Vísir - 15.10.1923, Page 2

Vísir - 15.10.1923, Page 2
VÍSIR Höfum fyrirliggjandi: Kristalsápu, Sultane stangasápu, Handsápur, Blegsóda, Sóda mulinn, * Colmans Stívelsl, Ví-To Skúrepúlver- Sextugsafmæli Bjarna Jónssonar frá Vogi var hátíðlegt haldið í fyrrakvöld meS kveldveislu á Hótel ísland, og sátu veisluna um ioo manns. AtS- alræðuna fyrir minni Bjarna flutti dr. Guðm. Finnbogason, prófessor, en fyrir minni konu hans talaði dr. Alexander Jóhannesson. Kvæði til Bjarna, eftir Jakob Jóh. Smára, var sungið á eftir ræðu dr. G. F. Auk þess töluðu þeir Indriði Ein- arsson, Jón Jónsson læknir, Rík- arður Jónsson og Sigurður Eggerz einnig fyrir minni Bjarna, en Matthías Þórðarson las upp langa drápu til hans, eftir ónafngreind- an höfund og Ríkarður Jónsson kvað kvæði það, er Þorsteinn Er- lingsson orti á fimtíu ára afmæli hans. — Bjarni þakkaði ræðurnar og talaði fyrir minni Islands og fyrir minni kvenna. — Fjölmörg Eeillaóskaskeyti bárust Bjama, sem upp voru lesin undir borðum. Málverk fagurt var honum gefið : afmæljsgjöf. Maunamunur. Ýmsir hyggja, að mest kapp muni verða um það, nú í kosning- unni hér í Reykjavík, hvor þeirra fái hærri atkvæðatölu, fjórði mað- urinn á B-listanum, Lárus Jóhann- esson, lögfræðingur, eða annar maður á A-listanum, Héðinn Valdemarsson. Lárus hefir í grein j „Verði“ gert nokkra grein fyrir því, hver sé munurinn á þeim tveimur, óg játar hann ýmsa „yfir- burði“ Héðins. Fer hér á eftir sá kafli greinar hans, sem harm kall- ar Mannamun: Héðinn kallar mig „Lárus litla“ í grein sinni, að sjálfsögðu í niðr- unarskyni. En eg læt mér viður- nefnið vel líka, sérstaklega í munni annars eins andans Goliats, eins og hann er. Eg hefi heldur ekki af miklu að miklast, samanborið við hann. — Eg get t. d. ekki miklast ar því, að mér hafi verið hreykt uþþ í forstjórasæti ríkisverslunar og orðið að hröklast aftur ofan í venjulegt skrifarastarf með ,.stjóra“-nafnbót, eftir ótal axar- sköft og salcir almennra áskorana. Eg get heldur ekki miklast af þvi, að hafa fært upp verð á sykri, er birgðir kaupmanna voru að þrotum komnar, svo að mótmæla- fundir vom haldnir víða um land, og orðið að færa verðið niður, eftir að hafa þolað það á almennum borgarfundi, að vera lýstur ósann- indamaður á framburði sínum. Eg get heldur ekki miklast af því, að hafa verið formaður kaup- félags, sem seldi til Englands sem „prima“ manneldisvöru fleiri ára gámian og stækan labradorfisk, sem að eins var nothæfur til á- burðar, er til viðtökustaðar kom. Eg get ekki heldur miklast af því, að hafa sem skrifstofustjóri landsverslunarinnar keypt af kaup- félagi því, sem hann var sjálfur formaður fyrir, haframjöl, þannig, að kaupfélagið eða kaupfélags- stjórinn fékk mun meiri hagnað af kaupunum en nemur venjulegri heildsölu-provxsion. Eg get ekki heldur miklast af því, að hafa farið ferð til útlanda fyrir ríkisstofnun og sent rikís- sjóði ferðakostnaðar-reiknimg, sem var hærri en nokkur ferðakostn- aðarreikningur ráðherra. Eg get heldur ekki miklast af því, að hafa kjörið sjálfan mig sem yfirdómara hæstaréttar í dálk- um Alþýðublaðsins, og að vera formaður þess félags, sem kallar hæstaréttardóm stéttardóm, og til þess fallinn, að drepa niður réttar- meðvitund landsmanna. Eg get ekki miklast af þvi, að hafa staðið dögum saman með sveittan skallann niður á alþýðu- lóðinni, við að leggja með eigin hendi stein í grunn hinnar kom- andi alþýðuhallar (sbr. Alþýðu- blaðið). Ekki get eg lieldur miklast af því, að hafa gengið í brjósti fylk- ingar nokkurra maniia hér í Reykjavík, blóðrauður