Vísir - 27.10.1923, Qupperneq 3
ViSiR
E
nýkomnar.
P. Dnns
A-deild.
'hlaöinu í gær er ein af þessum
'kosningagreinum, full af ósann-
indum og blekkingum. I eitt skifti
fyrir öll vil eg segja blaSinu ettir-
íarandi og þaö veit eg, aö þar tala
cg fyrir munn flestra ef ekki allra
verslunarmanna þessa bæjar.
Verslunarmenn fylkja sér allir
undir merki frjálsrar verslunar.
Þeir vilja hafa óbundnar hendur
meö framtíö sína. Þeir vilja skapa
mentaöa og dugandi verslunar-
stétt og vita, aö kjör þeirra fara
batnandi meö vaxandi dugnaöi og
elju. Þeir vilja vinna með hús-
bændum sínum á friösamlegar,
hátt, jafnt um launakjör sem ann-
að, er stéttinni er til heilla.
Alþvðusamband íslands berst á
móti frjálsri verslun og hefir
margþvætta þjóðnýtingu á sinni
stefnuskrá.
Alþýöusamband íslands vekur
hatur og ósamlyndi milli vinnu-
veitenda og vinnuþiggjenda, í staö
sanngirni og samúðar. Vegna
þessa mun hvorki Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur né Mer-
kúr nokkru sinni ganga í Alþýöu-
samband íslands, Vegna þessa
standa nú bæöi fjlögin sem einn
maður um B-listann, — lista
frjálsrar verslunar og friösamra
borgara.
Það eru hrein ósannindi, að eng-
in stéttamál verslunarmanna kom
ist á dagskrá í Verslunarmanna-
félagi Reykjavíkur, vegna ofríki
kaupmanna. Sannleikurinn er sá,
að félagiö er nú fyrir nokkru byrj-
að að undirbúa þaö mál, sem A1
þýðublaðið fyllist / svo miklum
vígamóði yfir, sem sé þaö, að
fullkomið nám og reynslutími
þurfi til að ná verslunarmanns-
nafni og þar af leiðandi meira tak-
mörkuð t^la verslunarmanna og
■ áhuga í þessu máli hafa kaup-
mennirnir sjálfir ekki síöur en
verslunarmennirnir. Og eg er þess
fullviss, að það nær sínum fram-
gangi án Alþýöusambandsins!
„Verslunarmaðurinn" í Alþýðu-
blaðinu, (sem eg er viss um, að
er enginn verslunarmaður) segir:
„hagsmunir þessara manna (þ.
e. kaupmannanna) eru öndverðir
okkar hag (verslunarmanna)." Eg
segi nei! Hagsmunir kaupmanna
eru ekki öndverðir hag verslunar-
mannanna, vegna þess, að undir
iipurð og dugnaði þjóna sinna
eiga karpmen sinn mesta hag. Og
flestir þeirra kunna að meta þaö,
þó auðvitað geti verið einhver
undantekning, eins og ávalt vill
~vecða um alt.
Vér verslunarmenn þurfum ekki
aö láta neinn legáta i Alþýöublaö-
inu segja hvað oss er fyrir bestu,
vér vitum það sjalfir og höfun.
svo heilbrigða hugsun, að e'kkerí
er oss fjær en Alþýðusamband Is-
lands.
Verslunarmenn vita, um hvaö er
barist í dag.. Þeirra eigið hug-
sjónamál, frjálsa verslun og fram-
þróun íslensku þjóöarinnar á friö-
samlegum grundvelli. Þess vegna
kýs enginn verslunarmaður rauða
listann, A-listann. Heldur fylkja
þeir sér, eins og þúsundir annara
friðsamra borgara, um B-listann.
Erlendur Pétursson.
og aö eg taia hér af heilagri sann-
færingu.
Samúel Eggertsson.
Til athngnnar.
