Vísir - 07.05.1926, Síða 2
visrn
Nýkomnar
danskar kartöflnr.
Jaffa sppehínur
og ranðu eplin.
Landitjarnan.
Símskeyti
Khöfn 7. maí. FB.
Kolavepkfallid.
Harmöniknr
verða aeldar með
15% afslætti
tii
laugardagskvölds.
Hljóðiærahösið.
óeirðir magnast.
SímaS er frá London: Uppþot
víSa og sporvögnum og fólks-
flutningabifreiSum velt um. Þrír
lögreglubílar brendir. Óeirðirnar
alsta'ðar alvarlegar. Mestar óeirðir
hafa verið í Newcastle. Lögbrjót-
ar báru hærri hlut stundunum
saman í götubardögum. Lögreglan
vann að lokum sigur. Fjöldi kaf-
báta á fljótinu og varalið komið
í borgina.
Ávarp frá stjóminni.
Stjómin hefir birt ávarp i The
British Gazette og segir í því, að
verkfallið hafi lamað þjóðina stór-
um. Viðurkennir stjórnin, að
verkamannaforingjamir hafi ekki
viljað þjóðaróhamingju, en kveð-
ur þá þróttlausa gegn ofstækis-
mönnum. Miðlunarmál nú ómögu-
leg og jafnvel stór hættuleg. Ann-
aðhvort drepi verkfallið landið
eða landið verkfallið.
Sjálfboðaliðar ganga í lögreglu-
Kðið.
Sjálfboðaliðar, 15.000 að tölu;
gengu i varalögregluna í London
í gær, en 40.000 buðu sig fram til
verklegra framkvæmda.
Blaðasala.
Parísarútgáfa Daily Mail seld á
götunum í London í gær síðdegis
og nokkur hlöss af fréttablöðum
utan af landsbygðinni voru seld í
London í gær síðdegis. Fólkið
er mjög sólgið í blöð. öll hótel
full af aðkomufólki, flestu inn-
lendu. Átta leikhús loka i kveld.
Miðlunartillaga frá LloydGeorge?
Orðrómur leikur á um, að Lloyd
George geri miðlunartilraun sið-
degis í dag.
Barnaskór
nýkomnir.
Verðið afar Iágf.
Hmubergsbræðnr.
Frá Alþingi
í gær.
—O*4
Efri deild.
Þessi mál voru rædd:
1. Frv. til L um fræðslu barna;
við það höfðu verið samþyktar
nokkurar breytingartillögur, Og
var frv. síðan endursent til neðri
deildar.
2;—3. Frv. til fjáraukalaga fyx-
ir árið 1924 og Frv. til laga um
samþykt á landsreikningnum 1924
vorti bæði samþ. tii 3. umr.
4. Um Till. til þingsályktunar
um rýmktm landhelginnar voru
ákveðnar siðar tvær umræður.
5. Frv. til laga um kosningar I
málefnum sveita og kaupstaða var
samþykt með nokkurum smá-
breytingum og endursent til neðri
tíeildar.
6. Frv. til laga um breyting á
lögum nr. 40, 20. júní 1923, um
skemtanaskatt og þjóðleikhús var
samþ. til 2. umr. og allsborjar-
nefndar.
7. Till. til þingsályktunar um
húsmæðraskóla að Hallormsstað.
(Flutningsmaður Jónas Jónsson).
Tillagan var send til mentamála-
nefndar, en umræðunui um liana
frestað.
Neðri deild.
Þar voru einnig J mál á dag-
skrá.
1. Frv. til laga um stöðvun á
verðgildi íslenskra peninga (2.
umræða). Umræður um þetta mál
urðu miklar og urðu eigi stöðvað-
ar fyrr en laust eftir miðnætti, og
var þá gengið til atkvæða um frv.
Var fyrst borin upp rökstudd dag-
skrá, sem borist hafði forseta frá
meiri hluta fjárhagsnefndar þess
efnis, að vísa máli þessu til stjóm-
arinnar með þeim ummælum, að
núverandi gengi yrði haldið föstu
til næsta þings. Dagskrá þessi var
feld með nafnakalli með 15: 12 at-
kvæðum og frv. siðan samþykt til
3. umr. með nokkurum smábreyt-
ingum frá minni hluta fjárhags-
nefndar meö 15:12 atkv.
