Vísir - 26.10.1925, Qupperneq 2
VÍSIR
Nýkominn
Lankur
Símskeyti
Khöfn 24. okt. (FB.
Hermdarverk Tyrkja í Mosul.
Ábyggilegar fregnir herma, aö
í hefndarskyni 'vi'ö Breta hafi
Tyrkir rænt 800 kristnum mönn-
um í Mosulhéruöum og strádrep-
ið flesta. Sumt af fólkinu var selt
í ánauö, konur svívirtar og seldar
200 eigendum kvennabúra.
Alþjóðabandalagið og Balkanmálin
Símað er frá London, aö Búlg-
aría hafi skoraö á Alþjóðabanda-
lagiö að skerast í leikinn. Fram-
kvæmdaráösfundur kemur saman
á mánudag. Grikkjum og Búlgur-
jum hefir verið boöið að senda
þangað fulltrúa.
Grikkir hætta árásum í bráð.
Símað er frá Aþenuborg, að
stjórnin hafi bannað hernum að
halda áfram árás sinni fyrst um
sinn.
Frá Balkan.
Símað er frá Berlín, að þýskir
fréttaritarar áliti ástandið suður
á Balkanskaga mjög ískyggilegt.
Ráðstjórnarsinnar handteknir.
Símáð er frá London, að yfir-
heyrsla sé byrjuð á 12 ráðstjórn-
arsinnum. Þeir eru handsamaðir
fyrir nokkru siðan. Rikisákær-
andi benti stjórninni á, að heim-
ilt væri að handsama hvern þann,
er útbreiðir kenningar kommún-
ismans.
Khöfn 26. okt. (FB.
yopnaviðskifti GrikkjaogBúlgara
Símað er frá Sofía, áð Grikkir
haldi samt sem áður áfram innrás
sinni. Þrjátíu þúsundir griskra
hermaqna eru innan landamaðra
Búlgaríu. Búlgarska stjórnin hefir
skipað her sinum svo fyrir, að
hann skuli hopa fyrir Grikkjum
fyrst um sinn. Þúsundir manna
flýja undan Grikkjum og leita hæl-
is inni í landinu.
Fellibylur verður 7000 manns
að bana.
Símaö er frá Konstantínópel, að
fe.llibylur hafi skollið á í Persa- ^
flóunum og hafi 7000 perlufiskar- 5
ar druknað á skamri stundu.
Chamberlain um Locarnofundinn. !
Simað er frá London, að Cham- {
berlain hafi sagt, að sú þjóð, er
geri tilraun til þess að eyða árangr-
inum af Locarnofundinum, verð-
skuldi fyrirlitning alls heimsins.
Mannfall Frakka í Marokkó.
Símað er frá París, að á 9 mán-
uðum hafi fallið í Marokkó yfir
2000 manns og særst meira en 1
8000. Á sama tima varð herkostn- j
aöur 1300 miljónir franka.
PRESERTENE
þvottaa'öferðin er óðum að ryðja sér til rúms viða um heim.
Þegar að er gætt, er það ekkert undrunarefni. Hversvegna
ættu konurnar að bogra yfir þvottabalanum í stað þess
að gera önnur heimilisverk meðan Preservene þvær þvott-
inn hjálparlaust. Það er mjög fábrotið. Skerið sápustykkið
í þunna spæni og látið x 25 til 35 litra af köldu vatni.
Látið hinn óhreina þvott í vatnið og sjóðið í 20 mínútur.
í venjulegan þvott eins heimilis þarf varla meira en ,$4
hluta af einu sápustykki, jafnvel ekki meira en hálft. Hér
um ræður að vísu mestu hversu mikill þvotturinn er. Þa'ð,
sem afgangs er af stykkinu, má nota við næsta þvott eða
til annara þarfa, því að Preservene hreinsar allrar sápu
best allskonar yfirfatnað, hanska, gólfteppi, húsgögn og
svo framvegis.
(Lesið nœstu auglýsingu).
gMSfeSaffiBsesgi
G.s. ÍBOTNIA
Farþegar til ntlanda sæki farseðla á morgnn.
C. Zimsen.
í) Bæjarfréttir
8cx=>o
□ EDDA 5925102777* —
Húsb.\ m.\
I. O. O. F. — H. — 107x0268. f
*
Yeðrið í morgun.
Hiti i Reykjavik 3 st., Vest-
mannaejrjum 6, ísafirði 0, Akur-
eyri 1, Seyðisfirði 5, Grindavik
2, Stykkishólmi 1, Grímsstöðum
-4- 2, Raufarhöfn 0, Hólum í
Hornafirði 4, pórshöfn í Fær-
eyjum 7, Angmagsalik (í gær)
-4- 2, Kaupmannahöfn 9, Utsirc
9, Tynemouth 10, Leirvík 10,
Jan Mayen 5 st. (Mestur hiti í
Rvik síðan kl. 8 i gærmorgun 5
st., minstur 2 st.). — Loftvægis-
lægð fyrir norðaustan land og
önnur djúp fyrir sunnan. Veður-
spá: Norðaustlæg átt. Úrkoma,
einkum á norðausturlandi.
Jónas Jónasson
lögregluþjónn er sjötugur í dag,
og færöu starfsbræður hans hon-
um göngustaf að gjöf, útskorinn
cg silfurbúinn. — Jónas er vel ern
enn og hefir þó ekki legið á liði
sínu um dagana, hefir verið iðju-
maður mikill og trúr i verkum
sínum.
Vísir
er sex siður í dag.
|
Ef Jínið viltu fannlivítt fá
og forðast strit við þvottinn,
þér sem fljotast fádu þá
FLIK-FLAK út í pottinn.
Sjómannakveðja,
send Vísi um pórsliöfn i Fær-
eyjum í moi’gun: Á leið til Eng-
lands, velliðan, kærar kveðjur
heim. Skipshöfnin Snorra goða.
Snorri goði
er á leið til Englands og ætlar
að selja afla sinn 30. þ. m. í Hull.
Stór loftsteinn.
Frá því er skýrt í tilkynningu
frá sendiherra Dana, að „Sökong-
en“ hafi komið frá Grænlandi til
Kaupmannahafnar 22. þ. m. og
haft innan borðs loftstein þann,
sem Knud Rasmussen hefir gefið
steinasafni Danmerkui\ Steinninn
vegur sjö smálestir og reyndist
atar örðugt að koma honum út í
skipið. Brátt kom það í ljós, þeg-
ar skipið var lagt af stað, að Ioft-
síeinninn ruglaöi áttavita skipsins
svo mjög, að sigla varð að mestu
eftir afstöðu himintungla.
Silfurbrúðkaupsdag
eiga á morgun frú Guðrún
Kristinsdóttir og Jafet Sigurðsson
skipstjóri, Bræðraborgarstíg 29.
Gengi erlendrar myntar.
Rvík i morgun.
Sterlingspund ........kr. 22.30
100 kr. danskar.......— 113.66
100 — sænskar ........— 123.43
100 —■ norskar........— 93-6o
Dollar................ — 4-6ijA
Esja
fór héðan í strandferð í gær.
Skallagrímur
kom frá Englandi
1 gær.
Villemoes
kom í gær með steinolíufarm
frá Englandi.
Nýkomið
fallegt úrval af
ensknm húfam.
l