Örlagaþrungnar og svæsnar al-
þingiskosningar standa nú fyrir
dj-rum hjá oss vesalings Islend-
ingum. Ný stefna er að gjósa inn
í landið, byltingastefna, sem fæðst
hefir upp úr tryllingi hinnar óguð-
iegu og heimskulegu heimsstyrj-
aldar. Ungir hugsjónamenn hafa
gleypt í sig vel mikiö af þessu
góðgæti, komið rykaðir heim og
spýtt þvi í fólkiö. Nú standa þess-
ir brautryðjendur með vímu í
höfði, ismeygilegir og valdasækn-
ir upp undir hátindi vitleysunnar
og æpa til lýðsins: Fallið fram og
tilbiðjið oss og vér skulum gefa
yður öll ríki veraldar og þeirra
dýrð. En þeir sjá það máske ekki,
ógæfumennirnir, að um leið og
þeir rogast með þessa guðlausu
stefnu til vor í bak og fyrir, þá
er drepið einstaklingssjálfstæðið,
e. frelsið í landinu og því kom-
ið á vonarvöl, og vér jafnharðan
læstir í klær erlends valds.
Sauðsvört er samvinnustefnan,
eins og henni nú er komið og
margt er bágborið hjá oss, sem
laga þarf og laga má, ef vel er á
haldið, en enga bliku hefir lagt
upp á hinn pólitíska himinn eins
skelfilega og kommúnismann,hann
á ekki við okkar hugsunarhátt og
staðháttu.
f dag á að lieyja orustuna, úr-
slitaglímuna um það hverri stefn-
unni fylgja skal. Eg þykist ætíð
hafa verið alþýðuvinur, rétt eins
og hver hinna, en eg hika ekki við
að eggja til framgöngu móti þess-
um ófögnuði, kommúnismanun).
í dag riður á að fvlkja sér.
Allir góðir ættjarðarvinir veröa að
sækja upp brattann, þar sem hinir
nýju boðberar standa þétt uppi
undir Tryllingstindi, og hætta
ekki fyrri en þeir verða hrakiir á
hæðir sannrar jafnaðarmensku og
hófsemi. Allar stjórnmálastefnur
eru aö mínu viti hjóm hjá þessari
meinvillu
Til aö forðast þennan háska
verður maður því að kjósa B-
listann.
Til vara leyfi eg mér að taka
fram, vegna þeirra sem ekki
þekkja skoðanir mínar, að eg er
engum pólitískum flokki bundinn
Héðinn vinnuveitandi.
Nýiega kom skip frá útlönd-
uin meö nokkur hundruð tunn-
ur af steinoliu. Uppskipun á
steinoliunni átti að fara fram
á sunnudegi. En það er haft eft-
ir Hjeðni Valdimarssyni, að
hann hafi með öllu afsagt að
láta „vinna fyrir 2 kr. um tím-
ann.“ Sleinolíutunnurnar voru
síðan lagðai* upp á hafnarbakk-
ann, en þaðan voru þær ekki
fluttar fyrr en á mánudag. -
Héðinn var spurður um það ný-
lega á fundi, hvort þetta væri
satt. Hann játaði það, en sagði
að verkamenn vildu eltki vinna
á sunndögum, þeim veitti ekki
af að hvíla sig þá daga.
Er htið um atvinnu hér í bæn-
um, eða er nóg atvinna? Finst
verkamönnum þeir vinna sér
svo mikið inn alla aðra daga vik-
unnar, að þeir gætu ekki þegið
vinnu á sunnudegi stöku sinn-
um fyrir hærra kaup----Nei,
það liefir áreiðanlega ekki ver-
ið af umhyggju fyrir sunnudaga-
hvíld verkamanna, að Héðinn
vildi ekki láta vinna fyrir 2 kr.
um tímann. jþað eru cinhverj-
ar aðrar ástæður til þessa. pó
varla umhyggja fyrir hag Lands-
verslunar. pví að ekkert upp-
skipunargjald hefði þurft að
greiða til afgreiðslu sldpsins, ef
steinolían hefði verið tekin strax
á flutningavagnana á skipshlið.
beinir. í báðum hellunum séu frs
sama tíma.
