Vísir - 05.11.1925, Blaðsíða 2
VtflR
LAUKUR
nýkommn.
Hið raarg eítirspurða át-
súkkulaði „KISSES“ frá
Hershey Chocolate Co. höf-
nm við fengið aftnr. —
JÓH. ÓLAFSSON & CO
f
ijiiiir u,aui,.0»„
fyrrum verslunarmaður á ísa- 1
firði, andaðist á heimili sínu hér
í bænum i gærmorgun, eftir
langa legu, 68 ára gamall. Hann
var kvæntur Jóhönnu systur i
J>orsteins ritstjóra Gíslasonar, 1
en bróðir Karls kaupmanns 01- )
geirssonar á ísafirði. — Ævi- j
atriða hans verður síðar minst.
--o—
Khöfn, 4. nóv. FB.
Painleve valtur í sessi.
Símað er frá París, að stjórn-
ardagar Painleve muni bráðum
taldir. Socialistar hafa ákveðið
að styðja hann ekki lengur,
vegna þess að flestir þeirra vilja
liætta við eða að minsta kosti
takmarka styrjöldina í Sýrlandi
og Marokko. 1 Marokkó er enn
barist.
Verkfall í Austurríki.
Simað er frá Vínarborg, að
helmingur austurrískra embætt-
ismanna hafi gert verkfall, að
undanteknum járnbrautar og
póstmönnum. Verkfallið á rót
sína að rekja til launaþrætna.
Öllum ráðuneytum lokað. Borg-
in er brauðlaus.
Harður vetur í Noregi.
Símað er frá Osló, að ákafleg
snjóþyngsli séu víða i landinu
og umferðateppa.
Trotsky hermálaráðherra.
Símað er frá Moskva, að gert
sé ráð fyrir því, að Trotsky verði
eftirmaður Frunze.
Utan af landi.
Vík í Mýrdal, 4. nóv. FB.
Skip strandar.
Aðfaranótt þriðjudags strand-
aði á Steinsmýrarfjöru á Meðal-
íandi þýskur togari, Hans von
Pritzbuer, frá Geestemunde. —
Skipverjar 14, björguðust allir.
Skipið talið að mestu í sjó.
8od=>o
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 3 st., Vest-
mannaeyjum 4. ísafirði 2, Akur-
eyri 1, Seyðisfirði 1, Grindavík
4, Stykkishólmi 2, Grímsstöðum
-f- 6, Raufarhöfn 0, pórshöfn í
Færeyjum 4, Angmagsalik (í
gær) 1, Kaupmannahöfn 8, Ut-
sire 6, Tynemouth 7, Leirvik 6,
Jan Mayen -i- 2 st. — Mestur
hiti í gær 8 st., minstur 3 st. —•
Loftvægislægð fyrir suxman
land. — Veðurspá: Austlæg átt
á Vesturlandi. Norðlæg átt á
Austurlandi. Fremur hægur.
pingmenn Árnesinga,
Magnús sýslumaður Torfason
og Jörundur Brynjólfsson, eru
staddir hér í bænum.
!
Hjartkær heilsun.
Jóhann Ólafsson & Co. fengu
nýlega bifreiðaparta frá Buick
Motor Company, Flint, Michig-
an, og utan á einum var miði
með þessari kveðju á íslensku:
„Hjartkær heilsun og allar bestu
óskir til allra á Fróni. Villi.“ —
pó að Vísir viti ekki deili á send-
anda, má ætla, að einhver les-
anda blaðsins geti giskað á hver
hann sé.
Skipafregnir.
Gullfoss var á Súgandafirði i
morgun.
Lagarfoss er á Hólmavík.
ViIIemoes fór frá Akureyri í
gær áleiðis til Austfjarða.
Esja var á Hólmavík í morg-
un.
Rask fer héðan kl. 5 í dag til
útlanda.
Botnia kom til Leith i gær-
morgun.
Island fór frá Leith í morgun,
beint iil Vestmannaeyja. Áætl-
unardagur hér á mánudag.
Verslunarmúél. Reykjavíkur
heldur fund annað lcveld kl.
8V2 í Kaupþingssalnum, sbr.
augl. í blaðinu i dag.
Dvölin hjá Schöller
verður leikin í kveld kl. 8 í
Iðnaðarmannahúsinu.
Hringurinn
lék í gærkveldi gamanleikinn
„Herra Pim fer hjá“, og þótti
góð skemtun. Verður leikinn
á föstudag og laugardag.
Af veiðum
kom Skúli fógeti í dag.
I
I
Kex og Kökur
Umboð:
Þórðnr Sveinsson & Go.
Ranði Krossinn.
i Námskeiðin fara fram í Lands-
> bankahúsinu, efstu hæð, herbergi
nr. 22,
Kensla í heímahjúkrun sjúkva
hefst fostudag 6. nóv. kl. 8 síðd.,
en í hjálp í viðiögum laugard.
7. nóv. kl 8 stðd.
Bæjarstjórnarfundur
verður haldinn í dag. Tuttugu
og eitt mál á dagskrá.
Gengi erl. myntar.
Rvík
Sterlingspund .
100 kr. danskar .
100 — sænskar .
100 — norskar .
Dollar.........
1
kr.
dag.
22.15
114.06
122.55
93.53
4.58y2
Til Hallgrímskirkju
í Saurbæ, afhent Vísi, 10 kr.
frá L.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Visi, 5 kr. frá stúlku, 2
kr. frá Línu, 10 kr. frá L, 5 kr.
frá konu, 5 kr. frá Huldu, 10 kr.
frá E. J.
Mínervufundarkveld
ekki fyrr en næsta fimtudag.
Mínervingar beðnir að muna
það.
Kappskákin.
í gærmorgun komu hingað
lcikir frá Norðmönnum á báð-
um borðum: Á borði I var 5.
leikur (sv.) d 7 — d 6. — Á
borði II var 5. leikur (hv.) B f 1
— e 2. FB.
Leiðrétting.
Misprentast hefir í hjúskap-
arfregn í blaðinu í fyrradag
föðurnafn brúðarinnar, Gíslínu
| Egilsdóttur (ekki Erlendsdótt-
ur).
Orgel
komu með Lyru.
Piano
koma með Islandi.
ÖIl okkar hljóðfæri eru
með fílabeinsnótum.
Ágætir borgunarskilmálar.
I
Skósmíðavmnustofan
Vesturgötu 18, áður vinnustofa
Finns Jónssonar, leysir fljótt og
vel af hendi allar skó- og
gúmmíaðgerðir. -Lægsta verð.
SIGURG. JÓNSSON.
K. F. U. M.
Aðaldeildar-ínndnr
i kvöld kl. 8l/a-
Upptaka nýrra meðlima.
AUir ungir menn velkomnir.
Nýkomin
LEIKFÖNG
í afar miklu úrvali.
ísiii laciisei.
1