Vísir - 04.05.1926, Side 2
VlSIB
✓
Böfnm fyrlrllflgjandf
Hœnsnafóður.
Heill Maia,
blandað HœnanafóðiW,
Frit fóður og
Hveitiklíð,
gem þráft fyrir aliar nýungar á þessu sviði ,er það besta handa
hænsnunum og gefur bestan órangur.
KoUverkiallið.
Bréf það, sem hér fer á eftir, hefir
forsætisráðherra borist frá ræðis-
manni Breta hér í bænum, herra
Ásgeiri Sigurðssyni, og hefir Vísi
verið leyft að birta það: —
„Hér með leyfi eg mér að til-
kynna yður, hæstvirti herra for-
sætisráðherra, að breska stjórnin
símar mér, að sökum kolaverk-
fallsins, er nú stendur yfir, hafi
hún séð sig nauðbeygða til að taka
i sínar hendur allar kolabirgðir i
Stóra-Bretlandi. Ennfremur getur
&tjórniu þess, að jAr sem litlar
birgðir af skipakolum, (btinker-
kol), séu fyrirliggjandi í breskum
höfnum, og ekkert útlit til þess
að atika þær, muni verða ómögu-
legt að láta af hendi „bunker“-
kol til annara skipa en þeirra, sem
starfa að verki, sem nauðsynlegt
er hagsmunum þjóðarinnar.
Eg leyfi mér að benda yður á,
hve afar alvarlegt það ástand er,
sem Stóra-Bretland hefir við að
stríða, en að alt muni verða gert,
sem unt er, til þess að bæta úr
þessum vandræðum. Þó mun ekki
vera hægt að komast hjá því, að
erlendar siglingar verði fyrir töf-
um og óþægindum.
Ennfremur ber mér að tilkynna
yður, að breska stjómin vonar, að
þær ráðstafanir, sem hún hefir
r.eyðst til að gera, orsaki ekki að
breskum skipum, sem hingað
kynnu að koma, verði synjaö um
,,bunker“-kol.“ ,
Símskeyti
Khöfn 4. mat. FB.
Frá breska verkfallinu.
Alt friðsamlegt enn. - Bresk blöð
hætta að koma út.
Símað er frá London, að verka-
menn segi, að þeir heyi baráttu
sína til þess að stöðva og koma í
veg fyrir þrældóm. En stjórnin
segir, að athafnir hennar grund-
vallist á því, að frelsi þjóðarinnar
sé í voða statt. Verkamenn hindra
ekki heilbrigðisráðstafanir, svo
sem sjúkrahjúkrun, mjólkurflutn-
inga og þess háttar, en kveðast
ábyrgðarlausir, þó að alt stöðvist,
ef stjórnin noti verkfallsbrjóta.
Enn hafa engin friðarspjöll orðið,
uema að slagur varð milli komm-
únista og fascista-sinna og var or-
sök slagsins í sambandi við stöðv-
JARÐYRKJUVERKFÆRI
og GIRÐINGARVÖRUR:
Stunguskóflur 20% undirlægsta
verði annura, Ofanafristuspað-
ar, Gafflar, Gaxðkönnur, Garð-
hrífur, Gaddavír, Girðinganet
og þar til heyrandi Kengir um
35% ódýrara en lægst annars-
ataðar.
Verslun
B. H. Bjarnason.
un blaðsins Daily Mail. Prentarar
heimtuðu breytingu á grein and-
stæðri verkamönnum, en ritstjóm-
in kvað net við þeirri kröfu. öll
blöð stöðvast S kveld, en stjóraar-
blað birtist á morgun. Liverpool
Street Station og Hyde Park eru
matvæl amiðstöð var.
Fr* Alþingi
í gser.
—o-
Efri deild.
Þar voru 6 mál á dagskrá.
1. Frv. til L um breyting á lög-
um nr. 55 1913, tim stofnun Land-
•helgissjóðs íslands, og á lögum
um breytingu á þeim lögum, nr.
