Vísir - 26.08.1926, Blaðsíða 2
VÍSIR
Höfum nú fyrirliggjandi:
Ktffibetir ..Lndvig Dwid “
Kakao „Bensdorps."
ON & CO.,
PRESERVENE
þrottasápan
er hrein sápa öll í ge«n og því gersamlega óskaðleg þvott-
inum. Hreinsar þvottinn á skömmum tima betur en nokkur
önnur þekt sáputegund. Tekur öllum þvottaefoum fram.
Biðjið nm Preservene og farið eftir
notkunarregluiíum.
Símskeyti
—o—-
Khöfn 25. ágúst. FB.
Kolaverkfallið í Bretlandi.
Símaö er frá London, að miklu
færri námamenn hafi samið sér-
frið en búist var vit), þegar frið-
arsamningarnir mishepnuðust. —
Þrjátíu þúsundir námamanna eru
farnir að vinna, en heil miljón
heldur áfram verkfallinu.
Látinn kvikmyndaleikari.
Síma'S er frá New York, aS
kvikmyndaleikarinn Rudolphe
Valentino sé látinn. HafSi hann
verið hættutega veikur síöan um
miðbik mánaöarins. Valentino —
eða Guglielmi eins' og hann hét
réttu nafni, — var 31 árs, og var
til skams tíma einhver frægasti
kvikmyndaleikari heimsins. Fjöldi
manna streymir a‘S, þar sem hann
liggur á börunum, til þess að láta
hrygð sína í ljós.
Dómur í seðlafölsunarmálinu.
Símað er frá Budapest, að hæsti-
réttur hafi staðfest dóminn í seðla-
fölsunarmálinu. — Windisch-
Grátz og Nadossy fá fjögra ára
fangelsi.
Fiskirpnnsóknir.
Viðtal við hr. Bjama Sæmundsson.
—o---------------
Hr. Bjarni Sæmundsson, fiski-
fræðingur, kom heim um miðjan
þenna mánuð úr rannsóknarför
þeirri, sem hann fór á Es. Dana,
og 'hefir Vísir hitt hann að máli
og spurst fyrir um árangur farar-
innar.
„Eg lagði af stað héðan 21.
júní“, segir hr. B. S., „og fyrstu
vikuna, eða vel það, vorum við að
rannsaka fiskalíf hér í flóanum,
frá Hvalfjaröarbotni út i Garðsjó.
Þær rannsóknir voru einkum í því
fólgnar, að athuga fiskamergð ut-
an og innan landhelgi á þessu
svæði, og árangurinn varð svipað-
ttr eins og áður, að meira var af
íiski innan landhelgi, einkum af
kola.
Þegar þessum rannsóknum i
Faxaflóa var lokið, komum við
hingað til Reykjavíkur, til þess
að sækja magister P. Jespersen,
sem þá var nýkominn hingað, og
átti að taka við forystu síldar-
rannsóknanna, en annars var mag-
ister Táning foringi leiðangursins,
því að prófessor Dr. Johs. Schmidt
kom ekki hingað að þessu sinni,
eins og þó var ráðgert í fyrstu.
í byrjun júlí héldum við svo
vestur og norður fyrir land, aðal-
lega til þess að rannsaka síldar-
göngur og síldarátu. Við þær
rannsóknir reyndum við veiðar-
færi, sem ekki hefir verið reynt
hér áður. Það er síldar-hleravarpa
(trawl), sem draga má djúpt eða
grunt i sjó, eftir því, sem vill.
Hún reyndist fremur illa, og virt-
ist ekki koma Ihér að haldi, þar
sem djúpt var, en ef til vill gæti
hún reynst sæmilega á grunnsævi.
Við héldum viðstöðulitið norð-
ur fyrir land og höfðumst þar við
allan júlímánuð, hér og þar milli
Horns og Rifstanga, bæði djúpt
og grunt. Síldveiði var heldur lít-
il og síldar-áta í minna lagi. Veðr-
átta var óhagstæð, oftast nokkuð
stormasamt, einkum af suðvestri.
Við fengum þó síld við og við
í reknet, eða lagnet, og auk þess
fengum við nóga síld til rann-
sókna hjá fiskiskipum, bæði ís-
lenskum og norskum, og var hún
fúslega látin í té og ókeypis.