Sunnudaginn 16. þ. m. fóru 2
menn frá P.eykholti, Páll Einars-
son prests Pálssonar og Eggert V,
Briem, aö skoða þessa hella og
um leið að leita að fleirum á þessu
svæði. Fundu þeir þá litla hoitt
undir hraunkletti mitt á milli heS-«
anna; þar á litlum stalli, hér ntn
bil r meter niður, fundu þeir lær~
legg af manni. Fyrir neðan stalU
inn er heJlisskúti og þröngur'
gangur niður. Fundu þeir haus—
kúpu og litlar leifar af öðrum
beinum.
Eftir tilmælmn síra Einars £
Reykholti fórum við 3 að rann-
saka þetta og fundum ekkert
fleira af beinum nema 1 handleggr
1 rif og nokkrar tennur. Þetta alt
var látið í kassa og grafið í Reyk-
holtskirkjugarði 25. þ. m. Ekkx er
hægt að segja með vissu, frá hvaða
tíma þessi bein eru, sennilega frá
14. eða 15. öld, eða hver maður
þessi var. Manni verður fyrst fyr-
ir að geta sér þess til, að þetta sé
maðurinn, sem bjó í nefndum helf-
um, og hafi verið veginn undii
klettinum, sem holan er við og
svo skotið þarna niður á höfuSib
dauðum og rutt að grjóti sem er
á gjáarbotninum. í öðru lagi er
það hugsanlegt, að þetta hafi ver-
ið einn af Surtshellisbúum; þess
skal getið, að höfuðkúpan var af
stórum manni og jaxlar mjög
sterklegir; lærleggurinn var 18
þumlungar á Iengd.
Fljótstungu, 30. sept. 1923.
Jón Pálsson.
Mannabein ínndin.
í dagblaðinu Vísi var fyrir
skömmu getið um, að fundist hefðu
í sumar bein af manni^ í Hall-
mundarhrauni, skamt frá hellin-
um Víðgelmi. Bóndinn í Fljóts-
tungu hefir nú sent fornminja-
verði svolátandi skýrslu um fund-
inn, og óskað eftir, að hún yrði
einnig birt í Morgunblaðinu og
Lögréttu:
í hrauninu örskamt frá Fljóts-
tungu í Hvítársíðu, er að alira á-
liti, sem séð hafa, fegursti hellir-
inn á landi hér, „Viðgelmir". Eg
ætla mér ekki, í stuttri blaðagrein
að endurtaka lýsingu af honum;
það hefir áður verið gert af hr.
fornminjaverði Matthíasi Þórðar-
syni í Reykjavík, og af undirrit-
uðum. Skal það eitt tekið fram,
að þar eru bein af stórgripum og
sauðkindum (þó að eins lítill vott-
ur), sem sýnir að þar hefir mað-
ur búið og fundist hefir bæli hans.
Á síðastl. vetri fann Bergþór
sonur minn, nú bóndi í Fljóts-
tungu, annan helli, her um bil 200
föðmum vestar í hrauninu. Þar
hefir einnig búið maður, og er þar
nokkuð af beinum og litlar leifar
af skógarberki. Líkindi eru til, ,að
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, sira Frið-
rik Friðriksson (altarisganga);
kl. 5, síra Bjarni Jónsson (75 ára
minning).
I fríkirkjunni kl. 12, síra Árcr
Sigurðsson (ferming).
í Landakotskirkju kl. 9 árd. há-
messa, og kl. 6 síðd. guðsþjónusta
með prédikun.
Hlutavelta
Prentarafélagsins verður annað
kveld kl. 5—7 og eftir 8 í Bár-
unni. Margir góðir munir. Engi.n
núll. Sumir munirnir verða tií
sýnis í dag í gluggum Fálkans.
B-lista skrifstofan
verður i Iðnaðarmannahúsinu í
dag.
Þeir sem vilja leita aðstoðar eða
upplýsinga hjá slcrifstofunni, geta
beðið um bifreiðar til flutnings á
kjörstað í þessum símum:
1000, 1001, 1019, 1211, 1285. —
Upplýsingar viðvíkjandi kjörskrá
o. fl. verða gefnar í 'þessum sím-
um:
117, 160, 260, 262, 327, 430, 4si,
590, 596, 640, 7Ú0.
Síðustu fundir
B-Iistans, sem haldnir voru' í