68, 1915, var samþ. til 3. umræðu.
2. Frv. til I. um viðauka við
lög nr. 5, frá r8. maí 1920, um
bann gegn botnvörpuveiðum, sam-
þykt til 2. mnræðu, og. urðu litlar
umræður um bæði þessi inál.
Þá vom þrjú frv. samþ. um-
ræðulaust til 2. umr. og send til
nefnda. Frv. til 1. um verðtoll á
nokkrum vörum og Frv. til L um
breyting á lögum nr. 38, 27. júní
1921, um vörutoll, vom bæði send
til fjárhagsnefndar, en Frv. um
almannafriðun á helgidögum þjóð-
kirkjunnar, var sent til allsherjar-
nefndar.
6. Um tffl. til þál. um hús-
•maeðraskóla að Hallonnsstað (flm.
Jónas Jónsson) var ákveðin síðar
ein umræða.
Neðri deild.
x. Þar vom upphaflega 7 mál
á dagskrá, en í byrjun fundarins
var gengið til atkvæða um kröfu,
sem fram hafði komið á síðasta
fundi (á laugardag) frá nokkrum
þingm., sem kröfðust, samkvæmt
ákvæðum þingskapaj að t^kið yrði
á dagskrá, að undangenginni at-
kvgr. um þessa kröfu, Frv. til L
um stöðvun á verðgildi ísl. pen-
inga; var krafan tekin til greina
með 16 samhlj. atkv., og frv. þeg-
ar tekið fyrir til X. umræðu og
síðan samþykt umræðulaust til 2.
umræðu.
Hlaðnar patrónur
frá Eley fl. teg. nr. 12 & 16, ný-
komnar. Verðið er lægra en það
sem þekst hefrr síðan fyrir stríð-
ið mikla.
Verelun
B. H. Bjarnanon.
2. Þá var Till. til þáL um
rýrnkun landhelginnax samþykt til
síðari tunræður, ineð 22 samhlj.
atkvæðum.
3. Frv. til L um ríkifiborgara-
rétt, hvemig menn fá hann og
rnissa, var samþ. og endursent til
4. Þá var tekið fyrir Frv. tfl
laga um Landsbanka íslands, sem
raunar var 1. málið á dagskránni,
þó hlaupið hefði verið yfir það
í fyrstu; var það framhald 2. umr.,
sem frestað hafði verið á laugar-
daginn, og stóð sú innræða til
kvölds. Var frv. síðan samþ, til
3. umræðu.
5. Um tffl. til þál. um greíðslu
á slysatryggingariðgjaldl skip-
verja, er taka hlut af afla eða
htmdraðsgjald (flm. J. A. J.), var
ákveðin síðar ein umxæða. Efnj
þessarar tillögu er, að iðgjaldið
„verði nú og eftirleiðis greitt af
óskiftum afla skipa og báta“.
Þrjú mál, sem eftir voru á dag-
skrá, vora tekin út og umr. frest-
að. (Frv. um lærða skólami og
síldarfrv. — bæði).
Utan af landi.
m Akureyri 3. maí. FB.
Útgerðarmannafélag Akureyrar
samþykti á fundi i gær svohljóð-
andi tillagu með ölliun greiddum
atkvæðum
„Útgerðannannafélag Akureyr-
ar er þakklátt sjávarútvegsnefnd
neðri deildar Alþingis fyrir til-
raunir hennar til umbóta á síldar-
sölu, en þó lítur félagið svo á, að
tillögur nefndarinnar samkvæmt
friunvarpinu, stofni síldarsölumál-
um vorum í tvísýnu. Aftur á móti
telur útgerðarmannafélagið, að ef
hindruð væri söltun á síld fyrir
25. júlí ár hvert, útilokuð sala
Norðmanna á síld til söltunar og
kryddunar í landi og skerpt eftir-
lit með ólöglegri veiði útlendinga,
yrði það til stórra bóta og skorar
á AJþingi að vinna að því.“
Andsvai*.
