Vísir - 20.10.1924, Blaðsíða 2

Vísir - 20.10.1924, Blaðsíða 2
VlSIK DMannnn Ohe vrolet Iðfom fyrirllggfandi: Þrjár tegnndir af Eldspytu Símskeyti Khöfn 18. okt. FB Zepp e li ns- v e rk s m iðj u r n a r. Loftfarasmiðjum Zeppelins í lYiedrichshaven verður ef til vill bjargað frá niðurrifi, enda ])ótt pær, samkvæmt friðarsamningun- um ættu að hverfa úr sögunni. Ástæðan til þess, að verksmiðjun- um verður máske leyft að halda áfram er sú, að frakkneskt félag hefir beðið Vkaðabótanefndina um leyfi til að smíða í Friedrichshafen risavaxin loftskip, sem notuð eiga að verða til samgangna, og renni andvirði loftskipanna í skaðabóta- sjóðinn. Kosniiigarnar í Brctlandi. Kosningasamvinna stjórnarand- stæðinga i Bretlandi er orðin mjög víðtæk. Á kauphöllinni í London virðast menn gera ráð fyrir, að ihaldsmenn sigri. Khöfn, 19. okt. FB. Jarðarför Anatolc France. Símað er frá Párís: Utför skálds- ins Anatole France fór fram í gær (laugardag). Hefir franska þjóðin sjaldan sýnt stórmennum sínum meiri hluttekning en við þetta tækifæri. Hundruð þúsunda af "fólki myndaði fylkingar ú báða vegu meðfram strætunum, sem lík- fylgdin fór um. Ný stjórn í Svíþjóð. Símað er í'rá Stokkhólmi, að Hjalmar Branting hafi myndað stjórn, og er það í þriðja skifti, sem hann verður forsætisráð- herra í Sviþ jóð. Að þessu sinni fer hann ekki sjálfur með utan- rikisráðherrastörfin, eins og i tpö undanfarin skifti, en Esben Undin prófessor er utanríkis- ráðherra. Dómsmálaráðlierra er Nathin aðalforstj., Albin Hans- son ritstjóri er hermálaráð- heiTa eins og í síðasta ráðu- neyti Brantings, fjármálaráð- herra er Thorson, sem einnig var ráðherra í sljóniinni hjá Branting 1921—1923 og versl- unarmálaráðherra er Samdler rektor, sem var ráðherra án sér- staks hlutverks í siðustu stjórn Brantings. Varhagavert mat í sfðustu skýrslu gagnfræSaskóI- ans á Akureyri (1923—1924) er lítill kafli undir „Ymislegt", sem heitir: „Meðaleinkunnir kaupstaða- og sveitanemanda í íslenskri ritgerð og skriflegri stærðfræði við gagn- fræðapróf 1921—’23 og árspróf 2. bekkjar 1923—’24.“ Segist skólastjóra svo frá, að skýrsla þessi sé samin eftir tilmæl- um sínum, og bætir því við, að margt megi af slíkum skýrslum nema. Skýrsla þessi sýnir, að meðaleink- unnir sveitanemenda eru nokkru hærri en kaupstaða-nemenda. Eg hefi orðið þess var, að ýms- ir nemendur skólans, gamlir jafnt sem ungir, og raunar margir fleiri menn, furða sig á þessari skýrslu- gerð og fá eigi glögglega séð, hvert gagn skólanum eða öðrum megi að henni verða. Ollum kemur saman um, að birt- ing skýrslunnar muni vera í ein- hverju ákveðnu skyni ger, og margir segja sem svo, að skólastjóri vilji með þessu aðskilja sauði og hafra, svo að landslýð öllum megi það ljóst vera, hversu mannvit sveitamanná og námsdugur standi miklu ofar því, sem í kaupstöðunum gerist. En skýrslan sannar ekkert um þetta, þó að hún kunni, ef til vill, að vera ánægjulegt skjal fyrir ein- hverja menn, sem skólastjóra lang- ar til að eiga að góðum vinum sín- um. pað er vitanlegt, að sveitanem- endur koma að jafnaði eldri og þroskaðri í skóla en bæjarnemend- ur. í öðru lagi er það, að úr sveit- unum kemur yfiileitt ekki annað en úrval unglinganna, þeir einir, sem góða hæfileika og verulego Iöngun hafa til bóknáms. Hinir, f/em enga mentunarlöngun hafa, sitja heima og fara hvergi. I kaupstöðunum horfir þetta öðruvísi við. par er þc.