Skipstjórar á íslenskum og
norskum skipum fengu hjá okkur
háfa, til þess að veiða með síldar-
átu, hitamæla til þess að mæla
sjávarhita, og ílát undir síldar-
maga, í þeim tilgangi, að veiðin
úr háfunum og innihald maganna
yrði rannsakað síðar, er það væri
komið til Khafnar.
Hvað er að segja um sj ávarhit-
ann í sumar?
„Hann reyndist mun meiri en
verið hefir um sama leyti á und-
anförnum árum, einkum þegar
kom austur fyrir Skagagrunn og
alt austur að Sléttu, bæði djúpt
og grunt. Yfirborðshiti var mest-
ur 11—12 stig, þar sem áður hefir
verið 7—8 stiga hiti um sama leyti
árs.“
Urðu þiö varir við ís?
„Um 30 sjómílur út af Kögri
komum við að samanbarinni ís-
hellu, sem ekki sást út fyrir, en
áð öðru leyti urðum við varla var-
ir við ís.“
Voru rannsóknir gerðar um önn-
ur atriði en þessi?
„Já, á nokkrum stöðum voru
gerðar botnrannsóknir. Til þeirra
er notað verkfæri, sem kent er við
kunnan danskan vísindamann, dr.
C. G. J. Petersen. það eru eins-
konar járn-samlokur, sem hleypt
et til botns, þar sem sandur eða
leir er undir. Sökkva „samlokurn-
ar“ opnar á kaf í botninn og Iykj-
ast saman, þegar í þær er tekið,
og halda því föstu, sem þær hafa
gleypt. Það, sem upp kemur, er
svo vandlega rannsakað, dýrin að-
skilin og alt ætilegt úr þeim tekið
frá og vegið nákvæmlega. Á þann
hátt má sjá, hversu mikla nær-
ingu fiskar geti fengið úr hverjum
teningsmetra botnlagsins,, að sínu
leyti eins og finna má fóðurgildi
í túnum eða haglendi. Þetta atriði
getur orðið merkilegt, þegar nægi-
leg gögn hafa fengist."
Eundu þið nokkurar nýjar fiska-
tegundir í sumar?
„Nei, engar nýjar, en einn fisk-
ur veiddist, sem ekki hefir áður
fengist innan þeirra takmarka
(400 m. dýpis), sem talin eru
•heimkynni íslenskra fiska. Hann
fékst utantil við þessi takmörk.“
Hvar lauk rannsóknunum. að
þessu sinni?
„Við fórum fyrir Langanes um
siðustu mánaðamót, komum 1. á-
gúst til Seyðisfjarðar og 2. ágúst
til Norðfjarðar. Við mældum sjáv-
arhita úti fyrir Seyðisfirði og
reyndist hann meiri en undanfar-
in ár.---„Dana“ fór frá Norð-
firði til Færeyja 2. ágúst, en eg
varð eftir á Norðfirði 0g beið
skips eystra í 9 daga. Eg skoðaði
síld á Norðfirði og Eskifirði, sem
bæði hafði veiðst þar ognorðurvið
Langanes. Hún var yfirleitt mis-
jöfn, bæði millisíld og smásíld,
vorgotin eða nýgotin (sumargot-
in). Vorgotna síldin var feitust,
en nýgotna síldin heldur mögur.
— Á heimleiðinni, á Es. Esju, sá
eg mikið af hnísu fyrir suður-
strönd landsins, margar háhymur
og nokkur stórhveli, (sandreyðar,
eða Katthveli?) í Hafnasjó. — í
Reykjanesröst sá eg einn beinliá-
karl, og annar mun hafa sést úti
fyrir Austfjörðum, af mótorbát
frá Norðfirði, meðan eg dvaldi
'þar.“
Leiðréttiug.
Herra ritstjóri.
í síðasta blaði „Varðar“ ritaði
eg grein um fiskiveiðar vorar við
Grænland. Efni greinar þessar er
að miklu leyti rakið í blaði yðar i
dag og hefi eg ekkert við það að
athuga. Aftur á móti verð eg að
mótmæla þeim orðum, að Vörður
„hafi kosið sér það hlutskiftið, að
afsaka nýlendustjórn Dana á
Grænlandi.“
Eg gerði hvorki að afsaka né
ásaka nýlendustjórnina. Eg vildi
að eins ekki gera henni neinar
getsalcir að órannsökuðu máli. Þá
fvrst, er Danir hafa heyrt kvart-
anir vorar út af þessari umræddu
tilhögun Grænlandsveiðanna, og
svarað þeim, er tími til kominn að
dæma um hvern hug þeir bera til
vor i þessu máli.
