Vísir - 07.10.1925, Síða 4
Mí'iSvikudaginn J. okt. 1925.
VÍSIR
„(Jóða frú Sigríður, hvernig ferð þú að búa til svona
góðar kökurí"
„Eg skal kcuna þér galdurinn, Óliif mín. Notaðu að-
eins Gerpúlver, Eggjapúlver 0g alla Dropa frá Efnagerð
Reykjavíkur, þá verða kökurnar svona fyrirtaks géðar“.
„Það fæst lijá öllum kaupmönnum, og eg bið altaf
um Gerpúlver frá Efnagerðinni eða Gerpúlverið með
telpumyndinni“.
Það er litlá, daglega skamtinnm að þakka.
K. F. U. M.
fundur í kvöld kl. 81/,.
Allir piltar 14—17 ára velkomnir.
Veggiúðnr
nýkomið.
; Verð frá 40 aurum ensk rúlla
Hvítnr maskínnpappir.
Hessian. Málningarvörur.
K.F.U.K.
Málarmn.
Bankastræti 7. Sími 1498.
Yapl idliii
Fyrsti fundurinn annað kvöld kl. 6
Mætið allarl
Stúlkur á aldrinum 12 — 16 ára
velkomnar.
Nýkomið:
ALKLÆÐI
Verð:
10.85, 13.65, 14.50
og 15.65 pr. meter.-
^ [gill ]iiik»ij
Fjárbyssnr
frá 10 krónum.
Fjárskot kal. 22
Einhleypur, [Tvihleypur
Högl og Púður
Öll skotfæri
i heildsölu og smásölu.
Hvergi ódýrari.
tsleifur Jónsson
Laugaveg 14.
Símar 1280 og 33 (heima)
Byrjið daginn rjett.
Gerið það sama sem hr. Kruschen og miljónir af hans
líkum.
Blandið litlum skamti af Kruschen salti í morgunteið
eða neytið þess í hálfu glasi af volgu vatni.
Munið, að það er þessi daglegi, litli skamtur, sem alt
veltur á.
Gerið ykkur ljóst, hvað Kruschen salt getur verið fyr-
ir yður.
Heilbrigði. Góð melting. Heilbrigð efnaskifting. Hraust
og hreint blóð. Heilar og styrkar taugar. Hvorki þreyta né
óstyrkur í taugum.
Kynnið ykkur hvers vegna maður á að neyta Krusch-
en salts. Byrjið með litlum skamti á fastandi maga daglega.
Kaupið 1 glas í dag og byrjið morgundaginn á réttan
hátt.
KRUSCHEN SALT
fæst í glösum (endast 100 daga) hjá lyfsölum og kaupmönnum.
Aðalumboð :
0. Johnson & Kaaber.
FÓRNFÚS ÁST.
a'ð þér gleymið að hugsa um hann sjálfur."
sagði Manúela. Og ef þér farið að þessu ráði
mínu, ætla eg að sjá um, að enginn annar
en þér komi þar til mála. Þér vitið, að eg er
vinkona Ester, og hefi talsverð áhrif á hana,
og Núnó neitar mér ekki um neitt. Þér eruð
einmitt tengdasonur, sem honum mundi líka.
Þér eruð greifi og laglegasti maður, en um-
fram alt: þér eruð Gyðingur. Ef þér viljið
láta mig ráða þessu máli til lykta, þá skal
það vera komið í kring eftir missiri."
Brucken var óþolinmóður. Hann stóð og
horfði tindrandi augum á Manúelu. „Eg elska
yður, Manúela. Eg hefi enga löngun til þess
að kvænast," sagði hann.
Hún hló við og mælti:
„Hver er að biðja yður að hætta að elska
mig? Ekki eg að minsta kosti. lYður er alveg
óhætt að kvænast, og þér megið reiða yður
á, að konan yðar getur alls ekki fengið yður
til þess að gleyma mér.“
Brucken maldaði í móinn, en lét þó undan
að lokum. Hann hafði komið til þess að troða
illsakar við Manúelu, en fór nú frá henni
þakklátur í huga. Hann fann, að hún hafði
borið hag hans og velferð fyrir brjósti. Þau
höfðu ráðið þessu öllu til lykta í mesta bróð-
erni.
Áður en vikan var liðin, hafði Brucken ver-
ið boðið heini til Núnós. — Núnó, sem hafði
ekki fremur vit á hestum, en blindur maður
á lit, hafði tapað stórfé á hestahaldi og veð-
reiðum. En frá þeim tímá er Brucken fór
að skifta sér af hestum hans, urðu þeir þjóð-
kunnir um land alt. í launa skyni fyrir þetta
bauð Núnó honum álitlega fjárhæð til þess, að
hann gæti byrjað á kauphallarbraski, og nú
þurfti Brucken ekki lengur að spila til að
lifa. Núnó réð honum öll ráðin, og Brucken
hepnaðist alt vel, sem hann tók sér. fyrir
hendur. Áðúr en árið var liðið, var Brucken
orðinn Núnó ómissandi vinur. Ester hafði
einnig tekið honum vinsamlega, einkum vegna
þess, að faðir hennar hrósaði honum í si-
fellu. En þo sýndist henni stundum bregða
fyrir hörku og fólsku í svip hans, sem henni
geðjaðist ekki að. Skyldi alúð hans einungis
vera uppgerð og látalæti? í augum hennar,
sem var einlæg og hrein í huga, var óhrein-
lyndi og fláttskapur versti löstur. En af því
að Brucken sýndi föður hennar ekkert slíkt,
hélt hún, að þetta væri að eins hugarburður
sinn, og lét hann njóta vináttu sinnar við
Manúelu.
En þegar hún varð vör við' þessi leynilegú
mök föður síns og Manúelu, fékk hún einnig
megnustu óbeit á Bruckeri. Úr þvi að Manú-
ela hafði brugðist henni, var ekki ólíklegt að
hann mundi reynast eins. Þó þótti henni þetta
ekki alveg réttmætt, því að hún hafði fulla
ástæðu til þess að ásaka Manúelu, en enga
sérstaka ásökun gegn Brucken. Það var ekk-
ert í fari hans, sem gaf átyllu til þess, að ætla
honum nokkuð ilt. Brucken hafði rent grun
í, hvað Ester bjó í brjósti, og sagði Manúelu
frá því, en hún taldi hug i hann, og sagðist
skyldi taka alt í sínar hendur. Hann óskaði
að verða tengdasonur Núnós, og hmi skyldi
ábyrgjast að það tækist.
Þegar Núnó var ekki áð fást viö fjármál- •
in, voru fáir menn, sem léttara var að draga
á tálar en hann. Eins hræðilegur og hann gat
verið á skrifstofu sinni, þar sem ýmsir gróða-
brallsmenn þyrptust að honum, eins meinlaús
og góður var hann heima fyrir hjá nánustu
vinum. Þessi maður, sem hiklaust kúgaði
hvern andstæðing í kauphöllinni og dró
menn þar á tálar án þess að láta sér bfegða,
var bæði góður og göfúgur á heimili sínu.
liann gaf vinum sínum og vinkonum dýrindis
gjafir. Hann hefði fúslega ausið stórfé í
Manúelu, ef hún hefði ekki látið sem hún