ð ekki ein- ungis úrvalið, sem skólana sækir, heldur. unglingar upp og ofan, eins og þeir gerast, greindir eða miður vel gefnir. Mikill fjöldi af æskulýð Akureyrar sækir skólann þar. bæði þeir, sem gáfaðir eru og námfúsir, og eins ýmsir hinna, sem engan hug hafa á mentun, en eru látnir fara í gegn um skólann eigi að síður. Hinir lakari kaupstaða-nemend- ur mundu reynast sambærilegir við það ungviði úr sveitunum, sem enga skóla sækir vegna áhugaleysis á bóknámi, en úrvali kaupstaða-nem- CHEVKOLET flatningabtfreiðin hefir nýlega verið endur- bætt mjög mikið. MeSal hinna nýju endurbóta er: Að burðarmagn- ið hefir verið aukið upp i ll/2 tonn. Það hefir víst engan mann dreymt um að hægt væri á árinu 1924 að fá góðan vörubíl, sem ber l1/* tonn fyrir kr. 4600.00 upppsett&a i Reykjavík. Varapartar koma í hverjum mánuði og eru ódýrari eo t flestar aðrar bifreiðar. Aðalumboðsmenn á íslandi: Jóh. Olafsson & Go. Reykjavik. enda ætti að réttu lagi að jafna til sveitanemendanna allra eða flestra, ef menn vilja fara út í matning á annað borð. pá er það og mjög hæpið, að reisa nokkrar fullyrðingar umgáfna- far nemenda yfirleitt á frammistöðu þeirra í einstökum prófgreinum. pað er kunnugt, að mestu skynsemdar- menn geta verið erki-klaufar í ein- stökurn námsgreinum, svo sem stærð- fræði, og þyrfti ekki langt að leita sannana í þá átt. Og eins er með íslenskuna. Mestu greindarmönnum getur verið mjög ósýnt um að skrifa móðurmál sitt lýtalaust, þó að þeir sé ágætir í ýmsum öðrum greinum. En í íslenskri ritgerð ætti sveitapilt- ar einmitt að bera mjög af kaup- staða-unglingum, því að þeir alast upp við fegurra tungutak og rétt- ara. Yfirleitt eru námsgáfur og frammi- staða í einstökum prófgreinum harla óviss kvarði á gildi manna. Eji sum- ir menn eru svo hégómlyndir, að þeim finst góð prófs-einkunn öllu máli skifta. Kveður svo ramt að þessu, að svo er að sjá, sem þeir einblíni á próf sín alla ævi og láti sér ekki annað skiljast en að þeir hljóti að vera vitringar, þó að reynsl- an mæli gegn því ár eftir ár. — En ekki skal meira um það rætt að svo komnu. Að lokum skal á það bent, að alt mat og matningur milli sveitafólks og kaupstaðamanna, svo sem til er stofnað- í skýrslu Akureyrarskól- ans, getur orðið og verður til tjóns, bæði skólunum og þeim mönnum, sem fyrir þeim hégóma standa, en það verður aldrei neinum til gagns eða góðs. Stéttarígurinn í landinu getur orð- ið nógu magnaður fyrir því, þó að skólarnir veiti honum ekki stuðning með heimskulegum matningi eða öðrum barnaskap. NámsmaSur. il V i .M* ..tlrW—fá B»j«rfréUiv. □ EDDA. 592410217 — 1 i Veðrið í morgun. Frost um land alt, nema í Vest- mannaeyjum. í Reykjavík 2 st.„ Vestmannaeyjum -f- i, ísafirði 2,. Akureyri 5, Seyðisfiröi 3, Grinda- vík 1, Stykkishólmi 2, GrimsstöC- um 10, Raufarhöfn 3, Hólum í Hornafiröi 3, Þórshöfn í Færeyj- um 4 st. hiti. Loftvægishæð yfir Norðurlandi. Veðttrspá: Austlæg átt, hæg á Norðurlandi. Úrkoma sumstaðar á norðausturlandi. Bjartviðri á Vesturlandi. Bifreiðaslys. I morgun varð aldraður maðttr fvrir flutningabifreið á horrii Týs- götu og Þórsgötu og meiddist eitt- hvað, cn óvíst, hve mikið j>:ið var. Ilann beitir Jón Hannesson. — Á laugardaginn varð kona fyrir hif- reið í Bankastræti og meidclist talsvert á höfði og baki. Frií Í*órdís Runólfsdóttir, Laugaveg 15, á sjötugsafmaeli « Silfurbrúðkaup eiga í dag hjónin Guðrún Gróa. Jónsdóttir og Pétur SigurSssön, trésmiður, Vesturgötu 51 A. Esja fer héðan kl. 8 i kveld, vestur um land i hringferð. Es. Botnia fór frá Iæith á lugardagsmorg- nn. áleiðis hingað. Áætlunardagar hér er 23. þ. m. Thorvaldsensfélagið heldur fyrsta fund sinn á morg- un kl. 8}4 i Hafnarstræti 20.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.