Vísir - 08.03.1926, Síða 4
VlSIR
Hvers vegna
ekki grípa tækifærið, þegar það gefst. þér sparið alt að hálfvirði, ef þér kaupið yður gleraugu í Laugavegs Apóteki og
eruð vissir um að fá það besta sem kostiir er a. — Notið þetta lága verð. — Miklar birgðir af öllum nýjustu og bestu
gleraugum fyrirbggjandi. — Sólgleraugu mjög ödýr. — Ávalt mest trygging að versla i Apotekinu.
Langavegs Apotek, sjóntækjadeildin.
Trolle & Rothe hí. Rvík,
Elsta vátryggingarskrifstofa landsins.
Stofnuð 1910.
Annast vátryggingar gegn Sjó og brunatjóni með bestu
fáanlegu kjörum hjá ábyggilegum fyr»fa tiokks vá-
tryggingarfélögum,
Margar miljónir króna greiddar innlendum vátryggj-
endum í skaðabætar
Látið því að eins okkur annast allar yðar vátrygging-
ar, þá er yður áreiðanlega borgið.
Framköllun,
Kopíering,
ábyggilegust og ódýrust.
Sportvöruhiis Rvk.
(líinar Björnsson).
Símar: 105ö & 553. Bankastr.il
Jt
■,-mmsSxsíem£
\
iC
rnm |
1; k.izktÍ'iilluA,
FAKSIMILE U
l PAKKE
er langútbreiddasta
„L I N I M E N T“
i heimi, og þúsundir
manna reiða sig á það.
Hitarstrax og linarverki.
Er borið á án núnings.
Selt í öllum lyfjabúðum.
Nákvæmar notkunarregl-
ur fylgja hverri flösku.
L_
Dreagir
óskast til sendiferða, nú þegar.
Gísli & Kristmn.
Danskar kartöflur
á boðstólum. Ágæt tegund. -
Biðjið um tilboð.
H. P. RASMUSSEN,
Stövring, Danmark.
Múf uf og
Mattap*
Mikið úrval nýkomið.
VÖRDHÚSIÐ.
STOR N Y H E DI
Agentur tilbydes alle.
Mmdítl 50 kr. Fori]eneste daglig.
Energiske Personer ogsaa Damer i
*lle áitmfundsklasBer faar stor extra
Bifortieneste, hoi Provision og fast Lön
pr. Maaned ved Salg af en meget efter-
spurgt Artikel, som endog i disse daar-
ligo Tider er meget letsælge'ig. hkriv
straks, saa laar De Agentvilkaarene
gratis tilsnndte.
Bankfirmact S. Rondahl.
10 Drottninggatan 10,Stookholm,Sverige
150 bindi
sem kostuðu frá 5,50 til 11,50
seljast nú öll á3,50stk.
EGILL JACOBSEN
r
TAPAÐ-FUNDIÐ
1
Skolgrár foli, tveggja til
þriggja vetra, ógeltur, mark:
blaðstýft eða tvístýft framan
hægra, er í óskilum. Vitjist til
lögreglunnar. (170
Kvenmannsúr tapaðist siðast-
liðinri laugardag, frá Sunnu-
hvoli niður i bæ. Skilist á afgr.
Vísis. (165
Bninleit kápa, fóðruð með
gráskinni, tapaðist (fauk af bif-
reið) föstudaginn 5. þ. m. Finn-
andi skili til Björns Guðmunds-
sonar, bifreiðastjóra, Njálsgötu
56, sími 1312 eða á Vörubíla-
stöð Bej'kjavíkur, símar: 971 og
1971. (168
r
HUSNÆÐI
1
Góð tveggja til þriggja her-
bergja ibúð óskast 14. maí. Fyrir-
framgreiðsla yfir lengri tíma.
Þrent í heimili. TilboS auSkent:
„Húspláss“ sendist afgr. Vísis
fyrir 15. þ. m. (153
Barnlaus embættismannsekkj a
óskar eftir íbúS 14. maí n.k. Uppl.
gefur Vigfús Einarsson, Fjólugötu
5. Hittist í síma 304, kl. 10—12 og
1—4 daglega. (152
Einhleypur maður óskar eft-
ir berbergi um 2ja mán. tima.
Uppl. í síma 1292. (167
r
VINNA
I
Mann vantar þjónustu nú þegar.
Tilboð sendist Vísi auSkent „B.“
(157
Prjón er tekiS í Mjóstræti 4.
(154
Góð stúlka óskast, 1. apríl. —
Óvanálega góð kjör í boði. Uppl.
á Laugaveg 76. (169
Viðgerðarverkstæði, Rydels-
borg. — Komið með föt yðar í
kemiska hreinsun og pressun,
þá verðið þið ánægð. Laufásveg
25, simi 510. (166
Unglingsstúlka óskast i visi
nú þegar. Ilverfisgötu 32 B. —
(160'
Útgerðarmaður óskast. Uppl.
á Vitastíg 8, uppi. (159’-
Vanur trésmiður og skipa-
smiður óskar eftir atvinnu i vor.
A. v. á. (158
Stúlka óskast til morgun-
verka í Austurstr. 8, uppi. (144
Blómsturpottar, stórir og
sináir. Hannes Jónsson, Lauga-
veg 28. (161
Barnavagn til sölu á Nýlendu-
götu 12. (156
Kartöflur, poldnn 5 kr. Ódýr-
ar gulrófur. Tólg 1 kr. y2 kg.
Ódýrt smjör. Hannes Jónsson,
Laugaveg 28. (163
Til sölu nýtt píanó og lítið iioií'
aöur mahogni grammófónn (skáp-
grammófónn). GóSir greiSsluskil-
málar, Siguröur ÞórSarson. Sími
406. (155
Spaðkjöt í tunnum og lausri
vigt, afar ódýrt. Söltuð dilka-
læri. Rúllupylsur, kæfa, saltfisk-
ur, harðfiskur, lúðuriklingur. —
Hannes Jónsson, Laugaveg 28.
