Vísir - 31.08.1926, Side 2

Vísir - 31.08.1926, Side 2
NlMR .mmrnmmmtmmrm** n M. mTOWgMroBMMlWmm I l.n\m.m.W.mPPMWjMWWyWW D IMaTHaM & Qlsem Höínm nú fyrirliggjandl: Kaiiibæiir .Xndvig David.“ Kakao „Bensdo?ps/‘ flHoiieri«a Búttnotorf r L' 2-0 4-cyi >o. 4-takt upl W tUv 3 hkr. 3 t 8 * W 28B> 389:- 108:-, ttíO:-, 7m>, ftS»> Páhlngsmttarer, 288 tr 8mt (MtorWttv Pr.iUtstta, s»i >t«Uea(n antorer hiiOftt PrisV ft* foh. Sreasoa, Safci, S»«e/7,g». Símskeyti Khöfn 30. ágúst. FB. Bretar og Spánverjar. , SímaS er frá London, aS bresk blötS telji, aö breskum yfirráöum yfir Gibraltar sé hætta búin, ef einstakt ríki fái yfirráöin yfir Tan- gier. — Samkvæmt spansk-franska samningnum, er geröur var í Mad- rid 1912, tilheyrir Tangier ekki spanska Marokkó-svæSinu, heldur var þaö sett undir stjórn interna- tional nefndar. Stafar þessi beigur í bresku blöðunum vafalaust af því, aö fengi eitthvert öflugt ríki yfirráöin yfir Tangier, gæti þaö gert þar öflugar víggirSingar, einsi og Bretar hafa gert á Gibraltar, — sem hingað til hefir veriö nefnt „lykillinn aö Miöjaröarhafinu“. Nú styöja ítölsku blööin kröfu Spán- verja, — eöa Rivera, — um að Tangiermálið veröi tekið til athug- unar. Voru þau því hlynt hugmynd sRivera.um ráöstefnu um Tangier- málið í Genf. En nú hafa Frakkar neitað að taka þátt í slikri stefnu, — en þeir munu frekar kjósa nú- verandi aðstöðu í Miðjarðarhafinu, heldur en að ítalir og Spánverjar færðu sig þar upp á skaftið. Utan af landi. Akureyri, FB. 30. ágúst. Sildveiðin í Akureyrarumdæmi síðustu viku: 2402 tunnur af salt- síld og 108 af kryddsild, alls yfir vertíðina 16.000 tunnur af saltsild og 2200 af kryddsild. — Á öllu landinu hefir aflast 73.282 tunnur af saltsíld og 23.939 af kryddsíld. En á samt tima í fyrra: 206.329 tunnur af síld í salt, en 31.547 í krydd. Veðráttan: Hrakviðri í gær. í dag snjóaði i fjöll. Kvenskór mjög fjölbreytt úrval Verðið mikiö lækkað. Hvaiberflsbræður. Krossviðui* úr eik, mahogni, birki og elri. Þykt: 3, 4, 5, 6, 8, 9, 10 mm. Lágt verð. liiidvig Storr, Sími 333. frá finimli. Grænlensku fiskimiðin. —0— v, Þess var .getið hér á dögunum, er fréttist u'm hafnarleyfið fyrir ís- lensk fiskiskip í Ravns Storö á Grænlandi, að ekkert siglingakort yfir Grænlandsströnd væri fáan- legt hér á landi. Að líkindum er það af ókunnugleik, að þetta var skrifað, því sannleikurinn er sá, að sjókort yfir vesturströnd Græn- lands eru til hér í bænum, að minsta kosti í einum ef ekki fleir- um stöðum. Þegar kort þessi eru athuguð, kemur berlega i ljós, hve höfnin, sem íslendingum hefir verið út- mæld af Grænlandsstjórn er illa í sveit komið, og hve miklu ákjós- anlegra hefði verið að fá höfn nær fiskimiðunum. Alt þetta kemur heim við það, sem Grænlandsfar- inn Einar Mikkelsen lét hafa eftir sér. Á sjókortinu er ekki einu sinni tilfært nafnið á Ravns Storö, en að líkindum mun eyjan vera stærri eyjan af tveimur, sem tilgreindar eru á kortinu með heitunum nyrðri og syðri Stórey. Syðri eyjan er 785 feta há, en hin 140 fet, og báðar eru eyjurnar litlar um sig. Ef rétt reynist, að þarna