Vísir - 18.06.1923, Blaðsíða 3

Vísir - 18.06.1923, Blaðsíða 3
yliiE Háskólarektor. var kjörinn í gær prófessor Páll Eggert Ólason. KarlaJfór K. F. U. M. Fundur í kveld kl. 8*/2. Áríðandi að allir meðl. mæti. Af veiðum komu í gær Þórólfur og NjörS- ur; höf'ðu bá'Sir afla'S fremur líti'S. Hjúskapur. 12. þ. m. voru gefin saman i hjónaband Diljá Tómasdóttir og SigmrSur Jónsson, skipstjóri frá Bakka. — Síra Jóhann Þorkels- son gaf þau saman. Samsæti í K. F. U. M. Þeir, sem ætla sér aS taka þátt í samsætinu á miSvikudagskvöldiS lcemur, fyrir síra Hoff og frú hans, eru be'Snir aS kaupa sér aðgöngu- miSa í húsi K. F. U. M. í dag-eSa á morgun. Allir kristniboðsvinir velkomnir þátttakendur, meðan húsrúm leyfir. , S. Á. Gíslason. Landspítaiasjóðs- Fdagurinn, —o--- Á morgun er hátíðisdagur kvenna ®g hafa kvenfélög' bæjarins starfað að undirbúningi hans undanfarna tíS. Má búast við engu minni fagn- að: en áður hefir verið, og sýnir stavfsskráin, sem seld verður á göt- unum á morgun, að svo er. Hefir Vísir fengið leyfi til að birta helstu atriði hennar. — Eins og áður byrj- ar hátíðin með því að menn safnast saman í Barnaskólagarðinum kl. 3!/2, og eru börnin beðin að taka fána sína með. pá er gengið þaðan með hljóðfæraslætti og fánum að Austurvelli, þar sem ræða verður flutt af svölum Alþingishússins. Að lokinni ræðu verður um tvent að velja. Annað er það, að fara í Nýja Bíó og hlusta á söng og sjá skuggamyndir frá Indlandi. Hitt er að fylgja straumnum, er fer suður á íþróttavöll til að hlusta á ræður, sjá ungar meyjar sýna leikfimi, stíga dans á pallinum og síðast en ekki síst, að fá sér hressingu í gráa tjaldinu, þar sem ungar stúlkur í hvítum : hjúkrunarbúningi ganga um beina. Inni í bænum heldur fagnaðurinn áfram. Kl. 6 verður hlutavelta opn- úð í Báruhúsinu og Gamla Bíó sýn- ir ágæta mynd. Síðar um kvöldið gefst mönnum færi á að hlusta á lög eftir Mozart, leikin af þrem ungum snillingum, sjá teikningar af fyrir- huguðum lansspítala og heyra skýr- ingar á fyrirkomulagi hans, og unga stúlku kveða rímnalög. — En í Iðn- aðarmannahúsinu verða Spánskar nætur sýndar með fullúm krafti. Geta má þess, að inngangseyrir að flestum skemtistöðum dagsins verður nokkru ódýrari en áður, en að öðru leyti gerir starfsskráin á morgun grein fyrir öllu því, er menn þurfa að vita um tilhögunina. A!þM. o£ sMtarsir. „Alþýðublaðið“ var eitthvað að finna að því á föstudaginn, að „Vísir“ væri farinn að búa sig undir kosningarnar, með þvi að hef ja umræður um skatamál- in, alveg tilefnislaust, og halda fram kenningum „Alþýðu- flokksins“ um bcinu skattana! „Alþýðublaðið“ mun nú eldra en tvævett, en svo gamalt er það þó auðvitað ekki, að það geti munað það, að Vísir var farinn að andæfa tollum og lialda fram beinum sköttum, áður eu „Alþýðuflokkurinn“ varð til. það má vel vera, að flokkur þessi vilji heldur beina skatta en tolla, en svo hefir mömium nú slcilist á Alþbl., sem hann vildi helst enga skatta hafa, en láta rikið fá þær tekj- ur, sem það þarf, af verslim og öðrum atvinnurekstri. Og víst er um það, að það eru ekki jafn- aðarmenn, sem eru upphafs- menn að beinu sköttunum, og þvi ekkert frá þeim teldð, þó að aðrir fylgi því skattafyrir- komulagi. — Annars má hka vel vera, að „Alþýðublaðið“ hafi elcki meint riéitt slíkt, hcldur að eins verið að vekja atliygli flokks- inanna sinna á því, að þeir gætu alveg eins kosið ritstjóra