sem karfi í framan, berhausaður og með landsverslunarvindil í munninum undir tónum International-söngs- ins, en bornar uppi spítur með áletrunum og bar mest á kröfum um rannsókn á íslandsbanka og Blömdahls brjóstsykur. Og því síður get eg miklast af því, að hafa — cftir að vera út- slitinn af líkamlegu púli, — verið kosinn formaður verkmannafélags og sitja þar á fundum í formanns- sæti og stritast við að fela ýstruna á sjálfum sér. Nei, Héðimn sæll! Það verður ekki mikið úr mér í þessum sam- anburði. Gölfvax sérlega ódýrt, höínm við fyrirliggjftndi. Jöh. Olafssom & Co. w Odýr kvenstígvél. Fyrst um sinn seljum við öll okkar kvenstígvél með 25°|0 afslætti. Notið tækifærið, og kaupið vetrarstígvélin, meðan nógu er úr að velja. Hvannbergsbræður. □ EDDA 592310167 — 1 Dánarfregn. Hjónin Gróa og Óli Kærnested hafa orðið fyrir þeirri sorg að missa son sinn Aðalstein. Magnús Pétursson bæjarlæknir hefir legið að und- anförnu, en er nú kominn á fætur og farinn að taka á móti sjúkling- um. Conrad Holmboe, norskt rannsóknaskip, sem ver- ið hefir norður i íshafi í sumar, og talið var að hefði farist, er ný- komið fram á ísafirði. Komst þangað hriplekt og við illan leik. Góð skemtun. Bæjarbúar eiga kost á góðri skemtun annað kveld 5 „Iðnó“. Þar flytur prófessor Sigurður Nordal erindi, og er það eitt ærið til þess að tryggja góða skemtun. Þá syngur ungfrú Ingibjörg Bene- diktsdóttir frá Hafnarfirði. Hún hefir lokið söngnámi í Kaup- mannahöfn með ágætum vitnis- burði og syngur mjög vel. Þriðja atriðið á skemtiskránni er gaman- vísur, sem Guðm. Thorsteinsson syngur. Hann hefir verið sjúkur að undanförnu og ekki látið til sín heyra lengi, en vert væri nú að minnast þess, að oft og mörgum sinnum hefir hann skemt bæjar- búum. En nú er hann á förum til útlanda, til að leita sér heilsubót- ar, og verður þess langt að bíða, að menn heyri til hans öðru sinni. Siðast á skemtiskránni er gaman- leikur og eru leikendurnir góð- j kunnir, sem sjá má af skemti- j skránni. i | Nr. 2822! ! Sá, sem dregið hefir nr. 2822 á híutaveltu Lúðrasveitarinnar í gær, hefir eignast kúna, sem þar var dregið um, og á hann að vitja hennar til einhvers úr stjórn fé- lagsins. HiIleDDinm hveití i 7 Ibs. pokum Lakkrls SoltDtaa. ' ÞÖKBDR 8VEIN880N & CO. Kvikmyndahúsin. ,. Gamla Bíó sýnir nú mjög skraut- Iega mynd, sem heitir Eiginkotia Faraós, en Nýja Bíó sýnir Kleþ- pötru, sjónleik í 8 þáttum, um hina frægu drotningu Egiftalands. Veðrið í morgun. Hiti i Reykjavík 1 st., Vest- mannaeyjum 4, ísafirði o, Akur- eyri -j- 1, Grindavík -f-. 2, Stykkis- hólmi 2, Kaupmannahöfn 7, Tynp- mouth 8, Leirvík 5, Jan Mayen o st. Loftvog næstum jafnhá. Ky'rt veður. Horfur: Svipað veður. G vendarhrunnavatnið er nú komið í bæinn, eins og áður er sagt, en það er ekki svo að skilja,. að vatnsveitan sé full- gerð. Frá Elliðaánum er að eins ein leiðsla, en þær eiga að verða tvær, pípurnar í þá nýju ókomnar enn. Vatnsmagnið, sem nú kemur til bæjarins, er því ekki mcira en áður. Félag Vestur-fslendinga heldur fund annað kveld (þriðju- dag), kl. 8)4, í Bárubúð. Allir Vestur-íslendingar velkomnir a fundinn. — Stjórnin.' Kosningafregnir » berast úr ýmsum áttum til bæj- arins, en yfirleitt er lítið á þeim að byggja. T. d. hafa jafnaðar- menn látið það berast út, að Ólaf- ur Friðriksson hefði afarmikið fylgi í(Vestmannaeyjum, en sann- leikurinn er sá, að það mun nú helst í ráði, að hann hætti við framboðið. Baráttan er þar að eins milli þeirra, gömlu samherjanna,

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.