Vísir - 24.07.1925, Qupperneq 2
I
VfSIK
Höfam fyrlrllggfandi
Blandað hænsnafúðnr,
Hais heilan,
Mais mjöl,
Hænsnabygg.
AQ
Khöfn, 23. júlí. FB.
Frá Kínverjum.
Síma’ð er frá Shanghaiy aö kín-
verska verslunarráðið mæli með
því, að allar breskar og japansk-
ar vörur í vörslum kínverskra
kaupmanna verði gerðar upptæk-
ar. Sektir verði lagðar á þá, er
ekki vilja taka þátt i að einangra
(boycott) útlendinga frá viðskift-
v.m.
Frakkar og Þjóðverjar.
Símað er frá Berlín, að i svar-
inu, sem um var getið i skeyti x
gær, sé það t. d. talið ónauðsyn-
legt, að ganga í Alþjóðabandalag-
ið, þó gerð yrði samþykt um ör-
yggisbandalag.
Simað er frá París, að Fi'akkar
áliti nauðsynlegt, að Þýskaland
gangi í Alþjóðabandalagið, því þá
verði þeir bundnari við efndir og
loforð.
Bókarlregn
--X--
H e s t a r. Eftir Daníel
Daníelsson og Einar E.
Sæmundsen. KostnaS-
arm.: Steindór Gunn-
arsson.
Það var þarft verk og gott, að
taka bók þessa saman. — Hefir
litiö sem ekkert verið skrifað um
rétta meðferð hesta á vora tungu,
: Munið eftir að hafa
Notið aðeins Kodak-filmnr
(gulu pakkana)
Þær verða altaf áreiðanlegastðr
HANS PETERSEN
Blýmenja
löguð og þur, aSeins bestu tegundir
Málarinn.
Sími 1498. Bankastræti 7.
en í bók þessari er samankominn
margvíslegur fróðleikur, sem betra
er að hafa en rnissa, og flest til
tínt, er verulegu máli skiftir um
hesta vora, tamning þeirra og
meðferð alla yfír höfuð, og þó
einkum reiðhesta.
Höfundai'nir hafa skift með sér
verkum, og er þess getið í efnik-
yfirliti aftan við bókina, hvaðhvor
um sig hefir af rnörkum lagt.
Bókin hefst á formálsorðum eft-
ir D. D. — Segir þar svo frá til-
drögurn bókarinnar, að höf. hafi
fundist að „rnikil þörf væri á bók,
sem gæti bent á, hvernig laga bæri
galla þá, sem hafa verið á tamn-
ingu og meðferð hesta hér á
landi.“ .... „Upphaflega var svo
til ætlast, að bók þessi f jallaði ein-
göngu um tamningu og meðferð
reiðhesta, en ýmislegt fleira hefir
til spunnist....“
Þá kernur „inngangur“ eftir E.
E, S. — Er hann fjörlega ritaður
og hinn snjallasti. — Þar er meðal
annars bent á hið mikla og góða
starf, senx hesturinn hefir látið
þjóðinni í té frá upphafi vega, en
jafnframt er og vikiðað hinnihrak-
legu meðíerð, semhestarvorirhafa
löngum orðið að sæta, og verður
slíkt aldrei vítt um of. — Flöf.
hefir sýnilega mikla ást og að-
dáun á góðum hestum. — Þeim
rnanni hlýtur og að vera undar-
lega farið, sem er ekki fullkominn
vinúr reiðhestsins síns. —■ Og víst
er um það, að oft hafa íslending-
ar átt hesturn sínum fjör að launa.
— Margur hesturinn hefir skilað
húsbónda sínum heilum heim í
hríðum og rnyrkri, er hann var
ramviltur orðinn. — Margur gá-
laus maðurinn hefir beitt hesti sín-
um í ófær vatnsföll og hann hef-
ir borgið lífi þeirra beggja. —
Og enn er ótalinn sá mikli un-
aður, sem góður hestur er ávalt
reiðubúinn að láta í té hverjum
þeim, sem á honum situr og með
hann kann að fara. — Það er ekki
góðhestinum að kenna, þó að
mennirnir kunni ekki að meta kosti
hans eða fari þannig með hann,
að hið besta, sem hann á til, fái
ekki notið sín.
Svo sem að líkindum lætur,
verður ekki frá bók þessari sagt
til hlítar í lítilli blaðagrein. — Eg
verð því að láta mér nægja, að
skýra frá efni hennar í sem allra
stystu máli.