2. Frv. til laga um breyting á
lögum nr. 88, 14. nóv. 1917, um
notkun bifreiða var umræðulaust
samþykt og afgreitt til stjómar-
innar sem lög frá AlþingL
3. Frv. til laga um skipströnd
og vogrek var samþykt og af-
greitt til efri deildar.
4. Um TilL til þingsályktunar
um skipun nefndar til að semja
írv. um almennar sjúkratrygging-
ar, (flutningsmaður Jón Baldvins-
son), voru ákveðnar síðar tvær
umræður.
Þrjú mál vom tekin út af dag-
skrá og umræðum um þau frest-
að, þar á meðal var frv. um Lands-
banda íslands (3. umr.).
í dag fer fram í neðri deild ein
umræða um Frv. til fjárlaga fyrir
1927, eftir komu þess úr efri deild.
frá bæjarstjörDirfuoili
í gær.
—x—
Bamaskólinn nýi Lagður var
fram og samþyktur upjKÍráttur að
skólanum eftir Sigurð Guðmunds-
son húsameistara ásamt lýsingu á
skólahúsinu og umhverfi þess. I
skólanum eiga að vera 20 skóla-
stofur (30 börn í hverri), teikni-
salur, söngsalur, myndasalur
(bíó) með 130—140 sætum á hall-
andi gólfi, matsalur (til matgjafa)
og skólaeldhús, náttúmfræðissal-
ur, baðstofa og sundlaug, auk
margvíslegra þæginda, bæði fyrir
börn og kennara. Skólann á að
hita upp með heitu vatni úr laug-
unum.
Skólanefnd ætlast til að bygg-
ingunni sé hraðað svo, að skólinn
verði tekinn til notkunar haustið
1927. Kosin var fimm manna
nefnd til að annast um íram-
kvæmd byggingarinnar: Borgar-
stjóri, Pétu* Halldórsson, Hall-
björn Halldórsson, Guðm. Ás-
björnsson og Ólafur Friðriksson.
Hestamannafél. Fákur óskaði
eftir að fá Geldinganes og land
innan Kleppsgirðingar á leigu eins
og síðastliðið sumar, og var það
samþykt með þeirri breytingu, að
félaginu var heimilað beitarland í
Sogamýri en ekki innan Klepps-
girðingarinnar.
Sumarbústað vill Sturla Jóns-
son kaupm. fá að reisa vestan til
við Elliðaár. Samþykt var að
leigja honum landspildu þar til 10
ára og borgarstjóra falið að gera
leigusamning.
Bamahælið. Samkomulag hefir
nú orðið milli fjárhagsnefndar og
stjómar Thorvaldsensfélagsins um
hina rausnarlegu gjöf félagsins,
50 þús. kr., til stofnunar bama-
hælis hér í bænum, á þá leið, að
1. gr. skilyrða í gjafabréfinu
breytist svo, að innan 5 ára verði
byrjað á byggingu hælisins, nema
öðru vísi semjist milli stjómar
1 horvaldsensfél. og Barnauppeld-
issjóðsins.
Nýtt bíó sækir Lárus Jóhannes-
son hrm. um að fá að starfrækja.
Segist hann hafa nægilegt fjár-
magn og ágæt sambönd um kvik-
myndir á reiðum hönduin. Málinu
var vísað til bæjarlaganefndar til
athugunar.
Akurgerði samþykti bæjarstjórn
að kaupa fyrir 5000 kr. samkv. til-
lögu fjárhagsnefndar. Eign þessi
er keypt til þess að koma á heppi-
legu skipulagi við Hringliraut og
fyrirhugaðar götur á Sólvöllum.
Bæjarfréttir |
Veðrið í morgun.
Hiti um land alt. í Reykjavík
5 st., Vestmannaeyjum 7, ísafirði
4, Akureyri 5, Seyðisfirði 3,
Grindavík 9, Stykkishólmi 5,
Grímsstöðum 1, Raufarhöfn 3,
Hólum í Hornafii'ði 5, Þórshöfu í
Færeyjum 3, Angmagsalik 9,
Kaupmannahöfn 6, Utsire 3,Tyne-
mouth 7, Leirvík 3, Jan Mayen o
st. — Mestur hiti í Reykjavík síð-
an kl. 8 í gærmorgun 11 st., minst-
ur 2 st. — Loftvægishæð (767)
við norðvesturland. — Horfur:
í dag: Hæg vestanátt á Vestur-
landi, logn annarsstaðar. Þoka og
úrkoma framan af á norðaustur-
landi og Austurlandi. Sennilega
Jjurt vebur fram undir kveld á
Vesturlandi. Þurt á Suðurlandi.
