Vísir - 04.08.1926, Síða 3
HlSIR
tim: — Þi'8, sem öllu hæli'8, hva’8
ætli'S þiS a'S segja nú?------Segja
eins og er, —• svaraði eg — og
sannleikurinn er sá, aö vér höfum
íengiS að heyra margt gott síöari
: árin, sem hefir glætt vora upprenn-
andi söngment, og ungírú Gran-
ielt þarf þess sannarlega ekki me'8
-atS því sé niörað, til þess aS hún
nái að skara fram úr. Röddin er
sú stærsta, sem hér hefir heyrst,
,og þar meÍS fylgir svo fullkomin
:æfing og kunnátta, aS ma’Sur verö -
Æir a'S undrást þá þrautseigju og
alt það erfiði, sem þar hlýtur að
'liggja á bak vi'ð. Þegar þar'við
’bætist hljómfegurS og fínn smekk-
ur í meSferð lags og ljó'Ss, þá er
Ijóst, að hér er samofin list og
'íþrótt, sem mentafúsu fólki er
skömm a'ð láta framhjá líða án
þess a'ð veita sérstaka athygli.
Rúmi'S leyfir ekki i þetta sinn a'S
fara inn á aukaatri'Si, enda munu
aðrir gera það. Þó er rétt að geta
þess, að ungfrú Granfelt haf'ði haft
sérstaklega orð á því, hve gott
•væri að syngja með undirspili Em-
ils Thoroddsen, og kvaðst ekki
hafa hitt fyrir jafnfjölhæfan me'ð-
leikara, nema suður i Þýskalandi.
Þá má líka benda á, að það sýn-
ast nú ekki líkur til þess, að ung-
frúin geti haldi'ð hér nema fáa
hljómleika. Hún hefir ákveðið að
fara til Norðurlandsins eftir helg-
ína næstu, og verði nú hart að
henni gengið með að vera koniin
til Helsingfors um mánaðamótin,
þá verður hún að halda áfram meS
fslandi út, þegar hún kemur a'ö
norðan. Næsti hljómleikur er á-
■kveðinn á föstusagskvöldið, að for-
fallalausu. H.
Ferfiapistlar.
19. maí. Eg hefi fengið leyfi
ik á skólainspektörnum hér til að
heinisækja barnaskólana, og það
hefi eg notað mér. í dag hefi eg
skoöa'ð einn stærsta og veglegasta
barnaskóla i Björgvin, Ny-Kron-
"borgarskóla. Við þann skóla er
overlerer, eða skólastjóri sem við
köllum, iir. Samland.
Skólinn er bygður af húsameist-
ara Kaspar Hessel 1923, og er tal-
inn einn allra fullkomnasti og besti
(barnaskóli á NorSurlöndmn. Þrír
enskir kennarar skoðuðu skóla
þeiman siðastliðið vor og sögðu aör
íkoðun lokinni: „Slikur skóli fyr-
irfinst hvergi á Englandi.“ Eg get
ekki hér í fám orðutn lýst þeim
margvislegu og nýstárlegu þæg-
índum er þessi merkilegi skóli hef-
ir upp á að bjóða.Eg á heldur eng-
in orð til að lýsa nógu vel hinum
framúrskarandi alúðlegu yiðtök-
,um, er skólastjórinn lét mér í té.
Iiann sýndi mér allan skólann og
skýrSi fyrir mér hvað eina. í kvöld
er eg kvaddi skólastjórann, bauð
thann mér að koma til sin kl. 8 á
morgtín og fara með öllum kenn-
urum skólans og nemendum i 6. ,
7. og 8. bekkjum upp í fjall til að
gróSursetja greni. -—
20. maí. Skógrœktardagur Ný-
krónborgarskóla. Eg vaknaSi kl.
7 og neytti litlaskattsins, bjó mig
út með nesti og nýja skó og lagSi
af staS til Ný-krónborgarskóla. —
Frá veitingahúsinu til skólans er
ca. 2yí km. Eg varð heldur seinn
<og varð því að taka bifreiö.Bif-
reiðin kostaði þó að eins 2,90 kr.
ÞaS er n.l. þrisvar sinnum ódýrara
að ferðast í bifreið hér en heima.