Flöf. skifta efni bókarinnar í
fiokka. Kemur fyrst kafli í tvennu
lagi, sem heitir „Tamning hesta“
og „Gangur hesta“. — Eru kaflar
þessir vel samdir og skipulega og
svo stuttir að engum er ofraun að
lesa. Ættu menn að hugfesta þær
leiðbeiningar, sem þar eru í té látn-
ar. — Mun mörgum þykja gaman
að kaflanum um ganglag hesta
(brokk, tölt, valhopp, stökk.skeið)
og rifjast við þann lestur sitthvað
upp í hugum þeirra, sem í æsku
voru öllum dögum á hestbaki
meira og minna, frá vori til haust- S
nátta. Kafla þessa hefir D. p.
samið.
Næsti kafli er um reiðtýgi o. fl.,
éítir E. E. S. — Þá kernur Rafli,
sem heitir „Meðferð hesta“, og er
þar rætt unx hús og hirðingu, eldi
reiðhesta o. s. frv. — Hafa báðir
höf. samið þennan kaíla. — „Að
þekkja aldur hesta“ er næsti kafli
(E. E. S.), en þá „Æfingar“ eftir
D. D. — Er þar einkum rætt um
æfingar undir kappreiðar. — Loks
er „Markaður og kynbætur“ og
„Viðbætir“, hvorttveggja eítir D.
D.
Höf. hafa að nokkuru leyti stuðst
við erlend rit, en lagt þó til mikið
frá sjálfum sér. — Bókin er yfir-
HVÍTA sápanmeð
RAUBA bandinu
er þekt um alt land og
fæ3t í öllum verslunum.
Fæst hjá okkur í
helldsölu.
J?ór8ur Sveinwoa & Co.
leitt vel rituð og ber vott um mik-
inn og lofsverðan áhuga höfund-
anna, enda eru þeir báðir miklir
hestamenn, og annar þeirra (D.
D.) hefir lengi verið talinn einn
hinn snjallasti reiðmaður hér uin
slóðir.
Búast má við, að ekki ver'ði all-
ir á eitt sáttir um sum atriði bók-
arinnar, og væri þá vel, ef aðrir
gæti gefið betri leiðbeiningar, en
eg hygg að það muni ekki verða„
svo að neinu nemi. —
Bók þessi ætti að komast inn á
sem allra flest sveitaheimili lands-
ins, og víst er um það, að flestir
geta eitthvað af henni lært, og
engu síður þeir, sem haft hafa
mikið saman við hesta að sælda
alla ævi. — Gæti svo farið aíf
loknum lestri bókarinnar, að augu
nianna opnuðust fyrir því, að
hesturinn verðskuldar beti'a at-
læti og hetra fóður og yfirleitt
skynsamlegri meðferS og notkun,
en hann hefir löngum orðið aS,
sæta hjá okkur íslendingum.
Hestavinur.
I. O. O. F. 107724854.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reylcjavík 9 st., Vestm.-
eyjum 9, ísafirði 15, Akureyri 11,
Seyðisfirði 8, Grindavík 10, Stykk-
ishólmi 10, Grímsstöðum 7, Rauf-
arhöfn 9, Hólum í Hornafirði 8,
Þórshöfn í Færeyjum 11, Angmag-
salik (í gærkveldi) 12, Khöfn 22,
Utsire 18, Tynemouth 14, Leirvík
12, Jan Mayen 4 st. (Mestur hiti
i Rvík í gær 12 st., minstur 8).
Loftvægislægð (767) fyrir sunnan
Færeyjar. — Veðurspá: Austlæg
átt, hæg á Norðurlandi og Vest-
urlandi. Úrkoma sumstaðar á Suð-
urlandi og Austurlandi.
Miinchen,
þýska ferðamannaskipið, fór
héðan í nótt áleiðis norður i höf.
Margir feröamannanna fóru til
Þingvalla og annara staða í gær.
Gunnlaugur læknir Einarsson sá
um viðtökurnar á Þingvöllum, en.
þeir Guðbr. Jónsson og Halldór
Jónasson leiðlieindu fcrðamönnum.
Voru þeir hinir ánægðustu, enda
var veður gott í gær, og þvi feg-
urra, er lengur leið á daginn. KI.
3—4 var glímusýning á Austur-
velli og þótti hún vel takast. KL