Þangað til ættum vér, sem sam-
mála erum um aðalatriði málsins,
að forðast allar óþarfa ýfingar.
Virðingarfylst
Árni Jónsson
frá Múla.
Aths.
Núverandi ritstjó'ri „Varðar“,
hr. Arni Jónsson frá Múla, neitar
þvi i ofanskráðri „leiðréttingú“,
'að hann hafi „kosið sér það hlut-
skiftið, að afsaka nýlendustjórn
Dana á Grænlandi.“ — Segist
hann hvorki hafa afsakað né
'ásakað.
1 nefndri Varðar-grein er kom-
ist svo að orði, um leið og skýrt
er frá ókjörum þeim, sem í boði
eru okkur til handa af hálfu ný-
lendustjórnarinnar: „Verður að
álíta, að hér sé að eins um vangá
að ræða“. — Og fáum línum neð-
ar í greininni segir ennfremur:
„Ekki er að efa, að Danir hafa
gert þessar breytingar á Græn-
landsmáiunum af góðum hug til
vor.“
Fyrri klausan, um „vangá“ ný-
lendustjórnarinnar, verður tæp-
lega skilin öðruvísi en sem afsök-
un. —■ Nýlendustjórninni hefir,
samkvæmt skoðun blaðsins, með
einhverjum hætti orðið sú skyssa,
sakir þess að hún gætti sín ekki
(„af vangá“), að ætla okkur lak-
ari aðstöðu þar vestra, en hún
mundi hafa kosið, ef henni hefði
verið allskostar sjálfrátt.
Síðari klausan, að nýlendu-
stjórnin hafi „gert þessar breyt-
ingar af góðum hug til vor“, tek-
ur af allan vafa um hugarþel
blaðsins og traust á dönskum
stjórnarvöldum.
Frá fundum
bindindis- og bannvina í Dorpat.
—o--------------
Brynleifur Tobíasson stórtempl-
ar var meðal farþega á Botníu
síðast. Kom hann frá bindindis-
cg bannvinafundinum, sem var
haldinn dagana 18.—29. f. m, í
Dorpat (Tartu) á Eistlandi. Áður
en Brynleifur fór norður aftur,
báðum vér hann að segja oss frá
fundinum og leysti 'hann vel úr
því.
Dorpat, þar sem fundarstaður-
inn var að.þessu sinni, er bær með
50 þús. íbúum og er eini háskóla-
bær í Eistlandi. Fundarhöldin
hófust með norrænu móti, þar sem
voru samankomnir 180 fulltrúar
frá 7 þjóðum. Auk Norðurlanda-
þjóðanna fimm, tók Eistland og
Lettland þátt í þessu móti. Forseti
var Jaan Tönisson fyrv. forseti
Eistlands. Ýmsir fyrirlestrar voru
haldnir, en merkilegur fyrirlestur
fórst fyrir vegna þess að forsætis-
ráðherra Svía, Ekman, sem er
formaður bannvinasambandsins
sænska, gat ekki komið.
Brynleifur Tobíasson var eini
íslendingurinn á mótinu og hélt
hann þar fyrirlestur um áfengis-
málið hér á landi, ástandið eins og
það er nú og horfur. Erindi þetta
var all-langt.
Stjórnin í Eistlandi hafði veitt
18000 sænskar krónur til fundar-
háldanna, en auk þess voru fund-
armönnum haldnar veislur stótar.
Auk norræna mótsins voru ýmsir
aðrir fundir haldnir þama í sama
mund, svo sem alþjóðafundur
Hvítabandsins, aðalfundur alheims
bannfélagsins, sem hefir bækistöð
sína í London, aðalfundur alheims-
félagsins gegn áfengisbölinu, sem
hefir bækistöð sína í Lucarno í
Sviss, en tilkomumestur var þó
alheimsfundur bindindis- og bann-
vina, sem stóð yfir dagana 22.—29.
f. m. eftir að norræna fundinum
var lokið. Þar voru saman lcomnir
43° fulltrúar frá 26 löndum víðs-
vegar um álfurnar, að Ástralíu
undantekinni. Forseti þessa móts
var próf. P. Pöld, uppeldisfræð-
ingur í Dorpat. Ýmsar ríkisstjórn-
ir höfðu sent fulltrúa sína á mót
þetta, þar á meðal ísland, kom
Brynleifur fram fyrir hönd stjórn-