Eg kom í tæka tið. •— kl. 8Jú
hringdi skólabjallan, þá voru
saman komnir á leiksvi'ðinu netn-
endur úr 6., 7. og 8. bekkjum skól-
ans. Bömin hlupu þegar i raSir,
stóSu þar stilt og prúö og biðu
eftir skipun. Allir kennarar skól-
ans vom viðstaddir og áttu þeir
að leiðbeina börnunum viS plönt-
unina. Skólastjóri Samland steig
þvínæst fram á aðalsvalir skólans
og hélt stutta ræSu til kennara og
barna. — BauS alla velkomna og
mintist siðan á hvaða þýðingu
slíkur dagur (skógræktardagur-
inn) hefSi fyrir skólann, landið
ög þjóSina. Þessu næst sungu all-
ir þetta vers: „Min sjel, min sjel,
lov Herren, og alt hvad i mig er“
o. s. frv. Þá dundi viS hornablást-
urinn, og fylkingin gekk hring
um kring á leiksvæðinu, og siSan
af stað niöur götuna í áttina til
fjallsins semi átti a'ð klæða. Um
20 drengir á aldrinum 12—14 ára
blésu í hornin. Þeir skipu'ðu sér í
miSja skmSgönguna og léku
norsk þjóSlög. Tveir stærstu
drengirnir voru valdir til aS bera
norska fánann i fararbroddi. Þvi
næst gengu 2 og 2 ungar meyjar.
Allar báru þær litla plöntukassa,
með smáum greniplöntum í. Plönt-
urnar voru samtals 3000. Þvinæst
gengu 2 og 2 drengir. Allir báru
þeir haka. Þeir áttu að grafa hol-
ur fyrir plönturnar, en meyjarnar
áttu að planta.
Alls fóru í þennan leiðangur 200
skólastúlkur, 160 drengir, og 34
kennarar, konur og karlar.
Þegar komiS var á áfangastað-
inn, byrjuðu börnin þegar á starf-
inu. Kennararnir leiðbeindu þeim
i fyrstu, en létu þau svo afskifta-
laus. Eftir einn klukkutíma var
starfinu lokið. Þá settust allir að
. snæðingi. Allan tímann, meSan
staðið var við, lék hljóöfæra-
sveitin. Er allir voru mettir, var
haldið af stað heimleiðis. SkrúS-
göngunni var haga'ð eins og fyr, en
nú gengu þó drengirnir á undan.
Er komið var heim áö skóla, skip-
uðu börnin sér i ra'Sir, og gengu
síöan, bekkur eftir bekk, inn í skól-
ann og skiluöu plöntukössunum
og hökunum. Tóku sér því næst
stoðu á leiksvæðinu.
Þá er þessu var loki’ð, steig
skólastjóri Samland fram á aðal-
svalir skólans, og bað mig taka
mér stöðu hjá sér. Fyrst talaSi
hann nokkur orð til bamanna um
hiS vel unna starf og vinnugleöina
í sambandi við það. Þvi næst mint-
ist hann á hið óvenjulega við skóg-
ræktardaginn að hafa islenskan
gest með í förinni. Hann sagði í
fáum, skýmrn orðum frá íslandi
og íslendingum. Sagði m. a. frá
íslenska fánanum, og fór um hann
nokkurum orðuin. Því næst minti
hann börnin á að sagnaritarinn
Snorri Sturluson hefði verið ís-
lendingur, og að Islendingar
hefðu geymt allar hinar gömlu
sögur frá fslandi og Noregi, og
þá um leið sögu Noregs um marg-
ar aldir. Fyrir þetta kvað hann
alla norsku þjóðina standa í
ævarandi þakklætisskuld viS ís-
lendinga, og hann fullyrti, að
Noregur væri ekki það sem hann
er nú í dag, ef íslendingar hefðu
ekki verndað og geymt sögu hans.
Nú kvað hann sér og sinum
skóla liafa gefist tækifæri til að
láta í ljós þakklæti sitt. Þá talaði
hann nokkur orS til mín og- þakk-
aSi mér fyrir komuna, bað siSan
öll börnin a'ð hrópa hátt og snjalt
„tre gange tre hurra“ fyrir fslandi
og íslendingum.
AS þvi búnu spurði skólastjóri
bömin og kennarana um, hvort
hann mætti ekki biðja mig að
flytja góða kveSju heim, vestur yf-
ir hafið, til íslenskra barna og ís-
lenskra kennara, frá börnum og
kennurum við’ Ny-Krónborgar-
skóla. — Því var játaö af glöðum,
innilegum barnaröddum. Hér var
ekkert orðagjálfur. Það var auð-
fundið, að kveðja norsku barnanna
og kennaranna var sönn vinar-
kveöjá. — Aö þvi búnu talaði eg
nokkur orð og þakkaði fyrir dag-
inn, viStökurnar, og hin hlýju
orð er falliS höfSu i garð lands
míns og landa minna. Kveðjuna
kvaSst eg skyldi flytja glaður i
huga, og henni skila eg nú til
þeirra islenskra kennara og barna
er kunna að lesa þessi skrif mín.
