsson (K.R.), kastaði
48,88 m. (samanlagt, með báðum
höndum); næstir: Ludvig Sig-
mundsson og Gísli Halldórsson.
í kvöld verður kept í langstökkí,
stangarstökki, kringlukasti, kapp-
göngu 5000 metra, 1500 metra
hlaupi og 400 metra hlaupi.
Dánarfregnir.
Frú Bergthora og Þ. Sch. Thor-
steinsson uröu fyrir jreirri sorg, a'ö
missa nýfæddan son sinn, Gunnar.
fyrra nránudag. Hann veröur jarS-
sunginn á miövikudaginn.
Frú Jensína Jensdóttir og GuS-
björn Guöbrandsson, bókbindari,
uröu fyrir jjeirri sorg í gær, aö
missa dóttur sína Þórdísi, 13 ára
gamla, eftir stutta legu í heila-
Imlgu.
Veðrið í morgun.
Hiti í Revkjavík 8 st., ísafirði
4, Akureyri 5, Seyðisfirði 7,
Grindavík 10, Stykkishólmi 5,
GrímsstöSum 4, Raufarhöfn 3,
Hólum í Hornafirði 8, Kaup-
mannahöfn 12, Leirvik 9, Mývogi
í Grænlandi 2 st. — Loftvog lægst
yfir SuSurlandi. Norðaustlægur
á Noröurlandi; breytilegur á Suö-
urlandi. Horfur: Norðlæg átt.
Frá 17. júní.
StúdentaráSiö haföi boða'ð til
fundar um • stúdentagarðsmálið í
Nýja Bíó kl. 1, og var hann þó
miklu fámennari en vert hefði ver-
ið. Einn af meðlimum happdrættis-
nefndarinnar, stud. med. L. Guö-
mundsson skýrSi þar frá störfum
r.efndarinríar, þeim aðferðum, sem
hún hefði notað við útbreiðslu
seðlanna, árangri sölúnnar o. s.
frv. Mjög mikið af seðlum hefir
verið sent út um alt land, og undir
téktir manna hvervetna sagðar
góðar, en fullna'Sarskýrslur um
söluna ekki komnar enn. Því næst
skýr'ði form. ísl. stúd.fél. í Khöfn,
stud. mag. Pálmi Ilannesson, frá
því sem þar hefði verið gert fyrir
stúdentagarðsmálið. Loks voru
| sýndar nokkrar skuggamyndir af
\ lielstu uppdráttunum, sem gerðin
| hafa veriö af stúdentagarðinum, af
Einari Jónssyni og Gu'Sjóni Samú-
elssyni, og hafa þeir á'Sur birst í
EimreiSinni flestir, ásamt nokkr-
um fleiri slíkum myndum. Ekkert
var þó sagt ákveSið um þaS enn
þá, eftir hva'Sa teikningu yrSi far_
i'S, þegar garSurinn verSur reistur.
— Síra Ólafur Ólafsson fluttí
snjalla hvatningarræSu af svölum
Aljtingishússins og skoraSi á menn
aS styrkja stúdenta til þess a&
koma garSinum sem fyrst upp. Þá
var haldiS suSur á íþróttavöll. Á
leiSinni var staSnæmst viS leiöí
Jóns SigurSssonar og krans lagður
á þaS, en Bjarni jónsson frá Vogi
flutti skörulega ræSu. Á íþrótta-
vellinum töluSu A. V. Tulinius og
j Vilhjálmur Þ. Gíslason, og sagðist
báðum hið besta.
Trúlofun
sína opinberuSu í gær ungfrú''
ValgerSur Olafsdóttir og Jón B.
Ólafsson, Vitastíg 9.
Gjöf
til fátæku hjónanna 10 krónur
(áheit).
Lagapróf
tóku þessir kandídatar hér í há-
skólanum fyrir helgina: TheóSór
Líndal I. eink., Bergur Jónssort
I. eink., Jón Steingrímsson I. eink.,
SigurSur Jónasson II. eink. befcri,
Brynjólfur Árnason II. ei«k.
betri, GuSbrandur ísberg II. eink.
Landsspítalasjóðsnefndin
treystir kaupmönnum og öSrum
vinnuveitendum til þess, aS veita
starfsfólki sínu leyfi svo snemtna
á morgun, aS þaS geti tekiS þátt í
skemtunum dagsins.