—X—
I blaðinu „Vísir" hafa upp á
síðkastið tveir síldarútgerðarmenn
vaðið elginn um stjórn og fyrir-
komulag síldarfyrirtækja hér á
landi, um útsvör o. fl.
Annar þessara manna er óskar
Halldórsson. Skrif hans um einka-
sölu og síldarverksmiðjur leiði eg
hjá mér að svara, enda þótt þar
kenni hins herfilegasta misskiln-
ings. Hina einhliða og ósanngjörau
frásögn hans um útsvarsálagningu
á Siglufirði vil eg athuga. Um-
mæli hans um það atriði era á
þessa leiö: ,
„Auk útflutrdngsgjalds heflr
Siglfirðingum þóknast að leggja
svo gífurleg útvör á alla, sem hnfa
haft þar starfrækslu í landi, að
slíks munu hvergí dæmi á bygðu
bólL Ennfremur leggja þeir út-
svör á öll íslensk skip, sem landa
þar síld, og það svo hart og ó-
sanngjamt, að hvergi þekkist axm-
að eins. Só er þó gallinn á þessari
útsvaxs-pólitík Sigifirðinga, að
þeir hafa til skamms tíma „gleymt"
a<5 leggja útsvör á norsk skip, sem
hafa landað þar sfld sumar eftir
sumar."
Að útsvör séu svo gífurleg hér
á starfrækslu í landi, eru tilhæfu-
laus ósannindL ■— Það er auk þesa
alkunna, að verið er að nxagna
þann tilhæfulausa róg, að utan-
sveitamienn, er hér reka atvinnu,
verði harðara úfi en innansveitar-
menn. Eg, sem hefi um nokkurt
skeið verið formaður niðurjöfnun-
amefndar hér í bæ, velt, að slíkt
er með öllu tilhæfulaust. Niður-
jcfnunamefnd hefir einmitt kostað
kapps um að gæta fyllsta sam-
ræmis í þeim efnum.
Auðvitað getur það komið fyrir
að útsvar utansveitarmanns þyki
of hátt, eins og það getur komið
fyrir sama ár, að útsvar annars
utansveitarmanns sé of lágt eða
ínnansvertarmanns • of liátt_ AS
slíkt geti komið fyrir, sannar ekk-
crt, einkum er atvinnurekendur
gera jafn lítið að því og hér á
Siglufirði, að gefa niðurjöfnunar-
nefnd upplýsingar um atvinnu-
rekstur si^yn. Hér við bætist, að
síldaratvinnureksturinn getur sarna
árið verið hjá einum svo uppgripa-
mikill og gefið stórgróða, en hjá
öðrum stórtap, já, jafnvel svo, að
þess eru mörg dæmi, að af tveim
atvinntirekendum, sem hafa svip-
aðan atvinnurekstur að stærð og
timfangi, getur annar stórgrætt, en
hinn tapað, og mest af þessu tapi
t. d. ekki komið fram fyr en eftir
að niðurjöfnun hefir átt sér stað.
Auðvitað tekur hver sanngjöm
r.iðurj öfnunamefnd tiliit til slíks
taps næst, er hún jafnar niður út-
svari á þann gjaldanda.
Útsvör á íslensk síldveiðaskip
hafa verið mjög lág. Vora t d.
9. 1. sumar 10 aurar hámark á
veidda'síldartunnu, og fjölda skipa
sem litla veiði fengu, var alveg
slept við að greiða hér útsvar. Að
norskum skipum sé slept við út-
svar, era svo mikil ósannindi, að
'•art mun hægt að finna eitt ein-
asta norskt skip, sem selt hefir
rér síld í land, að það hafi sloppið
við útsvar. — Þetta atriði gæti þó
óskar vitað um, og hefði átt að
vita, og em þessar frásagnir ljóst
dsemi þess, hve lítið er hægt að
byggja á ummælum hans og til-
lögum í þessum málurn.