Þessu næst sungu allir „Gud
signe vort dyre Fædreland" o. s.
frv. Siðan héldu allir hver heim til
sín, -glaðir í huga.
Á heimleiðinni frá skólanum
spurði eg skólastj. um ástæSuna
til þess, að norska þjóðin vandaði
nú oröiS svo mjög til barnaskól-
anna og byggi svona vel í haginn
fyrir kennarana. — Hr. Samland
kvað ekkert vera sparað nú oröiS,
er barnaskólarnir ættu í hlut. Á-
stæðuna kvaS hann vera þá, að
þvi betri sem skólarnir væru, því
meiri væri hinn sýnilegi árangur
af starfi kennaranna. Einnig sagði
hann að þaS væri stórt, politiskt
atriöi, sem hinir ráðandi menn i
landinu fylgdu fast fram, að allur
uppvaxandi æskulý'öur Noregs
gengi í barnaskóla ríkisins. — „Þá
verða fátæku og ríku börnin skóla-
systkini," sag'ði hann. Kvað hanii
hafa verið bættan hag barnaskól-
anna, er ákveðið var að láta gott
próf úr 7. bekk gilda sem inntöku-
próf í Mellemskole. •— Eg tók
þessu svari með þögn, en hugsaöi
heim — heim til ihaldsstjórnar-
innar íslensku, íhaldsþingmann-
anna og afstöðu þeirra til íslenskra
kenslumála og íslensku kennara-
stéttarinnar.
Arngr. Kristjánsson.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavik 12 st., Vestm,-
eyjiun 10, ísafirði xi, Akureyri 13,
Seyðisfirði 14, Grindavik 11,
Stykkishólmi 12, Grimsstöðum 12,
Hólum í Homafirði 13, Þórshöfn
í Færeyjum 12, Angmagsalik 12,
Kaupmannahöfn 18, Utsira 11,
Tynemouth 15, Wick 13, Jan May-
en 5 st. — Mestur hiti hér í gær
12 st. — Úrkoma mm. 0,4. — Loft-
vægislægð fyrir suðvestan land á
leið til norðurs. Horfur: I d a g:
Landsynningur, allhvass, og rign-
ing við suðvesturland. — Vaxandi
landsynningur og rigning á VesG
urlandi. Hæg sunnan átt og dálítil
rigning á Norðurlandi og Austur-
landi. I n ó 11: Landsynningur og
alskýjaS loft. ■— Regn, einkum á
SuSurlandi og Vesturlandi.
Landkjörsseðlar
voru taldir i gær, og urðu úrslit
þessi: A-listi .hlaut 3164 atkv., B-
listi 489 atkv., C-listi 5501 atkv.,
D-listi 3481 atkv. og E-listí 1312
atkv. Kosnir voru: Jón Þorláks-
sou, Magnús Kristjánsson og Jón
Baldvinsson.
Botnia
fer til útlanda í kveld kl. 8. —
Meðal farþega verða: Jón Þor-
láksson, forsætísráöherra og frú
hans, Klemens Jónsson, fyrv. ráð-
herra, frú Valgerður Benedikts-
son, Björn Gunnlaugsson læknir
og frú lians, Fritz Kjartansson,
kaupmaður og Jón Gunnarsson,
bókari, til Parísar, Björn Björns-
son, frú Steen Bjarnason, frú J.
•Fanöe og tvö börn hennar, ungfrú
Lilja Sölvadóttir, Dagny Mohr og
fjöldi útlendinga.
Þýsku vísindamennimir,
Dr. Fr. Dannmeyer og Dr. I.
Georgi, komu hingað á Botniu frá
Vestfjöröum, og fara utan í dag.
Þeir hafa um þriggja vikna skeiö
rannsakað vindmagn og sólgeislan
á fjallinu Rit, og eru vel ánægðir
með árangur fararinnar. Verður
tilraunum haJþi'S áfram næsta sum-
ar. Þeir hafa beðiö Vísi aS flytja
kærar þakkir til allra, sem greiddu
götu þeirra hér, og nefndp til þess
einkanlega landstjómina, veður-
stofuna og þýska aðalkonsúlatið,
og auk þess ýmisa einstaka menn.
v* - ...
Herskipið Fylla,
sem er nýkomið norðan frá Jan
Mayen, undir yfirforustu land-
varnarráðherra Rasmussen, hafði
boð úti á skipsfjöl í gærkveldi, og
voru gestirnir úr landi á milli 40
og 50. Ldndvarnarráðherrann
mælti fyrir minni íslands og lof-
aði landsmenn mjög fyrir gest-
risni. Tók hann fram, hve stór-
stígar framfarir fiér heföu verið á
öllum sviðum, fyrst og fremst í
sjávarútveginum, í siglingum
landæ á milli, í vegagerð og brúa,
og nú væru menn hér í alvöru fam-
ir að hugsa um landbúnaðinn, þar
væru grafnir stórfeldir áveitu-
skurðir og byrjað nýtt búskapar-
lag á sumum stöSum, i stórum stíl.