Vísis á þing, eins og Jón eða Héðinn! Ffá bæjargialðkera. Samkvæmt auglýsingu bæjar- fógeta x febrúarmánuöi síöastliön- um, veröa öll ógreidd aukaútsvör frá 1922 og elxki, tekin lögtaki. Lögtökin byrja semiilega næst- lcomandi þriðjudag. Og þar sem innheimtumenn bæjarins munu þegar oftsinnis hafa krafið hvern cinstakan gjaldanda, verður lög- takið framkvæmt án frekari að- vörunar. Borgþór Jósefsson. Syartbaksegg. *■■■ «*•*—* pað greip mig ómótstæðileg löng- un til að bragða egg. Eg hafði ekki séð þau innan húss hjá mér í marga mánuði, eða heilt ár; hafði séð þau í búðarglugga en aldrei freistast ,til að kaupa þau, að minsta kosti ekki til matar.— Hvað var nu þetta á Lækjar- torginu, eitthvert slys? pama grúfðu sig allir niður að einum manni, er var að sjá hálfur niðri í kassa. Eg þangað í spretti. Hó! egg. Fallegai freknótt, nei dröfnótt svartbaksegg.: Hvað er verðið? spurði eg. 40 aura var svarað. Eru þau ný? pau eru úr fyrstu göngu segir seljandi, er reis upp um leið til hálfs, því áður hafði hanri verið hálfur niðri í kassanum. petta var ungur piltur laglegur, er virtist vera sakleysið eintómt, og sem. mundi aldrei hafa sagt ósatt um æf- ina. pað fóru að renna á mig tvær grímur að kaupa. í sömu svifum kemur þangað vin- ur minn Frímann, sem eg hugði aS fremur hefði lært í skólanum a8 „snuða“ aðra en láta „snuða“ sig. „Sjö“ segir hann hiklaust, og lét þau sitt í hvern vasa og fór. Hafi eitthvert þeirra brotnað :. vasa hans, má hamingjan vita hvaða dýr hefir skapast í vasanum. Eg herti nú upp hugann og kalla þrjú, fæ þau og fer beint til hennar Imbu minnar, og bið hana að selja mér þrjú hænu-* egg. pað verð eg að segja að aldrei hefi eg orðið eins „skotinn“ í henni eins og þá fyrir það hve fljót hún var að afgreiða mig, og gera annað meira fyrir mig, sem var það að rannsaka vísindalega með mér hlut- fallsþunga eggjanna. Á hárfínu vigtina í búðinni, sem vigta mætti á minsta hárið á skallanum á mér, vigtum við svo eggin. Nákvæmlega þrjú hænueggin móti tveimur svajrt-a bakseggjunum það skulum við bæði votta, eins og við værum nýtrúlofuð. Hér hafið þið vísindalega stað- reynd. Eg var áður fyr allgóður reikningsmaður og sá því strax verð- muninn. Nákvæmlega 10 aurum of- ■dýr svartbakseggin. Vísindalegar rannsóknir eru sjaldnast gróðavegur, og þó eg sæi eftir að hafa tapað þarart 30 aurum, fór eg glaður heim, hlakkaði til eggjaveislu heima og flýtti mér því í miðdagsmatinn. Svartbakseggin, voru náttúrlega soðin sitt handa I VAEGAKLÓM. Hún gekk niður í klefann og settist þar með ‘blað fyrir framan sig og fór að hugsa um, hverj- um hún ætti að skrifa, og hvað hún ætti að segja. Loksins staðréð hún að skrifa Debóru og Elíot, — hann átti það þó skilið að minsta kosti. Bréfið til Debóru var stutt, en hitt þó enri styttra. pað var á þessa leið: „Kæri herra Graham:-—“ hún velti fyrir sér ofurlitla stund, hvort hún ætti að ávarpa hann þannig, eða „Kæri £líot“, en það varð úr, að hún iét sitja við fyrra ávarpið. — „Eg vona að þér hafið heyrt, löngu áður en yður berst þetta bréf, að rnér var bjargað þegar siglt var á Happy Lucy, og eg vona, að þér hafið líka heyrt, að Marks skipstjóra hafi verið bjargað. En eg ætla að fara til Londonar og reyna að leita mér atvinnu þar —“. Hún hætti að skrifa og studdi hendi undir kinn og hniklaði brýnnar. Hana langaði til að spyrja hann, hvort Marks skipstjóri hefði bjarg- ast, en þorði það ekki, því að efhúnhefðibeðiðhann að svare. sér, þá hefði hún orðið að senda honum utanáskrift sína, og ef hún teldi sér heimili hjá Mr. Benson. manninum, sem hún ætlaði til, þá yrði EHot hægðarleikur að spyrja hana uppi. Hún stundi við og sló botninn í bréfið á þessa leið: „Eg vona, að þér hafið ekki óttast um mig. Mér leiS ágætlega í eynni og mun aldrei gleyraa henni æða vinum mínum þar.. — Yðar einlægur Cyril Merton.