sé höfn- in, sem Grænlandsstjórn hefir „opnað“ handa íslendingum, þá mun víst mörgum þykja litið land- rýmið. Beint út af eyjunum er 100 feta dýpi, en 45 sjómílur norður af þeim er sandalda eða hryggur með 43—47 feta dýpi. Þá tekur við ókannað svæði, en þar norður af, hér um bil 90 sjómilur norður af eyjunum taka fiskimiðin við, og ná þau yfir 120 mílna svæði nbrð- ur eftir. „Tre Brödre Havn“ liggur mitt fyrir Fyllubanka, en þaðan eru kringum 4o*sjómílur til Gcjþthaab, þar sem er loftskeytastöð, sem hef- ir samband við stöðina hér. Beint út af Godthaab er nyrsti hluti Fyllubanka, með dýpi upp * 42 fet, en botninn er þar eins og annars- staðar á bankanum, sandur og skeljasandur. Norður af Fyllu- banka er „Lillehellefiskebank", rneð' dýpi frá 21 feti og upp í 43 fet. Þar er leir í botni, auk sands og skelja. Miklu meira mætti lesa út úr sjókortunum.af fróðum mönnum, En það, sem sagt er hér að ofan, er sett til þess að gefa almenningi svolítið skýrari hugmynd um framtíðar-fiskimiðin grænlensku. * kennari dvelst utanlands um þess- ar mundir i ýmsum erindagerðum fyrir stúdenta hér og stúdenta- ráðið, eins og getið hefir verið um í blöðunum. — Var hann i Noregi snenmia í þessum mánuði og hafa sum blöðin þar haft tal af honum, svo sem „Den I7de Mai“, „Tidens Tegn“, „Nationen" o. fl. — Hefir L. G. sagt blöðunum alt af létta um félagsskap stúdenta hér, stú- dentaskifti „Mensa academica", væntanlegan stúdentagarð, opin- berar styrkveitingar til stúdenta o. s. frv.. Segir hann, sem rétt er, að hingað hafi kornið „í skiftum“ norskir, danskir og þýskir stú- dentar. — L. G. er formaður upp- lýsingaskrifstofu stúdentaráðsins og aðalhvatamaður þess, að hún var sett á fót (1920). Hann er og formaður stúdentagarðsnefndar- innar og yfir höfuð mun hann um langt skeið hafa verið lífið og sál- in í öllum félagsskap súdenta hér og framkvæmdum. — Frá Noregi ætlaði L. G. til Svíþjóðar og ráð- gerði að koma við í Uppsölum, Lundi og Stockhólmi og hafa ein- hverja viðdvöl á öllum þessum stöðurn. —• Frá Svíþjóð var ferð- inni heitið til Danmerkur, en það- an til þýskra og austurríkskra há- skólabæja. — Kvað hann erindi sitt einkum vera það, að kynnast af eigin sjón stúdentalífinu, eins og það gerist nú á dögum, félags- skap stúdenta ýmiskonar og sam- vinnu, ekki síst að því er viðkem- ur stúdentaskiftum og öðru þess- háttar. Viðtalinu í „Den I7de Mai“ fylgja margar myndir héðan, svo sem af alþingishúsinu, dómkirkj- unni, stjórnarráðshúsinu, styttu Jóns Sigurðssonar og ungum stú- dentum á Þingvöllum. Ludvig Guðmundsson er vænt- anlegnr hei'm í næsta mánuði. X. I. Síðastl. laugard. flutti Mbl. greinarstúf með fyrirsögninni „Norræn tunga“. Var grein þessi rituð í svipuðum anda og oft vill brenna við hjá blaði þessu, þá er um er að ræða ýms þau atriði norsks þjóðlífs og menningar, sem blaðinu er ókunnast um. Er rétt- ast að leiða þessháttar skrif sem mest hjá sér, en að þessu sinni er það eigi fært. Mbl. talar hér fyrir munn landa sinna yíirleitt, án þess þó að séð verði, hvaðan því komi umboð til þess. Og að