Vísir - 06.05.1925, Side 2

Vísir - 06.05.1925, Side 2
VlSIR Nýkomið: Sáðhafrar, Superfosfat, Ghilesaltpétur og Noregssaltpétur væntanlegur næstn daga. Terálækkun. Með siðustu skipum fengum við nýjar birgðir af hinl| ágæta DUNLOP bifreiðagúmmíi, sem við seljum með hinœ afar lága eftirtalda verði: Dekk: Slöngurí 30X3% ....................... kr. 68.00 9.25 31X4 ........................ — 82.00 11.50 33X4 ........................ — 108.00 13.00 32x4y2 ....................... — 123.00 15.00 34X4% ................;.7.... — 130.00 16.25 33x5 ........................ — 162.00 17.40 35X5 ........................ — 170.00 18.50 815X120...................... —117.00 15.00 880x120 ..................... — 130.00 16.25 AÐALUMBOÐSMENN A ÍSLANDI. Símskeyti Khöfn 5. maí. FB. Frá Rússlandi. Síma'ö er frá Moskva, að á al- rússneskum sovietfundi, sem halda á brá'Slega, leggi stjórnin fram frumvarp um breytingu á stjórn- arskránni, er fer í þá átt aö leyfa einstökum mönnum, útlendum sem innlendum, aö starfrækja hvers- konar fyrirtæki til þrifnaöar íram- leiöslu landsins. Stjórnin hefir vegna fjárskorts veitt amerískum og breskum félögum víötæk sér- leyfi til námareksturs. Bankamál í Noregi. Símaö er frá Osló, að hingað til liáfi Noregsbanki reynt til að koma fótum undir nauðstadda banka. Rygg aðalbankastjóri til- kynnir, að þessu verði hætt, þar eð ógerningur sé að vekja aftur upp traust almennings á bönkum þeim sem um er að ræða. Frá Alþingi í gaer. Efri deild samþ. til 3. umr. frv. um afnám laga nr. 30, 20. júní 1923 um breyting á 1. nr. 56, 10. nóv. 1913 (herpinótaveiði). I^rv. til laga um mannanöfn var og samþ. til 2. umr. og i allsherj- arnefnd. Síðan tók við 3. umr. fjárlaga fyrir 1926 og stóð til kvelds og var citkvæðagreiðslu lokið kl. 9% síð- degis og lögin þá samþ. og endur- send til neðri deildar. Neðri deild samþ. og afgreiddi þingsályktun til stjórnarinnar um endurskoðun laga um skipströnd. Síðan var byrjað á 2. umr. um » frv. um varalögreglu, en var eigi rætt nema skamma stund, er það var tekið út af dagskrá og umr. frestað vegna einhverra nefnda- funda i fastanefndum Nd. Þá var og ákveðin ein umræða um tillögu til þingsályktunar um einkasölu ríkisins á steinoliu. u Bæjarfréttir I Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 5 st., Vest- mannaeyjum 5, ísafirði 4, Akureyri 5, Seyðisfirði 3, Stykkishólmi 7, Grímsstöðum o, Raufarhöfn 2, Hólum í Hornafirði 4, Þórshöfn 5 Færeyjum 3, Kaupmannahöfn 10, Utsire 10, Tynemouth 7, Wick 8 st. — Loftvog lægst (745) yfir suð- austur írlandi. Veðurspá: Breyti- leg vindstaða, hægur. Síra Guttormur Vigfússon, prestur i Stöð í Stöðvarfirði, var meðal farþega á. Esju síðast og mun dveljast hér fram eftir mán- uðinum. Páll Magnússon, lögfræðingur frá Eskifirði, kom hingað á Esju og hefir í hyggju að dveljast hér hálfs mánaðar thna. E.s. Annaho kom í morgun með cementsfarm til H. Benediktsson & Co. Grettir Algarsson, sem nú er að leggja af stað í leiðangur til norðurheimskautsins, er Islendingur í báðar ættir, en fæddur i Vancouver B. C. í Can- ada. Hann er 24 ára gamall og mun hafa komið hingað og dval- ist eitthvað í Norðurlandi. I fyrra ætlaði hann á smáskipi til Jan Mayen og Svalbarða, en skipinu hlektist á milli Skotlands og Nor- egs. Skipið, sem hann fer nú á norður í höf, heitir Iceland (= ís- land) og er briggskip með hjálp- ■arvél, 114 smálesta. Skipstjórinn er Commander Worsley, sem fræg- ttr varð af suðurför sinni með Shackleton, og margir Reykvík- ingar muna, síðan hann kom hing- að fyrir nokkurum árum. — Grett- ir ætlar að fljúga í loftfari frá skipinu norður yfir heimskaut til Alaska, en gerir ráð fyrir að stíga úr loftfarinu norður á heimskauti. — Amundsen er nú og á leið norð- ur, sem kunnugt er; hann ætlar í flugvél og mun nokkurt kapp vera í milli þeirra félaga. Gengi erl. myntar í morgun. Sterlingspund ........ kr. 26.85 100 kr. danskar.......— 104.23 JÚ9. ÓLAFSSON & CO. REYKJAVlK. K.F.U.M. Vatar! Æfing í kvöid kl. S* 1/^. tJ-D. fundur í kvöld kl. 872. Fermingardrengir allir boönir. Merkismenn U-D. fjölmennið. IOO — sænskar ...... — 148.27 100 — norslcar...........— 93-9r Dollar...................— 5.54 Glímuflokkur sá, sem Jón íþróttakennari Þor- steinsson frá Hofstöðum ætlar með til Noregs í lok þessa mán- aðar, hélt glímusýningu í gær í Iðnaðarmannahúsinu fyrir stjórn , I. S. í. og nokkura aðra gesti. — j Glímumennirnir voru 9 og tókst { ágætlega. Vonandi sýnir þessi < glímuflokkur sig áður en hann fer af landi burt. íþ. í Frú Kirstín Pétursdóttir, ( að Hofi hér í bæ, ekkja Lárus- l ar heit. Halldórssonar fríkirkju- prests, verður 75 ára í dag. Áheit á Elliheimilið, afhent Vísi: 5 kr. frá S. Þ. ffitt og- þetta. Fomminjar á Krít. Breskur háskólakennari, A. B. Cook, hélt seint í vetur fyrirlestur í norsk-enska félaginu í Osló um „Höll Minos konungs“ á eynni Krít. — Fyrir fjórðungi aldar byrjaði enskur fornminjafræðingur, Evans að nafni, að grafa í rústir borgar- innar Knosos þar í eynni. Vann hann að þessu árum saman og leiddi rannsókn hans í ljós marga merki- lega hluti, er þóttu sanna til fullrar hlítar, að munnmælasögurnar um Mínas konung hinn volduga og menningu Kríteyinga hinna fornu, væru að mörgu leyti réttar. Visiskaffíd garir alia glada, Ræðumaður hafði meðferðis skuggamyndir, er hann sýndi til skýringar erindi sínu. Voru þar, meðal annars, teikningar af höll Minos’s konungs, súlnasalir, veggir fagurlega skreyttir, svalir, gangar j og tröppur, freskomyndir og annað : skraut. par voru og myndir af postu- línsmunum o. s. frv., alt skreytt fögr- um litum og hin mestu listaverk. — • A mótuðum peningum og ýmsum 1 öðrum hlutum hefir fundist letur af 1 einni og sömu gerð, og þykir það sanna til fulls, að Kríteyingar hafi i þekt prentlistina að minsta kosti 1600 árum fyrir Krists burð. — f fyrirlestrinum mintist ræðumaður einnig á klæðaburð manna á þess- um tímum, og um íþróttirnar lét hann þess getið, að þær mundu hafa verið miklu tilkomumeiri þá en nú á vor- um dögum. „Á báti yfir opið haf.“ I í þessum mánuði ætlar Norðmað- urinn Andreas Grimsö að leggja af stað yfir Atlantshafið, frá Noregi til Vesturheims, á lítilli seglskútu. — Grimsö er vaskleikamaður hinn mesti og byrjaði sjósókn 14 vetra gamall. — Hann er nú 39 ára og hefir verið hafnsögumaður síðustu 12 árin. — Grimsö er af sjómönnum kominn fram í ættir og nýtur mikils trausts og vinsælda sem hafnsögu- maður. Skip hans verður hið vandaðasta að allri gerð, smíðað af kunnum skipasmið, Niels Gabrielsen. pað er 46 fet á lengd og hefir að eins segl- búnað. Skipið átti að vera tilbúið í lok fyrra mánaðar. Grimsö hefir ráð- ið til farar með sér tvo þaulvana sjó- menn, og býst við að Ieggja í haf úr Brenneyjarsundi síðast í maí. — Er svo til ætlast, að hann verði kominn til New York fyrir hundrað ára af- mæli norskra innflytjenda til Vest- urheims, en það afmæli er í næsta mánuði.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.