“ Hana lanpiði til að skrifa: „Yðar alúðar vin- ur“, en lét það ekki eftir sér. Ujh kveldiS skýrði skipstjóri eigendum skipsins bréflega frá því, að hann hefði bjargað drengnum Cyril Merton. Ann- að bréf skrifaði hann og, og lýsti þar, hvernig hann hefði fundið drenginn, og ætlaði að flytja hann til Londonar og ætlaði þar að koma honum á framfæri við vini hans., petta bréf sendi hann „Herra Merton, Lonaway ey, Norður-Devon/‘ og var talsvert upp með sér yfir þeirri kænsku sinni. „Ef drengurinn skyldi engum skrifa,“ hugsaði hann með sjálfum sér, „þá vita þó ættingjar hans, hvað um hann er oröið, og honum líður vel. Hann er eitthvað undarlegur og vel til að hann hafi strokið að heiman. En hvað sem því líður, þá hefi eg gert skyldu mína.“ . ■ ... .. ' • * **#»&L*3 '■ . XXV. KAFLl. Eirt í London. Næsta dag lagðist Araminta við landfestar í skipakvínni. Butler skipstjóri vildi ekki leyfa Nóru að fara frá borði fyrr en hann gæta sjálfur fylgt henni og vísað henni á leið til vina hennar. Og þeg- ar hann hafði gengið frá skipinu og Nóra hafði kvatt stýrimann og skipverja, þá fylgdi hann henni á næstu járnbrautarstöð. „Pú ert sannfærður um, að þér sé nú óhætt, drengur minn,“ sagði hann eitthvað áhyggjufullur. „Eg vildi feginn fara með þér og koma þér þang- að, sem þú ætlar, en eg má ekki skilja við skipið í dag eða á morgun og þess vegna kem eg því ekki við. Farmurinn liggur reiðubúinn, og eg verð, að taka við honum. En eg mintist á fimm punda seðilinn —“ Nóra fulljrrti, að hún þyfti ekki á honum aS’ halda og þakkaði honum innilega alla góðvild hans. „Ekkert að þakka,“ sagði hann og bandaði' hendinni. „Mér hefði þótt gott að ráða þig hjá mér, en það yrði þér of erfitt. pú ert gervilegur piltur og munt komast vel áfram, en sjóferðir eru léleg atvinna. Tókstu bréfin? Hérna er póstkassi, við skulum láta þau í hann.“ l?egar kom að skilnaðarstundinni, var honuut svo erfitt að skilja við hana, að Nóra átti fult L fangi að verjast tárum. Og þegar hann hafði kom- ið henni inn í brautarlestina, staðnæmdist hann við vagndyrnar og mælti nokkur hughreystingar- og árnaðarorð til hennar. Nóru fanst hún mjög einmana, þegar hún misti sjónar af honum; henni* fanst það forlög sín, að missa alla vini sína. Henni kom alt undarlega og nýstárlega fyrir sjónir, og jók það á einstæðingsskap hennar, og vildi hún sem fyrst komast til skrifstofu hr. Bensons, þess manns, sem hún hafði ætlað sér að leita athvarfs hjá. Skrifstofan var í fjölfarnasta hluta borgarinn- ar, og þegar hún kom út úr lestinni, varð hún ráða- laus og utan við sig í öllu því fjölmenni, sem fyrir var á stöðinni. petta voru fyrstu kynni hennar af London og hafði hún aidrei gert sér í hugarlund, að borgin væri svo mikilfengleg sem raun gáf vitnf um, og eins undraðist hún mannmergðina og all- an þann ys og þys er var alt umhverfis hana^ Hún spurði lögregluþjón ráða, en hariú réð henni

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.