Ef til vill hafa ummæli hans
um norsku skipin átt að vera
lcryddaðar dylgjur um að Siglfirð-
ingar væm svo miklar tmdirlægj-
ur Norðmanna, eins og hvíslað var
um þingsali fyrir nokkmm árum,
er stóð til um kaup á kaupstaðar-
lóðinni hér, handa bænum, og það
svo, að meiri hluti þingsins trúði
]æim tilhæfulausa þvætting. Sann-
leikurinn er sá, að Siglfirðingar
vilja ekki að Siglufjörður sé eða
verði verstöð Reykjavíkur, en allra
síst viljum vér auka ítök útlend-
inga hér, enda höfum vér á síð-
ustu 5 árum keypt 2 stórar síldar-
stöðvar af útjendingum, og hefði
Alþingi borið giftu til aö sam-
þykkja fmmvarp frá bæjarstjórn-
inni hér, um forkaupsrétt hafnar-
Nýkomið I FfUabúðimu
Mikið úrval af ljómandi
fallegum karlmanna- og
drengjafötum ogyfirfrökk-
jum, jxeyeum, vestum, sokk-
um, regnkápum, treflum
o. fl. Hvergi eixis ódýrt i
borginni.
Appelsínurnar
margþráða komnar aftur.
Landstjarnan.
sióðs að síldarstöðvum, sem liggýa
að Siglufjarðarhöfn, vestan fjarS-
ar, væri hér engin útlend síldar-
stöð nú. —
Siglufirði, 23. april 1926.
ólafur H. Jensson.
□ EDDA 6926566*/* s== 2
(fiaiiud)
Jaxðarfarir.
Jarðarför Jakobs sáluga Jón»-
sonar verslunarstjöra fer frniu
á morgun.
Jarðarför Gísla sáluga Jón»-
sonar fer fram frá dómkirkj-
unni á morgun (en ekki frá frL
ldrlcjunni, eins og ráðgert var,
ineð því að verið er að setja upp
hið nýja orgel kirkjunnar).
Veðrið í morgun.
Hiti i Reykjavík 6 st., Vesl^
mannaeyjum 7, ísafirði 4, Akur-
eyri 5, .Seyðisfirði 2, Grindavík 7,
Stykkishólmi 3, Grímsstöðum -t-
1, Raufarhöfn hiti 2, Hólum í
Homafirði 4, Þórshöfn i Færeyj-
tmi 3, Angmagsalik 4, Kaup-
mannahöfn 8, Utsira 7, Tyno-
mouth 7, Leirvík 6, Jan Mayen -7-
3 st. Mestur hiti hér í gær 12 st.(
minstur 3 st. Loftvægishæð (777)
við Norðurland. Horfur: I dag:
Hseg norðan átt á Austurlandí.
Logn eða hafgola annarsstaðar. —•
Skúrir á Suðurlandi og til fjalla á
suðvesturlandi. Úrkomulaust ann-
arsstaðar. í nótt: Breytileg
vindstaða, hægur, sennilega þoka
á sumum stöðum fyrir Norður-
landi og AusturlandL
Landafræði og ást,
eftir Björnstjerne Björnson TSfcr
leikið í gærkveldi og skemtn
áheyrendur sér mjög vel.
Söngskemtun
Sigurðar E. Markan fórst fyrtr
siðastliðinn sunnudag.
Lyra
kom i nótt frá Noregi. A meðal
farþega voni: Einar Benediktá-
son, Bjöm ólafsson, Pétur A. Ól-
afsson, Jónatan Þorsteinsson og
frú hans, Lúðvíg Lárusson og frú
hans, Ingvar ólaísson og frú hans,
Funk, Johs. Fönss o. fl.