í n ó 11: Sennilega fremur hæg-
ur útsunnan á Vesturlandi. Logn
á Austurlandi. Ef til vill úrkoma
á Vesturlandi.
Bamavinafélagið Snmargjöf
heldur fjölbreytta skemtun í
Nýja Bíó annað kveld kl. 7%. Sjá
augl.
Hamingjuleiðin
heitir bók eítir O. Swett Mar-
den, sem nýlega er komin út á ís-
lensku. Þýtt hefir Árni Ólafsson.
— Fjöldi manna hefir miklar
mætur á bókum Swett Mardens
og sumir taka hann fram yfir
flesta rithöfunda aðra.
Landsbókasafnið.
Vísir hefir verið beðinn að
minna menn á að skila bókum,
sein þeir hafa að láni af Lands-
bókasafninu. Bókunum skal skila
fyrir 14. þ. m.
Maður hverfur.
Færeyskur maður af fiskiskipi
hvarf héðan í fyrradag. Ilann sást
í gær skamt frá Vatnsenda, og
hefir síðan víða verið leitað, en
ekki fundist. Maðurinn er talinn
geggjaður.
Hljómsveit Reykjavíkur
hefir aðalæfingu í kveld kl. 7%
í Nýja Bíó. Karlakór Reykjavik-
ur aðstoðar.
Silfurbrúðkaup
eiga á laugardaginn 8. maí, frú
Þórunn Sveinsdóttir og Þórður
Magnússon, Vesturgötu 10.
St. Æskan.
Fjörutíu ára afmæli unglinga-
reglunnar hér á landi verður há-
tíðlegt haldið á simntidaginn (9.
þ. m.). Sjá augl.
Þeir
af meðtímuni jarðræktarfélags-
ins, sem ætla sór að fá smálén
hjá félaginu til áburðarkaupa &
þessu vori, geri gjaldkera fé-
lagsins, Pétri Hjaltested á
Sunnuhvoli aðvart næstu daga.
StJómin.
Smjðr
Ísíenskt smjör nýtt, í 1 og 2
kg. stykkjum, á kr. 2.00 pr.
kg., kartöflur danskar, nýkonui-
ar, ódýrastar og bestar í
VON og Brekkustíg 1.
Útflutningur
íslenskra afurða í aprílmánntfe
nam í ísl. kr. 1.803.010,00, en allur
útflutningur síðan 1. janúar þ. á.
hefir numið í ísl. kr. 12.927.810,00.
en það er í gullkrónum: 10.558.-
000,00. Á s&tna tíma í fyrra nam -
útflutningur í ísl. kr. 17.349.818,00,
en í gullkrónum: 11.943.741,00.
Kolabirgðir
eru miklar hér í bænum og
munu endast langt fram á sumar,
þó að ekkert bætist við.
Af veiðum
komu í nótt: Hilmir og Menja.
Skipafregnir.
E s j a kom til Hvainmstangs
í morgun.
Lagarfoss fer héðan tii
Hafnarfjarðar í dag, en þaðan í
kveld áleiðis til Þýskalands.
Um járnbraut á íslandi
ritar dr. Valtýr Guðmundsson í
„Skandinavisk Handelsblad" 1.
apríl Jæssa árs. Segir hann þar
ágrip af sögu málsins og skýrir
frá áætlunum verkfræðinga. í þvf
sambandi segir liann:
„Reyndar er stórmerkilegt að
sjá, hversu langtum ódýrara er að
leggja jámbraut á íslandi en í
Noregi. Á þeim brautum, sem
lagðar voru í Noregi árin 1908—
1922, kostaði hver kílómeter tii
jafnaðar rúmar 400 Jnisundir
króna, og í áætlun um 3500 kiló-
metra brautir, sem nú á að leggja,
er kostnaður á hvem kílómeter
áætlaður 360.000 krónur. En á Is-
landi er hver kílómeter á fyrir-
hugaðri braut áætlaður að kosta’
eintmgis 87.000 krónur."
G. E.