íslensk vara í íslenskri verslun.
(164
Verslunin Goðafoss, Laugaveg
5. Sími 436. Nýkomnar leSurvöu-
ur. Nýtt verS. Mikið úrval af
töskum, buddum og veskjum.
Ódýrast í borginni. (272
Sykur i heildsölu. Maismjöl,
Rúgmjöl, Hveiti, Haframjöl,
Hrísgrjón. Kaupið strax, verðið
liækkar bráðlega. Hannes Jóns-
son, Laugaveg 28. 162
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
KYNBLENDINGURINN.
unga náttúrunnar, eins og alt annað, sem gerði hana
frábrugðna kynþætti móðurinnar.
1 fyrstu hafði hann fundið til sárrar meðaumkvunar
0g jafnvel hrygðar, er hann komst að þvi, hvernig á-
statt var um föður hennar og Allunu. — En sú tilfinn-
ing dofnaði mjög, er hann varö þess vísari, að stúlkan
hafði enga hugmynd um, að það gerði nokkuð til. —
Hann hafði reynt að komast að því á ýmsa vegu, með
lipurð og gætni, og varð þess fullkomlega var,' að hún
taldi það öldungis meinlaust, og leit á það sem algenga
og sjálfsagða venju. — Hún virtist ekki heldur hafa neitt
hugboð um það, að ætternið mundi skipa henni óæðri
sess meðal kvenna en fegurð hennar og gáfur verðskuld-
uðu. — Hún þreyttist áldrei á því, að spyrja liðsfor-
ingjann um systur hans, en það tal þótti honum gott
og lék þá á als oddi.
Henni íanst hver dagurinn öðrum betri og skemti-
legri. Hún var eins og ung og fögur skógar-jurt, sem
blómgast í fyrstu geislum morgunsólarinnar. —• Hún
sagði honum einum frá barnslegum draumum sínum og
vonum, sagði honum alt í fullu trúnaðartrausti. Og hún
hafði aldrei sagt neinum allan hug sinn fyr.
Þannig leið mánaðartími, og þá kom Runnion aftur.
— Hann kom á gufubátnum neðan að. Og báturinn
nam staðar, eins og til þess að blása mæðinni eftir þús-
und mílna skeiðið neðan fljótið, og safna kröfturii á
ný í næstu glímu við strauminn. — Runnion stóð á
þilfarinu, ófeiminn og hnakkakertur, og starði á þorpið.
— Hann hafði horft á það hverfa mánuðr áður, og
hann brosti nú álíka mannvonskulega eins og hann hafði
gert þá. — Þegar báturinn var lagstur við akkeri, hypj-
aði hann sig á land og labbaði i hægðum sínum til
liðsforingjans, sem stóð þar á bakkanum. — Liðsforing-
inn veitti því athygli, að örið á höfði mannsins, rétt
undir hattbarðinu, var tæplega gróið. — Hann ávarpaði
Burrell með þjósti: „Jæja, lagsmaður, þá er eg kominn
aftur, eins og þér sjáið. Eg ætla að setjast að hér, eins
og eg sagði yður síðast.“
„Einmitt það ! — Hafið þér nauðsynlegan varning með
yður?“ — Liðsforinginn mælti þessi orð kurteislega,
þó að honum geðjaðist illa að manninum og þættist þess
fullvís, að af návist hans mundu hljótast vandræði.
„Já, og eg á gildan sjóð að auki,“ sagði Runnion og
skók vænan gullpoka framan í liðsforingjann. —•’ „Eg
býst við, að geta með hægu móti haft nokkuð margar
kringlóttar handa í milli framvegis, ef eg fæ að vera
hér óáreyttur.“
„Hvert er erindi yðar hingað ?“ spurði liðsforinginn
með hæglátri ýtni.
„Yður varSar andskotann ekkert um þaS!“ sagði Run-
nion og hló.
„Gætið þess, aö það reynist svo,“ mælti Burrell ónota-
lega. — „Ekki mín vegna samt, því að eg vildi gjarn-
an að eg hefði ástæðu til að taka duglega í lurginn á
yður.“
„Það er ágætt að viS skiljum hvor annan,“ sagöi Run-
nion. Þvi næst sneri hann sér viS, til þess að líta eítir
farangri sínum, sem nú var verið að skipa á land. —••
Ókunnur maður stóð á þilfarinu, og tók Runnion hann
tali. Virtist bersýnilegt, að sá maður hefði hönd í bagga
með honum, því að hann gaf Runnion fyrirskipanir, og
rak á eftir mönnum þeim, sem voru að fást við varn-
ing hans. — Meade Burrell leit svo á, sem þarna væri
nýkominn kvikfætlingur, sem hefði leigt bófann til Jess
að leita að gulli þar uppi í ásunum. — En er þeir gengu
fram hjá honum, skömmu síðar, varð hann við það að
kannast með sjálfum sér,að þessi hugarburður mundi
ekki réttur. — Þessi maður var ekki kvikfætlingur, frem-
ur en Runnion sjálfur. Það leyndi sér ekki á framko'mu
hans og látbragði, að hann væri vanur frumbýlingalíf-
inu og hefði átt útigangs-ævi alla tíð. Liðsforingjanum
fanst eitthvað ruddalegt og hrædýrslegt við manninn. —
Nefið var hvast, göngulagið eins og hjá rándýrj, sem leit-
ar að bráð. — Og er hann gekk fram hjá, sá Burrell
að augnaráðið var ægilega grimt. Maður þessi var miklu