Ráðherranum þótti mjög um þaS
vert, aS íslendingar nú væru orðn-
ir friðarins menn, — sem þeir ekki
hefSu veríð áður, — en alþjóða-
friðurinn væri framtíöar hugsjón
heimsins. — Borgarstjóri Knud
Zimsen mælti fyrir minni Dan-
merkur, og lagði aöaláhersluna á
danska gestrisni, bæði varS hann
hennar var á námsárunum, og svo
heföi hann ferðast um Danmörku
þvert og endilangt, og sjer hefði
ávalt verið tekið með opnum örm-
um, bara vegna þess, að hann væri
íslendingur. — Dr. Kort Kortsen,
sem nú er hinn eiginlegi sendiherra
Dana, meðan de Fontenay er fjar-
verandi, kynti íslensku gestina
fyrir landvarnarráðherranum. —
Einn af sjóliðsforingjunum lýsti
islensku hestunum og unni þeim
alls hróss. Hann hafði fyrir ao
árum farið frá Akureyri og norð-
ur að Goðafossi, og reið þá allar
ár, og þótti þar jafnvel kenna vos-
búðar. Nú, þegar hann fór sömu
leiðina, og kom að þesstun ám, þá
voru þar brýr. ÞaS er stutt lýsing
og skýr, af íslenskum framförum
síöusfu 20 árin.
Kristján Þorgilsson,
frá Sökku í Svarfaðardal, einm
af glímumönnunum fjórum, sem
utan fóru 1909—10, og sýndu ís-
lensku glímuna víðsvegar í Ev-
rópu, er hér á ferS meS es. Botniu,
ásamt konu sinni og 2 dætrum.
Hann hefir verið í kynnisför í átt-
högum sínum, SvarfaSardal. Hann
er búsettur í Kaupmannahöfn. •
Kvenfélag fríkirkjusafnaðarins
hér í bænum fer skemtiför til
Þingvalla föstud. 6. þ. m. kl. 10
árdegis, ef veður leyfir. Sjá augh
Magister Carl H. Lindroth
heitir ungur, sænskur vísinda-
maður, sehi'dvelur hér í bæhrnn
sem stendur. Hefir hann ferðast
um landið aS undanfömu. Til
ferðalaga sinna hefir mag. Lind-
roth fengið styrk frá „Stockholms
Högskula“, og mun aSalmarkmi'S
hans aS rannsaka skordýralífi'S hér
á landi. . J.p
íslandssundið
fer frarn sunnudaginn 8. ágúst
og hefst kl. 4 síðd. Þá verður einn-
ig kept um „Sundþrautamerki I.
S. í.“ Auk þess verður sundsýn-
ing, báti hvolft o. fl. Þátttakendur
í íslandssundinu eru beðnir að
gefa sig fram við sundskálavörð-
inn, í síðasta lagi á fimtudags-
kvöld. — Sundmenn og sundvinir!
Munið framhaldsstofnfund „Sund-
félags Reykjavíkur" í kvöld kl. 8
í Iðnó.
Gengi erl. myntar.
Sterlingspund ......... kr. 22.15
100 kr.' danskar ...... — 120.91
100 — sænskar ............— 122.12
too — norskar — 100.00.
DolIar ................ — 4.56JÍ
100 frankar frgnskir .. — 13-57
iOö — belgiskir —• 12.70
100 — svissn. k... — 88.44
100 lírur ........., — 15.17
100 pesetar ............. — 69.94'
100 gyllini ............. _ 183.54
100 mörk þýsk (gull) — 108.63
Trúlofun
sína hafa birt nýlega ungfrú
Anna Guðmundsdóttir, ljó.smynd-
ari, og Páll Þorleifsson, verslunar-
maður, sonur Þorleifs Jónssonar,
póstmeistara.
Gamla Bíó.
Þar er nú sýnd mynd, sem „Ar-
abinn“ heitir. ASalhlutverk leika
þau Alice Terry og Ramon No-
varro.
Nýja Bíó
sýnir nú bráðskemtilega mynd,
þar sem Harold Lloyd leikur aðal-
hlutverkið. — Harold Lloyd er æf-
inlega skemtilegur, en skemtilegxi
en i þessari mynd hefir hann víst
aldrei verið. Ahorfendur, jafnt