þessu sinni kryddar það fáfræði sína óbil- gjörnum stóryrðum og megnri ó- kurteisi. Tilefni greinar þessarar í Mbl. kvað vera grein ein, er frú Hulda Garborg, skáldkona (ekkja Árna Garborg) hefir ritað fyrir skömmu í „Tidens Tegn“. Virðist frúin þar hafa látið í ljósi, að æskilegt væri, að frændþjóðirnar norrænu gætu nálgast svo hver aðra í rithætti tungu sinnar, að þær skildu hver aðra auðveldlega. Segist Mbl. svo frá, að frú G. muni ætlast til, að íslendingar og Færeyingar „kasti JOH. OLAFSSON. REYKJAVIK. LUCANA u Virgícia Cigarettur tungu sinni og taki upp nýnorsku.“ Fer þó all fjarri því, að þessa skoðun megi lesa út úr þeim orð- um frúarinnar, er Mbl. tilfærir máli sínu til sönnunar. Skal eigi fjölyrt frekar um þetta atriði, þar eð eg hefi eigi séð þessa umræddu ■grein frú G. Enda skiftir það i sjálfu sér eigi miklu máli. (Öðru máli væri að gegna, hefði frú G. gert árás á tungu vora og hall- mælt henni. Myndi eg þá sxðastur manna hafa orðið til þess að taka svari hennar). —• Frú Garborg h.efir auðvitað fult leyfi til að láta í ljósi hvaða skoðun sem er i þessu máli sem og öðru. Og hafi hún íitað eitthvað í þá átt, sem Mbl. gefur í skyn, er oss íslendingum innan handar að fræða hana um það með fullri einurð og sjálf- sagðri kurteisi, að slíkar tillögur teljum vér fjarstæðu frá voi-usjón- armiði, og færa að því full rök, til frekari áréttingar. Myndi vegur vor 0g tungu vorrar vaxa af því svari. En höfundur Morgunblaðs- greinarinnar er ekki þeirrar skoð- unar. Hann hefir eigi lesið í Kon- ungsskuggsjá um kurteisi og góða siðu sem sjálfsagða skyldu þeirra, er drengir vilja teljast. Ruddaleg- ur ribbaldaskapur er skjaldarmerki þessa riddara í viðureign hans við merka konu erlenda, og hlífar hans eru : ótakmarkað þekkingarleysi á máli því, er hann gerir að umræðu- eíni. Fer hann unx tungu frúar- innar (nýnorskuna) illum orðum og háðulegum, kallar hana hið versta „hrognamál“ etc. Hver er svo þekking þessa mál- fróða höfundar á tungu þeirri, er hann dæmir svo hart? Að því fær- ir grein hans sjálfs órækar sann- anir. Tekur hann sér þar fyrir hendur hið málfræðislega þrek- virki að fara með 1 — eitt einasta' — nýnorskt orð upp á eigin spýt- ur (og hefir það þó til vara fyrir ’ framan sig, prentað, í T.T.), og fer rangt með. Hér er alls eigi um prentvillu að ræða. Hann þrí- tekur orð þetta vitlaust, og er þó eigi um þyngri þraut að ræða en að kunna skil á eintölu og fleir- tölu hvorugkyns nafnorðs. Ætla eg engan clóm að leggja á mál- fræðisþekkingu þessa sérfræðings. Hún dæmir sig sjálf. Er og eins og að hann renni grun í þetta, og seilist ]xví til hurðarlokunnar um öxl eftir frekari gögnum. Til- færir hann ummæli( ?) eftir norska rithöfundinn Hans E. Kinck, er fara í þá átt, að nýnorskan sé eigi tunga fyrir menningarþjóð. Hún geri menn „smásálarlega, þröng- sýna og ómóttækilega fyrir utan- aðkomandi menningarstraumk." Mun eg víkja lítið eitt nánar að, rieggjudómi þessum í síðari kafla greinar minnar. Vík eg því að öðru atriði að sinni:

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.